Morgunblaðið - 26.03.1963, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 26. marz 1963
/
IUORCV1SBL4Ð1Ð
17
Gísli G. Guðmundsson
sjómaður — Minning
HAFNFIRZKUR sjómaður, Gísli
G. Guðmundsson er í dag kvadd-
ur. Hann lézt í hárri elli, á 84.
aldursári, að heimili sínu í
Hafnarfirði 18. marz sl. Með hon
um er genginn góður maður,
þegn, s»m vann þjóð sinni vel
með löngu og þöglu starfi. Hans
Ijúfa og hlýja viðmót við sam-
ferðafólkið skilur eftir minns-
stæð spor hjá þeim, sem hann
þekktu.
Gísli G. Guðmu'ndsson var
fæddur 15. júlí 1879 að Vatns-
nesi við Keflavík. Foreldrar hans
voru Guðmundur Gíslason, kunn
ur sjósóknari og formaður í
Keflavík og kona hans, Guð-
finna Eyjólfsdóttir. Eignuðust
þau sjö börn fimm syni og tvær
dætur. Eftir fráfall Gísla er nú
eitt þeirra barna á lífi, Finnibogi,
búsettur að Tjarnarkoti í Innri-
Njarðvík, en yngsti bróðirinn,
Sigurgeir, fyrrverandi hrepp-
stjóri í Innri-Njarðvík, lézt sL
haust.
Gísli ólst upp við fátækt for-
eldranna af veraldlegum auði.
Hann varð því fljótt að vinna
hörðum höndum erfiðisvinnuna.
Þeir, sem nutu vinnu hans, fyrr
og síðar hafa ekki verið sviknir
af framlagi hans, þar sem sam-
Þórður H. Þórðar-
son minningarorð
í DAG er til moldar borinn frá sviði og þvi eftirsóttur starfs-
Fossvogskapellu, Þórður H. maður. í allri íramkomu var
Þórðarson, sjónvarpsvirki. Hann hann Ijúfur og prúður og hinn
yar fæddur 25. júlí 1936 að Sæ- bezti drengur. Var hann því vel
látinn af öllum, sem honum
kynntust.
Sár harmur er nú kveðinn að
eiginkonu hans, kornungum
börnum, foreldrum og syst-
kinum. En það er huggun harmi
gegn að minningarnar um í>órð
H. Þórðarson eru allar bjartar
og fagrar. Þær minningar munu
ástvinir hans geyma í þakklát-
um huga.
Ef einhverjir hefðu hug á að
minnast Þórðar Þórðarsonar fæn
vel á því að þeir létu Krabba-
meinsfélag íslands njóta þess.
Hljótlát samúð streymir til
ástvina Þórðar H. Þórðarsonar
við hið sorglega fráfall hans í
blóma lífsins.
Vinur.
vizkusemin og trúmennskan var
í fyrirrúmi.
Árið 1908 kvæntist Gísli hinni
mestu ágætiskonu, Ingunni Ólafs-
dóttur frá Höfða, Vatnsleysu-
strönd, dóttur Ólafs Guðmunds-
sonar bónda þar og konu hans,
Guðrúnar Jónsdóttur. Lifir Ing-
unn mann sinn, nú 81 árs að
aldri.
Allt frá barnsaldri á sá, sem
minningarorð þessi skrifar, ljúf-
ar minningar af kynnum við þau
hjón, Ingunni og Gísla, og heim-
ili þeirra. Mér er sérstaklega
minnisstætt gestrisnin og hinn
aðlaðandi heimilisbragur, sem
þar ríkti. Frá þeim hjónum staf-
aði ávallt góðvildin ein, hlýleiki
og hjálpsemi.
Þau hjón eignuðust fimm
börn. Af þeim dóu tvö kornung,
og hið þriðja, Sigurgeir sjómað-
ur, lézt af slysförum árið 1953.
Tvö börnin, Ólafur verzlunar-
maður, og Guðfinna hattadama,
hafa alla tíð búið í foreldrahús-
um. Einnig hefur elzti sonur Sig-
urgeirs heitins, Gísli Ingi, dval-
izt hjá afa sínum og ömmu eftir
fráfall föður síns. Fjölskyldan
hefur alltaf verið mjög sam-
rýmd. Veit ég, að þau hjónin
mátu hvað mest í lífinu þá frá-
bæru umhyggju, sem þau hafa
notið hjá börnum sínum.
Allan sinn búskap bjuggu þau
í Hafnarfirði, lengst að Austur-
götu 21. Árið 1955 fluttu þau í
nýtt hús að Ölduslóð 36, þar sem
Gísli naut elliáranna í fögru um-
hverfi hjá konu sinni og börnum,
sem allt vildu fyrir hann gera.
Tvö síðustu árin var hann að
mestu rúmfastur.
Lífsstarf Gísla var sjómennska,
og hóf hann starfið á sjónum að-
eins 15 ára. Um áraril var hann
formaður á mótorbátum. Allur
starfsferill Gísla, sem ekki verð-
ur hér nánar rakinn, einkennd-
ist af skyldurækni og dugnaði.
