Morgunblaðið - 16.02.1963, Qupperneq 23
Laugardagur 16. febrúar 1963
MORCVNBLAÐIÐ
23
FlugvéBar og skip
Keita ,Anzoategui6
Castro býður ræningjunum landvist
Caracas, 15. febrúar
_ AP — NTB.
TALIÐ er nú fullvist. að það
séu kommúniskir ofbeldisseggir,
sem tekið hafa skipið „Anzoa-
tegui“. Hafa skip og flugvélar
bandaríska flotans leitað þess í
allan dag, en án árangurs.
Dimmviðri er á bví svœði, sem
talið er að skipið sé nú á, og
telja leitarmenn, að það njóti
skjóls af þoku.
Fidel Castro, forsætisráðherra
Kúbu, hefur lýst því yfir, að
ekkert sé vitað á Kúbu um það,
hvar skipsins sé að leita. en
hins vegar er tekið fram, að ef
það leitar þár hafnar, þá muni
þeim, sem skipinu rændu, verða
veitt landvistarleyfi.
Ekki er enn vitað, hve mörg
skip og flugvélar Bandaríkja-
flota leita skipsins.
Talið er, að ræningjarnir séu
níu talsins. Hafa þeir lýst því
yfir, að þeir hafi tekið skipið
„vegna föðurlandsástar", og í
mótmælaskyni við forseta
Venezuela, Romulo Betancourt.
Bridge
SVEITAKEPPNI meistaraflokks
hjá Bridgefélagi Reykjavíkur er
lokið og var sveit Einars Þor-
finnsson sigur úr býtu.m. Auk
Einars eru í sveitinni Gunnar
Guðmiundsson, Lárus Karlsson,
Kristinn Bergiþórsson, Ásmund-
ur Pálsson og Hjalti Elíasson. f
í síðustu umferð urðu úrslit þessi:
Sveit Einars vann sveit Elínar
6—0, sveit Þóris vann sveit Jóns
6—0, sveit Eggrúnar vann sveit
Ólafs 5—1, sveit Úlfs vann sveit
Benedikts 6—0, sveit Halls vann
eveit Hjálmars 5—1.
Röð efstu sveitanna varð þessi:
1. Sveit Einars Þorfinnssonar
46 stig. 2. Sveit Þóris Sigurðsson
ar 45 stig. 3. Sveit Halls Símon-
arsonar 38 stig.
Rridgefélagi Reykjavikur hef
ur borizt boð um að senda tvo
epilara til hinnar frægu keppni
sem fram fer í Juan Les Pins í
S-Frakklandi dagana 4. til 17. maí
n.k. Keppt verður í einmennings
tvímennings-, og sveitakeppnum
og eru verðlaun samtals að f jár
hæð kr. 400.000.00. Boð þetta má
vafalaust rekja til heimsóknar
hollensku bridgesveitarinnar
fyrr í vetur, en þeir voru mjög
hrifnir af ísl. spilurum og róm-
uðu allar móttökur.
Sveitakeppni Bridgefélagi
kvenna er lokið og bar sveit Egg
rúnar Arnórsdóttux sigur úr být
um. Auk Eggrúnar eru í sveitinni
Ásta Flygenring, Guðrún Guð-
fnundsdóttir, Guðrún Bergsdótt
ir, Halla Bergþórsdóttir og Krist
jana Steingrímsdó.ttir. Röð efstu
sveitanna varð þessi:
1. Sveit Eggrúnar Arnórsdótt-
ur 49 stig. 2. Sveit Laufeyjár Þor
geirsd. 42 stig. 3. Sveit Elinar
Jónsdóttur 41 stig.
Öryggismákstjóri
kyimir sér orsakir
sprenginga
VEGNA sprengingar, sem nýlega
varð í ammoníumnitrati í verk-
smiðju Aktielbolaget Typpi OY,
Uleáborg, Finnlandi, hefur af eðli
legum ástæðum nokkurs uggs
gætt meðal manna í sambandi
vió rekstur Áburðarverksmiðj-
unnar í Gufunesi.
