Morgunblaðið - 23.02.1963, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.02.1963, Blaðsíða 9
Lítugardagur 23. febrúar 1963 MORC VTSB L.A Ð 1 Ð Loftþjöppur og verkfæri ÞAÐ BEZTA A MARKAÐNUM. LEITIÐ UPPLÝSINGA HJÁ EINKAUMBOÐINU. LANDSSMIÐJAN Sími: 20680. SINFONIUHLJOMSVEIT ISLANDS RÍKISCTVARPIÐ Tónleikar í Háskólabíói í kvöld kl. 19.00. Stjórnandi: GUSTAV KÖNIG. Einsöngur: IRMGARD SEEFRIED. Einleikur: WOLFGANG SCHNEIDERHAN. Efnisskrá: Mozart: Sinfónía í g-moll. Mozart: Aría úr óp. Brúðkaup Figaros. Richard Strauss: Traum durch die Dámmerung, Zueignung. Beethoven: Konsert fyrir fiðlu og hljómsveit op. 61. Aðgöngumiðar í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar og bókaverzlun Lárusar Blöndal á Skóla- vörðustíg og í Vesturveri. ALLT A SAMA STAÐ ATVINIMA vonum Öskum eftir bifvélavirkum eða mönnum bílaviðgerðum. Einnig óskast rennismiðir og nemar í rennismíði. Getum bætt við 1—2 bifreiðasmiðum. Upplýsingar hjá Matthíasi Guðmundssyni. EGILL VILHJÁLMSSON H.F. Laugavegi 118, sími 2-22-40. Sniðskóli BERGLJÓTAR OLAFSDOTTUR. Sniðkennsla. — Sniðteikningar. — Máltaka. — Mátanir. Næsta námskeið hefst mánudaginn 25. þ.m. Saumanámskeið. Innritun stendur yfir. BERGLJÓT ÓLAFSDÓTTIR Laugarnesvegi 62 — Sími 34730. 7/7 sölu 2 notuð amerísk rúm með „Beauty Rest“ dýnum, kr. 3000,-. 3 járnslegnar búferla- kistur, kr. 1.500,-. Notuð dönsk 3ja hellna eldavél, kr. 2.000,-. Upplýsingar í síma 38489. Athugið! að borið saman við útbreiðslv er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. Ásgeir Jónsson Hjarðarholti HANN varð bráðkvaddur að heimili sínu á Akranesi 14. þ.m. og verður jarðsunginn í dag frá Hj arðarholtskirkj u. Ásgeir Jónsson var fæddur í Hjarðanholti í Stafholtstungum, 24. júní 1885. Foreldrar hans voru Jón bóndi Tómasson í Hjarðar- holti og kona hans, Sigríður Ás- geirsdóttir frá Lundum. Ásgeir ólst upp hjá foreldrum sínum í Hjarðarholti. Ásgeir giftist 2. ágúst 1919, Mörtu Oddsdóttur frá Eskiholti, sem lifir mann sinn. Foreldrar Mörtu, Oddur Jónsson og kona hans, Guðfinna Þórðardóttir, bjuggu í Eskiholti í Borgar- hreppi. Ásgeir og Marta reistu bú í Borgarnesi 1919 og byggðu sér þar hús. í Borgarnesi áttu þau heima í 7 ár, eða til ársins 1926, er þau fluttust að Haugum í Stafholtstungum, en þá jörð keypti Ásgeir. í full tuttugu ár annaðist Ásigeir póstferðir frá Borgarnesi til Búðardals. Byrjaði hann þær ferðir meðan hann átti heima í Borgarnesi. Á Haugum bjuggu þau Ásgeir og Marta í 22 ár, en fluttust síðar til Akraness og áttu þar heima síðan. Marta og Ásgeir eignuðust eina dóttur barna, Sigríði. Er hún gift Karli Guðlaugssyni frá Litlu-Skógum í Stafholtstungum. Eru þau bú- sett í Reykjavík. Ásgeir hafði aldrei stórt bú á Haugum, en fullkominn arð hafði hann af hverri skepnu. Bar þar aðallega tvennt til: ágæt fóðrun og umhirða á öllum búpeningi og svo hitt, að Ásgeir hafði ágætt vit á öllu búfé, ekki einungis á hest um, sem seinna verður að vikið. Þó búið væri ekki stórt var þar fráfoær snyrtimennska í búnaði, utanhúss og innan. f>au Hauga- hjón, Ásgeir og Marta, voru mjög gestrisin, var gott til þeirra að koma og vera gestur þeirra. Það var (og er) margra manna mál, að Ásgeir hafi verið einn af alslyngustu hesta- og tamn- ingamönnum í Borgarfjarðarhér- aði og jafnvel þó víðar væri leit- að. Stóðu honum þar fáir á sporði Ásgeir hafði ákaflega næmt auga fyrir hestum og einkennum þeirra og gat lesið þá ofan í kjöl- inn eins og opna bók. Hann tamdi marga hesta, keypti marga hesta oig seldi marga hesta. Úr höndum Ásgeirs komu margir heilstyptir gæðingar. Það þóttu alltaf meðmæli með hesti ef hann hafði verið í þjálfun hjá Ásgeiri frá Hjarðarholti. Ásgeir Jónsson var vörpuleg- ur maður og vel á sig kominn. Yfirbragðið nokkuð mikilúðlegt en þó hreinlegt. Brúnin stundum nokikuð hvöss. Ásgeir var alltaf mjög snyrtilegur í klæðaburði. Það er mín trú að meðan reið- götur duna í Borgarfirði, og ár- ba'kkar stynja undan hófatökum, muni Ásgeirs frá Hjarðarholti verða minnzt Á.Þ.Ó. Laxveiðlmenn Tilboð óskast í veiðirétt í Laxá í Leirársveit næsta veiðitímabil. Veiðisvæðið er frá ós að Eyrarfossi. Tilboðum sé skilað til formanns Veiðifélags Laxár fyrir 10. marz n.k. Félagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði seir er eða hafna öllum. Iðnfyrirtæki I góðum rekstri er til sölu. Söluverð ca. kr. 900.000.— Til greina kemur að taka íbúð upp I greiðslu. Þeir sem hafa áhuga á þessu leggi nöfn sín inn á af- greiðslu Morgunbl. merkt: „X 304 — 1764“ fyrir 28. þ. m. HLUTAVELTA Málfundafélagið Óðinn heldur lilutaveltu í Listamannaskálanum á morgun kl. 2. — Þúsundir vinninga. — Ekkert happdrætti. — Ekkert núll. — AÐEINS VINNINGAR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.