Morgunblaðið - 31.01.1963, Síða 2

Morgunblaðið - 31.01.1963, Síða 2
2 MORGUNBL 4ÐIÐ í'immtudagur 31. 3anúar 1963 Scott’s minnismerkiff í Edinborg. Orin bendir á staðinn, þar sem Viggó og Sgurður httu konuna, skömmu eftir að hún réði börnum sínum bana, og ætlaði að fyrirfara sér með því að varpa sér niður úr minnismerkinu. i Menntamálaráöherrar Norður- ianda styðja stofnun „Norræns húss“ í Reykjavík Á F U N D I menntamálaráð- herra Norðurlanda, sem hald- inn er í Stokkhólmi, var lýst stuðningi við tillögu norrænu menningarmálanefndarinnar um, að stofnað verði „Nor- rænt hús“ á íslandi. Fundur menntamálaráðherranna er haldinn til undirbúnings fundar Norðurlandaráðs í Ósló í febrúar nk. — Birgir Thorlacius situr fund þennan fyrir hönd Gylfa i». Gíslason- ar, menntamálaráðherra. Aðalumræðuefni fundarins var norræn samvinna á sviði vís- indalegra rannsókna og æðri menntunar. Einnig var rætt um endurskipulagningu norrænu menningarmálanefndarinnar, og stofnun „Norræns húss“ í Mánafoss afhentur EIMSKIPAFÉLAGI íslands var í gær afhent skip það, m.s. Ketty Danielsen, sem félagið festi ný- verið kaup á í Danmörku. Fór afhendingin fram í Frederiks- havn og var skipinu við það „Myrti þrjú börn sín dag- inn sem viö hittum hana“ Samtal við Viggó Pdlsson um atburðinn í Scott’s Monument í Edinborg Mbl. hafði í gær upp á fs- lendingunum tveimur, sem talið er að orðið hafi til þess að afstýra sjálfsmorði skozkr- ar konu í desember sl., en mennirnir eru mikilvæg vitni í þessu máli sökum þess að þeir munu hafa verið þeir fyrstu, sem veittu konunni at- hygli, eftir að hún hafði stytt þremur börnum sínum aldur. fslendingarnir eru Sigurður L. Magnússon Langholtsvegi 7 og Viggó Pálsson, Rauðagerði 29, Reykjavík, en þeir reka í fé- lagi fyrirtækið Jarðvinnuvél- ar. Mbl. átti í gær tal við Vigigtó Fálsson, og sagðist honum svo frá atburði þessum. — Það mun hafa verið 4. des. sl. að við Sigurður vorum á ferð við Soott’s-minnismerk- ið í Edinborg. Fórum við upp í topp minnismerkisins til þess að horfa yfir bæinn og taka myrtdir. Skömmu eftir að við vorum komnir þarna upp kom kona upp í( turninn. Var hún grát- andi, og fórum við að velta því fyrir okkur hvað til stæði. Fannst okkur ekki eðlilegt að konan væri að fara þarna upp í turninn til þess eins að snökta þar. Ekki sagði konan eitt orð á meðan við vorum uppi í turninum. Eftir skamima stund gengum við niður og sögðum dyraverðinum frá kon unni. Spurðum við hann hvort það væri hugsanlegt að konan ætlaði að kasta sér niður, en hann taldi litlar líkur á því, og sagði að það væri úr tíaku að kasta sér ofan úr minnis- merkinu. Aðeins tvö sjálfs- morð hefðu verið framin þann ig þarna, hið síðara fyrir 30 árum. Við töluðum síðan um stund við dyravörðinn og annan mann, sem þarna var. Var sá mikill ferðalangur og kvaðst ætla til íslands næsta sumar, og sögðum við honum ýmis- legt um land og þjóð. Síðan gerðist lítið annað, nema hvað daginn eftir voru miklar forsíðufréttir um morð konu þessarar á börnum sín- um, og að hún hefði ætlað að stytta sér aldur með því að varpa sér úr minnismerkinu. Lýst var eftir okkur í blöðun- um, en við sáum þau ekki. Daginn, sem Gullfoss lét úr höfn, komu hins vegar lög- reglumenn um borð og tóku af okkur skýrslu um málið. Sagði lögreglan að konan hefði fyrirfarið þremur börn- um sínum daginn sem við hittum hana í tumi minnis- merkisins. Málið væri hins vegar mjög erfitt viðfangs, þar sem konan hefði ekki fengizt