Morgunblaðið - 15.03.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.03.1963, Blaðsíða 1
24 siður 50. ácgangur 62. tbl. — Föstudagur 15. marz 1963 Prentsmiðja Morgunblaðsins Framboðslisti Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjaneskjördæmi KJÖRDÆMISRÁP Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi samþykkti á fundi 8. þ. m. framboðslista flokksins í kjördæminu við Alþingiskosningarnar í sumar. — Listinn er þannig skipaður: 1. Ólafur Thors, forsætisráð- 2. Matthías Á. Mathiesen, herra, Reykjavík. sparisjóðsstjóri, Hafnarfirði. Adenauer mun draga sig í hlé Bonn, H. marz — AP 1» E G A R Konrad Adenauer lætur af kanzlaraembætti í Vestur-Þýzkalandi í haust, mun hann einnig láta af emb- setti sem formaður Kristilcga demókrataflokksins, og hann tekur ekki sæti í næstu ríkis- stjórn, að því er framkvæmda stjóri flokksins tjáði frétta- mönnum í dag. Hefur flokks- stjórnin falið þeim Heinrich von Brentano, fyrrum utan- ríkisráðherra, og Josef Her- mann Dufhues, er gengur næstur Adenauer að völdum í flokknum, að kanna það hverjir komi til greina sem eftirmenn Adenauers. Adenauer hefur samþykkt að láta af embætti kanzlara í haust, en aldrei látið neitt uppi um það hvort hann muni jafnframt hætta flokksformennsku. Fram til þessa hefur aðeins verið rætt um tvo menn, sem til greina koma að taki við af Ad- enauer, en þeir eru Ludwig Er- hard efnahagsmálaráðherra og Gerhard Schröder utanríkisráð- herra. Erhard hefur’verið talinn líklegri eftirmaður, en nokkuð hefur dregið úr vinsældum hans að undanförnu meðan vinsældir Schröders fara vaxandi. 3. Sverrir Júlíusson, útgerðar- maður, Reykjavik. 4. Axel Jónsson, fulltrúi, Kópa- 5. Oddur Andrésson, bóndi, N- 6. Snæbjörn Asgeirsson, skrif- vogi. Hálsi, Kjós. stofumaður, Seltjarnarnesi. 7. Karvel Ögmundsson, útgerð- armaður, Njarðvíkum. 8. Einar Halldórsson, bóndi, Setbergi, Garðahreppi. —afflWKII II — -- '■ * -— 9. Eiríkur Alexandersson, kaup 10. Alfreð Gislason, bæjarfógeti, maður, Grindavík. Keflavík. Helsingfors, 14. marz (NTB) Opinberir starfsmenn í Finn- landi höfðu boðað tii verkfalla frá miðnætti í nótt. Stundar- fjórðungi eftir að verkföllin áttu að liefjast var þeim aflýst vegna þess að augljóst var að samkomulag við ríkisstjórnina var á næstu grösum. Krúsjeft gagnrýnir landbúnað Rússa Kýrnar lesa ekki samþykktir yfirvaldanna Moskvu, lJf. marz — NTB KRÚSJEFF forsætisráðherra m Vilja gera Churchill heiöursborgara U.S. Washington — AP FULLTRÚADEILD banda- riska þingsins samþykkti á þriðj udag með 377 atkvæðum gegn 21 að heimila Kennedy forseta að gera sir Winston Ohurohill að heiðursborgara Bandaríkjanna. Er þetta í fyrsta skipti í sögu Bandaríkj- anna sem þingið samþykkir veitingu heiðursborgararétt- inda. Áður hefur einum manni verið sýndur þessi sómi, en það var Lafayette markgreifi, franskur aðaismaður, sem barðist með Bandaríkjamönn- um í frelsisstríði þeirra gegn Bretum. En Lafayette var heiðursborgari tveggja ríkja Bandaríkjanna áður en sjálf- stæði fékkst. Eftir að stríð- inu lauk voru réttindi hans látin ná til Bandaríkjanna í héild án þess að til kæmu aðgerðir þings eða forseta. Búizt er við að Öldunga- deild þingsins taki fljótlega afstöðu til málsins og að Kennedy, sem lýst hefur fylgi sínu við málið, iátá ekki á sér standa að framkvæma Sir Winston Churchill vilja þingsins. Tillaga um að gera Ohurchill að heiðurs- borgara var fyrst borin fram 1958, en þá baðst Ghurchill Framhald á bls. 2. flutti á þriðjudag ræðu á land- búnaðarráðstefnu í Moskvu, og var ræðan birt í dag. Ræðst for- sætisráöherrann þar harðlega á stjórn landbúnaðarmála i Sovét- ríkjunum fyrir skriffinnsku og benti á að kýrnar læsu ekki fyr- irskipanir og samþykktir land- búnaðarstjórnarinnar. — Hann sagði, að ef kýrnar gætu talað, segðu þær sem svo: Kæri land- búnaðarleiðtogi. Þú vilt helzt að ég gefi mikla mjólk. En hvað gefur þú mér fyrir? Ég skal fall- ast á sanngjörn skipti: Þú gefur mér fóður og hirðingu og ég gef þér mjólk. Ummæli og gagnrýni Krúsjeffs vöktu . mikinn iognuð og goöar undirtektir að sögn Pravda. — Hann margtók það fram að í sumum héruðum Sovétríkjanna dræpust kýrnar vegna fóður- skorts og ónógrar hirðingar. — Skoraði hann á alla þá, sem vinna landbúnaðarstörf að leggja áherzlu á raunverulega vinnu í stað pappírsvinnu. Krúsjeff tók dæmi um þá manngerð, sem hann vill að verði leiðtogar, og nefndi þar sérstak- lega Ivan Volovtshenko, sem ný- lega tók við embætti sem land- búnaðarráðherra og hefur á und- anförnum 12 árum getið sér mjög gott orð fyrir rekstur ríkis- bús. Sagði hann að leiðin til æðstu embættanna ætti að vera opin þeim sem bezt til þekkja og geta skipulagt framleiðsluna í stað þess að vera sí-þvaðrandi. m Ve3 heppnuð nauðlending Kaupm.höfn, 14. marz — NTB — Farþegaþota af gerðinni Boe- ing 707 frá Pan American flug- félaginu nauðlenti á Kastrupflug velli við Kaupmannahöfn í dag. Tókst lendingin mjög vel. Með vélinni voru 42 farþegar og níu manna áhöfn, og sakaði engan. Flugvélin átti að fara frá Oslo til Stokkhólms og Helsingfors. Við flugtak í Oslo sprungu sex af átta hjólbörðum vélarinnar. Var þá ákveðið að senda fluig- vélina til Kaupmannahafnar í stað Stokkhólms, vegna betri varahlutabirgða þar. Flugvélin sveimaði um skeið yfir Kastrup-flugvelli, meðan flugbrautin var úðuð kvoðu til að mýkja lendinguna, og ýmsar var- úðarráðstafanir gerðar ef ilia skyldi takast. Lendingin tókst hins vegar prýðilega og voru far þegarnir sendir áfram á ákvörð- , unarstað með öðrum flugvélum. s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.