Við fyrirspurn minni varðandi
orsakir sprengingarinnar hefur
mér borizt svar frá forstjóra
finnska öryggiseftirlitsins. Segir
hann þar, að nefnd sú, sem skip
uð var til að rannsaka orsakir
slyssins hafi ekki enn lokið störf
um og niðurstöður hennar liggi
því ekki fyrir, en við bráðabirgða
athugun hafi tvö atriði komið í
ljós, sem ætla megi að orsakað
hafi sprenginuna.
Atriði þessi eru yfirhitun á
ammoniumnitrati á einu stigi
framleiðslunnar og tilvist líf-
rænna efna eða óhreininda í am
moniumnitratinu.
Þá gefur svar forstjórans til
kynna, að framleiðslukerfi
finnsku verksmiðjunnar sé á
annan veg en Áburðarverksmiðj
unnar og þannig að litlar líkur
geta talizt fyrir því, að í Áburð
arverksmiðjunni geti myndazt
það ástand, eða svipað því, sem á
þessu stigi málsins er talið lík-
legt að valdið hafi sprengingunni.
Þórður Runólfsson.
Málsskjölin
með Esju
SKJÖLIN í máli skipstjórans á
mb. Sævaldi munu vera á leið-
inni til Reykjavíkur frá Vest-
mannaeyjum með Esju, sem
væntanleg var hingað snemma
í morgun. Fær saksóknari ríkis-
ins málið til umsagnar.
Laust eftir klukkan sex síðdegis í gær var slökkviliðið kvatt
að vörugeymslu SIS við Tryggvagötu. Er á staðinn kom log-
aði glatt í vörulyftara, en eldurinn var þegar slökktur með
bandslökkvitækjum. Skemmdir munu þó hafa orðið töluverðar
á lyftaranum. — Myndin sýnir vörubíl draga lyftarann út úr
akenununni. Ljósm. Mbh: Ó1.K.M.
Halina Czerny-Stefanska bauðst til að halda konsert fyrir nemendur og kennara Tónlistarskól-
ans. Mynd þessi var tekin í gær, þegar þeir fóru fram í hljómleikasal skólans.
— Flugmálastjórn
Framhald af bls. 24.
hólmi eða Osló, eða millilend
ingar á íslandi eða í Græn-
landi. Eru fargjöldin miðuð
við farmiðaverð Loftleiða.
SAS fær þannig leyfi til að
fljúga fjórum sinnum í viku.
Hefjazt þær ferðir í október
og standa út febrúarmánuð.
SAS gebur þó aðeins flutt þá,
sem eru búsettir í Bandaríkj
unum, Danmörku, Noregi eða
Svíþjóð.
Flugmálastjórnin lýsti ó-
ánægju yfir því, að aðeins
borgarar nokkurra landa
fengju að vera lágu fargjald
anna aðnjótandi, og það hjá
einu flugfélagi, sem gæti að-
eins farið takmarkaðan fjölda
ferða, þegar um væri að ræða
mörg önnur flugfélög, er Loft
leiðir kepptu við. Segir í til-
kynningunni, að ef ekki væri
um að ræða tiltölulega stuttan
tíma, er þessi fargjöld gilda,
og að gert sé ráð fyrir endur-
skoðun innan tíðar, þá myndi
stjórnin hafa lagzt gegn leyfi
til SAS, eða einstökum þátt-
um samþykktarinnar.
