Morgunblaðið - 02.03.1963, Síða 1

Morgunblaðið - 02.03.1963, Síða 1
24 síður 50. árgangur 51. tbl. — Laugardagur 2. marz 1963 Prentsmiðja Morgunblaðslns Sprengja átti dóms- húsið París, 1. marz — NTB Undanfama daga.hafa stað- ið yfir í Paris réttarhöld, vegna tilræðis þess, er I>e GauAle, Frakklandsforseta, var sýnt í ágúst í fyrra. 15 rtienn hafa verið ákærðir fyr- ir þátttöku í því. í dag varð skyndilega að ryðja réttarsalinn, er maður ’ nokkur hringdi í dómshúsið og lýsti því yfir, að eftir nokk ur augnablik myndi það springa í loft upp. Öllum var visað úr saln- um, og leit hafin, ef vera 1 kynni, að haegt væri að finna I sprengihleðslurnar í tæka tíð. Engin fannst þó, og kom þá í ljós, að hér var um gabb að 1 ræða. veifit friðarverð- laun Zurich, 1. marz (NTB-AP) Jóhannesi-páfa XXIII voru í dag veitt friðarverðlaun Balz ansjóðsins. Er þetta í annað skiptið, sem veitt eru verðlaun úr sjóðnum frá stofnun hans 1961. Sjóðurinn var stofnaður til minningar um Eugenio Balzan, italskan blaðaútgef- anda, , Tilkynnt var í dag við hátíð- lega athöfn í Zurich, að Jó- hannesi páfa hefðu verið veitt verðlaunin fyrir störf hans í þágu friðar og bræðralags í heiminum. Meðal þeirra, sem viðstaddir voru hátíðahöldin í Zurich var sovézki prófessor- inn Sissakian. Flutti hann 6tjórn Balzansjóðsins kveðju Krúsjeffs, forsætisráðherra Sovétríkjanna og sagði að Sov étríkin vildu óska sjóðnum tii hamingju með að hafa veitt páfanum friðarverðlaunin. Sögusagnir um Bidault segja brezk yfirvöld London, 1. marz — NTB í SEINNI tið hafa ýmis blöð PÁRÍSARSAMNINGURINN SAMÞYKKTUR j BONN Adenauer segir DeGaulle reikna með aðild Breta að EBÉ, áður en langl um líður Bonn, 1. marz — NTB V-ÞÝZKA þingið samþykkti í dag samning þann, sem de Gaulle, Frakklandsforseti, og Konrad Adenauer, kanzlari V.-Þýzkalands, gerðu með sér frönsk og brezk, haldið því fram, að Georges Bidault, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, sé í Bretlandi. Hann hefur verið talinn einn af leiðtogum þeirra, er vilja De Gaulle, Frakklands- forseta, feigan. Er talið, að Bidault undirbúi aðför að for setanum. Frönsk blöð hafa gengið svo langt að undanförnu, að halda því fram, að brezk yf- irvöld létu Bidaudt fara frjáls an ferða sinna í Bretlandi, þar eð þau hefðu ekkert á móti því, að Frakklandsforseti væri ráðinn af dögum. Ástæðan, eftir því, er frönsbu blöðin hafa hermt, á að vera and- staða DeGaulle gegn aðilid Breta að Efnahagsbandalagi Evrópu. I gær var því hins vegar lýst yfir af opinberri hálfu i Bretíandi, að hér sé aðeins um sögusagnir að ræða, sem eigi sér enga stoð í raunveru- leikanum. á dögunum um samstarf Frakka og V-Þjóðverja. Kanzlarinn hélt ræðu í þinginu, áður en þingið tók samninginn til umræðu. Þar lýsti hann því yfir, að hann hefði rætt í fullri hreinskilni við de Gaulle um aðild Breta að Efnahagsbandalagi Ev- rópu. Kvaðst Adenauer þess fullviss, að það væri aðeins tímaspursmál, hvenær Bretar fengju fulla aðild. Sagði hann ennfremur, að lítill vafi léki á því, að de Gaulle liti sömu augum á það mál. Mikill hluti ræðu Adenau- ers fjallaði um Breta og Efna hagsbandalagið. Lagði hann mikla áherzlu á, að ekki væri um það að ræða að meina Bretum að gerast • aðilar, heldur hefði aðild þeirra að- eins .verið slegið á frest. Þá lagði kanzlarinn sig fram við að skýra það fyrir þingmönn- um, að samningur Frakka og V- Þjóðverja, sem fyrir þinginu lá, myndi ekki hafa nein áhrif í þá átt, að V-Þjóðverjar breyttu af- stöðu sinni til bandalagsþjóða sinna í Atlantshafsbandalaginu, NATO. Þá lýsti Adenauer því einnig yfir, að V-Þjóðverjar myndu í einu og öllu fara að á- kvæðum Rómarsamningsins. Kanzlarinn sagði frá því í ræðu sinni, að hann og de Gaulle hefðu rætt um sameiginlegan kjarnorkuher NATO, og hefði Frakklandsforseti sýnt mikinn áhuga á slíkum her. Um sjálfan samninginn, er þeir þjóðarleiðtogarnir gerðu með sér, sagði Adenauer, að harm vildi leggja sérstaka áherzlu á, að hér væri ekki um að ræða sáttmála tveggja manna, heldur tveggja i ÞESSI mynd gefur glögga mynd af björgun þýzka tog- arans Trave, við hin verstu skilyrði, rok og hiaugabrim við Vestmannaeyjar s.l. föstu- dag. Á fimmtudagsmorguin lögðu varðskipið Albert og Lóðsinn frá Vestmannaeyj um í að fara með hann inn í Vest- mannaeyjahöfn. Albert dró togarann og Lóðsinn var á eift ir og hjálpaði til, því togar- inn var stýrislaus og gat enga björg sér veitt. Myndin sýn- ir hvar Albert fær ólag á sig um leið og hann kemur í hafnarmynnið. Togarinn er í 170 faðma dráttarvír aftan í honum og aftast sést á Lóðs 1 inn. Sjá nánar bls. 3. Ljósm. Sigurgeir Jóiiasson þjóða. Vísaði hann til þeirra tengsla, sem tekizt hefðu með ungu fólki í báðum löndunum á síðustu árum. Það vakti talsverða athygli, að Adenauer vék að því, að nú, þegar Frakkland og V-Þýzka-. land tengdust tryggðaböndum, þá væri loku fyrir það skotið, að Framh. á bls. 23. | Bátur sprakk í loft upp IUaður bjargaðist illa meiddur Séyðisfirði, 1. marz. Það sviplega slys varð hér um borð í báti við bryggju, að hann sprakk í loft upp og maður, sem í bátnum var, slasaðist illa. Talið er, a sprengingunni hafi valdið kosangas. Klukkan tæplega 11 í morgun var Ari Bogason niðri í báti sín- um við brygfgjuna hjá Fiskiðju- verinu hér á Seyðisfirði. Axi hafði geymt kosangasbrúsa í lúk- ar bátsins yfir nóttina, og í morg un hugðist hann nota kosangasið til að þurrka lest bátsins. Fór hann með brúsann og eldunar- tækin niður í lestina og hafði ný. Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.