Morgunblaðið - 31.01.1963, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 31.01.1963, Qupperneq 17
51 1 .. tsí| 8 '. •_ tl uJ Fimmtudagur 31. janðar 1963 J fi Vi \S '3> Si <te W. MORGUNBLAÐIÐ 17 Guðmundur Axel B jórnsson—Minning Fæddur 15. júm 1899. Dáinn 21. janúar 1963. HINN 21. janúar síðastliðinn lézt að heimili sínu Framnesveigi 8a hér í bæ, Guðmundur Axel Björnsson. Hann verður jarðsett ur í dag kl. 1 %, e.h. fná Kap- ellunni í FossvogL Guðmundur Axel Björnsson hét hann fulhi nafni, en flestir muna hann með nafninu Axel Björnsson. Hann var fæddur 15. júní 1899 að Hlöðutúni í Staf- holtstungum. Foreldrar hans voru þau Kjónin Björn Jóhanns- son og Þórunn Guðmundsdóttir. Systkini Axels á lífi eru, þau Ásta og Jóhann, en bróðir hans Ingvi Björgvin, loftskeytamað- ur, fórst með b.v. Jóni Forseta 1928. J>eir Axel -og Jóhann bróðir hans, bjuggu undir sama þaki, svo að segja alla ævina. Aldrei hefi ég þekkt innilegri kærleika milli tveggja bræðra, en milli þeirra. Skömmu eftir fæðinguna fiutt- ist Axel með foreldrum sínum til Reykjavíkur og þar dvald- ist hann mestan hluta ævi sinn- ar, nema hvað hann á barnsaldri var um sjö ára tíma á Akranesi með foreldrum sínum. f Reykja vík fermdist hann og þar fékk hann alla sína dkólamenntun, sem var barnaskólinn einn. Foreldrar Áxels voru alþýðu- fólk, er fluttust á mölina eins og þá var títt. Hjá þeim var ekki fjármunum fyrir að fara, en hinsvegar var þar fyrir hinn sterki hugur og hönd, að aldrei skyldu þau vera upp á aðra komin með sig eða börnin sín. Til þess þurfti meira þrek þá, en nú. Heiðarleiki og skyldu- rækni var þeirra siðgæði. En |>ar var sungið Ijóð og lag og lesin mörg ein bókin. Sérstak- lega var Þórunn mikil kvæða kona. Þetta var það andrúmsloft, sem Axel ólst upp í og áhrif þess einkenndu hann í lífinu. Eftir fermingu byrjaði hann að stunda eyrina og sjóinn og ekki liðu mör,g ár þar til að hann fór að vinna við vélgæzlu á mótorbátum. Er fram liðu stund ir byrjaði hann að vinna í vél- smiðjum og varð vélsmíði hans ævistarf. Hann rak eigin smiðju meir en 20 ár. Smiðjurekstur Axels var nokk tið sérstæður. Ekki bar mikið á smiðjunm, en á hurðinni inn í hana mátti lesa þessi orð: „Oft er það í koti karls, sem kóngs er ekki í ranni. „Þetta voru orð að sönnu, því karlinn og ýmis- legt þar inni var sérstætt. Það var sama hvern dag ársins eða hvaða tíma sólarhringsins menn voru í vanda staddir með sína bátamótora eða aðrar vél- ar, alltaf var Axel tilbúinn til hjálpar með sinni góðvild og sínu jafnaðargeði. Það var ekki aðeins úr Reykjavík, sem til hans var leitað, heldur víðsveg- ar að aí landinu. Hann gerði ekki greinarmun á því hvort til hans leituðu stórútgerðar- menn eða gamall útslitinn fiski- maður á grásleppuveiðum. Fjár- munir til handa Axel í þessum söukm voru honum aukaatriði. Axel var í eðli sínu hlédrægur maður. Hitt var, að við sem eignuðumst vináttu hans, fund- um þar fyrir sérstakann per- sónuleika. Á gleðistund í góðum vinahóp, gat hann leikið á alls oddi. Á slíkum stundum kom «>tft í ljós, hversu Ijóðelskur hann var og hversu mörg kvœði hann kunni. Komið gat og fyrir á slíkum stundum að skoluðust upp vísur eftir hann sjálfan, því hann var