til að segja neitt. Væri okkar framburður því lögregl unni mikils virði sökum þess, að við mundum hafa orðið f^rstir til að veita konunni at- hygli eftir að hún framdi verknaðinn. Kona þessi var á miðjum aldri, sennilega um fertugt, og virtist látlaus alþýðukona, sagði Viggó að lokum. Fjárhagsáætlun Hafn- arfjarðar samþykkt Kratar heyktust d vantrauststillögu FUNDUR VAR haldinn í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar á þriðjudag, og stóð hann fram á nótt. Fyrir fundinum lá afgreiðsla fjárhags- áætlunar bæjarins. Lagði bæjar- stjóri, Hafsteinn Baldvinsson, hana fram og gerði grein fyrir einstökum liðum hennar. Kristinn Gunnarsson, fulltrúi Alþýðuflokksins, tók næstur til máls og boðaði, að hann mundi flytja tillögu um að bæjarstjóri segði af sér og nýjar kosningar færu fram. Kristján Andrésson, fulltrúi Alþýðubandalagsins, lýsti því þá yfir, að hann og fulltrúi Framsóknarflokksins, Jón Pálma son, hefðu tilkynnt Alþýðuflokkn um, að þeir myndu standa gegn vantrauststillögu á bæjarstjóra, þar sem ábyrgur meirihluti væri ekki fyrir hendi. Jón Pálmason tók fram, að hann hefði staðið að undirbúningi fjárhagsáætlun arinnar ásamt Sjálfstæðismönn- um, og mundi hann því stuðla að afgreiðslu hennar, enda væri það x þágu bæjarfélagsins, en krafa Alþýðuflokksins um frestun henn ar mundi einungis orsaka glund roða og valda bæjarfélaginu tjóni. Bæjarfulltrúar Alþýðuflokks- ins sættu harðri gagnrýni á fund inum fyrir ábyrgðarleysi, þar sem ekki væri annað sýnna en þeir vildu stefna málefnum bæj arfélagsins í algert öngþveiti. Fór svo, að þeir lögðu aldrei fram vantraustsyfirlýsingu þá, sem þeir höfðu boðað. Alþýðuflokksmenn tóku þátt í atkvæðagreiðslum um einstaka liði fjérhagsáætlunarinnar, en sátu hjá, þegar hún var að lokum borin upp í heild. Var áætlunin samþykkt með fimm atkvæðum Sjálfstæðismanna og fulltrúa Framsóknarmanna gegn einu at- kvæði kommúnistans. tækifæri gefið nafnið ,Mánafoss‘. Skipið fer frá Frederikshavn 2. febrúar til Gautaborgar og Kaupmannahafnar og fermir vör ur til íslands. Fyrsta affertoingarhöfn m.s, Mánafoss á íslandi er áætlað að verði Akureyri. Þaðan er gert ráð fyrir að skipið fari til Dalvík- ur og Ólafsfjarðar, og síðan aust- um land til Norðfjarðar, Reyðar- fjarðar, Vestmannaeyja og Faxa- flóahafna. Að affermingu skipsins lökinni fermir það vörur í Reykjavík til flutnings á vestur- og norður- landshafnir. Ætlun Eimskipafé- lagsins með þessu nýja skipi er, að auka og bæta þjónustuna við ströndina. Mánafoss, sem skipið dregur nafn sitt af, er í Laxá í Austur-Húnavatnssýslu. — Finnskí . . , Framhald af bls. 1. ar hefðu komið til greina — en Morgunblaðinu er kunn- ugt, að af íslands hálfu hafi verið mælt með Guðmundi Daníelssyni, fyrir bók hans, „Sonur minn Sinfjötli“. — í fyrra, er verðlaununum var úthlutað í fyrsta sinn, var mælt með Halldóri Kiljan Laxness, fyrir bókina „Para- dísarheimt“. — Fulltrúar ís- lands í dómnefndinni eru prófessor Steingrímur J. Þor- steinsson og Helgi Sæmunds- son, formaður Menntamála- ráðs — en formaður nefnd- arinnar er sænski prófessor- inn Victor Svanberg. Vainö Linna er 43 ára að aldri, fæddur 1920. — Hann vakti heimsathygli fyrir u. þ. b. sjö árum fyrir skáldsöguna „Óþekkti hermaðurinn'* — en hún varð tilefni hinna heit- ixstu umræðna í heimalandi skáldsins. — Verðlaunabókin, „Synir þjóðar", er síðasti hluti þríverks, sem Linna nefnir í heild „Her undir pól- stjörnunni“. Þar segir frá ör- lögu mnokkurra fjölskyldna undir lok síðustu aldar og í byrjun þessarar — og er fjall- að sérstaklega um andstæður auðs og örbirgðar og afstöðu rauðliða í borgarastyrjöldinni 1917—18. 