Morgunblaðið - 11.01.1963, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.01.1963, Blaðsíða 10
1C MORGlJiy BL AÐIB FSstudagur 11. janúar 1963 Hér er verið að háfa úr 700 tunnu kasti. ur hvor, þar sem þetta setti að takast eftir líkamsþunga, en venjulegir menn notuðu hins vegar eina töflu á sólar- hring. Ég tók engri áhættu eftir að fór að velta undan Garð- skagaflösinni, heldur hallaði mér á bekk í skipstjóraklef- anum og tók að lesa skemmti rit. Við tókum þeirri áhættu að fá okkur kvöldkaffi frammi hjá Guðna kokki. Það varð þá að hafa það ef eitthvað ókyrrðist hið innra með okk- ur. En ekkert skeði. Þegar ég kom aftur í brú bauð Þórð ur vélstjóri mér kojuna sína, sem ég fúslega þáði og renndi mér niður í káetuna og skreið í kojuna. Mér varð ekki svefnsamt en ég fann að skipið steypti talsverðum stömpum í Reykjanesröstinni og hugsaði með mér að hyggi legast væri að hreyfa sig sem minnst meðan svo stæði. En svo tók mér að leiðast að hanga glaðvakandi í koju og fór því uþp í brú. Þá sáum við ljósin í Grindavík. Klukk an var orðin tvö um nóttina og enn var 2—3 tíma sigling að flotanum. Eg hélt mig nú í brúnni og rabbaði við Tryggva Valsteinsson stýri- mann, gamlan nágranna að norðan. Hann mundi eftir þvi að hafa strákur sótt naut heim til föður míns á Mýrar- lóni og leitt til kýr sem faðir hans átti í Þórsnesi í Glerór- þorpi. Það er stundum ekki langt úr Glerárþorpi í Grinda víkursjó. Ekki óveðurskrákur. Um kl. 4 um nóttina vakn- aði Leifur skipstjóri, neri stýrurnar úr augnum, klóraði sér á maganum og bak við hægra eyrað og rak hausinn út um brúargluggann. Ég þorði ekki að anda ef ég skyldi trufla veiðináttúruna. Mér hefir verið sagt að Hall- dór faðir hans hafi verið einn þessara draumakarla, sem hafði það eins og Eggert á Víði II, lagði sig og sofnaði en rauk svo á fætur og beint á miðin og fyllti skipið. Þann ig hafði Halldór gamli haft það þegar hann var skipstjóri upp á sitt bezta í Ólafsvík og snúruvoðin var og hét. FYRIRMÆLIN höfðu hljóðað: „Þið farið í veiði- för með síldarháti". Nú vorum við komnir niður á Grandagarð og örkuðum inn til Barða Barðasonar í Grandaradíói og leituðum fregna af bát- unum. Við vorum enn ekki staðráðnir í með hvaða báti við ættum að halda út á miðin. Okkur hefði þótt lítill fengur að förinni, ef ekkert hefði aflazt. Það var einnig of lítið nýjabrum af því að fara með Eggert á Víði eða Haraldi á Guðmundi Þórð- arsyni eða einhverjum aflakónganna frá Akra- nesi. Þessu vorum við að velta fyrir okkur meðan við hlustuðum á Barða tala við bátana. Skyndilega kom kall: — Grandaradíó, Granda- radíó. Halldór Jónsson kallar. Skipti. Og Barði svarar: — Já. Halldór Jónsson. Grandaradíó svarar. — Grandaradíó. Halldór Jónsson. Við verðum þarna inni um klukkan hálf fimm. Geturðu nokkuð sagt okkur hvar við eigum að koma upp að? — Halldór Jónsson. Granda radíó. Já, þið eigið að koma hérna upp að Grandabryggj- unum til að byrja með. Heilsað upp á „prinsinn“ Við ákváðum að bíða. Barði sagði okkur líka að það myndi ekki bregðast síld hjá Leifi, ef við værum að hugsa um að komast út. Okkur fannst þetta kjörið. Hér var kornungur