Morgunblaðið - 26.03.1963, Blaðsíða 5
Þriðjudagur -26. marz 1963
!W O R C l' N B L 4 Ð 1 Ð
☆
Á vissu skeiði bernskunnar
eiga allir strákar sér þann
draum, að verða „brunakall-
ar“, þegar þeir um síðir verða
fullorðnir. Um það leyti
leggja þeir kapp á að fylgjast
með störfum slökkviliðsins og
reyna að þekkja slökkviliðs-
menn í.hátt og með nafni.
Það eru því ekki fáir Reyk-
víkingar, sem þekkja Anton
Eyvindsson, enda hefur hann
nú verið brunavörður hér í
Reykjavík í hart nær 48 ár,
og þau eru ótalin heimilin,
sem hann hefur átt þátt í að
bjarga.
Anton á í dag sjötugsafmæli
og lætur þá af starfi sínu,
enda er hann orðinn elzti
starfsmaður bæjarins. Frétta-
menn hittu Anton að máli
niðri á slökkvistöð í gær og
rifjaði hann þá upp ýmislegt
frá fyrri dögum.
— Ég byrjaði hjá slökkvi-
liðinu í stóra brunanum, þeg-
Sjötugur brunavöröur
Anton Eyvindsson, elzti starfsmaður
Reykjavíkurborgar hættir störfum í dag
Létl starf
ar miðbærinn brann, 25. apríl
1915. Síðan kom ég inn á stöð-
ina sem fastur brunavörður,
1. apríl 1916. í>á var bætt við
þriðja brunaverðinum, en áð-
ur höfðu bara verið tveir.
Núna eru yfir 40 fastráðnir
á stöðinni.
— Við vorum þá fastir til
heimilis á slökkvistöðinni, ef
svo mætti segja sváfum þar
sem nú er varðstofan. Við vor-
um ógiftir tveir og vorum
hérna allar nætur og alla
daga en sá þriðji var kvænt-
ur, og við gáfum honum færi
á að stelast í frí heim til kon-
unnar við og við á nóttunni.
— Brunaköllin komu þá
þannig, að hringt var bruna-
boða einshvers staðar og þang
að hljóp einhver okkar. Það
var alltaf einhver okkar á
Þessi mynd er tekin árið 1921, og er Anton við stýrið á fyrsta
brunabilnum.
Afmælisbarnið, Anton Eyvindsson
knúin dæla, en bærinn fékkst
ekki til að kaupa jrana og hún
varð innlyksa hérna vegna
stríðsins. Þegar var áliðið
nóttu í Miðbæjarbrunanum, og
bæði Hótel Reykjavík og
Vöruhúsið fallið, var dælan
tekin traustataki og þá opnuð
ust augu yfirvaldanna fyrir
því, að hún var ómissandi
tæki. Strax á eftir var keypt
hingað önnur dæla, miklu
stærri.
— Upp frá þessu fóru breyt
ingarnar að verða örari. Þess-
ar dælur voru það veigamikl-
ar að ekki var hægt að láta
mennina ýta þeim og draga og
þá var farið að fá hesta á
slökkvistöðina. Hérna, þar
sem nú er skálinn og skrif-
stofurnar, var byggt hesthús.
— 1921 urðu svo mestu
breytingarnar, þegar' komu á
sama ári fyrsti sjúkrabíllinn
og tveir brunabílar og í kjöl-
farið hafa smám saman kom-
ið fleiri framfarir, svo sem
stigabíllinn, tankbílarnir og
háþrýstidælurnar. Það var
mikill munur þegar þær komu
áður var maður orðinn hund-
blautur löngu áður en nokkuð
var farið að eiga við eldinn.
— Starfinn hefur alltaf ver
ið spennandi, þótt hann hafi
oft jafnframt verið erfiður.
Ég hef aldrei lent í neinu
beinlínis hættulegu þó, en
þetta hefur alltaf verið spenn
andi starf. Maður veit aldrei
á hverju maður á von, né held
ur hvernig starfinu miðar
raunverulega hverju sinni.
Reykvíkingar óska Antoni
allir til hamingju m-eð langt
og gjfturíkt starf fyrir þá.
hlaupavakt, eins og við köll-
uðum það. Síðan var bruna-
liðið kvatt út.