1 NTB-fregn segir, að Va- inö Linna hafi látið í ljósi við fréttastofuna mikla ánægju og þakklæti fyrir verðlaunin. Kvaðst Linna ekki hafa verið sérlega bjartsýnn á líkurnar fyrir því, að hann hlyti verð- launin — talið líkur margra annarra höfunda er til greina komu, til muna sterkari. Linna er væntanlegur til Ósló undir miðjan næsta mánuð til þess að veita verð- laununum viðtöku. Þau verða afhent eftir setningu fundar Norðurlandaráðs, 16. febrúar. Reykjavík. — Tilgangurinn með stofnun þess er, að skapa nánari tengsl milli íslands og hinna fjögurra landanna, kynna íslend- ingum áhugamál þeirra og kynna þeim íslenzka menningu. — Á fundinum var samþykkt, að skipa nefnd til að undirbúa stofnun „Norræna hússins" og á- kveðið, að Daníel yrði formaður hennar. — Frakkar Framh. af bls. 1 staðreynd,“ sagði forsætisráð- herrann. „Við og vinir okkar gerðum tilraun til þess I Brixssel að efla V-Evrópu, og gera hana færa um að gegna mikilvægu hlutverki í þágu ihins frjálsa heims." Macmillan sagði frönsku stjórnina hafa sýnt ljóslega, að hún vildi ráða ein málefn- um Evrópu, og héldi, að Ev- rópa gæti komizt af án vina og bandamanna. „Við Bretar verðum að sjálfsögðu að hafa samstarf við samveldislöndin og öll önnur lönd hekns,“ sgði forsætisráðherrann, „og við erum staðráðnir í því að virða á allan hátt sáttmála Atlantshafsbandalagsins.“ Forsætisráðherrann sagði, að hvað Breta snerti, gæti ekkert komið í stað aðildar að EBE, enn sem komið værú Meðan á viðræðunum hefði staðið, hefðu þeir haft náið samband við samveldislönd in og nú myndu þeir leita ráða hjá þeim, Markaðsbanda- lagsríkjunum og Bandaríkjun- um, um hvað gera skyldi. „Við verðum að reyna að koma því til Ieiðar, að sem fl-est lönd lækki tollamúra sína, því það er eitt bezta ráðið til þess að auka verzl- unina í heiminum,“ sagði Mac millan. Forsætisráðherrann vék atft- ur að málalokunum í Brússel og saigði, að eina skýringin á því, sem þar hefði gerzt væri að franska ríkisstjómin hefði vonað að viðræðurnar um að- ild Breta færu út um þúfur, annað hvort vegna þess, að samveldislöndin væru ékki samþykk aðild þeirra að EBE, að landsþing ílhaldsflokksins myndi ekki samþykkja að við- ræðunum yrði haldið áfram, eða vegna þess, að viðræðurn- ar rynnu út í sandinn vegna of mikils ágreinings. „Engin atf þessum vonum frönsku stjórnarinnar rættist, og þegar það var nær Ijóst fyrir skömmu, að viðræðurnar yrðu farsællega til lykta leidd ar, gripu Frakkar til rudda- legra aðgerða til þess að stöðva þær.“ Macmillan sagði Breta hafa vonað, að stækkun EBE yrði þáttur í því að koma á fót bandalagi, sem væri annars vegar öflugra en Sovétríkin og hins vegar öflugra en Bandaríkin. „Það er tilgangslaust að ræða þetta nú, þegar viðræð- urnar eru farnar út um þútf- ur, sgði forsætisráðheirann, „og nú verðum við að ákveða hvað við tökum til bragðs.“ Menn spyrja? Er nokkuð, sem getur komið í stað aðild ar að EBE. Enn er mér ekki kunnugt um neina leið, sem er hagstæðari, en sú, sem við höfum farið til þessa, en Bret ar og samveldislönd þeiirra geta gert mikið og verða að gera það. Um fram alit mega um við ekki sýna hefnigimi heldur hugsa um uppbyggingu og framfarir", sagði forsætia ráðherrann að tokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.