Morgunblaðið - 05.12.1962, Qupperneq 12
12
MiíMkudagur 5. des. 1982
MORGUTSBLAÐ1Ð
1
JMropntMðHfr
Otgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og algreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands.
f lausasölu kr. 4.00 eintakið.
SKIPULAGT SMYGL
C’in af ferðaskrifstofunum í
^ höfuðborginni hefur látið
þau boð út ganga, að hún
muni beita sér fyrir verzlun-
arferðum til útlanda og að-
stoða fólk við innkaup hvers
kyns varnings þar. Þetta lít-
ur ef til vill sakleysislega út
við fyrstu sýn, en þegar bet-
ur er að gáð, þá er hér í raun
réttri um að ræða skipulagt
smygl.
Það er alkunna, að til
skamms tíma gerðu flestir
þeir, sem til útlanda fóru,
meiri og minni innkaup, eink-
um á fötum, skóm og ýmsum
smávarningi til eigin nota og
fyrir fjölskyldu sína. Þar að
auki var svo þessum varningi
smyglað í stórum stíl til sölu
hér innanlands. Smyglið
byggðist á því, að tollar á
þessum varningi voru mjög
háir og hann því dýr hér á
landi, auk þess sem tíðum
var skortur á helztu nauð-
synjavörum meðan við bjugg
um við haftakerfið og óstjóm
„vinstri stefnunnar". í fyrra
voru tollar á slíkum varningi
stórlega lækkaðir, samhliða
því sem innflutningsfrelsi
var aukið. Afleiðingin varð
sú, að þessar vörur lækkuðu
í verði hér innanlands og eru
nú margar hverjar á svipuðu
verði og í nágrannalöndun-
um. Fjölbreytni hefur líka
aukizt stórum, þótt auðvitað
sé úr meiru að velja í fjöl-
menninu en hér í okkar fá-
menna umhverfi. Á sumum
vörum er verðmismunur sjálf ■
sagt einhver, en þó hverfandi
lítill miðað við það sem áður
var, því að álagningin erlend-
is er miklu hærri en hér á
landi og vegur það á móti
þeim tollum, sem enn eru. Af
þessu leiðir, að sérstök ferða-
lög til útlanda í þeim til-
gangi að gera innkaup geta
alls ekki borgað sig nema um
mikil innkaup sé að ræða.
Auðvitað á ekki að amast
við því þótt menn kaupi
nokkrar flíkur, þegar þeir
eru að ferðast utanlands. Við
viljum frjálsræði og umburð-
arlyndi yfirvalda, en þegar
ferðaskrifstofa beinlínis
gengst fyrir smyglferðalög-
um er ekki um annað að ræða
en herða stórlega tolleftirlit
og rannsaka gaumgæfilega
farangur hvers einasta manns
sem ferðast á vegum þessarar
ferðaskrifstofu til innkaupa
erlendis, á meðan hún ekki
lætur af þessum ósóma.
Morguiiblaðið telur raunar,
að það sé af hugsunarleysi,
sem forstöðumenn ferðaskrif-
stofunnar hafa lagt út á þessa
braut og mundi fagna tilkynn
ingu þeirra um, að þeir væru
hættir að skipuleggja þessi
ferðalög.
VERZLUNAR-
FRELSI
jC’n í sambandi við hið skipu-
^ lagða smygl, sem tilraun
er gerð til að reka, er eðlilegt
að menn leiði að því hugann,
hvort nægilega hafi verið
rýmkað um innflutning og
hvort tollar séu enn ekki of
háir, þrátt fyrir hina miklu
lækkun þeirra.
Ef menn verzla í stórum
stíl erlendis — kaupa þar vör
ur á útsöluverði með mjög
hárri álagningu í stað þess að
kaupa þær hér á landi, — þá
er ekki ólíklegt að ríkið sjálft
stórskaðist á því að lækka
ekki enn tollana, og auðvitað
skaðast þjóðarheildin, því að
verzlunarhagnaðurinn renn-
ur þá til útlendinga. Tilgang-
urinn með tollalækkununum
í fyrra var líka aðallega sá
að draga úr smyglinu og
reyndin varð sú að tollatekj-
ur ríkisins minnkuðu ekki,
heldur jukust.
