Morgunblaðið - 11.01.1963, Page 17
r Föstudagur 11. janúar 1963
m o r c r y b r a ð i ð
17
Helga Magnúsdottir
Ijósmóðir — minningarorð
HINN 28. des. sl. andaðist í
Borgarspítalanum í Reykjavík
frú Helga Magnúsdóttir, ljós-
móðir, Litla-Landi í Mosfells-
sveit. Hún var jarðsett að Lága-
felli 2. jan. að viðstöddu miklu
fjölmenni.
* Helga var fædd að Sýrlæk í
Flóa 19. ágúst 1891. Foreldrar
hennar, Oddný Jónsdóttir frá
Káragerði í Landeyjum og
Magnús Snorrason frá Sandvík
í Flóa, fluttust til Reykjavíkur
með börn sín, og var Helga þá
um nokkurt skeið hjá frænd-
fólki sínu í Hafnarfirði.
Eins og títt var um börn
þeirra tíma varð Helga snemma
að fara að vinna fyrir sér, en
eflaust hefur hana eins og
margan unglinginn á þeim dög-
um þyrst í meiri menntun en þá
var almennt veitt, því hún hafði
fengið í vöggugjöf ágæta greind
og frábæra hjúkrunarhæfileika.
Hún starfaði um nokkurt skeið
hjá frú Valgerði Gísladóttur frá
Mosfelli, sem þá kenndi ungum
stúlkum vélprjón. Minntist
Helga oft á þann tíma, enda
kynntist hún þá eftirlifandi
manni sínum, Einari Björnssyni
frá Norður-Gröf á Kjalarnesi.
Árið 1915 giftu þau sig og voru
fyrsta búskaparár sitt í Norður-
Gröf, en síðan á ýmsum jörðum
í Mosfellssveit. hau hjón eignuð-
ust tvö börn: Magnús, kennara
við Laugarnesskóla í Reykjavík,
og Margréti, húsfreyju á Litla-
landi, en auk þess ólu þau upp
dreng, Aðalbjörn Halldórsson,
nú búsettan í Keflavík. Þá
dvöldust barnabörn og frænd-
systkini oft langdvölum á heim-
áli þeirra.
Ég man fyrst eftir þeim hjón-
um árið 1920, en þá bjuggu þau
í Lambhaga. Er mér sérstaklega
minnisstæður blómagarður, sem
þau höfðu búið sér sunnan við
bæjarhúsin, og hversu allt var
snyrtilegt hjá þeim, bæði úti og
inni. Veit ég að þegar Helga
varð að flytja frá Lambhaga var
henni ekki sársaukalaust að
skilja við blómin sín. En í
hvert skipti sem þau hjón fluttu
búferlum hófst húsfreyjan handa
með að rækta nýjan garð og
aldrei var vinnudagurinn svo
langur að ekki næðist tími til að
sinna og hirða um gróðurinn.
í þessu og mörgu öðru var
Helga langt á undan sinni sam-
tíð.
Eins og fyrr segir var Helga
gædd frábærum hjúkrunarhæfi-
leikum, enda var henni ekki
nóg að hugsa um eigið heimili
og börn, en fór strax á fyrstu
búskaparárum þeirra hjóna að
nema ljósmóðurfræði og varð
ljósmóðir umdæmisins um
margra ára skeið. Hún hafði
sannkallaðar læknishendur og
flutti með sér öryggi og hlýju
hvar sem hún kom til þess að
leiða litlar verur inn í Ijós dags-
ins. Meðan læknir var ekki bú-
settur í héraðinu var Helga oft
sótt til sjúklinga og veitti ómet-
anlega fróun og hjúkrun í veik-
indum. — Gegnum Ijósmóður-
starfið kynntist hún lífi og
heimilum fólksins í sveitinni og
mörg voru spor hennar til þeirra
sem áttu vdð örðugleika að
stríða. Hún unni lífinu og hlúði
að öllu því sem var hjálparvana,
hvort sem það var maður, mál-
leysingi eða lítið blóm.
Erfitt má það vera fyrir ljós-
móðurina að yfirgefa börn sín
ung, hvernig sem ástæður eru
heima fyrir, og leggja af stað
jafnvel yfir fjallvegi í hríð og
náttmyrkri, hvenær sem kallið
kemur, ríðandi eða gangandi
eftir atvikum, þá er ekki spurt
um veður eða færð. En það hef-
ur einnig verið sárt fyrir eigin-
manninn og börnin að sjá á eftir
móðurinni út í nætursortann, en
slíkt hefur verið hlutskipti ís-
lenzkra ljósmæðra og heimila
þeirra í sveitum landsins frá
öndverðu.
Helga var ein af stofnendum
Sjúkrasamlags Mosfellshrepps,
en það var stofnað löngu áður
en lög voru sett um sjúkrasam-
lög almennt, og sat í stjórn þess
til æviloka. Þá átti hún einnig
um árabil sæti í skólanefnd
hreppsins.
