Morgunblaðið - 11.01.1963, Blaðsíða 5
; Föstudagur 11. janúar 1963
MORGUISBLAÐIÐ
5
EINS og skýrt heiur verið
frá, lauk ungur íslending-
ur, Þorsteinn Sæmunds-
son, um miðjan desember-
mánuð doktorsprófi í
stjörnufræði frá Lundúna-
háskóla. Fréttamaður MbL
fékk nú í vikunni tæki-
færi til þess að ræða stund
arkom við hinn nýbakaða
doktor, sem er aðeins 27
ára gamall, á heimili hans
að Bólstaðarhl. 14, en hann
er sonur hjónanna Svan-
hildar Þorsteinsdóttur og
Sæmundar Stefánssonar
f ramkvæmdastj óra.
— Ég lauik stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykja
vík vorið 1954, svaraði Þor-
steinn fyrstu spurningu frétta
mannsins, og síðan hef óg að
mestu leyti dvalizt í Bret-
landi. Fyrst stundaði ég nám
við háskólann í St. Andrews
í Skotlandi og lauik prófi það-
an árið 1958, með stjörnu-
Ífræði sem aðalgrein, en auka
greinar stærðfræði, eðlisfræði
Qg jarðfræði. Að því loknu
kom ég heim til íslands, en
fór svo utan til London í
byrjun næsta árs og dvaldist
þar við rannsóknir, þangað
til vörn doktorsritgerðarinn-
ar fór fram hinn 13. desem-
ber síðastliðinn.
— Hvað nefnist ritgerðin?
— Hún heitir á frummálinu
„Origin of Recurrent Magnet-
ic Storms“, en á íslenzku
mætti nefna hana Orsakir rað
bundinna segulstorma.
— Og um þær fjallar hún?
— Jlá, hún fjallar um seg-
ulstorma, en frumorsök þeirra
eru rafhlaðnar fareindir (íón
ar) frá sólinni, sem berast til
jarðarinnar og valda breyting
um á segulsviðinu. I>egar þess
ar breytingar eru miklar, nefn
ast þær segulstormar. Segul-
storma verður oft vart, þegar
mikið er um sólbletti, og
fylgja þeim tíðast björt norð-
urljós. Segulstormar og norð
urljós eru því náskyld fyrir-
bæri, sem bæði eiga rót sína
að rekja til áhrifa frá sól-
inni.
Til þessa náms míns,' hélt
Þorsteinn áfram, hef ég feng-
ið góða styrki, sem ég er mjög
þafcklátur fyrir. Auk mennta-
miálaráðsstyrkja féfck ég styrk
frá St. Andrews, er ég hafði
lokið prófi þar, til framhalds
náms í London næstu 2 árin,
og að því loknu fékk ég tví-
vegis stynk úr VísindasjóðL
*
— Eruð þér nú alkominn
heim, Þorsteinn?
— Já, ég hef mestan hug
á að setjast að hér á landi og
býst við því að starfa hjá
prófessor Þorbirni Sigurgeirs
syni við Eðlisfræðistofnun
Háskólans nú á næstunni, en
prófessor Þorbjörn hefur að
undanförnu annast segulmæl
ingar hérlendis. Ég vonast
líka til þess, að ég geti feng-
ið tækifæri til að athuga norð
urljós og segulstorma á ís-
landi, en að þessu leyti er
land okkar mjög mikilvægur
staður á hnettinum, þar sem
það liggur í norðurljóSabelt-
inu miðju.
Hér á .landi, sagði Þor-
steinn, eru norðurljós á him-n
inum svo að segja hverja ein-
ustu nótt, éog geta þau stund
um orðið svo björt, að unnt
sé að lesa við þau. Hefur það
verið allmikið áhyggjuefni
erlendis, hversu litlar norður
ljósaathuganir hafa verið gerð
ar hér. Tiil dæmis þyrfti að
gera athuganir og samanburð
á norðurljósum hér og á suð-
urskautinu, en þau ljós eru
stund'um kölluð suðurljós, en
miklar líkur eru taldar til
þess, að norðurljós og suður-
ljós séu svipuð á sama tíma á
mótsettum stöðum,.