Meginástæðan til þess að
menn hneigjast enn til þess
að verzla erlendis er sú, að
vöruframboð er þar meira.
Það byggist aftur á því að
verzlunarstéttin er hér fé-
vana og því ekki fær um að
keppa nægilega vel við er-
lend fyrirtæki, getur ekki
legið með miklar vörubirgðir
o.s.frv.
Skammsýnir menn halda
að það sé til hagsbóta fyrir
almenning og þjóðarheildina
að halda álagningu stöðugt í
lágmarki. Þegar til lengdar
lætur verka slíkar aðgerðir,
eins og raunar flest ráð sósíal
ismans, þveröfugt. Sam-
keppni verður þá ekki sem
skyldi, hagur verzlunarinnar
verður svo þröngur að hún
getur ekki veitt beztu þjón-
ustu o.s.frv.
Þess vegna er líklegt að
ætíð verði erfitt að ráða við
smygl, þangað til innflutning
ur er algerlega frjáls, verð-
lagsákvæði hafa verið afnum-
in og tollar eru orðnir hóf-
legir.
GLEYMDU
AFMÆLINU
A ðstandendur vinstri stjórn-
arinnar sálugu höfðu ekki
hátt um það í gær, að þá voru
fjögur ár liðin frá því að þeir
gáfust upp og Hermann Jón-
Dymshits Lesechko Novikov
Menn á uppleið í Moskvu
YNGRI kynslóð kommúnista er
nú óðum að taka við mikilvæg-
um stöðum í SovétríkjunuiTN. Eru
það menn, sem láta sig árangur-
inn af framkvæmdura í þjóð-
félaginu eins miklu skipta og
stefnu flokksins. Fimm slíkir
menn hafa nýlega verið hækk-
aðir í tign.
'A' Veniamin E. Dymshits,
52 ára gamall verkfræðingur og
sérfræðingur á sviði fjárfesting-
ar hefur verið skipaður yfirmað-
ur hins nýja Efnaihagsráðs Sovét-
ríkjanna. Hann er gyðingur, sá
fyrsti, sem tekur við ábyrgðar-
mikilli stöðu innan Sovétstjórn-
arinnar frá því að Lazar Kagan-
ovioh var látinn víkja 1957.
Dymshits hefur yfirumsjón með
skipulagningu afnahagsunála
Sovétríkjanna og getur ráðið
miklu um framfarir meðal þjóð-
arinnar.
Af Mikhail A. Lesechko,
er 53 ára. Hann fékk nafnbótina
aðstoðarforsætisráðherra og það
starf, að hafa yfirumsjón með
utanríkisverzlun Sovétríikjanna
og aðstoð þeirra við erlend ríiki.
Hann er verkfræðingur frá
Úkrainu. Hann stjórnaði bygg-
ingu fyrsta rafeindaheila Rússa.
Stjarna Leseohkos hefur risið
á sköromum tíma, því að hann
gékk eikki í komroúnistaflokk-
inn fyrr en 1940.
asson flutti ræðu þá, sem
lengi mun í minnum höfð, því
að ekkert dæmi mun um það,
að forsætisráðherra hafi
hrökklazt frá með öðrum eins
harmkvælum, eins og hann
sjálfur lýsir í ræðu sinni.
Varla fer á milli mála, að
vinstri stjórnin sé aumasta
og versta stjórn, sem hér á
landi hefur setið. Ástæðulaust
væri því ef til vill að rifja
upp feril bennar, ef ekki vildi
þannig tii að einn íslenzkur
stjórnmálaflokkur, ásamt
kommúnistaklíkunni, er á-
kveðinn í að reyna á ný að
efna til vinstri stjómar.
Þótt vinstri stjómin síðasta
hafi verið slæm, er þó hug-
mynd þeiira ,sem boða nýja
„þjóðfylkingu“, sú að næsta
vinstri stjóm verði miklu
hatrammlegri. Þess vegna
þurfa lýðræðissinnar að vera
vel á verði gegn þeim mönn-
um, sem einskis svífast í
valdabraskinu.