hagmæltur vel, þótt lítið bæri á því. Páa menn hefi ég þekkt, sem voru jafn kröfu- harðir um vöndun á sínu móður ntáJi. Axel var greindur vel, víð lesinn og ágætlega sjálfmennt- aður. Hann rökhugsaði hvert mál vandlega áður en hann myndaði sér sínar skoðanir, en eftir það hélt hann sér við þær. En hugur hans var samit sem áður svo frjáls og óheftur, að fynndi hann í rökum annara nýj- ann sannleika, þá féll hann frá sínum fyrri niðurstöðum, hvert svo sem málið var. Árið 1921 hinn 4. apríl giftist Axel eftirlifandi konu sinni Júlíönu Rannveigu Magnúsdótt- ur, ættaðri úr Rauðasandshreppi við Patreksfjörð. Þau bjuggu alla tíð í Reykjavík. Þessi eru börn þeirra: Bergljót: og Þór- unn, í foreldrahúsum, Björii vél- vm. Reykjavík, giftur Unni Jónsdóttur, Einar, vélsm. Kópa- vogi, giftur Hafdísi Jóhannsdótt- ur og Gunnlaug, gift Earnst R. Baldwin, búsett í Winnepeg, Canada. Tveir dætrasynir Axels hafa alizt upp hjá honum. Þar hefir ekki á milli mátt sjá hver mest- ur er augasteinninn, afinn hjá drengjunum eða drengirnir hjá afanum. Ég vil að lokum þafcka Axel vináttu hans til mín og minnar fjölskyldu og fyrir yndislegar samverustundir. Ástvinir hans og vinir sakna hans, því hann var drengur góður. Ingólfur B. Guðmundsson. — Rannsöknir Framhald af bls. 14 fyrst koma þeir fræðslubrunnar að fullum notum í þróun iðn- menningar, sem sótt er í erlendis, og vissulega eru okkur mjög nauð synlegir. Þegar nú hefur verið saminn mikill frumvarpsdálkur, með nýju stórsniði hið ytra í rann- sóknarmálunum, verður það enn tilfinnanlegra hve mjög hér er ábótavant í barna- og unglinga- fræðslunni annarsvegar, og æðri tæknimenntun hinsvegar. í íyrra tilvikinu, barnafræðsl- uni, skal á það bent, að 11 ára barn er farið að rifja upp tuga- brotareikning og ætti því að geta farið að beita honum á raunhæf an hátt. Hvað væri þá eðlilegra en að tengja saman reikning og raunfræði, meir én nú á sér stað. Reikningur og stærðfræði eru í daglegu lífi að langmestu leyti hjálparfræði við raunfræðin, en það er kunnugt hve miklum erf iðleikum þau valda í framhalds- námi unglinga, mestmegnis sök- um æfingarleysis í notkun þeirra Það má því slá tvær flugur í einu höggi með nánarl samskipt- um þessara fræða, strax á unga aldri. Það má byrja á því að kynna mælingarnar og einföld- ustu aðferðir í notkun þeirra við mælingu lengdar, flatar, rúms, þyngdar, orku o. s. frv. með æfing um og reikningsdæmum, sem þjálfa barnið í hvorttveggja. Jafn framt gefst gott tækifæri á að fræða það um frumatriði eðlis- og efnafræ'ði. Auk þess er raunteiknun barna nauðsynleg, eða teiknun eftir mælingum hluta, en ekki bara sjónteiknun. Það þarf að leiða hugann snemma inn á þessar brautir, því raunfræðanámið er nám í áföngum, eftir þroska ungl inganna. Mér voru það vonbrigði að sjá sýningu barnaskólanna á eðlis- fræðatækjum sl. sumar, sem var í rauninni tildursýning og átti lítið erindi í barnafræðsluna. En engin tæki sá ég til eðlilegra frumæfinga í raunfræðum. Það skal tekið fram, til að girða fyrir misskilning, að ég álít að ekki þurfi að koma til óeðlilegr ar aukningar í námsálögum á barnið og unglinginn, þótt raun- fræðum verði almennt gefinn meiri gaumur í kennslunni en nú á