Morgunblaðið - 08.01.1963, Qupperneq 3
Þriðjudagur 8. janúar 1963
MORGVIS BL AÐIÐ
3
9 NA 15 hnúiar I SV 50 hnútar Snjó/coma » ÚSi V Sktirir K Þrumur 'Ws, KuUosh/ ‘Zs' Hi/ttk* H Hml
SMSTEINAR
Framsóln
Engin hsetta á ferðum
Framsóknarmenn eru nú farn-
ir aS segja, að engin hætta sé
á ferðum af þjóðfylkingunni, ein
faldlega vegna þess að útilokað
sé að Framsóknarflokkurinn og
kommúnistaflokkurinn fái hrein
an meirihluta á Alþingi og geti
þannig myndað einir stjórn sam-
an. Með þessu hyggjast Fram-
sóknarmenn draga úr ótta lands
manna við þjóðfylkinguna. En
allur almenningur gerir sér það
Ijóst, að ef svo færi að núv. stjórn
arflokkar misstu meiri hluta í
Efri deild Alþingis, þá hlyti af
því að leiða nýja braskaðstöðu
fyrir hina gömlu Framsóknar-
maddömu og bandamenn hennar
í kommúnistaflokknum. Fram-
sókn væri þá á ný komin á torg
til þess að verzla, eins og jafn-
an hefur verið Iíf og yndi hinn-
ar gömlu maddömu.
Þrettándanum fagnaö í Keflavík
o<r kommú nistahættan
Alþýðublaðið birtir sl. sunnu-
dag forystugrein um afstöðu
Framsóknarmanna til kommún-
ista og kemst þar m. a. að orði
á þessa leið:
„Ef Framsóknarleiðtogarnir
ættu um það að velja, að mynda
stjórn með kommum eða Sjálf-
stæðismönnum, mundu þeir vafa
laust velja kommúnista. Þeir
mundu þá hafa forsæti, eiga
fleiri ráðherra og vera sterki
flokkur stjórnarinnar. Með Sjálf-
stæðisflokknum mundi Fram-
sókn hins vegar vera minni
stjómarflokkurinn. Við þetta
bætist sú freisting að klekkja á
núverandi stjómarflokkum, sem
mundi enn hvetja Framsókn tii
að hlaupa í faðm kommúnista.
Af þeim vangaveltum, sem
Morgunblaðið og Tíminn hafa
leyft sér, og Þjóðviljinn er sýni-
lega hræddur við, geta óbreyttir
kjósendur lært þetta:
Það er stórhættulegt fyrir
framtíð þjóðarinnar að veitá
Framsóknarforingjunum stöðv-
unarvald á Alþingi. Eina hugs-
anlega leiðin til að koma komm-
únistum aftur í stjórn á íslandi
er að kjósa Framsókn. Öll von
kommúnista um þjóðfylkingu
byggist á vexti Framsóknar. —
Hins vegar skilja Framsóknar-
foringjarnir ekki hættuna af
kommúnistum og hafa aldrei
gert. Þeir hafa svarið komma
af sér áður, en tekið síðan upp
samstarf við þá. Þeir mundu
gera það aftur, ef þeir fengju
tækifæri til þess.“
Skrítnir svardagar
Tíminn og Framsóknarleiðtog-
arnir hafa undanfarið átt mjög
annríkt. Þeir hafa staðið kóf-
sveittir við að sverja kommún-
ista af sér. Eysteinn Jónsson,
hinn nýi formaður Framsóknar-
flokksins, er greinilega orðinn
lafhræddur við þjóðfylkingar-
bramboltið. Þá rýkur hann upp
til handa og fóta og lætur Tím-
ann birta hverja yfirlýsinguna
á fætur annarri um það, að
Framsóknarmenn hafi engan á-
huga á stjórnarsamstarfi við
kommúnista og séu raunar von-
lausir um að fá meirihluta með
þeim á Alþingi.
