Morgunblaðið - 23.03.1963, Síða 23

Morgunblaðið - 23.03.1963, Síða 23
1 ILaugardagur 23. marz 1963 MORCUHBLÁÐIÐ 23 Badminton: Rvíkurmót um helginu I DAG kl. 14.30 hefst Reykja- víkurmótið í badminton, en það fer fram í Valshúsinu. Á morgun (sunnudag) kl. 13.30 verður svo úrslitakeppni móts ins á sama stað. Mikil þátttaka er í mótinu, 44 keppendur skráðir samtals í fjórum greinum íþróttarinn- ar. Mest er þátttakan í tvíliða- leik karla, en í þeirri grein keppa 19 lið og getur oltið á ýmsu um úrslit. En við einna harðastri viðureign má búast í einliðaleik karla, þar sem keppendur eru 11, og þeirra á meðal íslandsmeistarinn Óskar Guðmundsson, auk ann arra snjallra leikmanna. - Iþróttir Framh. af bls. 22 í, þeim Birni Blöndal og Hiimari Óskarsstyni. Einn leikmannanna, Theodór Guðmundsson KR var veik- ur. Hann er að ljúka við flenz- una, sagði Jón. Við vildum ekki nota hann í dag, en hann verður með á laugardaginn. fslendingar betrL — Við spurðum Jón hvort tiann teldi að ísland hefði getað unnið Dani ef bæði lið hefðu verið óþreytL Hann svaraði: — Eg held að ekki sé nokk nr vafi á því. Danir eru alls ekki eins sterkir og við reikn uðum með að þeir væru, og það heyrðist talað um að Dan ir hrósuðu happi yfir að hafa mætt Íslendingum í þeirra öðrum Ieik sama daginn. Það var úthaldið sem brást, ekk- ert annað. Svíar Finnar 20—12 Annan leik mótsins áttu Sví- ar og Finnar. Það var hörku leik ur framan af og stóð 8—8 í hálf leik. En í síðari hálfleik tóku Svíar öll völd og unnu leikinn með 20—12. Magnús Pétursson dæmdi þann leik og stóð sig prýðisvel, sagði Jón. Erfitt að spá — Heldur þú að fslendinigar hafi sigurvon gegn Finnum? — Eg veit það ekki. Finnar eru allir stærri og þreknari en okk ar menn. Það er erfitt að spá. i ■ — Hvernig voru áhorfendur? f 1 — Hér var fullt hús, 1000 manns. fsl. liðið átti bókstaflega éhorfendur í leiknum gegn Dön um og okkar liði var mjög vel fagnað þó við sigruðum heima- menn. Völlurinn var prýðilegur 3® m langur en fullbreiður. Erlingur IV. — Sjóslys Framhald af bls. 1. ar því yfir á stjórnborða og senni lega hefir stjórnborðsgangurinn fyllst um leið og það valdið því að skipið rétti sig ekki við. Við þetta völknuðu allir, enda hentust menn fram úr kojunum. Allt skeði nú með slíkum hraða að erfitt er að gera sér grein fyrir atvikum í smáatriðum. Ég fór strax upp úr klefanum og upp í „bestikkið. Þá var skipið komið á hliðina og brúin hálf full af sjó og talstöðin á kafi. Það var því ekki hægt að kom- ast að henni til að genda út neyð arkall. Skipstjórinn og vélstjór- inn voru að losa gúmmbátinn og tókst fljótt að ná honum úr kassanum. Reyndur þeir að kippa í spottann til að báturinn blésist upp en það tókst ekki. Kasta sér í sjóinn. Þá var skipið að sökkva og var_því ekki um annað að gera en kasta sér í sjóinn með bátinn óuppblásinn. Loks tókst að blása hann upp, en þá var mjög af skipstjóranum dregið og hann stórlega skorinn á hendi eftir snúruna og að drukknun kom- inn við aðfarirnar. Við komumst svo 8 í bátinn en Samúel og Guðni sáust ekki, nema hvað við urðum var við annan þeirra er við vorum að yfirgefa skipið. Ég held að allir hafi verið syndir þótt ég viti ekki um þá Samúel og Guðna. Nokkrir fáklaeddir. Sumir mannanna voru fáklædd- ir aðeins í þunnum nærfötum og varð því fljótt kalt einkum