Morgunblaðið - 02.03.1963, Side 2
2
MORGFNTILAÐIÐ
Laugardagur 2. marz 1963
■m
Rússamir koma til flugstöövarinnar á ReykjavrkurvellL
Kissilev er lengst til vinstri.
Njdsnarar Rússa
hurfu heim í gær
Fjöldi blaðamanna tók á móti þeim á
Kastrup flugvelli
RÚSSNESKU sendiráðsstarfs
mennirnir Kissilev og Dimi-
triev fóru í gærmorgun með
Gullfaxa flugleiðis til Kaup-
mannahafnar ásamt fjöl-
skyldum sínum. — íslenzka
ríkisstjómin vísaði þeim úr
landi, eftir að sannazt hafði,
að þeir stunduðu njósnir hér
á Iandi.
Brottför Gullfaxa hafði verið
ákveðin klukkan 8.10 um morg-
uninn og var förinni heitið til
Glasgow og Kaupmannahafnar.
Rússneska sendiráðið hafði
pantað far fyrir 5 farþega til
Kaupmannahafnar, Kissilev og
frú, ásamt dóttur þeirra, og
Dimitriev og frú.
Blaðafulltrúi sendiráðsins,
Kommisaroff, og tveir aðrir
sendiráðsmenn komu á undan
þeim Kissilev og Dimitriev og
gengu frá farmiðum þeirra og
farangri.
Skömmu áður en vélin átti að
leggja af stað komu, tveir bílar
frá rússneska sendiráðinu með
njósnarana og fjölskyldur þeirra.
IVlgdi þeim hópur Rússa. Voru
allir hressir í bragði, hlógu og
var engu líkara en verið væri að
fylgja vinafólki, sem væri að
skreppa í sumarleyfi.
Sá munur var þó á, að Rúss-
arnir vildu ekki tala við blaða-
menn, en ekki ömuðust þeir þó
við myndatöku, nema Dimitriev,
#em forðaðist myndavélina eins
og heitan eldinn. Sneri hann sér
undan eða bcu: hendur fyrir and-
lit sér.
Rússnesku njósnaramir fóru í
gegn um vegabréfaskoðunina og
svo beint um borð í flugvélina
ásamt öðrum farþegum. Á land-
göngustiganum veifuðu þeir til
fylgdarmahna sinna, hinztu
kveðju.
Gullfaxi hóf sig til lofts klukk-
an 8.17. Njósnararnir voru lagðir
af stað til Rússlands.
Hvatarfundur
HVÖT, Sjálfstæðiskvennafélagið,
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu
á mánudagskvöld kl. 8.30. Þar
tala alþingismennirnir Auður
Auðuns og Ragnhildur Helga-
dóttir. Einnig verða skemmti-
atriði.
í gærkvöldi barst Morgunblað-
inu eftirfarandi frétt frá Kaup-
mannahöfn um komu rússnesku
njósnaranna þangað:
Rússnesku njósnararnir Lev
Kissilev og Lev Dimitriev komu
síðdegis til Kaupmannahafnar
með flugvél Flugfélags íslands.
Á flugstöðinni beið fjölmennur
hópur rússneskra sendiráðs-
starfsmanna til að taka á móti
þeim.
Kissilev og Dimitriev komu
ekki saman út úr flugvélinni og
sáu til þess að erfitt var að
þekkja þá í mannþrönginni.
í flugstöðinni var mættur
fjöldi danskra blaðamanna og
Ijósmyndara og ennfremur sjón-
varpsmenn. Rússarnir höfðu ekk-
ert á móti því, að myndir væru
teknar af þeim, en þeir vildu
hins vegar alls ekki tala við
blaðamennina og svöruðu ekki
spumingum þeirra.
Kissilev, sem hélt í hönd dótt-
ur sinnar, sá til þess að ljós-
myndararnir gætu tekið góðar
myndir af dóttur hans og dúkku,
sem hún hélt á.
Rússneska sendiráðið í Kaup-
mannahöfn sendi tvo Zim-bíla
til flugvallarins og í þeim fóru
njósnararnir beina leið tii sendi-
ráðsbústaðarins.
Gert er ráð fyrir, að Rússnesku
njósnararnir fari til Moskvu
flugleiðis á laugardag með rúss-
neska flugfélaginu Aeroflot.