skipstjóri á ferð. Satt bezt að segja nýliði, en hafði verið þrælheppinn það sem af er þessari síldar- hrotu. — Það hefur verið „stuð“ á honum, eins og sjómennirnir segja. — Jæja. Þá er „prinsinn" að koma, segir einhver og við skálmum út frá Barða og stjáklum fram glerhála bryggjuna þar sem vélskipið Halldór Jónsson frá Ólafsvík er að renna upp að með 1600 tunnur af síld innanborðs, ágætis farm, sem allur fór til vinnslu. Það er heldur ekki talin ástæða til að láta öllu meira á ekki stærra skip (96 tonn) og sigla með farminn sunnan fyrir Reykjanes um hávetur. Við snörum okkur um borð og upp í brú. Við höfðum séð framan í ungan mann í glugga bakborðsmegin í brúnni og heyrðum á tali hans, að þar var skipstjórinn. Er við kom- um inn í brúna sneri ég mér að manninum, sem stóð við gluggann og spurði hvort hann væri skipstjórinn. Hann kvað nei við, sagði að hann væri þarna og benti á annan. Skipstjórinn hafði fært sig meðan við stukkum um borð. — Við erum komnir hérna tveir frá Morgunblaðinu og okkur langar til að fá að fljóta með í eina veiðiför, sagði ég, er við höfðum heils- azt. — Þá fáum við ekki kvik- indi, ef blaðamenn eru með, sagði skipstjórinn hlæjandi — Ja, mikið helviti, hraut út úr mér. — Þá er að taka því. Ætlaði ég ekki að hafa fleiri orð um þetta, en þá sagði skipstjórinn: — Jú, strákar mínir. Þetta er allt í lagi. Komið þið bara. — Og hvenær gerið þið ráð fyrir að vera búnir að landa? — Þið getið farið að athuga hvenær við verðum búnir Fáum ekki Kraftblökkin, hið mikla þarfaþing, dregur ioi nótina. kvikindi svona um 1—2 í nótt. Það tekur varla minna en 8—9 tíma að landa þessu. Með það kvöddum við og héldum í land. Postafen úr Rómarför En þetta breyttist. Klukk- an rúmlega 7 hringdi síminn. Þar var kominn Leifur Hall- dórsson skipstjóri og sagði að löndun myndi lokið upp úr átta um kvöldið og skipið myndi verða farið um kl. 9. Þetta gerði strik í reikning- inn fyrir okkur, sem ætluð- um að ljúka ýmsu fyrir brottförina. En það varð að taka því og ég sagði að við myndum verða komnir um borð á tilskildum tíma. Það mátti heldur ekki seinna vera. Því skipið var að leysa landfestar er við kom- um niður á bryggju, þá bún- ir að vera æði stund að leita að farkostinum um alla Reykjavíkurhöfn, vestan frá Granda og austur á togara- bryggju, en þar lá fleyið. Nú var að koma sér um borð, en talsvert var fjarað. Við Sveinn Þormóðsson erum ekki beinlínis línudansarar og því klöngruðumst við út á kraftblökkina og klifruðum síðan niður. Þetta tókst slysa- laust, en ég er ekki viss um að áhorfendum hafi fundizt tilburðirnir aðdáunarverðir. Við vildum ekki leika eftir hérahopp Þórðar vélstjóra, sem stökk af ísuðum bryggju- kantinum út á brúna með ljósmyndaútbúnað Sveins í hendinni. Nú var lagt frá og haldið út sundin í blíðveðri. Við höfðum hljótt um okkur og reyndum að láta lítið fara fyrir okkur. Sjóveiki bar á góma og Sveinn var státinn yfir því að hafa fengið posta- fen hjá Matthíasi ritstjóra, sem hafði orðið afgangs úr Rómarför hans á liðnu hausti. Ráðlegging Matthíasar var, að við yrðum að taka 5 töfl-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.