Morgunblaðið - 23.02.1963, Blaðsíða 11
Laugardagur 23. febrúar 1963
MORGUIVBLAÐIÐ
11
Sextugur í dag:
Jón Björnsson
bóndi Hafsteinsstöðum
Sextugur er í dag Jón Björnsson
bóndi á Hafsteinsstöðum í Skaga-
fixði. Hann er fædídur 23. febr.
*03 að Glaumbæ á Langholti. For-
eldrar hans voru Björn Jónsson
hreppstjóri á Stóru-Seilu og fyrri
kona hans, Steinvör Sigurjóns-
dióttir. Jón var ungur þegar móð-
ir hans dó, og ólst upp með föð-
ur sínum og stjúpmóður, Mar-
Var 23 ára gamall hóf hann bú-
ekap í Brekku í Seiluhreppi, en
érið 1939 keypti hann Hafsteins-
6taði, að % hluta jarðarinnar
undanteknum, og hefur búið þar
eíðan stórbúi, nú síðustu árin, á-
samt syni sínum. Jón á Hafsteins
stöðurn er einn af dugmestu
bændum Skagafjarðar, og hefur
hann stórlega bætt jörð sína að
ræktun og húSakosti.
En það er fleira, sem heldur
nafni Jóns á lofti með okkur
Skaj^firðingum en búskpur hans
rekinn af árvekni og myndar-
brag. Kunnastur er hann okkar á
meðal fyrir einstæðan _ áhuga
sinn á söng og sönglífi. Á þeim
vettvangi hefur hnn reynst hér-
aði sínu þarfur maður ekki síður
sem góður búþegn. Um 34 ára
skeið hefur hann stjórnað karla-
kórnurn Heimi og nokkrum ár-
um betur hefur hann gegnt org-
anista- og forsöngvarastarfi ,og
gegnir þvi starfi nú, sem undan-
farna áratugi, bæði í sóknar-
kirkju sinni að Reynistað og í
Giaumfoæjarkirkju. Um þessar
mundir er karlakórinn Heimir 35
óra og minnist þeirra timamóta
í dag, á afmælisdegi söngstjór-
ans, með fjölmennu samsæti í
félagsiheimilinu Bifröst á Sauð-
órkróki.'
f*eir sem starfað hafa í strjál-
býlinu að slíkum félagsskap sem
karlakórinn Heimir er, vita það
bezt, að þvílíku starfi verður
ekki uppi haldið nema fyrir
hendi sé ríkur áhugi, félagslund
og fórnfýsi. Oft hef ég diáðst af
þvi að sjá félaga mina í þessu
söngfélagi mæta á æfingu einu
hinni, tvisvar sinnum, já, og oft-
ar í viku hverri, eftir þörfum, all
an liðlangan veturinn, eftir anna
saman dag og bæta við sig nætur
vöku og erfiði, söngsins vegna
og félagslífsins. Þessi félagsandi
hefur orðið karlakórnum til
langlífis og ellimörk eru ekki
erin á honum að sjá. En þó dreg
ég í efa, með allri virðingu fyrir
íélagslyndi, starfsgleði og söng-
gleði okkar Heimismanna, að
kórinn hefði starfað svo lengi og
óslitið sem raun er á, hefði hann
ekki notið hins eindæma áfouga
og dugnaðar söngstjórans. Eg
minnist þess ekki, a.m.k. í svip,
»ð í þau nær 20 ár, sem ég hef
starfað með kómum, að nokkru
einni hafi æfing fallið niður né
heldur verið frestað vegna þess,
að söngstjórinn gat ekki mætt.
Undir stjóm Jóns hefur Heimir
sungið þrásinnis opinberlega, far-
ið í söngferðir og tekið þátt í
söngmótum Heklu, / samibands
noi'lenzkra karlakóra. í stjórn
Heklu hefur Jón ótt sæti.
