Morgunblaðið - 16.02.1963, Blaðsíða 2
2
r
MORGUNBLAÐ1Ð
Laugafdagur 16. febrúar 1963
Afríkustúdentar
flýja Búlgaríu
Vínarborg, 15. febrúar.
— AP — NTB —
EIN S og skýrt hefur verið
frá í fréttum, þá hefur komið
til óeirða í Búlgaríu, milli
stúdenta frá Afríku og inn-
lendra námsmanna. — Segja
Afríkustúdentarnir, að skóla-
félagar þeirra, búlgarskir,
hafi kallað blökkumennina
„svarta apa, er búi í trjám“.
stúdentarnir að því
liggja, að þetta sé gert með
þegjandi samþykki búlg-
arskra yfirvalda.
Um 300 Afríkustúdentar
munu nú í Búlgaríu, aðallega
í Sofíu. 25 þeirra komu í dag
með flugvél til Vínarborgar
í fylgd með sendiherra Ghana
í Sofíu, Appan-Sampong.
Við komuna til Vínarborgar
Telja sig verða fyrir kynþdttahatri
Láta
SJálfum sér ósamkvæmur
um áleítni við kvenfólk
Lítið md út af bera d götum Rvíkur
dn þsss að kært sé
I RANNSÓKN máls manns þess.
sem grunaður er um að hafa
veitzt að konum í Norðurmýr-
inni að undanförnu, hefur fátt
eða ekkert nýtt komið fram.
Viðurkenndi maðurinn fyrst að
vera valdur að fjórum árásum,
en síðan dró hann framburð sinn
til baka, og við það situr. Segist
Ráðstaf anir til
verndar erninum
Alþingismennirnir Bjartmar
Guðmundsson, Gunnar Gísla-
son, Jón Skaftason og Birgir
Kjaran hafa lagt fram á Alþingj
svohljóðandi tillögu til þings-
ályktunar:
Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að gera þegar ráðstaf
anir í samráði við sérfróða menn
í náttúrufræði, er helzt mættu
verða til að koma í veg fyrir,
að íslenzki örninn verði aldauða.
Meðal þeirra ráðstafana, er til
greina geta komið í þessu skyni,
er t.d.:
1. Athugun verði gerð á
hreiðurstöðum og hversu margir
ernir muni enn vera til í landinu.
2. Ráðnir verði eftirlits-
menn. er sjái um, að friðunar-
lögum, að því er snertir erni
við hreiður, sé hlýtt.
3. Greiddar verði fébætur
þeim bændum, er verða fyrir
skaða af völdum arna við hreið-
ur.
4. Athugað verði gaumgæfi-
lega um leíðir til að draga úr
Og afstýra þeím háska, sem fugli
þessum stafar af eitrun fyrir
lögin, með samþykki ríkisstjórn-
svartbak, reíi og minka.
maðurinn hafa játað árásirnar
fjórar sökum þess að hann hafi
verið hræddur, þar eð hann hafi
stundum gengið á eftir konum
Og kallað í án þess að snerta
þær. Hafi það einnig verið á
öðrum stað í bænum en þeim,
sem um ræðir, og einkum er
hann hafi verið að koma af
dansleikjum. Mál mannsins
mun verða sent saksóknara, sem
ákveður meðferð þess, m.a.
hvort maðurinn skuli úrskurð-
aður i geðrannsókn, en hann
hefur áður verið á geðveikra-
hæli. Maðurinn er 32 ára gamall.
Sl. miðvikudagskvöld barst
lögreglunni tilkynning um að
maður hefði veitzt að stúlku við
Hamrahlíðarskólann, en þá var
maður sá, sem lögreglan hefur
nú grunaðan. kominn bak við
lás og slá. Hafa af þessu tilefni
gengið sögur um að mennirnir,
sem áreittu konurnar í Austur-
bænum væru fleiri en einn.
Þess ber hins vegar að gæta
að eftir að bera fór á blaðaskrif-
um um áleitni einhvers manns
við Rauðarárstíg hafa góðglað-
ir menn ekki mátt yrða á kven-
fólk á götum bæjarins án þess
að kært væri til lögreglunnar
yfir árás. Fyrir nokkrum dögum
var kona á heimleið í Austur-
bænum og skýldi sér fyrir rign-
ingunni með regnhlíf. Maður,
sem á móti kom og var regn-
hlífarlaus, en sennilega búinn að
fá sér glas af víni og þ- - í góðu
skapi, gekk undir regnhlíf kon-
unnar og sagði: „Gott kvöld.