sér stað. Mikið má öðlast með þarf námstíminn á viku hverri að aukast um 2—4 stundir frá því, sem nú er, enda mun slíkt ekki vera tiltökumál. Við höfum gagnfræðastig, er skiftist í bóknám og verknám. En í aðalskóla hins síðara, gagn fræðaskóla verknáms, er ekki að finna staf um kennslu í efna- og eðlisfræðum. Væri ekki full ástæða til þess að ná fræðum hins svonefnda mið skóla inn í skyldunámið, en það er fyrri bekkur gagnfræðaskól- ans. Flestallt framhaldsnám krefst miðskólaprófsins, auk þess má ekki hefja iðnnám fyrr en náð er 16 ára aldri, sem er ald- urinn við miðskólaprófið. Sext- ánda árið er því hálfgert utan veltuár, því unglingurinn er ekki nægilega þroskaður til fullrar lík amlegrar vinnu. Á hinn bóginn veitir ekkert af því að sérhver unglingur í landinu fái þetta ár til frekari bóknáms, á hvaða hillu sem hann lendir í lífinu. Á hverju ári eru nú haldnir starfsfræðsludagar, að loknu skyldunámi, en í skólunum hef- ur engin kennsla farið fram í at vinnulýsingu þjóðarinnar, sem þó er undirstaða undir það að ungl- ingarnif geti valið og hafnað. Slíka lýsingu þarf að kenna í lok skyldunámsins, og má flétta inn í hana raunfræðum til frekari skýringa, þar sem það á við. í Danmörku er gagnfræðapróf þess eðlis, að með eins vetrar framhaldsnámi í forskóla tækni háskólans danska geta unglingar tekið inntökupróf þar. Ég sat í þessum forskóla eftir stúdentspróf úr máladeild hér, við hlið danskra gagnfræðinga og virtist þeim ekkert að van- búnaði til námsins. Hér á landi er almenn kennsla í raunfræðum aðeins fáanleg stærfræðideildum menntaskól anna. Allir sjá, að þetta fyrir- komulag hentar ekki nútíma þjóð félagi. Vankennsla í raunfræðum í barna- og unglinganámi lokar leiðum til æðra náms, nema far inn sé menntaskólavegur, og til miðskólanáms í tæknifræðum er menntunarleysið til mikils traf ala. Það þarf að vinda bráðan bug að því að lagfæra gagnfræða kennsluna þannig, að við hlið núverandi fyrirkomulags komi raunfræðadeild, sem gerði ungl ingum kleift að fara beint í er lenda tæknimiðskóla (teknikum) tilfærslum í náminu, en auðvitað og síðar í innlenda. — Karlamagnús Framhald af bls. 13. af sameinuðu Þýzkalandi. Keis- arinn og kaþólska samibandið unnu mikla sigra fyrsta áratug- inn en Gustaf Adolf Svíakonung ur, styrktur frönsku fé, rétti hlut mótmælenda. Riohelieu varð rnanna bezt ljóst hvað í húfi var fyrir forræði Frakka á meginlandi Evrópu, ef keis- aranum tækist ætlunarverk sitt, en var vanbúinn að láta Fraka hefja beina þátttöku í styrjóld- inni, enda upptekinn um skeið við að brjóta niður síðustu leif- ar af hervaldi húgenottanna heima fyrir. En jafnskjótt sem franski Ker inn hafði hvílt sig eftir að hafa barið niður mótmælendur í FrakStlandi sjálfu, sendi kardi- nálinn hann tii liðs við mótmæl endur í Þýzkalandi. Hlutdeild Frakka í lokaþættinum tryggði sigur mótmælenda og óskir Frakka, Svía og Dana rættust framar öllum vonum. Eftir Vest- falska friðinn 1648 datt Þýzka- land í mola, hvorki meira né minna en 1830 smáríki, og vald keisarans þar hvarf algjörlega úr sögunni. Frakkar fengu viður- kennd yfirráð sín í Metz, Toul og Verdun, náðu Elsass og fengu óátalið að hernema hertógadæm ið Lóthringen. Skömmu