MI l\l M I S B LAÐ
um baráttu núverandi Iðjustjárnar fyrir hags-
munum iðnverkafólks
1957 '
1. Þá var samið um 6% grunnkaupshækkun á
sama tíma sem önnur verkalýðsfélög héldu
að sér höndum og fengu ekkert.
2. Margir laimaflokkar voru lagðir niður og
þeir sem í þeim voru færðir upp, þannig að
margir fengu við það verulega kauphækkun.
3. Orlof fékkst greitt á eftirvinnu og var það
nýmæli í samningum verkalýðsfélaga.
4. Mörg önnur atriði samninganna voru lag-
færð til betri vegar.
1958
1. Samið var um 6% almenna grunnkaups-
hækkun.
2. Samið var um stofnun lífeyrissjóðs fyrir
iðnverkafólk og skuldbundu iðnrekendur sig
til að greiða 6% ofan á kaup hvers og eins
einasta Iðjufélaga. (Það var þessi sjóður sem
kommúnistar reyndu að eyðileggja og tókst
að stórskemma og hafa nú 1963 haft af sjóðn-
um ca. 17 milljónir króna).
3. Samið var um nýjan taxta fyrir konur, sem
unnið hafa 4 ár á sama stað og jafngildir það
eitt 3.500 kr. árlegri kauphækkun.
4. Einnig í þetta skipti náðust margar aðrar
lagfæringar og breytingar.
1961
1. Samið var um 16,2% grunnkaupsíhækkun á
almennt kvennakaup.
2. Samið var um 2 nýja kauptaxta, þannig að
kauphækkun eftir 24 mánaðá starf verður
19,4% og eftir 36 mánuði 22,6%.
3. Samið var um stofnun sjúkrasjóðs, sem iðn-
rekendur greiða í.
4. Samið var um lengra orlof fyrir þá, sem
unnið hafa 10 ár eða lengur.
5. Samið var um ýmsar aðrar lagfæringar.
1962
1. Samið var um 10% hækkun á allt fast mán-
aðarkaup.
2. Enn einn áfangi fékkst i jöfnun karla- og
kvennakaups og kom nú 414% hækkun á
kvennakaup, skv. lögum, sem samþykkt vor»
af þingmönnum Alþýðuflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins.
3. Úthlutun hófst úr sjúkrasjóði, en með hom-
um fá meðal annars konur sem eru frá vinnu
vegna bameigna 4000 kr. styrk.
1963
Og á árinu sem byrjað er — 1963 hefur veriS
samið um 5% hækkun á allt kaup — ákvæðis-
vinnutaxta einnig. Auk þess hækkaði kvenna-
kaup um 414% samkvæmt lögum um launa-
jöfnun karla og kvenna.
4LLT ÞETTA FÉKKST AIM VERKFALLA
Sitt hvor listinii
— sama stefnan
í STJÓRNARKJÖRINU, sem
fram fer í Iðju, félagi verk-
smiðjufóiks um helgina verða
þrír listar í kjöri. A-listi komm-
únista, B-listi núverandi stjórn-
ar og C-Iisti Framsóknarmanna.
Er þetta í fyrsta sinn, sem þrír
listar eru í kjöri.
En hver er nú munurinn á
þeim tveimur listum, sem sækja
nú báðir gegn B-listanum? Er
hér ekki um að ræða tvö höfuð
á þeim sama skapnaði, sem
hafði öll völd í Iðju á sínum
tíma og var næstum búinn að
sigla fólaginu í algjört strand.
í „Þjóðviljanum'* í gær birtist
viðtal Mörtu Þorleifsdóttur, sem
er á framboðslista kommúnista
í Iðýu. Blaðamaðurinn spyr:
Finnst þér ekki sorglegt, að
stjórnarandstaðan í Iðju skuli
ganga klofin til þessara stjórnar-
kosninga?“
Og Marta svarar: „Mér finnst
það meira en sorglegt, mér
finnst það svívirðilegt. Samstarf
hefur verið gott við þessa menn
að undanförnu og ekki um mál-
efnalegan ágreining að ræða.“
í Tímanum í gær brtist ræða
eftir Hannes nokkurn Jónsson,
sem mun vera í framboði í
stjórnarkjörinu fyrir Framsókn-
armenn. Hann ræðir m. a. um
efsta manninn á C-listanum og
segir svo: „Einar Eysteinsson
hefur verið í varaformannssæti
á undanförnum árum á sameig-
inlegum lista íhaldsandstæðinga
í Iðju og þá hafa kommúnistar
virzt vera mjög ánægðir með
hann í því sæti“.
