Morgunblaðið - 23.03.1963, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.1963, Blaðsíða 1
50 árgangur 69. tbl. — Laugardagur 23. marz 1963 Prentsmiðja Morgunblaðslns Valtýr Stefánsson ritstjóri — Kveöja VIÐ STARFSMENN Morgunblaðsins söknum vinar í stað. Valtýr Stefánsson er liorfinn. Samstarf okkar stóð í nær 40 ár. Mér er minnisstætt, er bann kom til starfa á blaðinu fyrsta morguninn fyrir 39 árum. Öll framkoma hans mótaðist af góðvild og hlýju. Hann lagði kapp á að kynna sér alla starfsemi blaðsins á sem skemmstum tíma. Þá voru erfiðir tímar fyrir dagblöð á íslandi. Morgixnblaðinu tókst að rétta úr kútnum og verða útbreitt og áhrifamikið. Engum er það eins mikið að bakka og Valtý Stefánssyni, sem var óbreytandi í alhliða starfi sínu og baráttu fyrir vexti og viðgangi blaðsins. Hugkvæmni og hugrekki voru megineinkenni hans, þegar bann var upp á sitt bezta. Hann vann í áhlaupum og dró aldrei af sér. Fyrir þetta mikla lífsstarf þakkar stjórn Morgun- blaðsins af heilum hug. En fyrst og fremst þakka ég honum persónulega vináttu, drengskap og hjartahlýju. Ég og aðrir starfs- menn Morgunblaðsins munum jafnan geyma minn- ingu Valtýs Stefánssonar í þakklátum huga. Þessi fjölhæfi og velgefni maður var okkur öllum fagurt fordæmi mcð margvíslegum hætti, hinum nánu tengslum sínum við gróðurmoldina, jurtir og skóg, líf og listir, menningu þjóðar sinnar og framfarasókn. Hann vildi allsstaðar leggja hönd á plóginn, þar sem góður málsstaður þarfnaðist liðsinnis. Stjórn og starfsfólk Morgunhlaðsins kveður Valtý Stefánsson með einlægri þökk. Blessuð sé minning hans. SIGFÚS JÓNSSON. Tveir af 10 manna áhöfn farast járnstykki undir hillurnar lestinnL Búið var að ræsa kokkinn og var hann farinn að laga morgun verðinn. í brúnni voru skipstjór- inn og Ásberg Lárenziusson og I. vélstjóri en II. vélstjóri svaf aftu-r í káetu. Hásetarnir 5 voru frammi í lúkar. • í GÆRMORGUN sökk vél- báturinn Erlingur IV. frá Vestmannaeyjum er hann var á leið á veiðar vestur á Sel- vogsbanka. Báturinn var kom inn um 30 mflur vestur fyrir Vestm.eyjar. Á bátnum var 10 manna áhöfn, 8 björguðust, en tveggja er saknað. Var þeirra leitað af 16 vélbátum, flugvélum og loks varðskip- inu Ægi í gærdag, en án ár- angurs. Þeir sem fórust voru Sam- úel Ingvason, háseti og Guðni Friðriksson, 1. vélstjóri. í gær náði blaðið tali af Ósk- ari Þórarinssyni stýrimanni og Eiði Marinóssyni II. vélstjóra og fékk frásögn þeirra af Slysinu. Frásögn Óskars er á þessa leið: 30 milur NV af Vestmannaeyjum. Við fórum út á þriðja tímanum ' í nótt. Ég veit ekki nákvæmlega hvenær, því ég svaf í klefa þeim er ég hef með skipstjóranum und ir brúnni. Ferðinni var heitið vestur á Selvogsbanka. Stórsjór var og 8—9 vindstig. Við vorum með þorskanet og báturinn að sjálfsögðu tómur nema hvað ballest var í honum frá því á sfldinni en þá voru auk steyp- unnar sem er í botninum, sett Klukkan mun hafa verið rúm- lega 6 þegar brotsjór kom á bak borða aftan til á skipið og kast- Framhald á bls. 23. . Tveir sjómenn fórust MENNIRNIR tveir, sem fór- Samúel Ingvason háseti var ust, er Erlingur IV sökk voru: fæddur 1942 og átti heima að Guðni Friðriksson vélstjóri, Hjarðarhaga 64 í Reykjavík. fæddur 1928. Hann átti heima Hann var ættaður frá Akra- á Herjólfsgötu 8 í Vestmanna nesi. Samúel var ókvæntur en eyjum. Ættaður var hann af lætur eftir sig unnustu. Þetta Austfjörðum. Guðni var ó- var fyrsti róður hans á þess- kvæntur. um bát. 1100 menn hafa látizt af völdum eldgossins á Bali Jakarta, 22. marz — (NTB) ■— FREGNIR frá Bali hermdu í dag, að 1100 íbúar þorpa, sem liggja við rætur eldfjallsins „Agung“ á eyjunni, hafi orðið hraunflóði og öskufalli að hráð. Samkvæmt upplýsing- um yfirvalda á eyjunni eru mörg börn meðal hinna látnu. Þrjú þorp eru nú einangruð af glóandi hraunflóði og lög- reglan óttast, að ekki muni takast að bjarga nema hluta þeirra 600 manna, sem í þorp- unum húa. • Sukarno Indónesíuforseti hef ur lýst neyðarástandi á svæðun- um umhverfis eldfjallið oe til- kynnt að U Thant, framkvæmda stjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi boðið aðstoð samtakanna. • Ekkert lát er á eldgosinu og í dag opnaðist nýr gígur. Nær stöðugur hraunstraumur er nið- ur allar hlíðar fjallsins. Vegirr, - ir til þorpanna þriggja, sem að ofan getur, eru nú lokaðir, en björgunarsveitir hyggjast freista þess að flytja íbúana á brott í bátum. • Lögreglan á Bali segist ekki geta gefið nákvæmar upplýsing- ar um hve margir hafi særzt af völdum eldgossins, en augUóst er að það er mikill fjöldi. í>ús- undir manna hafa verið fluttai frá heimilum sínum á austur- strönd Bali, en yfirvöldunum hefur ekki tekizt að fá yfirlit yfir hve margir þeir eru. Ástæð- an er sú, að strax og öskufallinu linnir, snúa margir aftur tii heimila sinna til þess að leita horfinna ættingja. • Samkvæmt upplýsingum frá björgunarsveitunum eru mörg börn meðal þeirra, sem látið hafa lífið í eldgosinu vegna þess að þeim hefur ekki tekizt að komast út úr húsunum áður en hraunstraumurinn hefur náð þeim. Flugvélar og skip fra Surabaja á Austur-Jövu eru lögð af stað til Bali með mat og hj úkrunarvörur. Útför Valtýrs Stefáns- sonar í dag ÚTFÖR Valtýs Stefáns- sonar ritstjóra fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin kl. 10.30. Jarðað verður x Fossvogskirkjugarði. Skrifstofum og prent- smiðju Morgunblaðsins verður lokað í dag frá kl. 10 — 13.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.