Morgunblaðið - 23.02.1963, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.02.1963, Blaðsíða 13
Laugardagur 23. febrúar 1963 M O R C V IV B 1. Á Ð í Ð 13 Nú eru liðnar rúmar tvær vikur frá því stjórnarbyltingr in var gerð' í írak og enn eru menn aff velta því fyrir sér, hverjir séu hinir raunveru- legu forystumenn — hvort þaff sé Aref, forseti, effa hvort ein hver annar standi aff baki byltingarmönnum þeim, sem opinberlega hafa komiff fram sem forvígismenn. í nýlegum fregnum frá Beir ut í Líbanon segir, að Aref hafi verið hækkaður í tign innan hersins hann var ofursti en er nú orðinn marskólkur. Fréttaritari stórblaðsins „New York Times“ í Beirut segir Er Aref, forseti íraks, leiötogi byltingarmanna? Ef ekki — hver þá? mikinn vafa leika á því, að Aref sé hinn „sterki maður“ byltingarinnar — hinsvegar sé með öllu óljóst hver það þá sé. I>ó segir ’. ann augljóst að það séu félagsmenn Baath flokksins, sem mestu róði inn an Þjóðbyltingaráðsins. Baath flokkurinn er mjög fylgjandi einingu Arabaríkjanna, en fylgismenn hans eru ekki ýkja ginnkeyptir fyrir hinni tilfinningasömu hollustu Ar- efs, forseta, við Nasser, for- seta Egyptalands. Nýlega ræddi Aref við fréttamenn í Bagdad, eins og skýrt var frá í Mbl. 16. feb. sl. — Þar var forsetinn hlé drægur mjög og ráðgaðist oft við Ahmed Hassan Bakr, hershöfðingja, sem er far- sætisráðherra byllingarstjórn arinnar. Bakr svaraði sjólfur, engum spurningum blaða- manna, en þeir voru ekki í neinum vafa um, að hann réði eins miklu — og e.t.v. meiru um svör Arefs, en hann sjálfur. • Ekki er með öllu ljóst, hve margir menn tilheyra hinu . svonefnda „Þjóðbyltingarróði" Það hefur aldrei verið til- kynnt opinberlega. Hinsveg- ar hefur Aref sagt, að ráðið telji heppilegt, að ekki séu gefnar allt of miklar upplýs- ingar, því þá verði auðveldara að hafa samband við bylting aröfl í öðrum löndum“ sem enn eru ekki laus við yfir- ráð heimsvaldasinna,* eins og hann komst að orði. Aðrir hafa sagt, að hæfileg leynd geti komið í veg fyrir að ný- ir menn, með einræðistilhneig ingar, geti aðhafzt nokkuð gegn byltingarstjórninni. Enn aðrir segja, að margir aðilar Þjóðbiltingarráðsins séu ungir menn og óreyndir á sviði stjórnmála, og hiki því við að koma opinberlega fram, sem helztu stefnumótendur þjóð- arinnar. En sá orðrómur hefur flog- ið, að á fundum byltingarráðs ins, sem ennþá séu haldnir í útvarpsstöðinni í Abu Shur- ai<b, í útjaðri Bagdad-borgar, séu jafnan saman kómnir 40 —50 ,menn. Stjórnin hefur hvorki staðfest þenan orðróm né vísað honum á bug. • Eini þátturinn í stefnu bylt ingarstjórnarinnar, sem eng- inn vafi leikur á um, er and úð hennar í garð kommúnista Og sá þóttur varð fyrst og fremst svo ljós, vegna þess að kommúnistar gripu til vopna gegn byltingarhermönn um á götum helztu borga lands ihs og skírskotuðu til íbúa íraks, einkum þó Kúrda, að undanlátssemi og dekurs við kommúnista. Segir í fréttum fró Kairo, að starfsmenn sov- ézka sendiráðsins í borginni séu afar áhyggjufullir vegna þessa: Það er alkunna, að Nasser hefur ekki hikað við að fangelsa kommúnista enda þótt hann fái efnahagsaðstoð frá Rússum, m.a. til Aswan stíflunnar miklu, og haldi vin áttusambandinu k ytra borð- inu — en sem dæmi um það er, að dóttir Nassers, unglings stúlka, er nýkomin heim frá Rússlandi, þar sem henni var m.a. boðið að dveljast dag- langt með fjölskyldu Krúsj- effs, að sveitasetri hans. Þessi mynd var tekin í boffi hjá egypzka sendiherranum í Moskvu. — Dóttir Nassers, Hoda (fremst til hægri) sézt hér á tali viff dætur Krúsjeffs, Rödu og Lenu, og Tanyu Satyukovu, dóttur