Þessi urnmæli forystumanna
A — og C listans sanna svo að
ekki verður um villzt, að enginn
málefnalegur ágreiningur er á
milli þessara tveggja framboðs-
lista. Kommúnistar segja, að
satóstarfið við Framsóknarmenn-
ina hafi alltaf verið gott og
Framsóknarmenn segja, að þeir
Tónlistarkynning
í Háskólanum
Á MORGUN, sunnudag 3. marz,
kl. 5 síðdegis stundvíslega, hefj-
ast á ný tónlistarkynningar í há-
tíðasal háskólans.
Að þessu sinni verður flutt af
hljómplötutækjum skólans sin-
fónía nr. 1 (c-moll, op. 68) eftir
Johannes Brahms, leikin af sin-
fóníuhljómsveitinni Philharmina
í London, undir stjórn Ottos
Klemperers. Dr. Páll ísólfsson
flytur inngangsorð og skýrir verk
ið með tóndæmum.
Aðrar sinfóníur Brahms verða
síðan kynntar með sama hætti á
næstunni.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimilL
(Frétt frá Háskóla fslands).
hafi alltaf notið hylli kommún-
ista.
Það er þvi alveg Ijóst, að sama
öngþveitið myndi koma upp 1
félaginu, hvor þessara tveggja
lista sem fengi gtjómaraðstöðu.
A og C listinn eru tvö höfuð á
sama skapnaðinum, sem Iðju-
fólkið hefir fengið nóg af. »
Pressu-
ballið
i kvöld
PRESSUBALL blaðamanna er j
í kvöld í hinum nýja sal í Hót!
el Sögu. Það hefst kl. 7 e.h., og j
eru menn beðnir um að komaj
stundvíslega. Vínstúka er op-
in frá kl. 6.
Sú skemmtilega nýjung ]
verður á ballinu, að mönnum *
verður gefinn kostur á 9 falleg |
um orkideum af mismunandi j
tegundum á barm eða i hárið i
á dömum sínum. Þessi blóm J
hefur próf. Niels Dungal rækt!
að í vermihúsi við heimili sitt |
í Suðurgötu. Verða blómin boð l
in upp á miðju, baUi, ágóðan- j
um safnað í sjóð, sem dregiðj
verður um, en aðeins blóma- I
kaupendur fá númer eftir viss |
um reglum. Gefst þar tækifæri j
til að prýða dömu sína fallegu .
blómi og jafnframt eignastj
von í drjúgum sjóðL
Annað á dagskránni verðurl
eins og áður er sagt: Ræðaj
Gunnar Gunnarson, skáld; ein .
söngur: Svala Nielsen; Krist-‘
inn Hallsson syngur frum-
sarr.da skopkviðlinga, og {
Gunnar Eyjólfsson og Bessii
Bjarnason flytja nýjan J
skemmtiþátt eftir Harald J.
Hamar, blaðamann. .
j /J NA /5 hniiar [ 5 V SOhnútar X Sn/Homa t úi/mmn 7 Sltírir S Þrumur WA KMatkii HiiatkH HiHmi | L$L.a I 1
í GffiH V air vindur fremiur Ihiwlsi'ginii við a/ustur- og suíK
Kissilev ræðir við Kommisaroff, blaðafulltrúa, skömmu áður
J en hann fer um borð 1 flugvélina.
hægiur á sunnan og suðaustan
um aillt land. Veður var bjairt
Og nmai’þý tt, hiti víðast 5 tU
7 stiig.
Á Bretlandiseyj um var Mka
hláika, en frost, jaXnvei um
urströnd Norðursjávar.
Mjög djúp lægð er á kortinu
uim 1400 km SV aí Reykja-
nesL Hún mun verða komin
nær landinu í dag og vaLdm
þá Á og SA roki hér við suð
Uirströndina.