Morgunblaðið - 08.01.1963, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.01.1963, Qupperneq 1
24 siður með BdrnaSesbók EINS og kunnugt er hefur verið mikið fannfergi í Eng- landi að undanfömu. Þessi mynd var tekin fyrir skömmu fyrir utan veitingahús í Dart- moor, en þar leituðu útigangs hestamir, sem sjást á mynd- inni, skjóls og fæðu. Þegar myndin var tekin, hafði veit- ingahúsið verið einangrað í sex daga, en þá braut snjó plógur sér leið gegnum skafl- ana. Skömmu eftir að snjó- plógurinn hafði rutt veginn til veitingahússins byrjaði að snjóa á ný og það einangrað- ist aftur. U Thant segir Tshombe hafa varpað frá sér allri ábyrgð Adoula leggur tram tillögur um sam- einingu Katanga við aðra hluta Kongó Leopoldville, New York, London, 7. jan. (NTB—AP) • U THANT, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag, að síðustu atburðir í Kat- anga sýndu, að Tshombe fylkis- stjóri hefði varpað frá sér allri ábyrgð. Sagði framkvæmdastjór- inn, að SÞ myndu gera allt, sem í þeirra valdi stæði til þess að koma í veg fyrir, að Tshombe léti þá menn í Katangaher, sem enn fylgdu honum, hefja skæru- hernað í Katanga. • Ralp Bunch, aðstoðarfram- kvæmdastjóri SÞ, fór í dag til Jadotville og Kipusi. Sagði Bunch á fundi með fréttamönnum, að SÞ hefðu gert lista yfir það, sem væri mest áríðandi varðandl lausn Kongómálsins, en ekkt vildi hann grein frá efni listans. • Liðssveitir SÞ tóku sam- göngumiðstöðina Kaniama í dag og mættu þar lítilli mótspyrnu. Voru ættflokkar þeir, sem búa í nágrenni borgarinnar vinveitt- ir liðssveitunum og vísuðu þeim til vegar. Annars var allt með kyrrum kjörum í Katanga í dag. Mikil leynd hvílir yí ir f undi IATA í París Nilsson forstjóri SAS hélt leynifund í gistihúsherbergi sínu E I N N af fréttamönnum Morgunblaðsins, Elín Pálma- dóttir, er nú á heimleið frá Afríku með viðkomu í París. Þar mun hún reyna eftir föngum að fylgjast með fundi IATA (Alþjóðasam- hands flugfélaga), sem hald- inn er fyrir luktum dyrum og yfir honum hvílir mikil leynd. Eins og kunnugt er af frétt um var efnt til þessa fundar vegna kröfu SAS um að fá að fljúga yfir Norður-At- lantshaf með skrúfuvélum á lægri fargjöldum, en IATA hefur ákveðið. Er krafan bor in fram á þeirri forsendu, að SAS verði gjaldþrota fái það ekki að keppa við Loftleiðir á jafnréttisgrundvelli. Eftirfarandi skeyti barst frá Elínu Pálmadóttur í gær: Fundur þeirra flugfélaga, sem aðilar eru að IATA og fljúga yfir N.-Atlantshaf hófst hér í París í dag. Eru það fulltrúar 18 flugfélaga, sem sitja fundinn. Mikil leynd hvílir yfir störfum fundarins og allt skrifstofufólk, sem starfar í sambandi við hann hefur fengið skrifleg fyrir- mæli um að gefa engar upp- lýsingar um gang mála þar. Því er einnig haldið leyndu, að sir William Hildred, fram- kvæmdastjóri IATA, sé í París ,en á gistihúsinu, sem hann dvelst, tókst mér að ná tali af Reynolds, einum af talsmönnum IATA. Sagði Karl Nilsson hann, að fargjöldin yfir N.