Morgunblaðið - 09.12.1962, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.12.1962, Blaðsíða 6
6 MORCVTSBLÁÐÍÐ Stmnudag'ur 9. des. 1962 Næturheimsókn Jökull Jakobsson: Nætur- heimsókn. Sögur 87. bls. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, Reykjavík 1962. Jökull Jakobsson, sem lönigu er kunnur fyrir skáldisögur sínar og leikrit, gaf nýlega út fyrsta smásagnakver sitt í smábóka- flokki Menningarsjóðs. Sögurnar eru sex talsins, sú elzta frá vor- inu 1955, ein frá haustinu 1958, en hinar frá árinu 1960. Er skemmst frá því að segja, að kverið er mjög ánægjulegt og leiðir m-eðal annars í ljós, að Jökli lætur miklu betur að semja smásögur en skáldisögur, og er þó smásagan venjulega talin erf- iðara form en skáldsagan. Mér hefur virzt af þeim skáldisögum, sem ég hef 1-esið eftir Jökul, að honum hætti ti-1 hroðvirkni og eigi erfitt með að gefa efninu fastmótað form. í smásögunum er þessu ekki til að dreifa — öðru nær. Sög- urnar eru allar mjög vandvirkn- isl-ega gerðar og fylla vel út í þann ramma sem höfundurinn smíðar þeim. Jökull er hreinrækt aður na-túralisti í skáldskap sín- um, lýsingar hans nákvæmar og með sterkum raunsæisblæ, en samt er honum lagið að gefa sumum sögunum þá aukavídd sem lyfti þeim yfir hversdags- leikann. Þetta kemur kannski greini- legast fram í fyrstu sögunni, „Skip koma aldrei aftur“, þar sem hróp drykkjumannsins fyrir utan húsið verða nokkurs konar viðl-ag við sjálft höfuðtemað eða ranghverfan á þeim veruleik sem er að fæðast uppi í herbergi stúlkunnar. Þessi saga er vissu- lega með langmestum viðva-n- ingsblæ, einkanlega í samtali piltsins og stúlkunnar, sem er tíð um hátíðlegt, hástemmt og „skáld legt“, þó það sé oft tiliþrifami-kið og vel hugsað. En samt býr sag- an yfir ríkri innri tilfinningu, dramatískri spennu sem fær full nægjandi úrlausn í sögulok. í rauninni er þetta eftirminnileg- asta sagan í bókinni, þrátt fyrir a-llt ungæðisbragð. Formið er hnitmiðað og undirstraumurinn þungur. „Jafnvægi í byggð landsins“ er líka góð saga, en með köfl-um nokkuð reyfarakennd, og svo hefur hún þann leiða annmarka flestra íslenzkra sagna um bónd- ann á mölinni, að sveitalífið er gert óeðlileg-a hjartnæmt og borgarlífið óþarflega grátt. And- stæðurnar í sogunni eru sem sé einum of hvassar, þó fæstir mundu neita því, að hin snöggu Og djúptæku aldahvörf í íslenzk- um hugsunarhætti og þjóðlífi, sem sagan bregður upp svip- mynd af, séu sa-nnleikanum sam- kvæm. Sagan befði orðið áhrifa- m-eiri og hugtækari, ef höfun-d- urinn hefði gætt meiri hófsemd- ar í lýsingunni á kjörum bónd- ans fyrir og eftir að hann flyzt á m-ölina. Lokaatriðið, þegar um- slaginu er skolað niður í sa-lern- inu, jaðrar við ofhleðslu. Það er óþarft að ganga svona ríkt eftir því, að lesandinn skilji hvað fyrir höfundi vakir. „Farið uppá Ska-ga“ er stór- mannleg tilraun til að túlka við- brögð hins uppburðarlausa og magnlitla eiginmanns gagnvart ótryggð ungrar eiginkonu. At- burðalýsingar eru allar mjög Ijósar og sannfærandi, rás sög- unnar bláþráðalaus, en lesand- inn á bágt með að þ*úa á við- brögð og atferli ei-ginmannsins, þó þessi manngerð sé trúlega til og höfundurinn leggi sig allan fram um að renna stoðum undir geðleysi hans og aumingjaskap. Reyfarabragðið af sögunni sfeemmir hana, alltof einhliða mannlýsingar og ótraustar for- sendur þeirra atburða sem raktir eru. „Herberki 307“ fj-allar um svip að efni, en hér eru tök höf-und- ar mikl-u öruggari, og hann dreg ur upp verulega snjalla smá- mynd af hinum huglausa kokkáli og eljara hans, ritstjóranum. Báðar eru þessar síðasttöld-u Jökull Jakobsson. sögur vafalaust raunsannar lýs- ingar á reykvísku dagfari