Jón á Hafsteinsstöðum er
gæddur ríkri tónlistargiáfu, og
efalaust hefði hann komizt langt
á braut hinnar göfugu listar, ef
þau örlög hefðu verið honum
búin að ganga þá braut og njóta
nauðsynlegs undirbúnings og
tónmenntunar og helga sig ó-
skiptan tónlistinni. En svo varð
nú ekki og þýðir ekki um að sak-
ast.
Um tveggja vetra skeið naut
hann nokkurrar tilsagnar 1 söng
og organleik hjá þeim Geir
vígslubiskupi Sæmundssyni og
Sigurgeir Jónssyni organleikara,
og hefur tilsögn þeirra mikil-
hæfu manna komið að góðum
notum, enda við henni tekið af
heilum hug og þakklátum, Jón
Björnsson hefur samið allmargt
af sönglögum. Eru mörg þeirra
kunn hér í héraði og eiga sjálf-
sagt eftir að gleðja margt söng-
elskt eyra.
Eg hef naumast kynnzt söng-
elskari manni en vini mínum
Jóni á Hafsteinsstöðum, og nær
er mér að halda, að það sé skoð-
un hans, að án söngsins verði
vart lífinu lifað. Þar sem Jón
á Hafsteinsstöðum er, þar er
sungið. Ósjaldan ber það við,
þegar gesti ber að garði á Haf-
steinsstöðum, að húsbóndinn sezt
við hljóðfærið og hvetur bæði
heimafólk og gesti til þess að
taka lagið, og fljótur er Jón, þeg
ar menn koma saman á gleði-
mótum, að safna um sig liði
syngjandi fólks.
Það er gott að eiga menn sem
hann í byggð sinni.
Kvæntur er Jón Sigríði Trjá-
mannsdóttur, eyfirzkrar ættar.
Sigríður er gagnmerk kona og
mikilihæf, sem vinnur sér virð-
ingu allra, sem henni kynnast.
Son eiga þau einn, Steinbjörn,
bónda á Hafsteinsstöðum, kvænt
an Ester Skaftadóttur. Stein-
björn er einn af einsöngvurum
okkar Heimisfélaga.
Með línum þessum vil ég, um
leið og ég ósika Jóni til hamingjú,
þakka honum fyrir vinsemd í
minn garð, fyrir mikilvægt sam-
starf í kirkjum mínum og fyrir
langt og heillavænlegt félags- og
ipenningarstarf, unnið í þágu
héraðsins okkar.
Gunnar Gíslason.
í dag er Jón Björnsson, bóndi
á Hafsteinsstöðum í Skagafirði,
sextugur. Hann er - borinn og
barnfæddur Skagfirðingur, son-
ur Bjöms L. Jónssonar, sem
lengi bjó að Stóru-Seylu, hrepp-
stjóra þei'rra Seylhreppinga um
langt skeið. Móðir Jóns og kona
Björns var Steinvör Sigurjóns-
dóttir, en hún lézt þegar Jón var
kornungur.
Jón hefur möng undanfarin ár
búið að Hafsteinsstöðum, en
fyrstu búskaparór bjó hann að
Brekku í Víðimýrarsókn, þá að
Reykjarhóli í sömu sveit, en festi
siðan kaup á Hafsteinsstöðum og
hefur síðan búið þar, hin síðari
árin í samvinnu við Steinbjörn
einikason þeirra hjóna, sem
kvæntur er Ester Skaftadóttur
fná Kjartansstaðaikoti.
Ég minnist þess að sumarið
1930 var ég hjá þeim hjónum,
Jóni og Sigriði Trjámannsdóttur,
og bjuggu þau þá að Brekku. Þar
var gott að dvelja og, Sigríður
húsfreyja, sú mikla ágætiskona,
lét ekki sitt eftir liggja að öllum
liði sem bezt. Þá var Jón nýlega
tekinn við söngstjórn karlakórs-
ins Heimis, og hefur verið söng-
stjóri hans alla tíð síðan.
