Morgunblaðið - 11.01.1963, Síða 22
22
MORGUHBLAÐ1Ð
Fostudagur 11. janúar 1963
Sonny og
Flloyd
rlfast og keppa
ekki 4. april
ÞAB verður ekikert af því að
Sonny Liston og Flloyd Patter-
son berjist um heimsmeistaratit-
ilinn í þungavigt öðru sinni hinn
4. apríl eins og Patterson hefur
stungið upp á. Liston og fram-
kvæmdastjóri hans hafa sett sig
á háan hest og neita kappleik
fyrr en í maí — og það með því
skilyrði að Liston fái greiddan
sinn hluta af leiknum 25. sept. en
hann kveðst eiga 207 þús. dali
hjá umsjónarmönnum leiksins,
sem voru Championship Sports
Inc.
Samkvæmt samningi um. fyrri
leikinn á Patterson að tilefna
dag fyrir síðari kappleikinn og
jafnframt á hann að ákveða
hverjir beri ábyrgð á leiknum.
Patterson hefur tilnefnt sama
umsjónaraðila og áðiu*, Champion
ship Sports Inc., og hann vill hafa
leikinn 4. apríl, og skuli hann
fram fara í Miami Beach.
Þessu neitar Liston og fram-
kv.stj. hans og segir að það sé
ekki hægt að hafa þá umsjónar-
menn sem ekki skila peningum
sem keppendum ber. Þeir bjóða
leik í maí og þá í Baltimore —
ef Liston fái greidda sína peninga
frá fyrri leiknum.
„Þá förum við til dómstólanna"
segir lögfræðingur Pattersons.
„Sonny hefur unnið Flloyd í
hringnum og hann er ekkert
hræddur við að mæta honum
fyrir rétti“ svarar framkv.stj.
Listons og bætti við. „Heims-
meistaratitillinn verður ekki
unninn í réttarsalnum. Sonny
hefur titilinn“.
Dómararir sem heiðraðir voni, frá v. Þorlákur þórðarson, Magnús V. Pétursson, Ingi Eyvinds, Sigurjón Jónsson,
Hannes Sigurðsson, Guðjón Einarsson, Jörundur Þorsteinsson, Guðbjöm Jónsson, Grétar Norðfjörð. Einar Hjartarson
og Baldur Þórðarson. A myndina vantar Hauk Óskarsson. — Ljósm. Sv. Þorm.
KRR sæmdi 12 knattspyrnu
dómara sérstökum heiðri
— og Fram fékk bikarinn, sem
bezta félag í Reykjavik
AÐALFUNDUR Knattspymu-
ráðs Reykjavikur var haldinn í
fyrrakvöld í Valsheimilinu við
Hlíðarenda. Á fundinum heiðr-
aði KRR 12 knattspyrnudómara
fyrir vel unnin störf og voru
þeir sæmdir nýju og sérstöku
merki KRR og eru þeir hinir
fyrstu er það bera. Þá var og
afhentur bikar sem veittur er
sigursælasta félaginu í Reykja-
vík í öllum flokkum sameigin-
lega og hlaut Fram bikarinn í
fjórða sinn.
if Stjórnin
endurkjörin.
Einar Björnsson form. KRR
flutti skýrslu stjórnar og bar
Enska knattspyrnan ■>
DREGEÐ hefur verið um hvaða
lið leika saman í 4. umferð ensku
bikarkeppninnar, sem fram fer
26. janúar n.k.
Luton eða Swindon við Barns-
ley eða Everton, Southampton
eða York við Watford eða Rother
ham, Norwich eða Blackpool við
Bradford, eða Newcastle, Car-
lisle eða Gravesend við Sunder-
land, Grimsby eða Leicester við
Ipwich, West Ham eða Fulham
við Swansea eða Q.P.R., Arsenal
eða Oxford við Shrewsbury eða
Sheffield W., Portsmouth eða
Scunthorpe við Lincoln eða Cov-
entry, Manchester U. eða Hudd-
ersfield við Bristol City eða
Aston Villa, Charlton eða Cardiff
við Tranmere eða Chelsea, Gill-
ingham eða Port Vale við Shef-
field U. eða Bolton, Tottenham
eða Bumley við Liverpool, Wals
all eða Manchester City við
Birmingham eða Bury, Blackburn
eða Middlesbrough við Leeds eða
Stoke, W.B.A. við N. Forest eða
Wolverhampton, Leyton Orient
eða Hull við Derby eða Peter-
borough.
