Morgunblaðið - 31.01.1963, Side 15

Morgunblaðið - 31.01.1963, Side 15
Fimmtudagur 31. januar 1963 MORCUN BLAÐIÐ 15 BIRGIR GUÐGEIRSSON SKRIFAR UM HLJÓMPLÖTUR MAURICE Ravel, sem var uppi árin 1875—1937, samdi tvo konserta fyrir píanó og hljómsveit. Báðir eru þeir samdir árin 1930—31. Þá þeg- ar var Ravel orðinn sjúkur maður, þjáður af miklu svefn- leysi og taugabiluij, er átti eftir að ágerast mjog seinustu ár ævi hans. Árið 1932 lenti hann í bilsíysi og náði sér aldrei eftir það. Þessir tveir píanókonsertar Ravels hafa notið mikilla vinsælda og hafa margsinnis verið gefnar út á hljómplötum. Margir munu t.d. kannast við gamla hljóð- ritun frá Columbia, þar sem Marguerite Long leikur kon- sertinn í G-dúr og Ravel stjórnar sjálfur hljómsveit- inni, sem leikur með. Verk þetta er tileinkað Marguerite Long, en upphaflega ætlaði Ravel sjálfur að leika einleikshlutverkið, er það væri flutt í fyrsta sinn. 1 viðtali við „The Daily Tele- graph“ 7. nóv. 1931, segir Ravel meðal annars: „Verkið er konsert í þess orðs fyllstu merkingu, og samið mjög í sama anda og konsertar MoZarts og Saint-Saens. Ég álít, að konsertar eigi að vera með léttum blæ og glæsibrag, og alls ekki miða að því að vera djúphugsaðir eða leitast eftir að ná fram dramatísk- um áhrifum. Of margir af hin um klassísku konsertum hafa miklu fremur verið skrifaðir gegn píanóinu en fyrir það“. Svo mörg eru þau orð. Ravel lék samt ekki verkið, þegar það var flutt ‘í fyrsta sinn í París 14. janúar 1932, heldur Marguerite Long, en Ravel stjórnaði hljómsveitinni. Hinn píanókorsert Ravel, sá í D-dýr getxir samt varla talizt ein- kennast af svo mjög léttri stemmingu, því að hann er næsta dramatískur. í hon- um notar Ravel m. a. jazzele- ment. Þessi konsert er fyrir vinstri hendi eingöngu, enda saminn fyrir austurríska píanó leikarann Paul Wittgenstein, en hann missti hægri hand- legginn í heimsstyrjöldinni fyrri. Það verk var fyrst flutt í Wien 27. nóv. 1931 af sjálf- um Wittgenstein. Af þeim upptökum, sem til eru á þessum verkum, er rétt að benda á upptöku frá Columbia (umboð ,,Fálkinn“), þar sem franski píanóleikar- inn Samson Francois fer með einleikshlutverkið, en hljóm- sveit Tónlistarháskólans í París leikur með undir stjórn André Cluytens. Bæði þessi verk leikur Francois af mik- illi músikgleði, og leiftrandi tækni. Francois leyfir sér ýmsar tempóbreytingar, en þær eru yfirleitt mjög svo réttlætanlegar og gefa verk- unum persónulegri blæ. Hljóm sveitin er sömuleiðis mjög góð og hljóðritun fyrsta flokks. Ýmsar furðulegar sögur hefur maður heyrt af Samson Fran- cois. Eitt sinn, er hann átti að leika þriðja píanókonsert Prokofievs með Hallé hljóm- sveitinni, ,var hann hvergi sjáanlegur, þegar verkið skyldi hefjast. Var skundað í snatri til gistihússins, sem hann dvaldi í, og þar var hann steinsofandi. Fram- lengja var hléið, unz loks hann kom inn á sviðið bros- andi eins og misskilið barn, klæddur hversdagslegum föt- um, í stað kjólfata, en hann spilaði eins og engill og átti hugi og hjörtu allra við- staddra. Nokkrum dögum eftir að þetta gerðist, átti Francois að leika einleikshlutverkið i e-moll Chopins, og mætti þá aftur í seinna lagi. Hann hafði að vísu ekki sofið yfir sig, en verið í verzlunum að leita sér að heppilegum leikföngum til þess að láta fljóta í baðkerinu, þegar hann færi að baða sig. En nóg af svo góðu. Þeir, sem ekki