affalritstjóra Pravda. rísa upp gegn hinum „blóð- þyrstu afturhaldssinnum“, er tekið hefðu völd. Var það kall óvænlegt til svars, því að Kassem hafði mánuðum sam an átt í stríði við Kúrda, óð ur en til byltingarinnar kom'. Hafa Kúrdar, sem kunnugt er, krafizt aukinna réttinda og gert hverja uppreisnina á fætur annarri. Menn eru á ýmsu máli um ástæðurnar fyrir hinum heift ugu viðbrögum kommúnista í Irak. Sumir telja þau eðlileg með tilliti til andúðar þeirra á hægfara framfarasinnum ast. — aðrir, að þeir hafi sjálf eins og Baath-sósialistar telja ir verið í þann veginn að gera uppreisn, en Baath-menn orðið fyrri til. Fregnir frá Kario herma, að birzt hafi í vikublaðinu „A1 Ahram," sem er sterkt stuðndngsblað Nassers for- seta, grein eftir ritstjórann, Mohammed Hassanein Heikal Þar segir, að í raun og veru hafi það verið kommúnistar í lykilstöðum innan stjórnar Kassems, hershöfðingja, sam hafi staðið fyrir ógnarstjórn- inni í landinu. í blaðinu seg- ir m,a. „Kommúndstar óðu í blóði í Bagdad- Og í Mosúl og Kirkuk frömdu þeir hina skelfilegustu glæpi. - í Kirkuk grófu þeir fólk lifandi . Á hverjum degi skrifa Kairo- blöðin, að Kassem hafi misst allt traust þjóðar sinnar vegna Sjaldan eða aldrei er sagt frá þessum fangelsunum eða öðrum aðgerðum gegn komm únistum í blöðum í Kairo. Hins vegar má nær því á hverjum degi lesa árásir í garð „vestrænna heimsveldis- sinna“, með einstaka undan- tekningum þó. Til dæmis er um þessar mundir lítt eða ekki róðizt á Bandaríkjamenn í Kairo-blöðunum. Það atriði hefur heldur ekki farið fram hjá fránum augum kommún- ista í nágrannalöndunum, enda hefur málgagn kommún ista í Beirut „A1 Nida“ — en það er nálega eina komm únistablaðið, sem kemur reglu lega út á þessu svæði — látið að því liggja, að Nasser hafi undirbúið stjórnarbyltinguna í írak í samvinnu við banda- rísku leyniþjónustuna. Ekki er vitað, hve margir kommúnistar hafa verið tekn ir höndum í Bagdad, Basra, Mosul og Krikuk síðustu tvær vikur. Á Eagdad svæð- inu er talið, að 4000 manns hafi verið handteknir, en flestir látnir lausir aftur — því að megintilgangurinn með handtökunum hafi verið að finna forystumenn flokksins og þá menn, sem áttu þátt í blóðbaðinu n.ikla í Mosul og Kirkuk árið 1959. Segja frétta menn í Beirut, eftir áreiðan- legum heimildum, að enginn fótur sé fyrir því, að fjöldi kommúnista hafi verið tekn- ir af lífi að undanförnu, eins Og talið hefur verið, — hins vegar verði á næstunni rann- sakaður ferill þeirra, sem grunaðir eru um ofbeldisverk á síðustu árum — en öðrum smám saman sleppt úr haldi. Þorrablót, heitt vatn og Hellnum, 19. febr. Laugardaginn 9. febr., efndu Staðsveitungar til þorrablóts í •amkomúóhúsi sinu að Görðum. Buðu þeir Breiðvikingum, sem fjölmenntu á þetta vel heppnaða og skemmtilega blót, sem fór í ftlla staði vel frafh. Hreppstjór- inn, Kristján Guðbjartsson, setti blótið, en sr. Þorgrímur Sigurðs- •on á Staðarstað stjórnaði því með sinni alkunnu snillL Fluttar voru gamanvísur, gamanþóttur, eöngur kirkjukórs og karlakórs, kvikmyndasýning o.fl. Að lokum var svo dansað fram undir morg un. Veitingar allar voru hinar rausnarlegustu. Má heita að sé orðin föst regla hjó þessum nágrannasveitum að skiptast á heimboðum á þorran- um og sarnkv. því fellur það í hlut Breiðvíkinga að efna til þorrafagnaðar á næsta ári. Samkomur þessar eru mjög vin eælar bæði af ungum og gömlum og vill sjálfsagt enginn láta þær niður falla. Boraff eftir heitu vatnl Eins og kunnugt er, er heitt vatn í jörðu á Lýsuhóli í Staðar- sveit. Fyrir nokkrum árum rafmagn byggði ungmennafélag sveitar- innar