Gísli G. Guðmundsson var um
margt sérstæður maður. Hann
var hægtlátur og prúður í allri
framgöngu, dulur í skapi, og
mildur að eðlisfari. Hann virtist
alltaf samur og jafn. Gísli var
vel gefinn, og hafði skemmti-
lega frásagnargáfu. Minnist ég
margra góðra stunda, er hann
sagði frá liðnum tíma, reynslu,
sem var lærdómsríkur skóli.
Hann hafði yndi af söng og
hljómlist og iðkaði hvort tveggja
um tíma. Heimilisfaðir var Gísli
frábær, og einlægur trúmaður.
Honum varð að þeirri ósk sinni
að fá að enda jarðvist á heimili
sínu, sem hann unni svo mjög.
Hafi hann þökk og virðingu í
vegarnesti til nýrri heima.
Arni Gunnlaugsson.
bóli í Fossvogi, sonur hjónanna
Þórðar Þorsteinssonar, hrepp-
stjóra, og konu hans, Helgu
Sveinsdóttur. Var Þórður yngst-
ur af fjórum systkinum. Hann
ólst upp í föðurhúsum, lauk venju
legu unglinganámi, en tók síðan
loftskeytamannspróf. Var hann
um nokkur ár loftskeytamaður á
togurum. Síðan fór hann til Kali-
forníu til þess að læra þar sjón-
varpstækni. Lauk hann því námi
árið 1961 með ágætum vitnis-
burði. Vann hann síðan eitt ár
1 Ameríku. Tók hann þá að
byggja á heimför til íslands og
hafði mikinn áhuga á íslenzku
sjónvarpi. í nóvember s 1. tók
hann þann sjúkdóm, sem leiddi
hann til dauða á nokkrum mán-
uðum. Andaðist hann í Los Ang-
eles 14. marz sl. Var lík hans
flutt hingað heim flugleiðis.
Þórður H. Þórðarson var
kvæntur Elísu Eddu Valdimars-
dóttur, ættaðri úr Reykjavík.
Áttu þau þrjú efnileg börn.
Miklar vonir voru tengdar við
þennan unga og myndarlega
mann. Hann var mjög fær á sínu
Tveimm* bílum
stolið
ADFARAN ÓTT sunnudags var
bílnum G-2385 stolið í Hafnar-
firði. Hann fannst í Keflavík á
mánudag.
Sömu nótt var bílnum JO-452
sbolið suður í Njarðvíkur, en
hann fannst í niágrenni Hafnar-
fjarðar á mánudag. Ekki er enn
upplýst, hverjir valdir eru að
þjófnuðunum, og er fólk, sem
gæti veitt upplýsingar um það,
beðið að hafa samband við lög-
regluna í Hafnarfirði (
50131Á
Stúlka — Piltur
Stúlka, (ekki yngri en 18 ára) og piltur (ekki yngri
en 15 ára) óskast í bókaverzlun nú þegar. Um-
sóknar er tilgreini aldur, menntun, fyrri störf og
kaupkröfu, sendist afgr. Mbl. merkt: „Bókaverzlun
— 1799“.
Stúlka
Stúlka, helzt vön, óskast til afgreiðslustarfa í snyrti-
vöruverzlun. Tilboð með upplýsingum sendist til
blaðsins fyrir n.k. fimmtudagskvöld merkt:
„Miðbær — 6642“.
IMauðungaruppboð
annað og síðasta á m/s Haraldi K.O. 16, eign Þórarins
Guðjónsson o. fl., fer fram við skipið á skipsmíðastöð
Daníels Þorsteinssonar h.f. við. Bakkastíg hér í borg,
laugardaginn 30. marz 1963, kl. 3 sídegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Frá skóla Isaks Jónssonar Orðsending til foreldra. Þeir, sem hafa átt börn í skólanum og eiga börn fædd 1957, þurfa að láta innrita þau strax, eigi þau að sækja skólann næsta skólaár. Verði þessu ekki sinnt yfirstandandi viku komast börnin ekki að. Viðtals- tími kl. 16 — 17 daglega. Sími 3 25 90. Skólastjórinn. Saumakonur Stúlkur óskast, vanar innstungu vélum. Upplýsingar í síma 15005 frá kl. 2—5.
Sumarbústaður — Álftavatn Fallegur sumarbústaður á fegursta stað við Álfta- vatn til leigu. Þeir, sem gætu veitt nokkurt lán til t. d. 5 ára ganga fyrir. Tilboð með nafni og síma- númeri sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. föstudag merkt: „Álftavatn — 6564“.
Hárgreiðslustofa í góðum gangi, á einum bezta stað í bænum, er til sölu með ágætum skilmálum. Væntanlegir kaupend- ur leggi nöfn sín inn á afgr. Morgunbl. merkt: „Hárgreiðslustofa — 6559“ fyrir 30. þ. m.
Hfúrhúðunarnet og vírlykkjur FYRIRLIGGJANDI. Þ. Þorgrímsson £• Co. Suðurlandsbraut 6 — Sími 2 22 35.
Stúlka óskast við afgreiðslustörf, einnig kona til aðstoðar í eldhúsi. Sæla Café Brautarholti 22.
Ef bér viliið selia FÁGÆTAR BÆKUR á háu verði. há er fentrin lönff ^pliÍ|2£SÍÍÍf?klgÉ rey,lsla fyrir Þær seljast hvergi betur en á LISTMUNAUPPBOÐI SIG- URÐAR BENEDIKTSSONAR — sími 13715. —