Morgunblaðið - 08.03.1963, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.03.1963, Blaðsíða 24
Ákvœðisvinna við háspennulagningu: Kaupið hækkaði 20$ 0 Vlnnukosfna&ur lækkaði 20—25°/o RAFMAGNSVEITUR rík- isins hafa um alllangt skeið greitt starfsmönnum sínurn, er vinna að bygg- ingu háspennulína, launa- uppbót, eða bónus, eins og almennt er nefnt. Hefir þetta fyrirkomulag gefið mjög góða raun. Blaðið sneri sér í gær til Eiríks Briem forstjóra Raf- rnagnsveitna ríkisins og spurði hann nánar um mál þetta. Hann kvað athugun hafa ver- ið gerða á þessu máli í upp- hafi og þá ákveðnir svonefnd ir normaltímar og fyrir þá greitt venjulegt tímakaup, en uppbót fyrir það sem fram yfir vaeri. í fyrra hefði þetta hækkað kaup starfsmanna um 20% og eitthvað svipað í ár. Afköstin hefðu líka stór- lega aukizt og hefði vinnu- kostnaður við bygginigu há- spennulína lækkað um 20 til 25%. Hér er því auðséð að báðir aðilar hafa haft hag af hinu breytta fyrirkomulagi. Ágóð- inn hefir sem næst skipzt jafnt milli atvinnuveitarada og at- vinnuþyggjanda. í Fagradalsfflfúíri Heykjanes- kjördæmi KJÖRDÆMISRÁÐSFUNDUR Sjálfstæðisflokiksins í Reykjanes kjördæmi verður í kvöld, kl. 21.00 í Sjálfstæðishúsinu í Hafn- arfirði. Fundarefni: Ákvörðun fraimiboðs. Sæsímin slitinn til austur og vesturs í GÆRKVÖLDI um kl. 8 fór spennan og straumurinn af sæsímastrengnum milli Fær eyja og Skotlands. Samkvæmt upplýsingum Magnúsar Magn ússonar símstjóra í Vestmanna eyjum eru allar líkur til að strengurinn hafi slitnaff, en örlitlir möguleikar á aff um bilun sé að ræffa annaff hvort í stöðinni í Færeyjum effa Skotlandi. Samband hafði ekki náffst milli Færeyja og Skot lands seinast í gærkvöldi sök um þess hve skilyrði um loft ið voru slæm. Var þvi ekki hægt aff senda út bilunina. Sé strengurinn slitinn má búast viff aff viðgerð taki viku til hálfan mánuð og verffur því samband Islands viff Evrópu lélegt þann tima. Allt sam- band eftir Ice-Can strengnum til Canada er slitið og stafar þaff af ísreki viff Grænland, en hinir stóru borgarísjakar slíta strenginn, er þeir núast við land á reki meðfram því. Stöðugt hefir veriff unniff aff því að gera við bilanirnar en án árangurs, því jafnan hefir strengurinn slitnaff á ný. Hef- ir hann nú veriff bilaður i nokkrar vikur. Mikiff átak verffur aff vinna í sumar þessu til lagfæringar. w Islenzk frímerki hœkka 55°/o í þýzkum verðlista SAMKVÆMT nýútkominni viðbótarverðskrá þýzka frí- merkjaverðlistans „Michel“ hefir orðið allveruleg hækk- un á nokkrum tegundum ís- lenzkra frímerkja, notuðum og ónotuðum. Verður hér skýrt frá helztu nýjungum skrárinnar. Mesta hækikunin hefir orðið á flugfrimerkjunum, er út voru gefin 1930 í tilefni Alþingishátíð arinnar, en þau voru skráð s.l. haust á DM 170 settið, en er nú skráð á DM 240, notuð frímerki, en aðeins lægra ónotuð. Deila bréfbera BLAÐIÐ átti í gær tal við póst- meistarann í Reykjavik, Matthí- as Guðmundsson, og spurði um deilu þá er bréfberar borgar- innar standa í um kjör sín. í fyrrada.g gengu fulltrúar þeirra á fund Ingólfs Jónssonar ráð- 'herra, en fer með póstmál. Ráð- 'herra bað um skriflega skýrslu um miálið og rök fyrir kjara- skerðingu þeirri, er þeir teldu sig hafa orðið fyrir. Póstmeist- ari kvaðst hafa innt ráðherra eftir skýrslu þessari í gær, en í gærkvöldi var hún ekki enn komin fram. Áður var sá hiáttur hafður á að bréfberum var ætlað að fara 2 umferðir yfir hverfi sín og bæta á sig aukahverfum í for- föllum, oftast tveir um hvert aukahverfi, og fengu þeir fyrir það greidda aukavinnu. Nú er þeim ætlað að fara eina umferð um tvö hverfi og byrja á hinu síðara í vinnutíma sínum, en #á greidda aukavinnu fyrir það sem þeir eru fram yfir venju- legan vinnutíma. Bréf eru borin um bæinn og bomast daglega til skila eins og verið hefir, sagði póstmeistari. Tveir bréfberar hafa sagt upp vara og hefir uppsögnin verið starfi sínu með 3ja mánaða fyrir- staðfeat. Þá er að geta Balbo-flugfrí- merkjanna, sem