sundlaug þar úr torfi, og hafa margir notið góðs af laug- inni og sundkennsla farið þar fram. Nú hefir þegar verið hafizt handa með borun á Lýsuhóli eft- ir frekara vatnsmagni og gera menn sér vonir, að góður árang- ur nóist með þessari borun. Rafmagn Flokkur manna vinnur nú að lögn hóspennulínu frá Ólafsvík. Lokið er við staura og línulögn yfir Kambsskarð og niðurse'tn- ingu staura frá Hellnum að Barða stöðum í Staðarsveit, en lengra mun raflínan ekki fara í þessum áfanga. Vonir standa til að hægt verði að hleypa straum á þetta svæði fyrir sumarið. — K.K. París, 21. febrúar (NTB) TVEIR hinna fjögurra, sem enn voru í haldi í dag, sak- aðir um tillræði við de Gaulle Frakklandsforseta s.l. föstu- dag, voru lótnir lausir í kvöld. Vom það höfuðsmennirnir d’Arbaumont og Gye-Jacquot. Frá Aðalfundi Hins ísl. náttúrufræðifélags AÐALFUNDUR Hins íslenzka náttúrufræðifélags var haldinn í Háskólanum laugardaginn 16. febrúar. Hér fara á eftir nokkur atriði úr skýrslu formanns félags ins um starfsemi þess síðastlið- ið ár. Samkomur voru haldnar reglu lega í Háskólanum síðasta mónu dag hvers vetrarmánaðar — nema desember — alls sex að tölu. Á hverri þeirra var flutt fræðsluerindi um einhverja grein náttúrufræði og jafnan sýndar skuggamyndir til skýr- ingar. Eftir erindin voru stund- um fjörugar umræður um efni þeirra. — Ræðumenn og ræðu- efni voru sem hér segir: Þorleifur Einarsson: Vitnisburð ur frjógreiningar um gróður og veðurfar á íslandi frá isaldarlok um; Sigurður Þórarinsson: Frá Dyngjufjöllum og síðasta Öskju gosi; Örnólfur Thorlacius: Um frumdýr; Guðmundur Pálmason: Um hita í borholum á íslandi; Sturla Friðriksson: Úr gróður- sögu íslands og uppgræðsla ör- æfanna; Stefán Aðalsteinsson: Litaerfðir sauðfjár. í sumar voru farnar tvær stutt ar fræðsluferðir um nágrenni Reykjavíkur og ein löng þriggja daga ferð austur í Skaftafells- sýslu og til baka vestur Land- mannaleið. í stuttu ferðunum var öllum heimil þátttaka og urðu 80—90 manns í hvorrL í annarri þeirra á uppstigningardag, voru eink- um skoðuð upptök Kapellu- hrauns, sem eru sprunga með gígaröð með fram Undirhlíðum. En hin stutta ferðin sunnudag- inn 1. júlí, var einkum til gróð- urathugana og grasatínslu. Leið- beinendur voru: Guðmundur Kjartansson um jarðfræði, en Eyþór Einarsson, Ingimar Ósk- arsson og Ingólfur Davíðsson um grasafræði. Langa ferðin, 17.—19. ágúst, var aðeins fyrir félagsmenn og gesti þeirra, og voru þátttakend- ur 105. Hún var fyrst og fremst farin til að skoða landslag og jarðmyndanir, en einnig var hugað að gróðri og dýralífi. Leið beinendur voru Guðmundur Kjartansson, Jón Jónsson, og Þorleifur Einarsson um jarð- fræðL Eyþór Einarsson um grasafræði og Örnólfur Thorla- cius um dýrafræði. Rit félagsins Náttúrufræffing- urinn kom út með sama sniði oig að undanförnu, fjögur heftd, samtals 12 arkir. Var þetta 32. árgangur ritsins. Ritstjóri var og verður áfram dr. Sigurður Pét- ursson. Stjórn félagsins breyttist lítið á aðalfundinum. Hana skipa nú: Guðmundur Kjartansson (flor- maður), Einar B. Pálsson, Eyþóc Einarsson, Gunnar Árnason og Jakob Magnússon. Tala félagsmanna er fyllilega 800. Brotnaði á báðum handleggjum IAkranesi, 21. febrúar — Svo slysalega tókst til sl. laugardag er frú Karen, kona Gísla Vil- (hjólmssonar forstjóra, var að vinna í verzlun sinni að Skóla- j braut 30, að hún hrasaði og féll með þeim afleiðingum að hún ! brotnaði á báðum framhandleggj (um. Brotnuðu báðar pípur í | hægri handlegg og önnur 1 vinstri. Frú Karen liggur heima og líðuc eftir öllum vonum. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.