Morgunblaðið - 08.01.1963, Síða 24

Morgunblaðið - 08.01.1963, Síða 24
 5. tbl. — Þriðjudagur 8. janúar 1963 '★BOKPNÁRVÖRTm Dauðaslys í Skriðum i Fagradal: Jeppi út af veginum hrapaöi 35 Egilsstöðum, Eskifiröi, Neskaupstað og Reyöarfirði, 7. janúar. DAUÐASLYS varð seint á sunnudagskvöld þegar Austin- Gypsy jeppi fór út af veginum í Skriðum í Fagradal og hrapaði 35—40 metra niður í gil. í bifreiðinni voru 3 syst- kin, Einar Einarsson, Vigfús Einarsson og Halldóra Einars- dóttir. Halldóra beið bana, en bræðurnir liggja nú á sjúkra- húsinu í Neskaupstað. Tildrög slyssins eru þau, að Einar Einarsson, pípulagningar- maður, Egilsstöðum, og systir hans, Halldóra Einarsdóttir, fóru um hádegið sl. sunnudag til Nes- kaupstaðar. Þau héldu aftur til Egilsstaða um kvöldið og þá hafði Vigfús bróðir þeirra, sem er verkamaður í Neskaupstað, slegizt í för með þeim. Um kl. 23.30 var jeppinn kominn nokkuð upp svo- nefndar Skriður í Fagradal og virðist hann þá hafa snú- izt skyndilega til á veginum. Þar var nokkur hálka, en vegkanturinn auður. Fór jeppinn út af og rann á hjól- unum niður brattan mel, um 90 metra langan, og steyptist niður í gilið. Einar, sem ók jeppanum, hefur einhvern veginn komizt út á með an jeppinn rann niður melinn. Sjálfstæðis- fundur að Hellu SJÁLFSTÆÐISFÉEÖGIN í Rang árvallasýslu halda almennan fund að Hellu laugardaginn 12. þ.m. kl. 1,30 e.h. 1. Rætt verður um framboð Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi í hönd farandi Al- þingiskosninga. 2. Ingólfur Jónsson ráðherra ræðir um stjómmálaviðhorfið. Jeppinn steyptist síðan fram af og féll um 35—40 metra nið- ur í gilið. Á leiðinni rakst hann í klettanibbu og ir.un þakið þá hafa rifnað af. Lenti jeppinn á isi lagðri Fagradalsá, sem renn- ur þarna um urð og stórgrýti. Einar Einarsson lagði af stað illa haldinn, gangandi til Reyðar- fjarðar til að sækja hjálp. Hann hafði gengið 2—3 kílómetra, þeg- ar hann mætti bifreið, sem flutti hann til Reyðarfjarðar. Þar var fólk ræst út um kl. 12,30 eftir miðnætti. Héldu menn þegar að slysstað. — Einnig var hringt til Egilsstaða og Eski- fjarðar og beðið um aðstoð. Fóru læknar frá báðum stöðunum, svo og sýslumaður og lögregla frá Eskifirði. Þegar á slysstaðinn var komið var farið með sjúkrakörfu nið- ur í gilið. Mikið frost var, um 12 stig, en logn og heiðskírt. Vigfús og Halldóra höfðu ikastast út úr jeppanum, sem bafði sundrast. Halldóra var með lífsmarki, en andaðist nokkru síðar. Vigfús Var meðvitundar- laus. Þeir bræður voru fluttir í sjúkrahúsið í Neskaupstað, en Halldóra var flutt til Egilsstaða. Seint í gærkvöldi var Vigfús ekki kominn til meðvitundar. Hann er mjög illa slasaður, en meiðsli hans voru þá ekki full- rannsökuð. Meiðsli Einars eru ekki talin alvarlegs eðlis, en hann hafði fengið mjög slæmt taugaáfall. Líðan bræðranna var sæmileg eftir atvikum í gær- kvöldi, að sögn sjúkrahúáslæknis ins. metra Halldóra heitin var 60 ára að aldri og var ráðskona hjá Einari bróður sínum, sem er 66 ára. Vigfús er 62 ára gamall. Austin-Gypsy jeppinn, U-650, var nýr, skrásettur sL haust. Hann er gjörónýtur. Síldarháfur féll á háseta Maðurinn slasaðist mjög illa Akranesi, 7. janúar. Á SUNNUDAGINN kl. 3.30 e.h. varð það slys er Skipaskagi var að landa, að háfur fullur af síld féll ofan á einn hásetann, sem stóð við lestarkarminn. Vindan, sem hífði háfinn, bil- áði. Hafði loft komizt í pípur og vökvinn hætt að verka, svo spilið sleppti vírnum lausum. Hásetinn, sem heitir Ingi Bjarnason, 19 ára gamall, til heimilis hér í bæ, féll niður í lestina og háfurinn fullur af síld á hann ofan. Slasaðist Ingi mikið. Læknar sjúkrahússins, Páll og Bragi, komu í skyndi á vettvang og lögreglubíllinn ók hinum slas- aða og læknum á sjúkrahúsið. Var gerður uppskurður á Inga seint á sunnudag. Páll Gíslason, yfirlæknir sjúkrahússins, sagði um meiðsli Inga í