eftir að þeir voru komnir upp i gúmm bátinn. Ég get ekki sagt nákvæm lega hvað við vorum lengi að velkjast í sjónum en það leið alllöng stund þar til báturinn var upp blásinn. Við skutum upp flugeldum sem voru í bátn- um og ég var með reykblys og veifaði því. Þetta varð til að vekja athygli Halkions á okk- ur þar sem hann sigldi nokkru á eftir okkur. Við vorum svo í gúmmbátnum í um 45 mínútur þar til Halkion kom að okkur. Það hefði ekki mátt tæpara standa því sumir voru þá orðnir svo kaldir. Einn hefði ekki lifað vosbúðina af ef við hefðum þurft að bíða hjálpar lengur. Allir á skipinu voru ungir menn. Þeir sýndu ró og kjark meðan beðið vair eftir þvi að komast í gúmmbátinn. Þó var ekki þægilegt að velkjast í sjón- um í háum og kröppum öldun- um, sem færðu okkur í kaf af og UL fVestmantu^ v ^]ar Erlingur IV. sökk 27 sjómílur N V af Eyjum. Ásberg Lárenziusson. Ég vil að síðustu biðja blaðið að koma innilegu þakklæti okk- ar til skipshafnarinnar á Halki- on, sem tók okkur eins og bezt verður á kosið. Vantar neyðarsendi. I Eiður Marinósson, II. vélstjóri segir svo frá: — Ég svaf aftur í káetu og var þar einn er hnúturinn kom á skipið. Ég vaknaði eiginlega ekki fyrr en ég var bominn fram á gólf og flaut þar í sjónum, sem fossaði inn í káetuna. Ég hafði lagt mig í öllum fötunum. Mér gekk vel að komast upp og þar voru fyrir skipstjóri og vélstjóri á brúnni og voru að eiga við bátinn. Það er ðhætt að segja að þarna hefir gúmmbáturinn bjargað okkur, því engum trébát hefði verið hægt að koma í sjó á þess- um tíma. Það voru bara vand- ræðin með snúruna. Við fórum þó rétt að öllu, enda fór svo að lokum að hún verkaði á gastæk- ið, þótt illa gengi. Við fundum ekki mikið fyrir kuldanum meðan við vorum í sjónum en þegar við komum upp í gúmmbátinn fórum við fljótt að finna til kuldans. Þarna vantaði okkur illa lít- inn neyðarsendi. Ef ekki hefðu verið bátar jafn nálægt okkur hefðu einhverjir farið illa af vosbúðinni. Einn skipsfélaganna er á sjúkrahúsi. Eg vil endurtaka þakklæti okk ar til skipshafnarinnar á Halki- on fyrir hjálpina. Nákvæm leít. Strax og vitað var um slysið bauð Landhelgisgæzlan aðstoð sána og var hún von bráðar þeg in. Verið var þá að gera við benz- inleka á landlhelgisvélinni og þar sem engan tíma mátti missa tók landhelgisgæzlan flugvél á leigu hjá Flugfélagi íslands og sendi áhöfn sína á henni til leit- ar. 16 bátum var raðað upp með lVt mílu millibili og síðan Miklir leikir í körfu- mótinu um helgina NÚ UIVI helgina heldur meist- Rramót íslands í körfuknattleik áfram. t kvöld kl. 20,15 verður leikið að Hálogalandi og mætast þá fyrst ÍR og a-lið KR í öðr- um flokki. Þessi leikur getur hæglega orðið skemmtilegur, þar eð þetta er hreinn úrslitaleikur í þessum flokki. Það er mál manna, að í öðrum flokki séu að jafnaði skemmtilegast leiknu leikirnir, og ætti það að sannast nú, þar eð þarna innbyrðis heyja baráttu allt unglingalandsliðið utan einn maður. Síðari leikur- inn verður milli Ármanns og íþróttafélags stúdenta, en ekki ÍR eins og ranghennt var í blað- inu í fyrradag. Annað fovöld heldur svo mót- ið en>n áfram á sama tiíma og stað. Fyrri leikurinn verður milli Ármanns og Héraðssamibandsins Skarphéðins í fyrsta ílofcki, og má gera ráð fyrir að Ármenn- ingum verði veitt hörð mót- spyrna, en vinni þeir þennan