síðar svældu þeir hertogadæmið Ar- tois, sem lá við norðurlandamæri Belgíu ag Frakklands af Spán- verjum. Frakklandskonungur hafði náð verulegum árangri í sókn sinni til Rínar í þessum á- fanga. SÓLKONUNGURINN A SVIÐINU Hafi þýzku furstunum ekki verið alveg ljóst hvert stefndi hin franska útþenslustefna á dög um Loðvíks XI, Hinriks IV og Riohelieu, þá varð þeim það á stórveldisdögum Frakka á tím- um Mazarins kardinála og sól- konungsins Loðvíks XIV. Ljómi sá sem stafaði af stjórn Frakk- lands á valdadögum Loðvíks er i senn að þakka hinni mikil- úðlegu persónu konungs sjálfs, frábærum stjórnmáilahæfileik- um ráðgjafa hans og herstyrk, sem naut stjómar ágætra hers- höfðingja og frábærrar skipulagn ingar Louvois hermálaráðherra. Loðvík batt enda á ófrið við Spánverja 1668 og lét sér nægja nokkur mikilvæg virki við landa mæri spönsku Niðurlanda. Hug- mynd hans var að ráðast síðan gegn Hollendingum, leggja land þeirra undir sig, þá hefði hann spönsku Niðurlöndin í greip sinni. Stjórnmálaerindrekum hans tókst ekki einungis að ein angra Hallendinga frá hinum fornu bandamönnum þeirra, Englendingum, heldur fengu þá í lið með sér, ásamt Svíum og allmarga hina þýzku fursta. Sýndust örlög Hollendinga þá ráðin, er helztu stórveldi álfunn- ar sameinuðust gegn þeim. Þetta stríð fébk þó óvæntan endi. Hollendingar stöðvuðu framsókn óvinaherjanna með því að brjóta niður flóðagarðana og veita sjó yfir land sitt. CXg innan tíðar komu Danir, Spánverjar, Austur- ríkiskeisari og kjörfurstinn af Brandenburg til liðs við þá. Spánverjum var ljóst að örlög Belgíu voru ráðin, ef Frakk- land innlimaði Holland. Á hinn bóginn neyddi enska þimgið kon- umg sinn, Karl II Stuart, frænda og aðdáanda Loðvíks, til að hætta þátttöku í þessu óvinsæla stríði. Loðvík neyddist þannig til að hætta við áform sitt gagnvart Hollendimgum og hafði þar ekk ert fyrir snúð simn, en sá um að bandamenn Hiollendinga höfðu ekki erindi sem erfiði. Spánverja neyddi hann til að af henda franska frígreifadæmið og mikiilvæg landamærahéruð í Belgíu og hafði þá fœrt franskt yfirráðasvœði austur að Sviss. Næstu árin hóf hann frekar hefndaraðgerðir gegn keisara og Spáni, lagði undir sig stór hér- uð meðfram Rín, þar á meðal hina fornfrægu fríborg, Strass- bourg, og spánska hluta Luxem- burg. Til þess að koma á yfir- skinsréttlætinu þessa ofríkis lét Loðvífc franska dómstóla kveða upp úrskurði á þá lund, að þarna væri verið að endurheimta lönd, sem væru fornfrönsk yfirráða- svæði, en hefðu gengið undan Frökkum á síðari tímum. Allt þetta framferði jók auðvitað það hatursbál á Frökkum í Þýzka- landi, sem kviknað hafði í 30 ára stríðinu. Þá bætti ekki úr framferði frönsku hersveitanna í Pfalz erfðastríðinu. Loðví’k hafði látið hersveitir sínar sækja langt inn á Þýzkaland, er erki- óvini hans, Vilhjálmi af Or- aníu, landsstjóra í Hollandi og nú konungi í Englandi (eftir 1688) tókst að koma á banda- lagi milli Englendinga, Hollend inga og Austurríkiskeisara gegn Frökkum. En samkvæmt skipun Þá berast böndin- næst að Há- skóla íslands. Þegar atvinnudeild háskólans var upprunalega stofn uð, var kveiktur neisti, svolítill manndómsneisti, er gaf fyrirheit um átök við erfitt en