sam- tím-ans, en þær rista nokkuð grunnt, skortir undirstrauminn eða aukavíddina sem hefji þær upp úr hversdagsleikanum. „Revúar Nicolai!" er af dá- lítið öðrum toga, lýsir viðbrögð- um konu, sem æðrulaus hefur borið missi fjögurra sona, við láti tökudrengs sem hún hef-ur alið upp. Hér leitast höfundurinn við að kafa eftir þeim duldu rökum sem gera missi tökubarns ins sárari en missi eigin barna. Þetta er að sjálfsögðu torvelt viðfangsefni, og höfundurinn kemst ekki nema í meðallagi vel frá því, þó sagan sé á margan hátt minnisstæð. Viðbrögð hinn- ar einföldu og fórnfúsu konu við tilfinningum, sem hún skilur ekki sjálf, eru trúverðug framan af, en það er eins og sagan fletjist út um miðbikið. Samtal- ið við soninn er hnitmiðað og lýsingin öll mögnuð en viðskiptin við prestinn verða einhvern veginn slöpp, kannski mest vegna þess að höfundurinn leggur svo ríka áherzlu á að skrumskæla prestinn að hann virðist missa sjónar á sjálfu aðalvandamáli sögunnar. „Næturheimsókn" er mjög vel gerð svipmynd af heimsókn tveggja drukkinna sjómanna á sveitabæ, þar sem barnsmóðir annars hefur leitað athvarfs. Við ureign bóndans við bílstjórann er lýst af miklu raunsæi, og öll er sagan gagnsýrð af þeim myrku hvötum sem stjóma aeði okkar tii góðs og ills. Eins og ég gat um í upphafi, er Jökull Jakobsson raunsær smásagn-ahöfundur, og kemur það Ijósl-ega fram í öllum sögun um nema þeirri fyrstu, sem er á öðru plani. Lýsingar hans eru nákvæmar og ýtarlegar, samtöl- in eðlil-eg og blæbrigðarík, en ég hefði kosið að heyra oftar þann djúpa undirtón sem fram kemur í fyrstu sögunni. Þó natúr alisminn sé góðra gjald-a verður og eigi fullan rétt á sér, hættir honum til að festa si-g um of við yfirborð hlutanna og van- rækja þá torræðu þætti mann lífsins sem skáldiskapnum er mestur slægur í. Mér kemur á óvart, að í þessu úrvali af sögum Jök-Uls Jakobs- sonar skuli ekki vera smásaga sem birtist í Árbók skálda 1956 undir nafninu „Mynd úr marm ara“. Hún er ótvírætt veigameiri og skáldlegri en sumar sögurnar sem teknar eru í þessa bók. Allt um það er fengur að bók- inni, því Jökull er m-eðal högustu smásagna-höfunda a-f yngri kyn- slóð og óragur við að fara eigin leiðir. Frágangur bókarinnar er góð- ur, prentvillur engar, en á tveim- ur stöðum kemur fyrir orðtækið ,að láta aftur dyrnar" sem mundi hafa þótt slæm vilia í skólastíl. Mér skilst að maður láti aftur hurð, en loki dyrum. Sigurður A. Magnússon. OÆT T I R poivisrvi ai_ Laun voru lægri en kjarasamningar — og skaðabætur dæmdar 'KVEÐINN hef-ur verið upp í Hæstarétti dómur í máli, er Tómas Högnason, Hafnarfirði höfðaði gegn Kristjáni Jónssyni, 'Sólibæ, ölfusi, Árnessýslu til Upp á líf og dauða SVO HANN er þá skáld ofan á allt annað, mannskrattinn, sagði ég hálf upphátt við sjálfan mig, er ég greip niður í bók Poul- Emile Victors. Ég 1-enti á kafla, sem fjallaði um dvöl hans með -eskimóum, og viðbrögð hans, er hann lítur franska fánann við hún á skútu þeirri, sem kemur honum og félögum hans til bjargar. Síð- an byrjaði ég á bókinni og las han-a í einni lotu — jú, þessa bók hlýt ég að telja til skáld- v-erka, þótt að efni til sé hún raun sæ lýsing eins frægasta leiðang- ursstjóra og landkönnuðar síð- ustu áratuga á eigin ævi og starfi. En hann skrifar þessa sjálfs- ævisögu sín-a eins og sá einn get- ur, sem ekki aðeins er gæddur góðum gáfum og skarpskyggni, heldur hefur einnig ósvikna skáld æð. Margt hefur drifið á daga Poul- Emile Victors. Hugur bans stóð snemma til heitra landa, hann hugðist stunda mannfræðirann- sóknir á Suðurhafseyjum, en þau urðu örlög hans að eyða mann- dómsárunum að mestu á köldustu hjörum veraldar, á meginjökli