Þau hjónin voru bæði félagar
í UMF Afureldingu um nokkurt
skeið, Einar einn af stofnendum
þess, og helguðu því félagi
krafta sína. Síðar gerðist Helga
meðlimur Kvenfélags Lágafells-
sóknar, um tíma formaður, en
síðar varaformaður og gegndi
þá einnig ýmsum öðrum trún-
aðarstörfum fyrir félagið, var
meðal annars fulltrúi þess í hús-
nefnd félagsheimilisins, átti sæti
á sambandsfundum o. fl.
Öll félagsstörf rækti Helga af
mestu prýði. Hún var hugsjóna-
rík, ágætlega máli farin og
flutti mál sitt af festu og djörf-
ung, en hún var einnig fljót til
að styðja tillögur sem aðrir
báru fram, ef þær áttu hljóm-
grunn í hennar eigin sál.
Þegar vinir hverfa yfir landa-
mæri lífs og dauða er oft margs
að minnast.
Eð man Helgu fyrst þegar hún
sýndi okkur unglingunum blóm-
in í garðinum sínum að Lamb-
haga. Ég man hana einnig á sól-
björtum sumardögum í glöðum
hópi ungmennafélaga hleypa
gæðingum sínum um sléttar
grundir og mela því hún var
búin snilld hestamannsins. Man
hana sem húsmóðir glaða og
gestrisna heima í Laxnesi með
húsið fullt af börnum og ungl-
ingum við söng og hljóðfæra-
slátt, því hún unni hljómlist og
glaðværð. Man þegar hún kom
með sínar góðu og líknandi
Ijósmóðurhendur til þess að
taka á móti börnunum mínum
og vakti yfir mér og þeim þar
til öllu var óhætt. Man þær
stundir, sem við unnum saman
að félagsmálum eða sátum og
ræddum um daginn og veginn.
Allt af var. jafngott að hitta
hana, þar var ekki verið að
narta í náungann, heldur barst
talið ávallt að þeim málefnum,
sem efst voru á baugi hverju
sinni og gátu orðið til framfara
og menningarauka fyrir félagið
okkar og héraðið. Hún var sá
sterki stofn, sem allt af var
hægt að leita til, því hún hafði
bjargfasta trú á sigur hins góða.
Allar þessar minningar og
samverustundir, sem hafa gert
líf mitt að mun ríkara, vil ég
þakka af heilum hug og biðja
henni blessunar á fyrirheitna
landinu, þar sem hún nú „flýgur
á vængjum morgunroðans, meira
að starfa Guðs um geim“,
Eiginmanni hennar, sem nú
hefur misst sinn sterka stofn,
börnum hennar og barnabörn-
um, bið ég allrar blessunar í
framtíðinni.
„Vertu sæl, við söknum þín“.
H. M.
Bátur til sölu
Sem nýr 12 tonna bátur ásamt nýjum veiðarfærum,
til sölu nú þegar. Vél bátsins er 103 ha. Volvo Penta.
Ganghraði 9 sjómílur. Báturinn er sérstaklega ut-
búinn á línu, með sjálfdragara, stýri og kúpling
leidd fram á dekk. — Hagkvæmir greiðsluskilmál-
ar. — Uppl. í síma 62, Bolungarvík.
Utsala
IJtsala
ÍJtsalaii byrjar á morgun
Peysur pils og fleira.
VERXLUNIM
%#>
■Af
'm,-.
LAUCAVEC ,M
Hamragil
fm: ■,
Æ.
Innanfélagsmót í svigi, karla, kvenna og drengja
hefst kl. 11,30, sunnudag. Skólamót Menntaskólans
í svigi hefst kl. 2.00. ^
2ja og 3|a herbergfa
íbúðir til sölu við Bólstaðarhlíð. íbúðirnar eru i
smíðum og verða afhentar tilbúnar undir tréverk,
fullgert að utan og allt sameiginlegt innanhúss íull-
gert. íbúðirnar eru í 4ra hæða fjölbýlishúsi. ij0!
Málflutningsstofa VAGNS E. JÓNSSONAB. 1
Austurstræti 9. — Símar 14400 og 20480.
BIFREIÐAEIGENDUR
Fró upphafi hafa Samvinnutryggingar
lagt megináherzlu á tryggingar fyrir
sannvirði, góða þjónustu og ýmiss-
konar frœðslu- og upplýsingastarf-
semi.
í samrœmi við það hafa Sam-
vinnutryggingar ráðizt í útgáfu
bókarinnar,, Bíllinn minn" f hana
er hœgt að §krá nákvœmiega
allan rekstrarkostnað bifreið-
ar í heiltár, auk þess sem
í bókinni eru ýmsar gagn-
legar upplýsingar fyrir
bifreiðastjóra.
Bókin hefurþegar
verið send endur-
gjaldslaust, til allra
bifreiðaeigenda sem
tryggja bifreiðir sínar
hjá Samvinnutrygging-
um, en ef einhver hefur
ekki fengið hana vegna
bústaðaskipta, er hann vin
samlega beðinn að hafa sam-
band við aðalskrifstofuna og
mun bókin þá verða send í pósti.
SAMVINNUTRYGGINGAR
Bifreiðadeild - Sími 20500
S AMVINNl)TRYGGINGAR