leik hafa þeir unnið meistara- tign í þessum flokki. Síðari leikurinn verður milli ÍR og Ármanns í meistaraflokki. Með nokkru sanni má telja þenn- an leifc úrslitaleifc mótsins, þvá Ármenningum dugar vinningur tiil að verða jafnir ÍR, en önn- ur lið foafa varla möguleika að hnekkja sigri þeirra. Ármenning- ar munu því áreiða'öega berjast af kappL Eitt af lcitarskipunum vestur ai Vestmannaeyjum í gær. Spjöll framin á leikvall- arskýlinu við Hólmgarð SKEMMDARVERK hafa að und anförnu verið framin á barna- leikvellinum við Hólmgarð og Bústaðarveg. Hafa þar m.a. verið brotnar rúður í gæzluskýli vallarins. Barnagæzla er á leikvellinum á daginn, en eftir að stúlkurnar fara heim á kvöldin hópast þang að unglingar. Hafa þeir brotið rúður hvað eftir annað í gæzlu- skýlinu, farið þar inn og rótað í hirzlum. Eitt sinn var hurðin á skýlinu brotin. Um sl. helgi voru 7 rúður brotnar og sýnir það glögglega að við svo búið má ekki standa. Foreldrar verða að fylgjast bet ur með framferði barna sinna og vegfarendur eru hvattir til að grípa þegar í taumana sjái þeir börn eða unglinga vuina slík spjölL flaug vélin fram og aftur yfir bátaröðina og stjórnaði leit- innL Þannig voru leitaðar 6 mílur í vindátt frá þeim stað er báturinn fór niður og farið þrisvar yfir svæðið. f síðustu um- ferð var Ægir kominn á vettvang. Leitin bar þó, sem fyrr segir, engan árangur. Brak og annáð lauslegt úr bátnum var á reki á sjónum. Skipstjórinn á Erlingi IV var svo þrekaður að ekki var hægt að ná tali af honum í gær. Hann var stórskaddaður á höndum, tognaður í baki og auk þess hætt kominn við baráttuna við að fá gúmmbátinn blásinn upp. Egil) Ragnarsson, háseti, sem fluttur var á sjúkrahúsið um hádegið í gær, er Halkion kom til hafnar með skipbrotsmennina, var á batavegi í gærkvöldi. Erlingur IV var 80 brúttólestir að stærð, byggður úr eik í Sví- þjóð 1946. Báturinn hét áður ís- björn og hafði fyrir nokkrum árum verið keyptur frá ísafirði. Hann var eign Sighvatar Bjarna- sonar o. fl. í Vestmannaeyjum. Viðræðnr um Berlín n þriðjudng Washington, 22. marz (NTB) SKÝRT var frá því í Was- 1 hington í dag, að viðræður um Berlín hæfust þar í borg n.k. þriðjudag. Viðræðurnar fara fram milli Dean Rusk, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna og Anatoli Dobrynin, sendi- herra Sovétríkjana í Banda- ríkjunum. Það voru Sovétríkin, sem fóru þess á leit að viðræður um Berlín yrðu hafnar á ný, en þær fóru út um þúfur í okt. sl. skömmu áður en Bandaríkjastjórn greip til að- gerða í Kúbumálinu. Bílstjórinn slapp naumlega AKRANESI, 20. marz — Kl. á níunda timanum í gærkvöldi var harkalegur árekstur á Vestur- götu á móts við Iðnskólann. Sendi'bíll Kaupfélagsins kom á ca 30 km hraða niður götuna og lenti á vörubíl fyrirtækisins Sig- urðar Hallbjarnarsonar & Co sem stóð þar á vestra vegarkanti. Pall ur vörubílsins gekk inn £ sendi bílinn og má það teljast mikil rnild að bílstjórinn Pétur Jóhann esson skyldi ekki slasast lífshættu lega, því að stýrið kengbeygðist alveg ofan í sæti og sló Pétur I magann. Auk þess skarst hann á hendi. Sendibíllinn stórskemmd ist Vörubíllinn hentist lengd sína eftir götunni. — Oddur. Athugið! að borið saman við útbreiðslv er iangtum ódýrara að auglýsa i Morgunblaðinu, en öðrum blöðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.