Það var mikið sungið og spilað
það sumar, því oft komu sveit-
ungarnir og lagið tekið svo undir
tók. Þá k-omu Vestur-íslending-
ar eftir Alþingishátíðina og heim
sóttu frændur og vini í Skaga-
firðl og man ég hvað þeir dáðust j
að leilkni Jóns á hljóðfærið og
sönggófu hans.
Svo var farið í ötreiðir um
helgar og komið við hjá kunn-
ingjunum — og ekki vantaði ong
elin — þau voru ómissandi á
heimilum í þann tíð.
Þótt Jón hafi skilað drjúgu
dagsverki í stöðu bóndans, reist
íbúðarihús og peningshús, og allt
af verið að auka við byggingum
og bæta vélakost, þá munu Ska,g
firðingar og aðrir meta mikils
þann skerf, sem hann hefur lagt
af mörkum í þágu söngniienninig-
ar í héraðinu.
' Jón hefur samið rriörg lag
bæði fyrir einsöng og kóra, og eru
þau flest í handriti. Munu kórar
norðanlands hafa sungið nokkur
þeirra. Það myndi mörgum tóm-
legt þýkja í héraðinu éf karla-
kórinn Heimir væri ekki til stað-
ar, en söngmenn hans eiga allir
skilið miklar þakkir fyrir þenn-
an gleðiauka, sem þeir hafa veitt
fyrr og síðar. Nú er Heimir 35
ára um þessar ’mundir og fer vel
á að sameiginlega sé haldið upp á
bæði afmælin og munu Skag-
firðingar skemmta sér vel í Bif-
röst í kvöld — og listavel verður
sungið!
Ég sendi karlakórnum Heimi
beztu kveðju og árna Jóni söng-
stjóra og fjölskyldu' hans allra
heilla með afmælisdaginn.
Ó.Þ.
ALLT Á SAMA STAÐ
WILLYS-JEPPINN
BÆNDUR OG AÐRIR, sem ætla að panta Willys-jeppa fyrir
vorið, vinsamlegast hafið samband við umboðið sem fyrst.
I>AÐ SEM MÆLIR MEÐ KAUPLM Á WILLYS JEPPA ER:
Þér getið valið um Willys-jeppa 6 manna eða 9 manna. Willys-jeppinn er
með Egils-stálhúsi, sterku og varanlegu, sem er klætt að innan. Egils-stál-
húsin eru ryðvarin að innan og utan..
Wiliys-jeppinn er kraftmikill og sparneytinn.
Það er auðvelt að komast að öllum viðgerðum, varastykki ódýr og ávallt
fyrirliggjandi.
Wiilys-jeppinn hefir yfir 20 ára reynslu hér á landi, og er því ekki tízkufyrir-
brigði, heldur þaulreyndur fjögurra-hjóladrifsbíll, sem hefir þegar sannað, að
hann hentar okkar staðhóttum.
Um kosti Willys-jeppans þarf ekki að fjölyrða, því beztu meðmæli hans eru
ánægðir kaupendur um allt land.
Sala Willys-jeppans hefir stóraukist, vegna breyttra sjónarmiða í vali bifreiða,
t. d. pöntuðu 48 aðilar Willys-jeppa í janúarmánuði einum.
PANTIÐ WILLYS JEPPA FYRIR VORIÐ.
Egill Vilhjálmsson hf.
Laugavegi 118, sími 22240.
Hestamannafélagið FAXI
Afmælisfagnaður Hestamannafélagsins Faxa verður
að Hótel Borgarnes, laugardaginn 23. marz n.k. og
hefst kl. 20.00.
Þátttaka tilkynnist til Sigursteins Þórðarsonar eða
Símonar Teitssonar Borgarnesi fyrir 15. marz.
Hver félagsmaður má taka með sér einn gest.
STJÓRNIN.
Iðnaðarhúsnæði
óskast 60 — 100 fermetra.
Upplýsingar í síma 11082.
5 herb. hæð
er til sölu við Guðrúnargötu ásamt 2 herbergjum
í kjallara.
Málflutningsskrifstofa
VAGNS E. JÓNSSONAR
Austurstræti 9. — Sími 14400 og 20480.