— Tækin voru geymd á 3
stöðum og helzt þannig að
hægt væri að fara undan
brekku á brunastað. Þessir
staðir voru kallaðir „slökkvi-
tólahús“, og eitt þeirra var
hérna niðri við Tjörn, eitt
inni við Veghúsastíg og það
þriðja_ vestur á Brekkustíg.
— Ég byrjaði reyndar þann
ig, að ég var lánaður frá sím-
anum til að leggja brunaboða
og bjöllur frá slökkvistöðinni.
Auk þess lánaði síminn mig
bænum, og þar var ég í grjót-
mulningu og fleiru, en alltaf
með annan fótinn hjá slökkvi
liðinu samt.
— Fyrir fyrra stríðið var
komin hingað til landsins, vél-
+ Gengið +
18. marz 1963:
Kaup Sala
1 Enskt pund 120,28 120,58
1 Bandaríkjadollar .. ... 42.95 43,06
1 Kanadadollar .. 39,89 40,00
100 Danskar kr ... 622,85 624,45
100 Norskar kr. ........... . 601,35 602,89
100 Sænskar kr. ... .. 827,43 829,58
10" Finnsk möi'k 1.335,72 1.339,1
100 Franskir fr. .. 876.40 878,64
100 Svissn. frk. . 992,65 995,20
100 Gyllini 1.195,54 1.198,60
100 Vestur-Þýzlc mörk 1.074,76 1,077,52
100 Belgískir fr ... 86,16 86,38
100 Pesetar 71,60 71,80
100 Tékkn. krónur ... 596.40 598,00
Læknar fjarverandi
Arinbjörn Kolbeinsson, verður fjar-
verandi 4—25. marz. Staögengill er
Bergþór Smári.
Tryggvi Þorsteinsson verður fjar-
verandi 10. til 24. marz. Staðgengill:
Olafur Ólafsson, Hverfisgötu 50, við-
talstími kl. 6 til 7 alla virka daga
nema miðvikudaga kl. 2 til 3. Simi
Maður, sem ekki þolir erfiðisvinnu vill leggja fram
nokkurt fé í traust fyrirtæki sem hann gæti fengið
létt starf við. Þeir sem vildu sinna þessu leggi nöfn
sín á afgr. Morgunbl. fyrir 1. apríl merkt:
„Ábyggilegur — 6563“.
Atv*nna
Handlaginn og vandvirkur maður óskast til iðnaðar-
starfa. Umsóknir með uppl. um fyrri störf og
merktar: „Reglusemi — 6643“ sendist Mbl.
TIL SOLCJ
100 smálesta bátur í mjög góðu standi. Þeir sem
hafa áhuga á kaupum, leggi inn tilboð á afgreiðslu
Morgunblaðsins merkt: „3700 — 6566“.
IVIeðelgandi
Óska eftir meðeiganda í góðum 103 smálesta bát.
Helzt skipstjóra eða vélstjóra. Tilboð leggist inn á
afgreiðslu Morgunblaðsins, merkt: „100 — 6565“,
Til sölu við Skaftahlíð
Nýleg 5 herb. II. hæð, ca. 130 ferm. með sér hita,
tvennum svölum, ræktuð og girt lóð. Stór bílskúr.
Laust strax til íbúðar. Vönduð íbúð.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Einar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4. Sími 16767.
Heimasimi kl. 7-8, sími 35993.
Til sölu
trésmíðaverkstæði
vélar og verkfæri tilheyrandi litlu verkstæði, til-
valið fyrir 2—3 samhenta menn. Vélarnar eru í
leiguhúsnæði sem góður möguleiki er að fáist áfram
leigt. — Uppl. á skrifstofu
Einars Sigurðssonar
Ingólfsstræti 4 ■— Símar 16767, 35993 eftir 7 kvöldin
í búð
Óskum eftir að taka á leigu 2ja—4ra herb.
íbúð fyrir starfsmann í þjónustu vorri.
Vélsmiðjan Héðinn
Sími 24260.
T I L S O L u
hálft stoinhtís í Laugarneshverfi
efri hæð 147 ferm. 4 herb., eldhús, bað og hall og
rishæð, sem í er 4 herb. íbúð. Gengið er upp í rishæð-
ina úr innri forstofu hæðarinnar. Sér inngangur,
sér hitaveita. Bílskúrsréttindi.
Hfja fasteignasalan
Laugaveg 12 - Sími 24300
og kl 7.30-8.30 eb. sími 18546