Morgunblaðið - 08.01.1963, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.01.1963, Qupperneq 6
0 MORCVISBLAÐIÐ Þriðjudagur 8. janúar 1963 Furöuleg ritsmíöi ÞAÐ er alltaf leiðinlegt að verða til þess að styggja fólk með skrifum á opinberum vettvangi. Það tekur mig sárt að ég skuli hafa orðið til þess að særa til- finningar hjartagóðrar konu, Bjarnveigar Bjarnadóttur, ná- frænku Ásgríms Jónssonar, ein- hvers stórbrotnasta listamanns íslenzku þjóðarinnar. Þessi á- gæta kona hefur staðið fyrir safni Ásgríms Jónssonar með nokkrum myndarbrag að því er mér er tjáð og virðist hafa tek- ið nærri sér grein sem ég skrif- aði í Vísi 1. nóvember síðastlið- inn um hina nýju listaverkabók Ásgríms Jónssonar sem Helga- fell gaf út fyrir jólin. Ekki verð- ur þó hjá því komizt að skrifa nokkurn hluta þessa tilfinninga- sársauka á reikning konunnar sjálfrar því hún virðist hafa lagt hæpinn skilning í áðurnefnda grein mína og er þess vegna rétt að vekja athygli á eftirfarandi atriðum: Það er enn skoðun mín að þessi nýja málverkabók Ásgríms Jónssonar sé misheppnað fram- lag íslenzkrar bókaútgáfu. Þessi skoðun snertir á engan hátt list Ásgríms Jónssonar. En mér finnst bókin hvorki samboðin Ásgrími Jónssyni né Ragnari í Smára. Báðir eru stórhuga menn, hvor á sínu sviði og af þeim sökum veidur bókin von- brigðum. Það vantar nefnilega í hana stórhuginn. Bókin sem Almenna bókafélag ið gaf út árið 1956, Myndir og minningar Ásgríms Jónssonar er góð bók og fyllir ágætlega það skarð sem henni var ætlað að fylla. Hún er skemmtilega rit- uð og gerir ævi Ásgríms Jóns- sonar ágæt skil en hún krefur ekki list hans til mergjar enda ekki til þess ætlazt. Sú góða kona Bjarnveig Bjarnadóttir, frænka Ásgríms og safnvörður, er að visu á annarri skoðun því hún segir: „Er sjálfsagt meira en vafasamt, að nokkur hefði betur skýrt frá lífsviðhorfum Ásgríms og list hans, en hann sjálfur." Þetta er furðuleg yfirlýsing konu sem væntanlega hefur hvorugan þann galla að vera „lítt reynd“ eða „ung“ og telur sig sjálfkjörna til þess að segja blaðamönnum hvernig þeir eigi • að skrifa. Vill konan halda því fram að listamaðurinn sjálfur sé bezt fallinn til þess að brjóta sína eigin list til mergjar? Á Laxness þá að skrifa ritdóma um sjálfan sig? Hin nýja málverkabók Ás- gríms missir einmitt gildi sitt fyrir þá sök að engin tilraun er gerð til þess að gera list hans ýtarleg skil. Það er einkar fróð- legt í þessu sambandi að gera samanburð á tveimur málverka- bókum sem Ragnar Jónsson hef- ur gefið út. Berum saman bæk- urnar um Mugg og síðari bók- ina um Ásgrím. Fyrrnefnda bók- in er rituð af Birni T. Björns- syni listfræðingi, frumsmíð þar sem fjallað er um listamanninn á fræðilegan hátt og er þess vegna merkt framlag til íslenzkr ar listasögu, höfundi, listamanni og útgefanda til mikils sóma. í hinni bókinni er ekkert nýtt, lesmál bókarinnar er einungis 2. útg. af bókinni Myndir og minningar, og einu breytingarn- ar eru smávægilegar úrfelling- ar. Þess vegna á hún næsta lítið erindi við íslenzka lesendur með an frumútgáfa þessa lesmáls er enn fáanleg í bókaverzlunum fyrir sjöunda hluta af verði seinni útgáfunnar. Sú góða kona Bjarnveig Bjarnasdóttir segir að vísu: „Og að því er lesmálið varðar, mundu hinir vísu telja ómaksins vert að lesa snjallt verk og list- rænt oftar en einu sinni.