skráð voru á DM 1300, en hafa nú hækkað í DM 1600 (notuð). Einnig skal getið 25 kr. frímerk is með mynd af Alþingishúsinu, sem kostaði DM 40 ónotuð, en kostar nú DM 50. Þetta eru helztu verðhækk- Asíuinflúenzan lítt útbreidd á Akureyri Akureyri, 7. marz. ASÍUINFLÚENZAN hefir nú borizt til Akureyrar en er mjög lítið útbreidd enn, að þvi er héraðslæknirinn, Jóhann Þorkels son, tjáði blaðinu. Fjarvistir eru litiar í skólum, nema helzt í M.A. og þá sérstaklega í 4. bekk. Lasburða fólk ' hefir verið bóluisett gegn veikinni og einn- ig nokkrir starfshópar, svo sem læknar og hjúkrunarlið, lög- regla, slökkvilið, símastúlkur og togaraáhafnir. Annars hefir bólu efni borizt hingað dræmt, svo að ekki hafa allir feragið úr- lausn, er þess 'hafa óskað. Mislingar hafa verið að stiraga sér niður hér og ganga hægt yfir. anirnar, sem auk margra ann- ara hafa átt sér stað á íslenzk- um frímerkjum. Hækkunin á notuðu flugmerkjunum, sem getið var, nemur 55%. Hér að framan er átt við verð listaverð, en þagar um sölu á frímerkjum er að ræða, dregst frá þessu verði (miðað við Mic- hel) ca 40—45%. ►> i í EINS og skýrt hefir verlff frá í fréttum og birtar af myndir í Mbl. lenti jeppabifreiff út af veginum á Fagradal *.l. fimmtudag. Bifreiffastajóran- um tókst aff bjarga sér meff því aff stökkva út úr bílnum. Myndirnar sem birtar voru s.l. laugardag sýna bílinn þar sem hann kom niffur í gljúfr- iff eftir 70 m. fall. Mynd þá sem hér birtist tók Gunnar St. Wedholm á Eskifirffi dag- inn eftir aff slysiff varff og hafði áin þá hrifið bílinn og fært hann meff sér 70—80 m. neðar í gljúfrið. Sýnir hún glöggt hve illa -bíllinn er far- inn. Góður afli í net og á fœri í Eyjum Vestmannaeyjum, 7. marz. AF afla síldarbátanna er það að frétta, að veiði hefir verið treg í dag, en það sem fengizt hefir, góð síld. Erlingur fékk 150 tunnur og Ófeigur 100 tunnur og auk þess fékk hann 26 tonn af góðum þorski í nótina. Síldarmiðin eru inn af Elliða- ey. Línubátarnir urðu ekki varir í dag og eru nú flestir að taka netin, því afli í net hefir yfirleitt verið góður, en að sjálfsögðu mis jafn þar sem svo margir bátar eiga hlut að máli. Mest hafði ísleifur um 30 tonn, en lægst munu hafa verið 6 tonn. Allmargir bátanna voru með 15—20 tonn, sem er ágætur afli. Hjá færabátunum er afli ágæt ur og jnun betri en verið hefir á undanförnum vertíðum. Meðal- afli í dag var um 1 tonn á færi (þ.e.a.s., ef fjögur færi eru á báti fást 4 tonn). — Björn. . * ÍTALSKA liffiff Roma slgr- affi í gær Red Star frá Belgrad með 3—0. Leikurinn fór fram i Róm og var fyrri leikur liff- anna í höfuðborgakeppni. Enn ekki samið um bœj■ arstjóra á Seyðisfirði Seyðisfirði, 7. marz. ENN HEFIR EKKI verið feng in lausn á máli bæjarstjór- ans hér og hefir ekki náðst samkomulag um ráðningu manns í þá stöðu. Sögusagn- ir hafa gengið um að samið hefði verið um ráðningu Hrólfs Ingólfssonar frá Vest- mannaeyjum, en hann var áð ur á Seyðisfirði. Fréttamaður blaðsins spurði Emil Jónsson formann Alþýðu fiokksfélagsins hér um mál- ið. Hann sagði, að ef samkomu lag væri komið á meðal vinstri flokkanna um Hrólf, væri það ekki með vilja Al- þýðuflokksfélagsins. Friðþjóf ur Þórarinsson, annar full- trúi Alþfl. í bæjarstjórn, seg- ist ekki styðja Hrólf. Gunn- þór Björnsson, hinn fulltrúi Alþfl., segir að samkomulag hafi ekki náðst, en yfir standi viðræður um málið. Hrólfur Ingólfsson er kunn ur stjórnmálamaður meðal annars fyrir að kljúfa Alþýðu flokkinn á Seyðisfirði með- an hann var hér. Slíkt hið sama gerði hann er hann kom til Vestmannaeyja. Næst gerð ist hann þjóðvarnarmaður og sat í bæjarstjórn fyrir þann flokk í Eyjum og nú er hann varafulltrúi Framsóknarfl. í bæjarstjórn Vestmannaeyja. Takist samstarf vinstri afl- anna á Seyðisfirði virðist Hrólfi ætla að takast að kljúfa Alþýðuflokkinn, jafnvel eftir að hann er kominn úr flokkn um, þótt hann hafi gist tvo flokka síðan. — Sveinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.