veiga- mikið viðfangsefni, kennslu i tæknifræðum við háskólann. En aldrei magnaðist neistinn og -nú er hann slokknaður, eftir að hafa verið falinn í 25 ár í ösku at- hafnaleysis. f háskóla vorum hafa ríkt sjón armið, sem'sennilega stafa af of miklu dekri við hugvísindin, að háskólinn sé eingöngu mennta- og vísindastofnun, sem eigi ekki að blanda geði við atvinnulífið. Rannsóknarstofnanirnar, sem risið hafa upp í atvinnudeild há- skólans, voru alla tíð utangátta hjá honum. Þessu hefði háskól* inn sjálfur getað breytt á betri veg, og sótt til atvinnudeildar- innar kennara, t. d. í svonefnd- um B.A. fræðum, auk fullkomn- ari verkfræðikennslu. En jafn- vel á styrjaldarárunum, þegar erf itt var sóknar í erlenda skóla, var ekkert um þetta hirt. Nú á að leggja atvinnudeild háskólans niður með nýja frum- varpinu, en ekkert boðað í stað inn í því skyni að tengja háskól- ann nánari böndum við atvinnu- lífið. Ég sé engin tormerki á þvi að háskólinn setji á fót kennslu í þremur til fjórum greinum verk fræði, og í búnaðarfræðum, verði hann ötullega til þess hvattur og studdur. í minni tíð var ekki merkilegri aðbúnaður til efnafræðináms i verkfræði í Kaupmannahöfn, en finna má í flestum rannsóknar- stofnunum hér, að meðtöldum vinnustofum Vélskólans, eði bæta má við með litlum tilkostn aði. Forstjórar rannsóknarstofnan- anna gætu sem bezt innt af hendi nokkra kennslu í háskólanum, auk sérfræðinganna, engu síður en kennarar læknadeildar háskól ans, sem að sínu leyti hafa um- sjón með veigamiklum rannsókna störfum samfara kennslunni. Nú verður brátt tekin ákvörð- ún um það á Alþingi, hvort tíma bært þykir að taka rannsókna- málin þeim tökum, sem lagt er til með frumvarpinu. Hvermg sem því máli reiðir af, tel ég þó að ekki megi dragast lengur að endurskoða frá rótum raunfræða kennsluna í landinu, á öllum stig um hennar, frá barnaskóla í há- skóla. En hvaða augum lítur Háskóli íslands á þessi mál öll? Má vænta þess, að neistinn frá gömlu at- vinnudeildinni verði bráðlega endurnýjaður? Louvois eyddu frönsku hersveit- irnar byggð í Pfalz á undarí- haldinu til að hindra eftirför. Brenndu þær m.a. bongirnai Mannheim, Speier, Worms og hið fornfræga Heidelberg, ásamt fjölda bæja og þorpa. Nú snerust margir hinna þýzfcu fursta til fylgis'við Habsborgara keisara og í Rijsvifc friðnum mátti Loðvífc skila aftur stórum landssvæðum, þ.a.m. Lóthring- en og Luxembung. Enn verr fór fyrir Frökkum í síðasta áhættu- spili Loðvíks, spánska erfðastríð inu, 1700—1713, er Frakkar börð ust gegn bandalagi Englands, Hollands, Austurríkis, sem auk þess var stutt af Brandenburg, Hannover og Danmörku. Að vísu tókst Loðvífc við Utrecthfriðinn 1713 að koma sonarsyni sínum íil valda á Spáni og rjúfa þar með hring Habsborgaralandanna umhverfis ríki sitt, en hið austur ríska Habsborgaraveldi fékfc þá mifcla landauka á Ítalíu pg var nú orðið voldugt forysturíki í þýzkalandi gegn franskri ofríkis- stefnu. Og eitt enn: Kjörfurstinn af Brandenburg hafði fengið leyfi til að taka sér konungsnafn. Nefndi hann hið vaxandi ríki sitt Prússland. Austurríki hafði fengið keppinaut um forystu á Þýzkalandi, Frakkland nýjan óvin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.