Ignati T. Novikov.
er einnig verkfræðingur frá
Úkrainu. Hann er 56 ára og
hefur verið útnefndur aðstoðar-
forsætisráðherra. Á hann að hafa
yfiruimsjón með byggingu fram-
leiðslutækja. Novibov gekk í
ikoromúnistaflokkinn 1926 og gat
sér snemma frægðar fyrir stíflu-
og aflstöðvabyggingar. Hann
stjórnaði áætluninni, sem Rússar
gerðu um byggingu Aswanstífl-
unnar í Egyptalandi.
+ Dimitri S. Polyansky,
hlaut einnig nafnbótina aðstoð-
arforsætisráðherra. Hann er 45
Bonn, 3. desember. (NTB)
MIÐSTJÓRN Kristilega
demókrataflokksins í Vestur-
Þýzkalandi samþykkti í dag
að beina þeim tilmælum til
Adenauers, kanzlara, að hann
hæfi viðræður við Sósíaldemó
krata um myndun nýrrar
stjórnar í landinu. — Sú
stjórn, sem nú fer frá, var
samsteypustjórn Kristilegra
og Frjálsra demókrata, svo
sem kunnugt er. Sósíaldemó-
kratar hafa ekki tekið þátt í
samsteypustjórn í rúman ára-
tug.
í tilkynningu, sem Kristilegir
demókratar gáfu út í dag, að
fundi miðstjórnarinnar loknum,
segir, að eftir nákvæma athugun
á aðkallandi vandamálum, hafi
sú ákvörðun, er að ofan greinir,
verið tekin. Hins vegar er sagt,
að rannsaka beri einnig mögu-
leikana á því að mynda nýja
stjórn með Frjálsum demókröt-
um.
Viðbrögð Frjálsra demókrata
í dag voru þau, að þeir telja, að
flokkur Adenauers sé nú að
reyna að styrkja samningsað-
stöðu sína, með tilliti til frekara
samstarfs við Frjálsa demókrata.
Sé tilkynning þeirra aðeins
stjórnmálabragð.
Sósíaldemókratar sögðu, er
ára gamall, sérfræðingur á sviði
iandbújnaðanmála.
'A' Alexander Shelepin,
fyrrv. leiðtogi ungkomroúnista
og yfirmaður leynilögreglunnar
er sá fjórði, sem gerður var að
aðstoðarforsætisráðherra.
Allir þessir menn hafa frem-
ur skapað sér álit fyrir dugnað
í starfi en túlkun á kenning-
um Marx. Annað hafa þeir sam-
eiginlegt. Þeir fylgja allir stefnu
Krúsjeflfs forsætisráðlherra.
fréttist um tilkynninguna, að
þeir vildu lýsa því yfir, að þeir
hefðu enga löngun til að ræða
stjórnarmyndun við Kristilega
demókrata, ef óheilindi byggju
að baki.
Hæfist hins vegar viðræður,
sem leitt ættu að geta til sam-
starfs, þá yrði að leggja grund-
völlinn að nýrri stefnuskrá bæði
í innanríkis- og utanríkismálum.
í kvöld kom sérstök yfirlýsing
frá Frjálsum demókrötum, þar
sem segir, að þess sé ekki að
vænta, að samstarf Kristilegra
demóíkrata og Sósíaldemókrata
leiddi til neins góðs fyrir hvor-
ugan flokkinn. Skýringin á at-
ferli þeirra fyrrnefndu sé ein-
göngu sú, að þeir séu að reyna
að „finna eitthvert hálmstrá, til
að reyna að leiða athyglina frá
því, að stjórnarslitin séu einnig
þeim sjálfum að kenna“.
Kveikt í bíl?
UM kl. 19 á laugardaig kvikn-
aði í fóiliksbíl, sem stóð inni í
Rauðarárportinu. Þegar slökkvi-
liðinu tókst að slökkva eldinn,
var hann orðinn allmikið brennd
ur, einkum að innan. Allt bend-
ir til þess, að kveikt hafi verið
bílnum, og biður rannsóknar-
lögreglan hugsanleg vitni að
gefa sig fram.
Viíja samstarf við
Sósíaldemokraía
— yfi lýsing miðstjórncu Kristilegra
demokrata í V-Þýzkalandi