Það er ómaksins vert að bera
þessa svardaga saman við þær
staðreyndir, sem við blasa. Fram
sóknarflokkurinn hefur allt frá
því hann myndaði vinstri stjórn-
ina stutt kommúnista af alefli
innan verkalýðsssamtakanna. —
Framsóknarmenn hafa tryggt
völd kommúnista innan Alþýðu-
sambands íslands á hverju Al-
þýðusambandsþinginu á fætur
öðru. Þeir hafa jafnframt staðið
með kommúnistum á Alþingi og
hjálpað þeim til þess að fá
menn kjörna í nefndir og trún-
aðarstöður.
Á ÞRETTÁNDANUM gengust
álíadansi og brennu, sem
Lúðrasveit Kefíavíkur og
Karlakór Keflavíkur fyrir
fram fór á íþróttavellinum í
Keflavík. Veður var eins og
bezt verður á foosið og stóð
reykur af brennunni beint til
Ílofts og máninn skein hátt á
bimni. í>að eina sem segja má
að verið hafi til óþæginda,
var að reykur frá flugeldum
lagðist yfir svæðið, því eng-
in gola var til að bera hann
frá. Frost var og snjór á jörðu.
Álfadansinn hófst klukkan
| 20, með blysför frá stöðvar-
húsi áætlunarbílanna og lék
Lúðrasveitin fyrir göngunni.
Á eftir komu svo konungur
og drottning, sem leikin voru
af Böðvari Fálssyni og Dag-
mar Pálsdóttur, á eftir þeim
fylgdi svo hirð þeirra, Ljúfl-
ingar og dansálfar. í göngunni
mátti sjá marga aðra, svo sem
böfuðpaurinn sjálfan með
púkahirð sína, Skugga-Svein
og Ketil, karla og kerlingár
og ýmis konar ókennileg fyr-
irbæri.
Þegar á íþróttavöllinn kom
var fylkingunni fagnað með
margvíslegum Skrautljósum
og tunglskotum — Álfakóngur
ávarpaði hinn mennska lýð,
og síðan hófst söngur og leik-
ur Lúðrasveitar, sem Herbert
Hriberschek stjórnaði — og
ENN er stilla og háþrýstisvæði
yfir íslandi og Grænlandi, en
lægð suður undir Azoreyjum.
Er ekki útlit fyrir verulega
breytingu á þessu veðurlagi
næsta sólarhring. >ó mun
heldur draga úr frosti eink-
um vestanlands.
Um áramótin var ísrek um
30 sjómílur norður og vestur
af Straumnesi og síðan hafa
sézt einstakir jakar á reki á
siglingaleið norðaustur af
Horni.
Fylkingin kemur inn á íþróttavöllinn og gengur hring í kringum brennuna. í fararbroddi
eru álfadrottning og álfakóngur
dansinn dunaði á svelli, en
dönsum stjórnaði Kristín I>órð
ardóttir leikfimikennari.
Áhorfendur munu hafa ver-
ið um 3000 og brugðust allir
glaðir við og þótti mikið koma
til hinna dýrðlegu skrautljósa
og flugelda, og annars sem
fram fór á þessu lokakvöldi
jólanna.
Keflavíkurbær veitti mjög
mikilsverða aðstoð við allan
undirbúning þessarar þjóð-
legu skemmtunar og var öll
vinna bæjarstarfsmanna með
miklum ágætum.
Skátar önnuðust blysförina
og alla vörzlu ásamt lögregl-
unni.
Engin slys, skemmdir eða
óhöpp komu fyrir og var þessi
Áifadans til mifoils sóma bæði
fyrir þá sem hann undir-
bjuggu og að honum stóðu,
og þá sem komu til að horfa
á og njóta þessa forna siðar
að kveðja jólin með álfadans
og brennum.
Að morgni hins 7. janúar
verða jólatrén tekin niður og
skrautljósin siökkt, svo Kefla-
vík fær aftur sinn fyrri svip,
með síldar- og fiskilykt og ið-
andi af starfi hins nýja árs.
— Helgi S.
Liðinu fylkt fyrir framan stöðvarhúsið