Morgunblaðið - 02.03.1963, Qupperneq 20
20
MORCVNBLAÐIÐ
Laugardagur 2. marr 1963
PATRICIA WENTWORTH:
MAUD SILVER
KEMUR í HEIMSÓKN
vandræðum með þetua — þér
skiljið. Ég hafði þekkt hana frá
því bún var barn. Eg vildi fá
næði til að hugsa málið. Svo fór
hún loksins burt. •
Drake fulltrúi ræskti sig.
— Þér komuð til Melling um
klukkan hálftíu eða hvað?
— Já, það hefur verið eitt-
hvað um það bil. Eg leit nú ekki
á úrið mitt.
— Og hvernig var frú Welby
þegar þér komuð til hennar?
— Hún var miklu rólegri. Hún
hafði kaffibakka hjá sér. Hún
bauð mér bolla, en ég afþakk-
aði'það. Sagði, að það gæti hald-
ið vöku fyrir mér. Hún brosti
Og sagði, að þannig áhrif hefði
það ekki á hana.
— Hve margir bollar voru á
bakkanum?
— Aðeins einn. Hún ætlaði að
fara að ná í annan, en ég afþakk
aði það.
— Hr. Holderness: Hversvegna
var þarna aðeins einn bolli, ef
hún var að búast við yður?
Ég hafði aldrei sagt, á hvaða
tíma ég myndi koma.
— Var kaffið tilbúið þegar þér
komuð þarna?
— Já, bollinn hennar var háilf
tómur.
Hr. Holderness lagðl saman
fingurgómana og horfði á þá.
Svo svaraði hann rólega, rétt eins
og hann væri að tala við ein-
hvern skjólstæðing sinn:
— Nei, það finnst mér ekki.
Hún vissi, að ég drekk ekki
kaffi. Hún bauð mér það alltaf,
en það var bara formleg kurteisi
—■ hún vissi, að ég drekk ekki
kaffi. Og ég stóð þarna ekki
lengi við, skiljið þér. Framkoma
hennar gerði mig rólegri, og
svo sagðist hún' ætla að taka
svefnmeðal og sofa vel.
— Var hún vön að taka svefn
meðöl?
Hr. Holderness svaraði þess-
ALLTAF FJÖLGAR YOLKSWAGEN
%
PANTIÐ
TÍMANLEGA
VORIÐ
ER í NÁMD
VOLKSWACEN ER ÆTÍÐ UNCUR
„BREYTINGAR*’ til þess eins „AÐ BREYTA TIL“
hefir aldrei verið stefna VOLKSWAGEN
og þessvegna getur Volkswagen elzt að árum
en þó haldist í háu endursöluverði. — Engu
að siður er Volkswagen í fremstu röð taekni-
lega, því síðan 1948 hafa ekki færri en 900
gagnlegar endurbætur farið fram á
honum og nú síðast nýtt hitunarkerfi.
ýk Gjörið svo vel að líta inn og
okkur er ánægja að sýna yður
Volkswagen og afgreiða hann
fyrir vorið.
Volkswagen er einmitt framleiddur fyrir yður
HEILDVERZLUNIN HEKLA HF
Laugavegi 170—172 — Reykjavík —. Sími 11275.
ari beinu spurningu með ofurlít
ið raunalegu brosi.
— Það hef ég enga hugmynd
um. Ef mér hefði dottið í hug
þá, að hún ætti við annað en
einn eða tvo skammta af aspír-
íni, hefði ég aldrei yfirgefið
hana.
— >ér hafið ekki séð neina
öskju eða þessháttar, með svefn
skömmtum?
— Alls ekki.
Nú varð þögn, en þá sagði
Randal March:
— Hr. Holderness. í>að var
hlustað á viðtal yðar við frú
Welby á laugardagsmorguninn.
Þegar hann sagðr þessi orð,
sem hann hafði komið hingað til
að segja, greip hann einhver ó-
þæginda-tilfinning. í»au höfðu
ekki þá sannfæringu að baki
sér, sem nauðsynleg hefði verið
eins og á stóð. Hann hafði það
óþægilega á tilfinningunni, að
hann hefði jafnvel hlaupið á
sig. I>að sem í gærkvöldi virtist
ekki einungis trúlegt, heldur
svo að segja öruggt, var það ekki
lengur. f þessari skrifstofu, sem
hafði verið í laganna þjónustu
í hálfa aðra öld undir valdsmann
legu augnaráði síðasta manns í
langri röð af heiðvirðum mál-
færslumönnum, var honum erf-
itt að hrekja frá sér hina kvíða
vænlegu hugsun, að Alan Crov-
er hefði í afbrýðissemikasti búið
alla söguna til. Að drengurinn
hafði verið ástfanginn af Matr-
ínu Welby og afbrýðissamur
gagnvart húsbónda sínum, og
væri nú frá sér af sOrg.. þetta
lá í augum uþpi. >að var í raun
inni grundvöllurinn undir allri
sögunni. Meðan þögnin varði,
sem kom á eftir orðum hans
virtist öll sagan mjög hæpin.
En á meðan á þessari þögn stóð
virtist hr. Holderness roðna í-
skyggilega mikið. Svo sagði
— Drykkjupeningar eru innifaldir í reikningsupphæðinni.
hann og röddin lýsti vantrú
hans:
— Svo að það var hlustað á
samtal mitt við frú Welby?