Mikið er gott að hafa regnhlíf,"
— og hélt síðan rakleiðis áfram.
Ekki þarf að orðlengja að mál
þetta barst ranasóknarlögregl-
unnL
Eins og Mbl. sagði frá í gær
varð það óhapp á Egilsstaða-
flugvelli, að skíðastafir rák-
ust upp undir jafnvægisstýri
á væng Dakotaflugvélar frá
Flugfélaginu, er vörubil var
ekið undir vænginn. Rifnaði
dúkurinn á stýrinu, en við-
gerðarmenn komu með ann-
arri vél frá Rvík og gerðu við
flugvélina. Myndin sýnir
skemmdiraar á stýrinu.
(Ljósm. Mbl.: Ari).1
skýrðu stúdentamir svo frá, að
a.m.k. 7 skólafélagar þeirra
væru nú í haldi í Sofíu. Voru
þeir handteknir, eftir að til ó-
eirða kom fyrr í vikunni. Aðrir
stúdentar munu nú bíða eftir
fari frá landinu.
Sendiherra Ghana skýrði svo
frá, að hann hefði þegar borið
fram kvartanir til búlgarska ut-
anríkisráðherrans, vegna hand-
töku stúdentanna sjö. Engin
svör hafa borizt, og enginn veit
hvort þeir verða látnir lausir.
Af búlgarskri hálfu var því
lýst yfir í dag, að allar fregnir
af atburðum þessum væru stór-
lega ýktar og þjónuðu þeim til-
gangi einum að sverta Búlgara í
augum annarra þjóða.
Til tíðinda mun hafa dregið,
er Afríkustúdentarnir ætluðu
sér að stofna með sér félag í
Sofíu, en það tókst ekki.
Jón ísleifsson
Útibússtjóri í
Kcflavík
Á FUNDI bankaráðs Útvegs-
banka íslands í dag var Jón ís-
leifsson, fulltrúi í sjávarútvegs-
lánadeild bankans, ráðinn útibús
stjóri við væntanlegt útibú bank
ans í Keflavík.
Jón ísleifsson er fæddur 4.
marz 1930. Hann lauk prófi frá
Verzlunarskóla íslands 1949 og
stundaði framhaldsnám í The
Glasgow and West of Scotland
Commercial College 1949—1950.
Hann hefir síðan starfað í Út-
vegsbankanum. ,
Ritskoðun frétta
*
nú hafin í Irak
Talið að allt að 7000 kommúnistar séu
í haldi, en mikið magn vopna fannst
Bagdad og London, 15. febr.
— NTB — AP —
S T J Ó R N byltingarmanna í
írak ákvað í dag, að ritskoð-
un skyldi sett á allar fréttir,
er sendar eru frá JLandinu.
Naer tilskipunin jafnt til sím-
tala, símskeyta og póstþjón-
ustu.
Fram til þessa hafa frétta-
menn, sem komið hafa til
írak ekki orðið fyrir neinum
óþægindum.
Er fréttabannið sett í sam-
band við vopnafund. Fannst
mikið ai vopnum við húsleit,
er gerð var í borginni. Munu
ráðamenn telja kommúnista
eiga vopnin, og síðustu frétt-
ir herma, að 2500 — sumir
segja 7000 — þeirra séu nú í
fangelsum.
Þá var tilkynnt í dag i Bag-
dad, að réttarhöld þau, sem
haldin verða yfir fyrrverandi
stuðningsmönnum K a s s e m s ,
muni verða opinber. Jafnframt
verði birt skýrsla yfir glæpi þá,
er Kassem, og þeir, er teknir
hafa verið af lifi, eru sagðir hafa
drýgt.
Allir útifundir eru bannaðir í
Bagdad, og ekki er heimilt að
mála slagorð á húsveggi. Engar
myndir hafa verið settar upp á
almannafæri af forsetanum nýja,
og velta fréttaritarar því fyrir
sér, hvort hann sé aðeins nafn,
sem byltingarráðið ætli sér að
nota, en ekki hefur verið skýrt
enn frá öllum meðlimum þess.
í>ótt ró ríki nú i Bagdad, þá
getur enn að líta stríðsvagna
víða um borgina.