eiga þessi ágætu verk, ættu að athuga þessa plötu. Númer eru 33CX 1747 (m), SAX 2384 (s). Af þeim óperuútgáfum árs- ins 1962, sem hvað mesta at- hygli hafa vakið, er útgáfa Decca á óperunni „Salóme“ eftir Richard Strauss (ekkert skyldur þeim Straussum, sem frægir eru fyrir Vínarvalsa!). Ópera þessi er einhver hin frægasta seinni -tíma; að vísu samin 1904—5. Efni hennar er byggt á leikriti Oscars Wilde og textinn þýddur af Hedwig Lachmann. Það mun varla of sagt að telja verk þetta til hryllingsverka (sbr. t. d. „Spaðadrottninguna" eftir Tchaikovsky) og ekki eru orðin geðsleg, sem Salome er látin syngja, þegar hún í- lok verksins kyssið afhöggið höf- uð Jóhannesar Skírara. Enda gengur svo fram af sjálfum Heródes, að hann fyrirskipar hermönnum sínum að kremja Salome til bana með skjold- um sínum. Líkur verkinu með því. Það mun nú kannske vera farið að hvarfla að einhverj-' um, hvort hér sé um að ræða verk, sem hlustandi sé á. Ric- hard Strauss á sína andstæð- inga, sem telja verk hans nán- ast rusl, en helzt. munu þeir vera í þeim hópi manna, sem dyggilegast fylgja nýjustu stefnum í tónlist, en þeir telja gjarnan Hindemith úrelt fyrir brigði o. s. frv. Þetta er heid- ur ekki músik fyrir þá sem halda mest upp á tónskáld eins og Telemann, Vivaldi, Cima- rosa, Corelli o. s. frv., eða komast ekki nær nútímanum en að Brahms. En fyrir þá, sem hafa ánægju af flestri tónlist allt frá t. d. Palestrina til Varese, er alveg óhætt að mæla með þessu verki. Strauss notar mjög „leitmotiv“ í þess- ari óperu og óhemjustjóra hljómsveit. Ekki eru hlutverk- in skrifuð fyrir néina aukvisa, þar sem Strauss gerir óskap- legar kröfur til söngvaranna. Ég man ekki hvort það var þessi ópera eftir Strauss, sem hann var að æfa, eða einhver önnur, þegar hann bað hljóm- sveitina að leika ennþá sterk- ara, þar sem enn heyrðist í söngvurunum. Þó minnir mig það. Það sem miklu veldur um hinar stöðugu vinsældir þessa verks er án efa m. a. litrík og höfug hljómsveitar- útsetning og sterkar andstæð- ur hlutverka. Margir munu kannast við eldri útgáf- una frá Decca á þessu verki þar sem Clemens Krauss stjórnaði og Julius Patzak var svo minnisstæður í hlutverki Heródesar". Clemens -Krauss var svö sannarlega Strauss — hljómsveitarstjóri „par exell- ence“. í þessari nýju upptöku er hljómsveitarstjóri Georg Solti. Ég bjóst ekki við að hlutur hans yrði svo frábær í þessu verki sem raun ber vitni. Maður hafði jú saman- burðinn við Clemens Krauss, og hélt, að ekki yrði svo auð- velt að nálgast hann, hvað þá að slá hann út. Solti slær að vísu Krauss hvergi nærri út, en stjórnar verkinu engu að síður sem innblásinn. Hann tekur óperuna sem eitt stórt crescendo þar til í lokin, þeg- ar Salome (sungin af Birgit Nilsson) syngur sinn geggjaða ástardauða hins illa, að hljóm sveitin brýzt fram eins og ófreskja úr fjötrum. Birgit Nil son syngur hlutverk sitt af ótrúlegu öryggi og meiri inn- lifun en t. d. í „Tristan og Isolde“. Rödd, hennar skín i gengum hin stærstu fortissimi eins og stingandi ljó's. Ger- hard Stolze fer með hlutverk Heródesar og nær fram á aldeilis ótrúlegan hátt hinum andstyggilega karakter tetr- arksins (landstjórans). Ef til vill er hlutur . Stolze hvað beztur meðal söngvaranna. Eberhart Wachter syngur hlutverk Jóhannesar Skír- ara. Hann syngur hér vel að vanda, en er á köflum ekki nægilega kraftmikill, t. d., þegar hann