Grænlands og nyrzt í Kanada og Alaska. Þessi fágaði heimsmaður, glæsilegri en nokkur kvikmynda hetja í Hollívúdd og kunnáttu- maður u-m heimsins lystisemdir hefur lifað árum saman frum- stæðu lífi fátækra eskimóa á austurströnd Grænlands. Þessi fullhugi, sem hvað eftir annað hefur horfzt í.augu við dauðann án þess að æðrast og alla ævi virðist hafa lifað eftir einkunnar- orðum fyrirrennara síns og fyrir- myndar: Pourquoi pas? Hvers vegna ekki?, hann skrifar nú bók, sem réttilega gæti heitið Pour- quöi? Hversvegna? Hann rifjar upp sinn ævintýralega lífsferil, grandskoðar viðbrögð sín á ör- lagastundum, leitar að réttlæt- ingu mannlegrar tilveru sinnar, spyr og spyr: Hversvegna? Ég ætla, ekki að endursegja svörin — en vísa til bókarinnar. Ég hefi ekki 1-esið hana á frummálinu, en mál Jóns Óskars, þýðandans, virð ist mér yfirleitt gott. Bókin er prýdd allmörgum teikningum eft ir höfundinn, sem hefur það einn ig sér til ágætis að vera dágóður teiknari. Ég hefi lengi dáðst að leiðang- ursstjóranum Poul-Emile Victor. Með Grænlandsleiðöngrum hans hefur verið brotið nýtt bl-að í sögu jökl-arannsókna, nútíma ferðatækni og vísindatækni nýtt til hins ítrasta. Með þessari bók hefur hann enn vaxið í mínum augum. Ég hefði ekki búizt við svona bók frá jöklamanni, og þó — Pourquoi pas? Sigurður Þórarinsson. greiðsl-u skuldar að fjárhæð kr. 24.563,97 ásamt vöxtum og máls- kostnaði. Stefndi krafðist sýknu, en til vara, að honum yrði aðeins gert að greiða kr. 3.164,00 auk vaxta og orlofs. í niðurstöðum málsins kom m. a, fram, að talið var óhei-milt að greiða lægri laun en kjarasamningur kvað á um, Málavextir eru þeir, að í júlí 1-958 réði Kristján stefnanda til vinnu og átti hann að aka bif- reið stefnda á leiðinni Reykja- vík—Hveragerði—Ölf-us. Var um- samið kaup kr. 5.000,00 á mán- uði. Stefnandi kveður stefnda hafa sagt, að eftirvi-nna yrði grei-dd með fríum næsta sumar. Stefnandi kvaðst hafa álitið, að kr. 5.000,00 væru laun lang- ferðabifreiðastjóra, en er hann komst að því, að þau væru nokkru hærri kvaðst hann hafa -farið fram á fulla-n taxta og hafi stefndi lofað að athuga það. -Stefndi hefur hinsveg-ar haldið fast við, að umsamið kaup hafi verið kr. 5.000,00. í miðjum nóvemlbermánuði 1958 hætti stefnandi störfum hjá -stefnda. Bar þeim ekki saman um tildrögin, en stefndi taldi, að sér hefði verið sagt upp fyrir- -varalaust, en stefndi hélt þ-vi fram, að stefnandi hefði hætt af -sjálfs-dáðum. Fékkst ekkert sam- ræmi um þetta atriði í fram- burði þeirra. Stefnandi sundurliðaði kröfur sínar á svofelldan hátt: 1) ,ran- greiddur launamismunur Júlí — nóv. 4.011,50. 2) Au-kavinna 13.256,22. 3) Laun í einn mánuð (uppsagnarfrestur) kr. 6.95,25. 4) Orlof kr. 1.202,00. Niðurstaða málsins varð ekki sú sam-a í héraði og fyrir Hæsta- xétti. í héraði var stefnanda Framhald á bls. 23. AO DUGA EÐA DREPAST eftir Guðmund G. Ilayalín Saga manns, sem harðnaði við hverja raun á sjó og landi og sífellt sótti á brattann. Að duga eða drepast er ævisaga Björns Eiríkssonar á Sjónarhóli í Hafnarfirði. í bókinni koma fram margar eftirminnilegar persónur, en hæst ber að sjálfsögðu sögu- manninn og foreldra hans. — En margar aðrar persónur eru eigi að síður mjög svo minnisstæðar, eins og Palli og Lauga í Pallakoti, Sæ- mundur og Guðrún á Vatnsleysu, Sveinn og Anna á Kolableikseyri og íslenzkir og erlendir sjómenn, sem við sögu koma. í bókinni eru afbrigða snjallar og áhrifaríkar lýsingar á lífi og bar- áttu sjómanna við sjó, storma og hafís. Þetta er hetju- og baráttusaga harð duglegs sævíkings, sem aldrei lét bugast þótt á móti blési. SKllGGSJft

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.