Morgunblaðið - 08.03.1963, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.03.1963, Blaðsíða 17
Föstudagur 8. marz 1963 MORCl’ NBLAÐIÐ 17 Sveinn Björnsson, verk- fræðingur kosinn form. Bandalags háskólamanna \ AÐALFUNDUE fulltrúa- ráðs Bandalags háskólamanna (BHM) fyrir árið 1962 var haldinn fyrir skömmu og fram- haldsaðalfundur 25. febrúar el. Fráfarandi formaður, prófess- or Ármann Snævarr háskóla- rektor, og fráfarandi varafor- xnaður, Sveinn S. Einarsson verkfræðingur, báðust eindregið undan endurkosningu, en þeir höfðu báðir gegnt þessum trún- aðarstörfum bandalagsins frá stofnun þess haustið 1958. Voru þeim báðum þökkuð mikil og gifturík störfí þágu bandalagsins á þessum fyrstu árum þess. For- xnaður var kjörinn til næstu tveggja ára Sveinn Björnsson verkfræðingur og varaformaður Stefán Aðalsteinsson ráðunautur. Ritari til tveggja ára var endur- kjörinn Árni Böðvarsson cand. mag. Aðrir í stjórninni eru (til næsta aðalfundar) Jón O. Ed- wald lyfjafræðingur og Gunn- laugur Snædal læknir. —• Endur- ■koðendur voru kjörnir Bjarni Bragi Jónsson viðskiptafræðing- ur og séra Óskar J. Þorláksson. I Bandalag háskólamanna er ■amband félaga háskólamennt- »ðra manna hérlendis og munu íélagsmenn aðildarfélaga vera nú á fjórtánda hundrað, en þau *ru Dýralæknafélag íslands, Fé- lag B.A.-prófsmanna, Félag ís- ' íenzkra fræða, Félag ísl. náttúru- íræðinga, Félag ísl. sálfræðinga, Hagfræðafélag íslands, Lyfja- fræðingafélag Islands, Læknafé- lag íslands, Lögfræðingafélag íslands, Prestafélag íslands, Tannlæknafélag íslands og Verk- fræðingafélag íslands. Tilgangur BHM er: 1) Að efla samheldni háskólamenntaðra manna á ís- landi. 2) Að gæta í hvívetna hags „Gantnc*' 9S. ■ýning. 1 KVÖLD verður Pétur Gaut- ur sýndur i 25. sinn í Þjóð- leikhúsinu. Aðsókn að leikn- um hefur verið mjög góð og er ekki í rénun. Allt útlit er á að þetta stórbrotna leik- húsverk verði sýnt þar í all- an vetur. Gunnar Eyjólfsson hefur hlotið mjög mikið lof fyrir túlkun á titilhlutverk- inu. — Myndin er af Gunnari i hlutverlú GauU. muna háskólamenntaðra manna hér á landi og vera í fyrirsvari fyrir þá gagnvart innlendum og erlendum aðilum. 3) Að stuðla að bættri aðstöðu til vísinda- legra starfa á íslandi og vinna að auknum skilningi landsmanna á gildi þeirra. — Þessum tilgangi hyggst bandalagið að ná m.a. með því að skapa tengsl milli sérfélaga háskólamanna og efla persónuleg kynni milli þeirra, svo og með því „að fylgja eftir hagsmunamálum háskólamennt- aðra manna almennt eða ein- stakra félaga við stjórnarvöld eða aðra aðila.“ Á fundinum var hið nýstofn- aða Félag B.A.-prófsmanna tek- ið í bandalagið, en það er fyrsta félagið sem sækir um inngöngu síðan bandalagið var stofnað. Starfsárið hafði verið hið við- burðaríkasta og athafnasamasta í sögu Bandalags háskólamanna. Það gerði ítrekaðar tilraunir til að fá samningsrétt fyrir hönd fé- lagsmanna sinna viðurkénndan í lögum um kjarasamninga opin- berra starfsmanna, sem sam- þykkt voru á alþingi sl. vor, en án árangurs. Þá kaus BHM sl. vor launaráð sem gerði sam- ræmdar tillögur um niðurröðun háskólamanna í launaflokka eft- ir menntun, ábyrgð og reynslu, og flutti mál þeirra við kjararáð BSRB. Telja forsvarsmenn BHM að sá málflutningur hafi komið ýmsu góðu til leiðar í kjaramál- um háskólamanna og tillögum BSRB til ríkisvaldsins fyrir þeirra hönd, en svo sem kunn- ugt er, er Bandalag starfsmanna ríkis og hæja að lögum einka- viðsemjandi allra ríkisstarfs- manna við stjórnarvöld. Hins vegar er óbreytt sú yfirlýsta stefna BHM að fá samningsrétt fyrir háskólamenn í sínar hend- ur, þótt síðar verði. Á háskólahátíð 1962 var Há- skóla íslands afhentur ágóði af sölu afmæliSrits Háskólans, Vís- cærb ÚLPIIR VTRA BVRDI indin efla alla dáð, sem BHM gaf út, 130 þús. kr., til varðveizlu, en það er ósk bandalagsins að þessu fé verði varið til að bæta að- stöðu stúdenta til félagsiðkana, t. d. til félagsheimilis stúdenta, eftir því sem fulltrúaráð BHM mælir síðan fyrir um. Aðalfundurinn kaus þriggja manna nefnd til að kanna hvað BHM geti gert. til stuðnings við framhaldsnám kandídata. Einnig voru skipulagsmál bandalagsins til umræðu. Loks var samþykkt að ráða framkvæmdastjóra fyrir bandalagið til að vinna að ýms- um aðkallandi verkefnum á veg- um þess. En síðastliðið sumar hafði BHM í fyrsta sinni starfs- mann, Jóhannes Helgason, lög- fræðing, sem vann að ýmsum athugunum í sambandi við kjara málin. HOLMSUND VINYL Mesta ánægju veita dönsku HOLMSUND VINYL gólfflísarnar Þekktar um heim allan. Fjölbreytt litaval. Ótrúlegt slitþol. Einkaumboð: F r ^ [ LUDVIC STQRF JL Sími 1-1620 AXLABAIA- PiLSIIV [RU KOMIIII BIRGBIR TAKIVIARKAÐAR E TH MATHIESEN HF LAUGAVEG 178 - SIMI 3 65 70 Mikiö úrval af Svissneskum regnkápum TERRYLENE, POPLIN, AQUAPERLE O.FL. STÆRÐIR FRÁ 36-46. allir litir TÍZKUVERZLUNIN GUÐRÚ-N RAUÐARÁRSTI01 VERKAFOLK Óskum eftir að ráða pökkunarstúlkur og karlmenn í frystihús vort. — Mikil vinna framundan. — Mötuneyti á staðnum. — Upplýsingar í símum 2-4093 og 1-73T2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.