hún vott um veigamikið starf
KRR nú sem fyrr. Skýrslan og
reikningar voru einróma sam-
þykkt og formaðurinn endur-
kjörinn í einu hljóði og með
honum í stjórn er hinir sömu
og áður en stjórnarmeðlimir eru
tilnefndi af félögum innan ráðs-
ins. Þeir eru Jón Guðjónsson
frá Fram, Haraldur Gíslason
frá KR, Jens Karlsson frá Þrótti
og Ólafur Jónsson frá Víkmg.
Meðal gesta á fundinum var
Gísli Halldórsson forseti ÍSÍ,
Björgvin Schram form. KS- og
Andreas Bergmann sem mætti af
hálfu stjórnar ÍBR. Allir ávörp-
uðu þeir fundinn og Andreas af-
henti f.h. ÍBR fagran Og mik-
inn verðlaunabikar sem KRR
hefur til ráðstöfunar til knatt-
spyrnukeppni í Reykjavík. Bik-
arinn var gjöf til KRR á 40 ára
afmæli ráðsins 1959 en afhentur
nú.
★ Dómarar heiðraðir.
Einar Björnsson ávarpaði dóm
ara sem heiðraðir voru og færði
þeim þakkir KHR fyrir ötul og
óeigingjarnt starf um langt
skeið á knattspyrnuvöllum í
Reykjavík. Guðjón Einarsson
þakkaði af þeirra hálfu með
snjallri ræðu.
-Á Bezta félagið 1-« &
í Reykjavík.
Einar afhenti síðan bikar-
inn sem veittur er „bezta knatt-
spyrnufélagi í Reykjavík“ og
það félag hlýtur hgnn sem flest
stig hefur samanlagt í öllum
aldursflokkum. Fram vann í
þeirri keppni, hlaut 194 stig,
Valur hlaut 145, KR 127, Víking
ur 88 og Þróttur 30. Er þetta í
4. sinn sem Fram vinnur bik-
Einar Björnsson
með bikarinn sem ÍBR gaf KRR
arinn, en KR hefur hlotið hann
einu sinni. Sigurður Jónsson
form. Fram veitti bikarnum við-
töku.
Bréf sent Mbl
Hvern á að kæra?
Skautamðt um aðra
helgi á Tjörninni
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Þrótt
nr ætlar að freista þess að efna
tfl skautamóts á Tjörninni 19. og
20. janúar — um aðra helgi. Verð
ur þar keppt í 500, 1500, 3000 og
5000 m skautahlaupi og er þátt-
taka öllum heimil. Jafnframt er
í ráði að efna til sýningarleiks
í íshokkí.
Þróttur hefur löngum átt góða
skautamenn innan raða félags-
manna sánna, sumar af þeim
beztu í Reykjavik. Sumir af þeim
eldri hafa undanfarna daga æft
undir þetta mót og verða meðal
þátttakenda og margir nýliðar
eru einnig ákafir til þátttöku.
Verði þátttaka mikil er hugs-
anlegt að keppendum verði skipt
í aldurshópa.
Íshokkí hefur ekki verið leik-
ið í Reykjavík en norðanmenn
hafa leikið það. Sumir af þeim
sem þar léku eru nú hér syðra
og verða með í sýningarleiknum
ef af verður.
AF tilefni greinar þeirrar í Morg-
blaðinu þ. 10. jan., er fjallaði
um félagaskiptingu Í.R.-ingsins
Valbjarnar Þorlákssonar, vildi ég
skrifa íþróttasíðu blaðsins nokk-
ur orð.
Eftir lestur greinar þessarar
sá ég mér þar gullið tækifæri til
að geta komið biturri reynslu
minni á framfæri. Gæti hún
orðið til leiðbeiningar í þessu
leiðindamáli.
Ég var Í.R.-ingur, meira að
segja kallaður „ungur efnilegur
íþróttamaður" af dagblöðunum.