formælir Salome. Þrátt fyrir allt, er það sjálf hljóðritunin hjá Decca, Samson Francois og hljóinsveitarstjórinn Ataulfo Argenta. sem hvað mesta athygli h^fur vakið á þessari útgáfu. Decca beitir hér nýrri tækni, sem þeir virðast hafa sem nokkurs konar leynivopn. Svo mikið er víst, að þeir hafa ekki gefið nema mjög litlar og ófull- komnar upplýsingar um hana. Þeir kalla þessa tækni „Sonic | stage“ og erum við lítils vísari á eftir. Eitt er samt víst, að sem hljóðritun stendur þessi upptaka öðrum upptökum langtum framar. Hver eru helztu einkennin? Þau eru hin ótrúlegi raunveruleikablær og nákvæmu og eðlilegu hlutföll á milli söngvara og hljóm- sveitar og einstakra hljóðfæra innan hljómsveitarinnar. Eins og svo oft áður beitir Decca ýmsum brögðum til að ná fram þeim áhrifum, sem þeir telja einhvers virði hvert sinn. Þeir, sem heyrt hafa t.d. upptöku Decca á „Das Rhein- gold“ eftir Wagner skilja ef- laust gerla hvað ég á við. Það er reyndar upptaka, sem vert væri að fjalla um við tæki- færi. Af þeim brögðum sem Decca notar vil ég aðeins nefna það, sem þeim er hlust- að hafa á þessa upptöku, finnst einna áhrifamest. Þegar Salome bíður eftir því, að böðullinn láti öxina falla á háls Jóhannesar Skírara, kem- ur hún fram í annan hátalar- ann (£ stereo) og næstum hvæsir þungum stynjandi and- ardrætti unz hann raddmynd- ast og hún byrjar að syngja. Þessi hljóðritun er það sem kallað er á slæmri íslenzku „sensation“ og fékk Grand Prix verðlaun ársins 1962. Númer eru: MET 228—9 (m), SET 228—9 (s). Það eru mörg hljómplötu- merki, sem maður verður lítið var hér í verzlunum. Eitt þeirra er Westminster. Nú í sumar gaf Westminster út tvo píanókonserta eftir Mozart, K. 503 í C-dúr og K. 595 í B-dúr, leikna af kínverska píanóleikaranum Fou Tsong, en hann er tengdasonur fiðlu- leikarans fræga Yehudi Menu hin. Það er ekki oft, sem okk- ur gefst kostur á að heyra Asíumann leika verk okkar vestrænu meistara, og því for vitnilegt mjög að heyra þessa upptöku. Oft hefi ég hlustað á fólk vera að tala um Mozart og það eru ótrúlega margir, sem virðast ekki koma auga á neitt annað en yfirborðslega fágun í hóxis verkum. En ekk ert er fjær sanni. Kannske er Mozart það tónskáld, sem tjáir hvað daprastar og raunaleg- astar tilfinningar, en hann ber þær bara ekki utan á sér eins og veifu. Mozart grét án þess að rífa hár úr höfði sér, og píanókonsertar hans eru fullir af svo ríkum, göfugum og margbreytilegum tilfinning- um, að þeir eiga enga sinn líka. Við getum byrjað á því að hlusta á Mozart strax, þeg- ar við erum fyrst að kynnast sígildri tónlist, og við getum líka endað á því. Á þessari plötu eru tveir af vinsælustu og fegurstu konsertum Mozarts, mjög vel leiknir af Fou Tsong, þó er flutningur hans á konsertinum í C-dúr betri. Hæga kaflann í B-dúr konsertinum leikur hann nokkuð hægt, en það gerði Schnabel einnig á sínum tíma, og upptaka Schnabels er að verðleikum löngu fræg orðin, en hljómsveitarundirleikur- inn í Schnabel upptökunni var hvergi nærri nógu góður undir stjórn Sir John Barbir- olli. Hér á þessari nýju upp- töku er hljómsveitin aftur á móti miklu betri undir stjórn Victor Desarzens. Hljóðritun verður að teljast góð, en stereo-upptakan er að einu leyti dálítið skrítin. Tréblásar arnir eru allir vinstra megin. Númer eru XWN 18955 (m), WST 14136 (s).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.