“ Þessi yfirlýsing frænku Ásgríms og safnvarðar er ámóta furðuleg og sú sem fyrr er tekin upp í þessa grein. Þetta kemur málinu nefni lega ekki við. Hitt skiptir öllu máli að maður sem kemur inn i bókabúð sér þar stóra og glæsi- lega bók. Á bókarkápu stendur ÁSGRÍMUR JÓNSSON og ekk- ert annað og því má gera ráð fyrir að hann búist við að hér sé á ferðinni ný bók en ekki endurútgáfa bókar sem enn er fáanleg. Þess er ekki getið fyrr en í formála að lesmál bókar- innar hafi áður komið út. Vilja menn kaupa bók á meira en 700 krónur þó í henni sé um 40 litmyndir ef sama bók er enn fáanleg fyrir 103 kr. án lit- mynda? Er þetta æskileg stefna í íslenzkri bókaútgáfu? Er ekki hætta á því að þessa bók kaupi menn í þeirri trú að þeir séu að kaupa nýja bók og verði fyrir vonbrigðum þegar þeir upp- Þetta er ekkl mynd frá Kat- anga af her- mönnum Tsjom- bes að stæla sig í villtum dansi, áður en þeir fara að berjast við innrásarliS U Thants á jóla- dag, heldur era þetta Vest- mannaeyingar við áramóta- brennu. (Ljósm. Mbl.: Sigurgeir Jónasson) götva hvernig í öllu liggur? Er ekki siður að hafa óbreyttan tit- il á bókum sem gefnar eru út í 2. útgáfu enda þótt í henni séu nýjar myndir? Réttláta mynd- irnar einar útgáfu þessarar bók- ar? Því verður hver og einn að svara fyrir sig. Ég fyrir mitt leyti svara því hiklaust neitandi. Og af þessum sökum vil ég halda því fram að Bjarnveig Bjarnadóttir hafi í engu hnekkt mínum fyrri skrifum um bók- ina. Mér finnst að þessi útgáfa sé langt frá því að vera sam- boðin jafnágætum mönnum og Ásgrími Jónssyni og Ragnari í Smára. Njörður P. Njarðvík. Eldra fólk... UNDANFARIN ár hefur það farið vaxandi, að fólk, sem ýmissa orsaka vegna, m.a. fyrir aldurssakir, hef- ur ekki fulla starfsorku, hefur drýgt tekjur sínar verulega með því að starfa að blaðaburði fyrir Reykja víkurblöðin. Hefur þetta yfirleitt gefizt vel og orð- ið mörgum að verulegu liði. Morgunblaðið hefur mik inn hug á því að komast í samhand við eldra fólk hér í borginni, sem að at- huguðu máli, myndi hafa áhuga á að gefa sig að slíku starfi. Nú þegar starfa á vegum Mbl., bseði konur og karlar, sem daglega annast blaðadreifingu í í- búðarhverfum borgarinn- ar. — ItlNDARCðTÚ 25 'ilMI ♦ Er járniðnaðurinn útundan? „Járnsmiður“ svarar nú „Út- gerðarmanni", sem hafði aftur svarað tilskrifi smiðsins. Virð- ast báðir aðiljar hafa nokkuð til síns máls, og a.m.k. er hvorugur ófeiminn við að taka dálítið upp í sig, eins og sagt er. „Velvakandi góður! „Útgerðarmaður'* ritaði þér bréf nýlega (Mbl. 20. des.) i til- efni þess, sem ég hafði áður sagt í dálk þínum, um efnisskort járniðnaðarins og viðgerðina á m.s. Esju. „Útgerðarmaður" af hjúpar fljótlega í bréfi sínu þá staðreynd, að útgerðarmenn skortir ekki aðeins þekkingu á útgerð, heldur og ýmsum öðrum hlutum. Járniðnaðarmenn hér á landi þekkja útgerðarmenn af biturri reynslu og okkur þykir illa sæma fyrir þá menn að tala um „amlóðana" í þjóðfélaginu. Hinsvegar ber því ekki að neita, að amlóðar hafa verið og eru til innan járniðnaðarins og gæti