í dag voru aftur teknar upp
flugsamgöngur milli Bagdad og
Kaíró, en þær hafa legið niðri
um nokkurra ára skeið.
Til uppþots kom í dag í Lon-
don, er um 500 stúdeptar frá
írak gerðu aðsúg að sendiráði
landsins þar í borg. — Réðu
stúdentarnir til atlögu við sendi-
ráðið, og vildu komast inn i
bygginguna. Ekki kom til stór-
átaka, en málinu lyktaði þannig,
að fjórir stúdentanna afheniu
skrifleg mótmæli. Er þar lýst
viðbjóði á aftökum þeim, er Aref
og samstarfsmenn hans hafa
staðið fyrdr undanfarna daga.
Eina kommúnistablaðið, sem
enn kemur út í Arabalöndunum,
„A1 Nidaa“, í Beirut, lýsti því yf-
ir í dag, að andúðin á Aref og
byltingarmönnum í írak færi nú
vaxandi með degi hverjum.
Sigurður Róbertsson.
Dimmuborgir
— leikrit Sigurðar Róbertssonar sýnt í
Þ j óðleikhúsinu
UM NÆSTU mánaðamót verð-
ur frumsýnt nýtt íslenzkt leikrit
í Þjóðleikhúsinu, og er það leik-
ritið „Dimmuborgir" eftir Sig-
— Mary Small
Framih. af bls. 1.
tilraun Small, og félaga hans,
svissneska vísindamannsins
Hannes Keller. fór fram.
Small og kona hans voru
þá nýkomin úr brúðkaupsferð
til Miðjarðarhafsins. Var
hann bjartsýnn á tilraun þá,
sem fyrir dyrum stóð, og taldi
tilraunir, er áður höfðu farið
fram með oérstakar loftblönd-
ur, sem gera áttu djúpköfun
mögulega, hafa tekizt svo vel,
að engin hætta væri á ferð-
um.
Þetta fór hins vegar á ann-
an veg. Mary Small varð að
horfa á, er maður hennar
var dreginn úr djúpinu- með-
vitundarlaus og dauðvona.
Eftir lát hans var hún ekki
mönnum sinnandi, og hélt sig
lengstum ein í íbúð sinni í
London. Vinir hennar höfðu
gert allt, sem í þeirra valdi
stóð til að gera henni lífið
léttara. Sl. laugardag héldu
þeir boð fyrir hana og sögðu
þá, að hún hefði virzt í létt-
ara skapi. Annað bjó þó nnd-
ir, því að á þriðjudag var
komið að henni í íbúð henn-
ar. Hún hafði skrúfað frá
gasinu og svipt sig lífn
urð Róbertsson. Þetta er sjötta
frumsýningin hjá Þjóðleikhúsinu
á þessu leikári.
Höfundur leiksins, Sigurður
Róbertsson, er fæddur að Hall-
gilsstöðum í Fnjóskadal í Suður-
Þingeyjarsýslu, árið 1909. Sig-
urður fluttist til Akureyrar og
var búsettur þar í mörg ár og
hóf hann þar ritstörf sín. Árið
1945 fluttist hann til Reykja-
víkur og hefur dvalið hér síðan.
Ungur að árum fór Sigurður að
fást við ritstörf og kom fyrsta
bók hans út árið 1938 og var það
smásagnasafn er heitir „Lagt
upp í langa ferð“.
Á næstu árum hafa komið út
eftir hann nokkrar bækur, bæöi
skáldsögur og smásögur og einn-
ig hefur hann gefið út tvö leik-
rit, „Maðurinn og húsið“ 1952, og
„Uppskera óttans“ 1955.
„Dimmuborgir“ er fyrsta leik-
rit Sigurðar sem hefur verið
sýnt á leiksviði.
Æfingar á leiknum hafa nú
staðið yfir í nokkurn tíma og er
Gunnar Eyjólfsson leikstjóri, en
aðalhlutverkið er leikið af Ævari
Kvaran. Auk hans fara þessir
leikarar með stór hlutverk i
leiknum: Valur Gíslason, Rúrik
Haraldsson, Sigríður Hagaín.
Kristbjörg Kjeld, Bryndís Péturs
dóttir, Brynja Benediktsdóttir og
Jón Sigurbjömsson.
Dimmuborgir er nútímaleikrit
í tíu atriðum og gerist í Reykja-
vík. Leiktjöld eru gerð af Gunn-
ari Bjarnasyni. __