Segir svo orðrétt. „Við von
umst eftir því, að á þeim mán
uðum, er líða, þar til þetta
mál verður tekið til athugun
ar ,þá muni verða gerðar ráð
stafanir, er miða að því, að
sem flestir geti notið lægri
fargjalda, og það með fleiri
flugfélögum en einu.“
Tveir af meðlimum flug-
málastjórnarinnar jjáfu sér-
— Molar
Framhald af bls. 15.
en styrjaldarárin urðu hon-
um sá reynslubrunnur er
hann hefur bergt af í skrifum
sínum. Að styrjöldinni lok-
inni kvæntist hann og byrj-
aði að skrifa, en vann áfram
sem vélaviðgerðarmaður. —
Fyrsta bók hans, „Takmark-
ið“ kom út 1947 og er hún
lýsing á uppvexti sveita-
drengs, byggð á æsku hans
sjálfs. Næsta bókin var
„Svört ást“, harmleikur verka
mannsfjölskyldu. „Óþekkti
hermaðurinn var þá þegar í
smíðum og kom út 1955. Sag-
an hefur verið gefin út í hátt
á fjórða hundrað þúsund ein-
tökum, hún var kvikmynduð
fyrir nokkrum árum og síðar
færð í leikbúning og léikin í
Helsinki.
Leiðrélting
í FRÁSÖGN af ræðu Bjama
Benediktssonar kirkjumálaráð-
herra í gær segir, að Skáliholt
hafi verið afbent Gissuri biskupi
ísleifssyni. Þarna hefur skolazt
til. Hið rétta er að sjálfsögðu, að
Gissur biskup gaf Skáiholt sem
biskupssetur. __
álit. Töldu þeir, að ekki ætti
að leggjast gegn hærri far-
gjöldum á Atlantshafsleiðinni,
þar eð fjárhagur fyrirtækja,
er það flug önnuðust, væri
bágur. Þá kæmi og til, að um
óverulega hækikun væri að
ræða, skv. samþykkt IATA.
Skíði
með PLAST-SÖLA
Verð frá kr. 1640,-
SKÍÐASTAFIR
skwim
SKÍÐABIIXUR
ic'ósésendum.
Félagslíl
Körfuknattleiksmót íslands
heldur áfram nú um helg-
ina og verða leikir eins og
hér segir:
Laugardagur 16. febrúar i
kl. 20.15 að Hálogalandi:
1. fl. karla U.M.F.B. — K.R.
M. fl. karla Í.R. — Ármann.
(Umsjón K.R.). .
Sunnudagur 17. febrúar
kl. 13.00 í Iþróttahúsi Hásk.:
2. fl. kvenna: I.R. — Fim-
leikafélagið Björk.
M. fl. kvenna:
l.R. — U.M.F.B.
4. fl. drengja:
Í.R. c — Ármann.
4. fl. drengja: K.R. — Í.R. a
3. fl. drengja: l.R. c — Árm.
3. fl. drengja: Í.R. a - K.F.R.
3. fl. drengja Í.R. b — K.R.
2. fl. karla: K.R. b - Arm. b
(Umsjón K.R.).
Kl. 20.15 að Hálogalandi:
1. fl. U.M.F. Skarph. —
U.M.F.B.
M. fl. Í.S. — K.F.R.
(Umsjón Armann).
Stjórn
Stjórn K.K.R.R.
Valsmenn.
Fjölmennum í skálann um
helgina. Ferðir frá B.S.R. á
laugardag kl. 2 og 6 og á
sunnudag kl. 10 og 1.
Framarar — Framarar
Skemmtifundur v e r ð u r
haldinn í félagsheimilinu í
kvöld kl. 9. Fjölmennið. —
Mætið stundvíslega.
Handknattleiksdeild
kvenna.
Hamragil
Skíðaferð í ÍR-skálann
kl. 2 og kl. 6 á laugardag,
kl. 10 og kl. 1 á sunnudag.
Skíðakennsla — Notið snjó-
inn og sólskinið í Hamragili.
— Kvöldvaka.
Skiðadeild ÍR.
TBR — Valshús.
Barnatími kl. 3.30.
Meistara- og 1. íl. kl. 4.30.
Fjölritunarpappír
Kvartó — Din A-4 — Fólió.
Hagkvæmt verð.
1
EGGERT KRISTJANSSON *CO HF
SÍM111400