verið að kraftleysis þeirra gæti nokkuð í forystu járniðnaðarins með þeim árangri, sem við öll um blasir í dag: járniðnaðurinn settur til hliðar, afskiptur hin- um frjálsa innflutningi og hon- um óbættur skaðinn af stór- felldu tjóni vegna þess skorts, sem iðulega er á heppilegum stærðum og tegundum smíða- járns og stáls. Fleipur „Útgerðarmanns" um vangetu íslenzkra járniðnaðar- manna er svo fráleitt, að það er varla svaravert. Nægir í því sambandi aðeins að benda á tæknilegar framfarir íslendinga síðustu áratugina og þann þátt, sem íslenzkur járniðnaður á í uppbyggingu atvinnuveganna. Og það sem meira er: Framfar ir járniðnaðarins hafa algjör- lega verið fyrir eigið fé, en ekki ríkisfé. Væri óskandi að útgerðin gæti sagt hið sama. í annan stað er ekki óeðli- legt að „Útgerðarmaður" efist um innflutningserfiðleika járn- iðnaðarins, þegar allur annar varningur virðist fluttur hömlu laust inn í landið. Fagrar konur þessa lands geta valið úr löng um röðum af gervi brjóstum (!) og varalitum, meðan járnsmið- irnir verða að eyða dýrmætum tíma í leit að heppilegu efni til að vinna úr og fá iðulegast ekki það, sem þá vantar í það og það skiptið. En svona er þetta nú samt og kostar þjóðina ekki minna en 25—30 milljónir kr. árlega. ♦ Innflutningshöft. Sem betur fer hafa „amlóð- arnir“ sjaldnast staðið lengi við í járniðnaðinum, en mér er nær að halda, að þar sem þeir eru nú, — hvar svo sem það er — þá hafi þeir hömlulausan inn- flutning, nóg af vörum og efni. En eins og málin standa í dag, þá má segja, að járniðnaðurinn sé umsetinn og einangraður af því nátttrölli, sem annars stað- ar og á öðrum sviðum atvinnu- lífsins hefur dagað uppi, en það er jnnflutningshöftunum. Þang að til óvættur þessi dagar uppi og verður að steini mun það halda áfram að tefja fyrir eðli- legri þróun járniðnaðarins og valda honum miklu fjárhagslegu tjóni. Þess vegna verður að gera járniðnaðinum kleift að brjót- ast út úr herkvínni með því að gefa innflutninginn frjálsan. _ Síðast í bréfi sínu talar „Út- gerðarmaður" um iðnaðarmenn með fullar hendur fjár, full hús af vélum og að ekki sé „lág reist“ bankabyggingin þeirra. Útgerðarmenn hafa oft þótt vera með fullar hendur fjár, þegar þeir byggja íbúðarhús sín og fylla þau af glæsilegum heim ilisvélum; það virðist vera þeirra ekki „lágreista“ banka- bygging. Járnsmiður". ♦ Afgreiðslufólk og útlendingar Hér er bréf, sem hefur beðið nokkurn tíma, eins og reyndar mörg önnur, því miður. „Okkur hefur borizt úrklippa úr Morgunblaðinu. „Norsk kona“ gagnrýnir harðlega fram komu verzlunarfólks á íslandi. Hún segir m.a., að sér hafi ver ið seldur óætur fiskur og talar um að afgreiðslufólkið sé ókurt eist. Við vitum að vísu ekki hvað hefur mætt þessarri konu, en okkur finnst einmitt tvennt, sem hún nefnir, vera svikalaust, fiskurinn fyrsta flokks og af- greiðslufólkið veita frábæra þjónustu. í jólaönnunum má alls staðar, í Reykjavík sem annars staðar, finna afgreiðslu- fólk, sem er viðvaningar í starf inu, en það er einmitt eftirtekt- arvert, hvað afgreiðslufólk i Reykjavík er hjálpsamt við út lendinga og lipurt í starfi sínu. Marear norskar konur“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.