- Atlantshaf hefðu verið rædd á fundinum í dag, en fund- urinn í París gæti engar end- anlegar ákvarðanir tekið um mál SAS. Aðeins 18 flugfél- ög ættu fulltrúa á fundinum og yrðu að leggja niðurstöður hans fyrir fund fulltrúa allra aðildarfélaga IATA. Yrðu þeir að samþykkja ákvarð- anir Parísarfundarins áður en þær fengju gildi. Reyn- olds vildi ekkert segja um það hvort einhverjar ákveðn ar tillögbr hefðu komið fram á fundinum í dag. Taldi hann óvíst að fundinum lyki á MORGUNBLAÐIÐ fór þess á leit við -fréttaritara sinn í Kaup mannahöfn í gær, að hann skýrði frá viðbrögðum danskra blaða í sambandi við stjórnarmyndunina í Færeyjum. Símaði hann í gær- kvöldi úrdrátt úr ummælum þriggja blaða og fer skeyti hans hér á eftir: Berlingske Aftenavis í Kaup- mannahöfn sagði í gær, undir fyrirsögninni: „Umskipti í Fær- eyjum“, að enda þótt vissum skil yrðum Sjálfsstjórnarflokksins hafi verið tekið af samstarfs- flokkum hans í stjórninni. (Sjálfs stjórnarflokkurinn er hlynntur samvinnu við Dani á grundvelli heimastjórnar), sé ekki annað að sjá, en stjórnarmyndunin tákni uppsögn á núverandi sambandi Færeyja og Danmerkur. Á hinn bóginn hafi úrslit kosninganna morgun eins og ákveðið hafði verið. Karl Nilsson, aðalforstjóri SAS, kom til Parísar í kvöld. Hann kvaðst ekki ætla að sitja fund IATA, en eftir kom una til Parísar hélt hann leynilegan fund í gistihús- herbergi sínu. Nilsson vildi ekkert tala um IATA fund- inn og kvað allt leynilegt, sem þar færi fram. Nilsson fer frá París í fyrramálið. ekki gefið slíkt til kynna. Blaðið lætur í ljós þá skoðun, að Sjálfs- stjórnarflokkurinn hafi því einnig orðið að láta undan um ýmis atriði. Hins vegar sé þess ekki að vænta, að Færeyjar lýsi þegar í stað yfir lýðveldisstofn- un. Blaðið segir, að það muni koma í ljós, þegar fram líða stundir hvort flokkarnir þrír, sem standa að stjórninni geti unnið saman í stjórn, þrátt fyrir það, að þeir séu ýmist hægri- eða vinstrisinnaðir. Einnig muni koma í ljós hvort þeir treysti sér til þess að standa á móti óskum hins sterka minnihluta um óbreytt samband við Danmörku. Að lokum telur blaðið að Dan- ir muni ekki óska eftir að hið aldagamla samband verði rofið, og segir, að stjórnmálin í Fær- eyjum hafr áður tekið snöggum • Ekki er nákvæmlega vitað hvar Tshombe er nú niðurkom- inn, en óstaðfestar fregnir hcrma, að hann sé enn í Kolwezi. • Adoula, forsætisráðherra sambandsstjórnarinnar í Leopolð ville, hefur lagt fram áætlun um sameiningu Katanga og annarra hluta Kongó. Er hún í sex liðum og nær samhljóða áætlun U Thants. U Thant sagði í dag, að aug- ljóst væri, að Tshombe hefðl varpað frá sér allri ábyrgð á því, sem gerðist í Katanga og ekki væri lengur hægt að líta á hann og stjórn hans, sem stjórnendur fylkisins. U Thant lagði áherzlu á það, að eins og málum væri nú háttað, væri tilgangslaust, að ætla sér að hefja viðræður við Tshombe um sameiningu Kat- anga. Tshombe hefði fyrirgert Framh. á bls. 23. breytingum, og ekki sé útilokað að það geti átt sér stað aftur. Fyrirsögn „Politiken“ er „Reyn ir á uppreisnarhug Færeyinga". Segir blaðið, að Erlendur Paturs- son sé talinn skýlaust fylgjandi aðskilnaði við Dani og sé enn- fremur að áliti margra fylgjandi sambandi við fsland síðar. Blaðið minnist í því sambandi á skerf hans í allsherjarverkfall- inu eftir 1950, en telur, að enda þótt Patursson sé uppreisnargjarn muni hann þó ekki, þegar til kastanna komi gera verulegar kröfur um að landsstjórnin taki við fleiri stjórnarstörfum, og eru í því sambandi nefnd skóla- málin. Blaðið minnist einnig á landhelgi Færeyja og telur að Patursson muni beita sér fyrir hreinum tólf mílna mörkum Frarnh. á bls. 23. Politiken segir: Patursson vill aðskilnað viö Dan- mörku og síöar samband við ísland *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.