Morgunblaðið - 31.01.1963, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 31. januar 1963
MORCVNBLAÐIÐ
23
y
Varnaðarorð til ungu sovétskáldanna:
Ríkisstjórnin hefur ekki fóstrað ykkur
til þess að þið varpið fyrir borð
hugsjónum kommúnismans
FYRIR SKÖMMU birtist í
„Pravda", málgagni sovézka
kommúnistaflokksins, kvæði
eftir eitt af eldri Sovétskáld-
unum, Nikolai Gribachev, þar
sem hann beinir þeim orðum
til listamanna af yngri kynslóð
inni, að þeir íhugi, að ríkis-
stjómin hafi ekki fóstrað þá
við barm sér árum saman til
þess, að þeir nú varpi fyrir
borð hugsjónum kommúnism-
ans. „I>að er einmitt fyrir ykk
ur, sem við berjumst í dag,
svo að hringiða straumsins
færi ykkur ekki í kaf“, segir
skáldið Gribachev.
Kvæði hans fjallar um deil
una, sem risið hefur milli
eldri og yngri listamanna í
Sovétríkjunum. Bandaríska
stórblaðið „New York Times“
segir marga þeirra skoðunar,
að árásirnar, sem undanfarið
hafa verið gerðar á þá lista-
menn, er hneigjast að vestræn
um listaáhrifum, séu runnar
undan rifjum gömlu lista-
mannanna, — rithöfunda, mál
ara og tónlistarmanna, — sem
óttist samkeppni við þá yngri,
ef þeir fá frjálsari hendur í
listsköpun sinni.
Gribachev er 52 árá að aldri.
Hann hefur átt sæti í mið-
stjórn ■ sovézka kommúnista-
flokksins' og tvívegis hlotið
Stalin-verðlaunin fyrir Ijóð.
-- XXX -----
Kvæðið í „Pravda* ber heit-
ið „Nei, drengir" — og segja
vestrænir fréttamenn í
Moskvu það greinilegt svar
við nýlegu kvæði eftir Évgeni
Évtusjenko, sem hann kallaði
„Áfram drengir". f>að var
vörn Évtusjénkos gegn þeim
ásökunum, að hann væri orð-
inn íhaldssinni og jafnframt
hvatning til „drengjanna“,
ungu skáldanna, að gefa til-
finningum sínum lausan taum
inn og skorast ekki undan rit-
deilum.
Gribachev byrjar kvæði
sitt með því að vísa til ungra
skálda og rithöfunda, sem
hafa aflað sér vinsælda meðal
rússnesku þjóðarinnar á síð-
ustu árum.
Hann segir:
„Af og til ráfa drengir um
Rússland
gæddir — Guð hjálpi okkur
— aðeins
einni ástríðu —
frægðarþorsta ..."
Hann segir, að unga kyn-
slóðin hafi aldreí vitað neitt
af þeim erfiðleikum, er sam-
fara séu uppbyggingu þjóðfé-
lagsins á friðartímum — né
heldur af styrjöldum, — en
nú rísi hún upp og veki á sér
athygli.
Unga kynslóðin
„skiptir á liæfileikum og
hégómagimi
og lítur stundum á Rússland
eins og þar
sé lifað einhverju annarlegu
lífi“.
Gribaohev segir unga rit-
höfunda og listamenn svo
mikla „græningja“, að þeir
geri sér ekki grein fyrir því,
hve verk þeirra eru „léleg og
leiðinleg“, en þeir bjóði þau
fram eins og þau væru far-
seðill upp á frægðarinnar tind.
Skáldið varar menn við því
að víkja út af þeirri braut
listtjáningar, sem opinberlega
er viðurkennd. —
„Við erum þolinmóðir
gagnvart kenjum
og höfum sjálfir séð
allskyns tízkufyrirtjrigði.
En drengir, hverjum hafið
þið gefið sálir ykkar
— hverjum veðsett hjörtu
ykkar?“
Gribachev vísar til aukins
frelsis í sovézku þjóðfélagi.
„Fætinum er frjálst að skrika
og tungunni að tala
En það er þessi hræðilega
svipstund á mörkunum
— þegar þú stígur eitt skref
og verður rótlaus
og stendur ekki lengur undir
rauða fánanum“.
Síðan snýr höfundur sér aft
ur að meginstefi ljóðsins.
„Nei, drengir, við vorum
ekki að fóstra ykkur,
aðframkomnir af þreytu
— til þess að láta rótlausa
sölumenn og bragðarefi
hremma ykkur, nema ykkur
á brott og ginna.
Við stóðum ekki undir
öskrum vopnanna
eða þrömmuðum vinnuklædd-
ir í byggingarvinnu
til þess að láta ykkur
monta ykkur á markaðs-
torgum
eða leika á gítar fyrir stúlkur
sem gapa máttlausar af
hrifningu“.