— Já.
— Má ég spyrja, hver það
gerði og hvernig?
Þegar ekkert svar kom við
þessu, laut hann fram og röddin
titraði af reiði:
— Það er sjálfsagt sá sami,
sem hjálpaði yður um númerið
á bílnum mínum! Skrifari hjá
mér, sem er með eyrað við skrá
argatið — ungur maður, sem á-
sótti frú Welby svo ákaft, að hún
varð að biðja hann að hætta að
heimsækja sig. Hún talfærði
þetta við mig, en var svo mein-
laus að leggja ekkert upp úr því
Hún hafði sýnt unga manninum
vinsemd, lánað honum bækur
og hjálpað honum til að mennt-
ast, en svo er hún ekki fyrr
dáin en hann fer að þakka henni
fyrir þetta — með því að bakbíta
hana og mannorð hennar.
Randal Maroh svaraði: — í
skýrslu sinni um það, sem ykk
ur fór á milli, ber ha;.n það, að
frú Welby hafi sagt yður, að hún
hafi farið til Mellinghússins um
klukkan tíu á miðvikudags-
kvöld. Hún hafi þó ekki farið inn
af því að þér voruð þar fyrir.
Samkvæmt framburði Alans Cro
ver áttuð þér í hörkurifrildi við
James Lessiter, sem ásakaði yð-
ur um að hafa farið óráðvand-
lega með fé, sem móðir hans
hafði trúað yður fyrir, og hótað
að kæra yður. Grover ber það,
að samkvæmt því, sem hann
heyrði frú Welby segja. hafi hún
þá hætt við að hitta Lessiter og
snúið við heim í Hliðhúsið.
hérlendis
SIMI11400 EGGERT KRISTJANSSON &CO HF
KALLI KUREKI
- *
-X -
Teiknaii: Fred Harman
IM SOIM& TO SLEE(?i
BROMCO' IF VOU SEE f
A ©HOST, JUST TALK
NICETO HIM.-W
6PANISH/
— Ég ætla að fara að sofa. Ef þú
■kyldir sjá draug, skaltu bara tala
vingjarnlega við hann.... en það
verður að vera á spönsku.
— En skjóttu ekki, því það þarf
silfurkúlu til að drepa draug. í fyrra-
málið skulum við bræða silfurdal og
búa til kúlu fyrir þig.
— Prófessor, ef þú hættir ekki,
LÆT ÉG VAÐA í ÞIG.
— Nei, það mundir þú ekki gera,
því þá værir þú einn á móti draugun-
um úr leiðangri Corandos, og mínum
draug líka, og það væri ekki....
— Gerðu það fyrir mig, prófessor,
að þegja.
Hr. Holderness horfði á hann
með hátignarsvip.
— Þetta er framburður ást-
sjúks strák hvolps um samtal
milli húsbónda hans og skjól-
stæðings, og hreinn hugarburð-
ur: Kæri hr. March, þér hljótið
að gera yður ljóst, að slikt og
þvílíkt veður ekki tekið gilt sem
vitnisburður. Enginn dómstóll
myndi líta við því.
' March svaraði rólega: — Eg
er aðeins að hafa eftir það, sem
hann sagði. Og vitnisburður hans
um bílnúmerið yðar yrði tekinn
gildur.
— Það hef ég sjálfur viður-
kennt, og gert fullkomlega grein
fyrir því.
—Alan Gróver er fús að leggja
eið út á, að hann sá yður koma
eftir brautinni þetta kvöld —
og ekki frá Hliðhúsinu.
— Eg efast ekki um, að hann
vilji standa við þessar afbrýðis-
semi-hugdettur sínar, Og ég yrði
ekki lengi að afgreiða þær. Hann
horfði ögrandi á March og síðan
á Drake og bætti við: — Og svo
ætlið þið náttúrlega að taka mig
fastan eða hvað?
SHRtvarpiö
Laugrardagfur 2. marz.
8.00 Morgunútvarp.
12.00 Hádegisútvarp.
13.00 Óskalög sjúklinga (Kristín
Anna Þórarinsdóttir).
14.40 Vikan framundan: Kynning
á dagskrárefni útvarpsins.
15.00 Fréttir. — Laugardagslögin.
16.30 Danskennsla (Hreiðar Ást-
valdsson).
17.00 Fréttir. — Æskulýðstónleikar,
kynntir af dr. Hallgr. Helga-
synL
18.00 Útvarpssaga barnanna: „Vista
skipti" eftir Einar H. Kvaran;
III. (Helgi HjörVar).
18.20 Veðurfregnir.
18.30 Tómstundaþáttur barna og
unglinga (Jón Pálsson).
18.55 Tilkynningar. — 19.30 Fréttir.
20.00 „Karnaval", forleikur op. 92
eftir Dvorák.
20.10 Leikrit: „Glataði sonurinn"
eftir Aleksej Arbuzov, í þýð-
ingu Halldórs Stefánssonar,
— Leikstj.: Gísli Halldórsson,
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Passíusálmar (18).
22.20 Danslög.
16250 VINNINGAR!
Fjórði hver miði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur.
Lægstu 10Q0 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.