Sumarið 1060 æfði ég ásamt vini
mínum, sem einnig var kallaður
efnilegur Í.R.-ingur. Læt ég þetta
nægja, aðalatriðið er: tveir ungir
Í.R.-ingar, sem æfa frjálsar íþrótt
ir. Strax um haustið fórum við til
æfinga í Í.R.-húsið. Frekar léleg
aðstaða var fyrir okkur að æfa
þar, bæði vegna þjálfaraskorts
og svo einkum það, að enginn
félagsbræðra okkar æfði í okkar
grein. Lá þá leiðin til K.R.
(fþróttahús Háskólans). Þar
þjálfar hinn ágæti þjálfari Bene-
dikt Jakobsson, og vil ég taka
það fram að hann átti engan þátt
í minni bitru reynslu. Allt voru
þetta menn (K.R.-ingar), sem
höfðu æft og keppt með okkur
á íþróttavellinum um sumarið,
menn, sem að margir hverjir
höfðu oft notið góðrar tilsagnar
þjálfara Í.R.-inga, Simonyi
Gabors (hann dvaldist í Ungverja
landi veturinn 1060—61). En
hvað gerðist?
Vil ég nú vísa til áðurnefndrar
greinar í Morgunbl., þar sem
blaðamaðurinn er að ræða við
Reyni Sigurðsson formann Í.R.
og komst Reynir m. a. svo að
orði: „ég trúi því ekki að K.R.
vilji ekki heimila Í.R.-ing að
þjálfa í sínu húsi, án þess að
hann skipti um félag, þótt að-
stæðan sé betri til stangarstökks
innanhúss hjá K.R. en hjá Í.R.
í bili“.
Ákaflega göfugmannlega hugs-
að, en leitt að formaður f.R. skuli
ekki vita meira um þessi mál en
raun ber vitni.
Jæja, en hvernig var okkur
tekið? Jú, fyrst vorum við spurð
ir að því kurteisislega hvort við
ætluðum að ganga í K.R. Við
kváðum eðlilega nei við. Skutu
þá þeir háu herrar saman fundi
og okkur tilkynnt úrslit fundar-
ins á næstu æfingu. Þau voru:
ef þið ætlið að æfa hér þá borg-
ið þið rúmlega helmingi 100%)
meira en félagsmenn K.R.! Þrjáir
úrlausnir blöstu við okikur:
1. ganga í K.R., 2. vera æfinga-
lausir um veturinn, 3. borga þessa
okurupphæð. Ég færði þetta í tal
við föður minn. Þar sem hann
er gamall og reyndur íþrótta-
maður undraðist hann mjög, en
bauðst síðan til að greiða æfing-
argjaldið fyrir okkur báða.
Æfðum við hjá K.R. þann vet-
urinn og átti sá leiðinlegi mórall,
sem ég kynntist þar, mikinn þátt
í skilnaði mínum við íþróttirnar
þó að vísu annað hafi rekið smiða
höggið á það (Ekki er ég dóm-
bær á að slíkur félagsrígur og
leiðinda mórall hafi ríkt í Í.R.-
húsinu, því ég æfði þar lítið og
líklega enginn K.R.-ingur séð sér
bót í að æfa þar).
Nú eru tvö ár liðin og margt
gerzt síðan. Á tímabilinu hafði
ég lítið samband við vin minn
vegna fjarvistar minnar erlendis,
en skemmst er frá því að segja
að pilturinn innritaðist í K.R.
vegna „betri aðstæðna" og varð
það til þess að ég sleit mig al-
gjörlega frá íþróttunum. Ég hef
oft saknað þeirra, en mín bitra
reynsla kemur ætíð í veg fyrir
að ég endurskoði þessa ákvörð-
im mína.
Valbjöm hefur valið kost vin-
ar míns og tel ég það afsaíkan-
legt frá hans sjónarmiði að
nokkru leyti. Væri það hin mesta
firra að kæra Valbjörn, heldur
ætti að kæra K.R. og „hreinsa
þar til af þessum gömlu aftur-
haldssömu „íþróttamönnum“ sem
standa í vegi eðlilegrar og heil-
brigðar framvindu í íþróttamál-
um íslands.
Virðingarfyllst,
Friðrik G. Friðrikssou.