— Hverjir standa fremst
með þessar athuganir?
— Brautryðjendur í þesis-
efnum eru Norðmenn, sem þó
hafa ekki eins góð skilyrði
ti'l athugana og við íslending-
ar, en einnig hafa verið fram-
kvæmdar umfangsmiklar at-
huganir í Kanada, Alaska,
Sovétríkjunum og víðar.
*
— En hvernig er með al-
þjóðasamvinnu á þessu sviði?
— Á jarðeðlisfræðiárinu
1957—1958 myndaðist alþjóð-
leg samvinna á flestum svið-
um jarðeðlisfræðinnar, og
hefur þessi samvinna að
mörgu leyti haldizt síðan. Nú
stendur fyrir dyrum svokall-
að sólkyrrðarár, árin 1964 og
1965, en svo er það tímabil
nefnt, þegar sólblettir eru
minnstir, og er það því gagn-
stætt því, sem var á jarðeðlis
fræðiárinu, en þá náðu sól-
blettir hámarki. Standa nú
vonir til, að samvinna verði
svipuð í rannsóknum sólkyrrð
arársins, þannig að hægt verði
að sjá mismuninn á áhrifum
sólar, þegar sólblettir eru
mestir og minnstir.
Áður en óg kom heim, hafði
alþjóðanefnd sú, sem sér um
samræmdar athuganir á sód-
kyrrðarárinu, samband við
mig og bað mig að hlutast til
um, að stofnuð yrði nefnd
hér á landi til þess að annast
þessar athuganir. Fór ég því
fram á það við prófessor Þor-
björn Sigurgeirsson, að hann
yrði formaður þessarar nefnd
ar, og er í ráði að kalla sam-
an fund þeirra aðila, er hlut
eiga að máli, til að ganga frá
nefndarskipuninni. Verður sá
fundur væntanlega haldinn
einhvern næstu daga.
Nauðsynlegt er, sagði Þor-
steinn, að undirbúningur hefj
ist hér, sem allra fyrst að at-
hugunum sólkyrrðarársins.
Því miður voru athuganir á
norðurljósum hér á landi á
jarðeðlisfræðiárinu minni en
skyldi og þarf nú að bæta
það upp, svo sem frekast er
unnt. Auik þeirra athugana,
sem vísindastofnanir hér á
landi þyrftu að annast, er
einnig nauðsyn að leita að-
stoðar sjálflboðaliða um land
Dr. Þorsteinn Sæmundsson.
allt, og er mjög áríðandi að
ná til áhugamanna tímanlega,
þannig að þeir geti byrjað
sem fyrst að fylgjast með norð
urljósunum, svo að athugana-
kerfi það, er komið verður
upp fyrir sólkyrrðarárið, geti
verið tilbúið í byrjun næsta
árs.
— Þurfa þessir áhugamenn
ekki að hafa einhverja jarð-
eðlisfræðilega þekkingu?
— Nei, alls ekki, hér þarf
fyrst og fromst vilja og þolin
mæðL
— Og í hverju yrði starf
þeirra fólgið? J
— Þeir myndu fylgjast með J
tegund norðurljósanna, en það I
er mifclu auðveldara að gera I
uppi í sveit en í ljósadýrð
bæjanna. Þá þarf einnig að á-
ætla birtuna og athuga hæð
og stefnu ljósanna yfir sjón-
deildarhring. Þetta er bezt að
athuga með einföldum tækj-
um, sem ég gæti væntanlega
fengið send hingað frá Bret-
landi. Allar yrðu athu.ganirn- I
ar útskýrðar í dreifibréfum, 7
sem send yrðu um landið. I
.— Er búizt við mikium á- I
huga manna á þessu má'li? |
— Áhugi á athugunum sem L
þessum er oft almennur til ?
að byrja með, en hann end- 7
ist stundum skammt, þegar 1
tekur að reyna á þolin 4
mæðina. En að sjáilfsögðu 1
yrði upplýsingum, sem ná yfir
stuttan tíma, tekið með þökk-
um, þótt hinar, sem ná yfir
lengri tíma, séu auðvitað á-
kj ósanlegastar.