dag, að hann hefði hlotið áverka á brjóstkassa og vinstra lunga marizt. Auk þess hefði rifnað gat á magann, þindina og lifrina. Líðan Inga er eftir atkvikum sagði Páll yfirlæknir. Tvær ungar skautadísir LITLU stúlkurnar eru systur' og sl. laugardag brugðu þær sér á skauta á Tjörninni, eins | og hundruð annarra barna. Skautadísirnar heita Guð- rún Steingrímsdóttir (t.v.), 7 ára, og Svava Ásdís Stein- grímsdóttir, 9 ára. Telpurnar sögðu ljósmynd- aranum, Sv. Þ., að þær hefðu stundað skautahlaup frá því þær máttu fyrst fara einar niður á Tjörn. « Júní seldi fyrir 1.8 milljón 99 Sildarslatti66 Alþýðublaðsins seldist fyrir 1.3 milljón TOGARINN Júní seldi í Cuxhaven í gær fyrir alls 169.102 mörk eða um 1 milljón og 800 þús. krónur. Bv. Júní var með 232 tonn af síld, sem seldust fyrir 116.845 mörk, og má það telj- ast mjög góð sala, ekki sízt þegar tekið er tillit til þess, að síldin var talsvert misjöfn að stærð, en að því eru daga- skipti eins og kunnugt er. Þá seldi bv. Júní 53 tonn af öðr- um fiski, sem hann veiddi á leiðinni út, fyrir 52.257 mörk og er það mjög góð sala. Bv. Júní hafði leyfi til að lesta 250 tonn af síld, og var hætt að lesta, þegar 252 tonn voru komin í skipið, þar eð gert var ráð fyrir eðlilegri rýrnun í flutningi, 8—10%, eins og kom líka á daginn. Þetta er söluferðin, sem A1 þýðublaðið fjallaði um í frægri fimm dálka grein á for síðu sl. laugardag, þegar það hugðist fara að kenna Bæjar- útgerð Hafnarfjarðar, hvern- ig ætti að haga rekstri og út- gerð togara. Tókst það með þeim endemum, að greinin var öll rangsnúin frá upphafi til enda, eins og rakið var í Mbl. á sunnudag. Var engu líkara, en greinarhöfundur hefði aldrei komið nálægt málinu á nokkurn hátt, sem þó mun ekki vera, heldur var hér skrifað gegn betri vit- und. Hefur greinin orðið að athlægi í Háfnarfirði og Al- þýðublaðinu til skammar. Alþbl. talaði t. d. um, að bv. Júní hefði verið „með slatta af síld í lestinni“ og síðar um „síldarslatta“. Nú kemur í ljós, að „slattinn" nam eftir rýrnun hvorki meira né minna en 232 tonnum. — „Slattinn" seldist svo á tæp- ar 1.3 milljónir króna! Rætt v/ð vitavörðinn á Hornbjargi: Hefur séð einn stóran ísjaka MIKLAR frosthörkur hafa verið að undanförnu, eink- um á Norðurlandi. Margir hafa búizt við hafís og átti Morgunblaðið því símtal í gær við Jóhann Pétursson vita vörð á Hornbjargi. — Hefur þú orðið var við hafís Jóhann? — Onei, en í fyrradag kom ég auga á stóran jaka. Hann var að brotna, en hefur lík- lega færzt vestur á bóginn. — Sástu hann frá vitanum? — Nei, ég heyrði tilkynn- ingu frá skipi um jakann og fór því upp á bjargið. Jakinn var langt úti. Þeir stóru brotna langt frá landi. — Hvað um hvítabirni? — Það kann vel að vera að þeir séu hér í víkunum í kring að eltast við minka. Ekki hef ég samt séð þá. — Hvernig hafið þið það í vitanum? — O, bærilegt. Það hefur verið risjótt veður hér á Hom ströndum. Einn plús er þó, sem ekki hefur verið áður. Túrbínan hefur gengið prýði- lega, en það hefur hún ekki gert fyrr. — Hvað búa margir í vit- anum? — Við hjónin meV tvö böra. Svo eru páfagaukar, hundar og kettir. Allir hafa það gott, nema hvað við fá- um ekki Morgunbiaðið. Blöð hafa ekki komið frá því í nóvemberbyrjun. — Hvað gerðuð þið um áramótin? — Héldum feikna mikla brennu. Það þýðir ekki ann- að. Hér verður allt að gera sem tilbreyting er í. Svo er mikið spilað af marías. Allaf marías og hörkuslagur er við konuna hvort okkar vinnur. — Hvar er næsta byggð? —■ Það mun vera í Reyðar- firði. Þar býr Magnús bóndi Jakobsson með konu og ein- um krakka. Hann hefur verið að tala um að flytjast burtu. Við erum nú einir i Grunna- víkurhreppi, sem áður var. Enginn býr á svæðinu frá ísafjarðardjúpi til Reykjar- fjarðar. Kannski leynast hvita birnir á þessu svæði, sagði Jóhann að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.