Síðustu línunum er beint til
ungu skáldanna, sem að undan
förnu hafa gert mikið af því
að lesa ljóð sín opinberlega fyr
ir sovézkri æsku — og enn-
fremur til söngvara, er syngja
ljóð þeirra við gítarundirleik.
— Samvinna . . .
Framhald af bls. 1.
hrósa Heath, þó að Verkamanna-
flokkurinn væri ekki samþykk-
ur stefnu stjómarinnar varð-
andi aðild að EBE. Wilson sagði,
að ekki bæri að líta á það, sem
gerzt hefði í Brússel, sem hræði-
legan atburð. Framtíðin gæti
leitt I ljós, að það yrði til hags-
bóta fyrir Breta, að þannig tókst
til.
Eftir fundinn I Neðri deild-
Inni, sagði Heath við frétta-
menn, að eitt land innan Efna-
hagsbandalagsins gæti ekki boð-
ið Bretum aukaaðild, þegar ljóst
væri að hin fimm teldu að þau
atriði varðandi fulla aðild, sem
samkomulag hefði ekki náðst
um, væru yfirstíganleg.
Duncan Sandys, samveldis-
málaráðherra, sem einnig var í
Brússel í gær, sagði við komuna
til London, aðekki væri hægt að
líta á það, sem vilja frönsku
þjóðarinnar, að viðræðurnar við
Breta færu út um þúfur. Það
væri aðeins einn maður, maður
ú villigötum, sem vildi útiloka
Breta frá aðild að bandalaginu,
maður, sem héldi að hann væri
Frakkland og Frakkland Evrópa.
Ekki sáttasemjari
A fundi sínum í morgun sam-
þykkti stjórn Vestur-Þýzlcalands
einróma, að lýsa hryggð sinni
yfir því, að viðræðurnar við
Breta í Brússel hefðu farið út
um þúfur, þrátt fyrir tilraunir
stjórna landanna fimm til þess
að hindra að svo færi. Þá sagð-
ist stjórnin vera ánægð með það,
að Bretar óskuðu enn eftir því
að gerast aðilar að EBE og sagð-
ist telja víst, að stjórnir land-
anna fimm myndu gera allt, sem
í þeirra valdi stæði til þess að
stuðla að því.
Talsmaður v-þýzku stjórnar-
innar skýrði fréttamönnum frá
þessu. Var hann spurður hvort
Adenauer kanzlari myndi reyna
að hafa áhrif á afstöðu de
Gaulles, en hann svaraði, að V-
Þýzkaland myndi ekki taka að
sér hlutverk sáttasemjara.
Óaðgengileg skilyrði
Á fundi frönsku stjórnarinnar
í morgun vair lýst eindregnum
stuðningi við aðgerðir utanríkis-
ráðherra hennar, Couve de Mur-
ville í Brússel í gær. Upplýs-
ingamálaráðherra stjórnarinnar.
Alan Peyrefitte, skýrði frá þessu
að afloknum fundinum. Peyre-
fitte sagði, að það hlé, sem nú
yrði á viðræðum í Brússel um
aðild Breta að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, þyrfti ekki að tákna
það, að Bretar gætu ekki gerzt
aðilar að bandalaginu í framtíð-
inni, ef þeir óskuðu. En skilyrð-
in, sem Bretar settu nú í Brússel
væru óaðgengileg.
Stjórnarandstaðan í franska
þinginu fór fram á það á fundi í
dag, að gert yrði hálfrar klukku-
stundar hlé á viðræðum þings-
ins og Couve de Murville látinn
gera grein fyrir atburðunum í
Brússel. Var tillaga um þetta
borin undir atkvæði, en felld
með nokkrum meirihluta.
Engin stefnubreyting
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj-
anna gaf í dag út yfirlýsingu,
þar sem látin var í Ijós hryggð
yfir því að viðræðurnar um að-
ild Breta að EBE skyldu fara út
um þúfur, því að það gæti tafið
sameiningu Evrópu. f yfirlýsing-
unni segir enn fremur, að
Bandaríkin hyggist halda áfram
að vinna að eflingu Atlantshafs-
bandalagsins og stefna að frjáls-
ari heimsverzlun. Atburðirnir i
Brússel breyti ekki stefnu Banda
ríkjanna í þessum efnum.
VID MIÐBÆINN!
MORGUNBLAÐIÐ þarf að fá duglega unglinga eða krakka
til að bera Morgunblaðið um nokkur hverfi í námunda við
Miðbæinn. — .Gjörið svo vel að hafa samband við skrif-
stofuna eða afgreiðsluna.
SÍMI 22480