Þá þarf einnig að koma
hér fyrir norðurljósmynda-
vól af sérstakri gerð og helzt
tveimur. Yrði önnur þeirra
sett upp hér í nágrenni Reykja
víkur, en hin lí'klega fyrir
norðan og hefur veðurstofan
tekið að sér að athuga það,
hvar bezt séu veðurskilyrði.
A
— Hefur áhugi manna ekki
aukizt með tilkomu gervi-
tunglanna.
— Jú, hann hefur yfirleitt
farið mjög vaxandi eftir komu
gervitunglanna og geimfar-
anna. Til dæmis var aðal-
verkefni Mariner II, sem fór
fram hjá Venusi, ekki aðeins
að athuga Venus, heldur og
ástandið í geimnum mi'lli jarð
arinnar og Venusar. Þannig
fengust miklar upplýsingar,
sem enn er verið að vinna úr.
En svo hafa líka mörg óleyst
viðfangsefni komið í stað
þeirra, er leyst hafa verið,
þannig, að vandamálin eru
engu færri nú, en þau áður
voru, sagði Þorsteinn að lok-
um.
Noröurljósaathuganir
mikilvægar á islandi
Suðurnesjabúar
Vinsælast þessa viku: —
Norðlenzka hangikjötið,
dilkakjöt H verðflokkur,
saltkjötið góða, hrossakjöt
hamsatólg. Munið laugar-
dags sendingarnar.
Jakob, Smáratúni. S. 1826.
Ráðskona óskast
Ráðskona óskast til að sjá
um lítið heimili. Mikið frí
og gott kaup. Uppl. í síma
1-34-51 milli 6—8.
Keflavík
1 kuldanum úlpur á alla
fjölskylduna. Peysur og
ullarnærfatnaður.
Fons, Keflavik.
Hagström gítar
til sölu. Uppl. í síma 51283.
4 reglusöm frændsystkín
óska eftir 3—4 herb. íbúð
í nokkra mánuði. Fyrir-
framgreiðsla, ef óskað er.
Sími 34069.
Keflavík
Gráu þykku herranærfötin
nýkomin. Ennfremur þýzk
dreng j anærföt.
Fons, Keflavík.
Sem ný Everest
samlagningarvél til sölu.
Einnig nýr grænn „spejl“
flauelskjóll. Uppl. í síma
13537, Eiríksgötu 17, 1. h.
Permanent litanir
geislapexmanent, — gufu
permanent og kalt perma-
nent. Hárlitun og hárlýsing
Hárgreiðslustofan Perl*
Vitastíg 18 A - Sími 14146
SILFURTUNGLIÐ
Gömlu dansarnir
Hljómsveit Magnúsar Randrup
Dansstjóri: Baldur Gunnarsson.
Húsið opnað kl. 7.
Dansað til kl. 1.
Enginn aðgangseyrir.
Stúlka óskast
til þess að vísa til sætis. Upplýsingar í
Laugarásbíói frá kl. 2—5 í dag.
Skrifsfofustúlka
Þekkt gamalt fyrirtæki villi ráða AÐSTOÐAR-
GJALDKERA (stúlku). Tilboð (ásamt meðmælum)
er greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr.
Morgunblaðsins auðkennt: „Gjaldkeri“.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa. — Vaktaskipti.
Bifreiðastöð Steindórs
Sími 18585
Ráðskona
óskast við góða verbúð í Grindavík. —
Upplýsingar í síma 50165.
Jón Gíslason sf.
Hafnarfirði.
Skrifstofustúlka
óskast nú þegar til starfa hjá þekktu fyrir-
tæki í Miðbænum. — Verzlunarskóla- eða
hliðstæð menntun æskileg. — Eiginhand-
arumsókn er tilgreini aldur, menntun og
fyrri störf, sendist afgr. Mbl. merkt: —
„Auglýsing — 3833“.