Morgunblaðið - 26.03.1963, Page 6

Morgunblaðið - 26.03.1963, Page 6
6 M ORCV IS BL 4Ð1Ð Þriðjudagur 26. marz 1963 2742 sdttu starf- fræðsludaginn Enn sem fyrr mestur ÁTTUNDI almenni starfsfræðslu- dagurinn var haldinn í Iðnskól- anum í Reykjavík sunnudaginn 24. marz sl. Skipulagningu hans annaðist Ólafur Gunnarsson, sál- fræðingur, í samráði við forustu- menn atvinnu- og fræðslumála. Klukkan 13.30 hóf drengja- hljómsveit undir stjórn Karls O. Kunólfssonar að leika fyrir fram- an Iðnskólann, en þá biðu á 7. hundrað unglingar þar eftir að verða hleypt inn í húsið. Alls sóttu starfsfræðsluna 2742 ungl- ingar, en 1410 sóttu starfsfræðslu dag sjávarútvegsins 24. febrúar sl. eða samtals 4152 unglingar, sem hafa sótt strafsfræðsluna á þessu ári. Meðal utanbæjarmanna sem komu undir leiðsögn skólastjóra og kennara má nefna 70 frá Hús grýtt á Akureyri AKUREYRI, 25. marz. — Á sunnudagskvöldið var ráðizt með grjótkasti á nokkur hús í Mið- bænum og alimargar rúður brotnar. Ekki hefur hafzt upp á sok udólgunum. Bifreið valt út af Hafnar- stræti hér í bæ og ofan í fjör- una, sunnan við samkomuhús bæjarins, um átta-leytið sl. föstu- dagskvöld. Bifreiðin skemmdist allmikið, en ökumaður, sem grunaður er um ölvun við akst- urinn, slapp ómeiddur. Mál hans eir í rannsókn. 1 gærkvöldi rann mannlaus bifreið af staðnum framan við Hótel KEA þvert yfir Hafnar- stræti og skall á dyr verzlunar- innar Hebu. Nokkrar skemmdir urðu á húsinu og bifreiðinni. — Sv. P. Ók niður ljósastaur LAUST fyrir kl. 4 aðfaranótt sunnudags ók mjög drukkinn maður austur Miklubraut og lenti hann upp á eyju milli ak- brautanna, rétt austan við Rauð- arárstíg. Beygði maðurinn síðan til vinstri og yfir á nyrðri gang- stéttina og ók eftir henni, unz hann lenti á ljósastaur, sem brotnaði niður. Maðurinn fór út úr bílnum, gekk nokkur skref og hneig svo niður. Þar var hann tekinn af lögreglunni og fluttur á Slysa- varðstofuna og þaðan í fangahús. Bíllinn skemmdist allmikið, en maðurinn slapp lítið meiddur. áhugi á tækninámi Akranesi, 130 frá Keflavík, flest- alla unglinga Grindavíkurskóla, velflesta nemendur Hlíðardals- skóla auk fjölda unglinga úr Hafnarfirði og Kópavogi. Veik- indi (inflúenzan) komu í veg fyrir þátttöku nemenda úr Reykjaskóla, Reykholti og Laug- arvatni, sem hug höfðu á að sækja starfsfræðsludaginn. Aðsókn að hinum ýmsu starfs- greinum var eðlilega misjöfn og réð þar nokkru um hvort fræðslu sýningar voru tengdar. starfs- greinum eða ekki. T.d. vöktu verklegar námsdeildir Iðnskól- ans forvitni margra. 350 heimsóttu hina verklegu deild prentara og prentmynda- smiða í Iðnskólanum, en 25 spurðu um fögin. Virðist dag- legur lestur blaða og bóka valda því að margir vilji sjá hvernig þessir daglegu förunautar eru gerðir þótt þeir hafi ekki í huga að gerast prentarar eða prent- myndasmiðir. Og ekki varð tölu komið á þá sem ræddu við blaðamenn, en greinilega voru það fleiri en nokkru sinni fyrr. Unglingar virðast hafa meiri áhuga á að aka bílum en gera við þá, þvi 33 ræddu við fulltrúa bíl- stjóra og 20 við ökukennara, en aðeins 19 við fulltrúa bifvéla- virkja og 8 við bifreiðasmiði. Var þessum piltum boðið að heimsækja bifreiðaverkstæði Þóris Jónssonar í Brautarholti 6. Kennaraskóli íslands átti nú í fyrsta sinn sérstaka fulltrúa á starfsfræðsludegi og ræddu 19 við þá, 10 spurðu um nám íþr4 akennara, 30 um húsmæðra ke» iraskóla, 36 um handa- vin» deild kennaraskóla, 42 um hú» eðraskóla. Mikill fjöldi heimsótti sérstak- lega smekklega fræðslusýningu, sem Verzlunarskóli íslands stóð fyrir, var mikil alúð lögð við þá sýningu af hálfu nemenda skól- ans. Fræðsludeild löggæzlu- og um- ferðarmála var mjög fjölsótt, enda vel til hennar vandað. 319 drengir og 105 stúlkur ræddu við fulltrúa og götu- og kvenlög- reglu og 40 við rannsóknarlög- regluna og 17 við bifreiðaeftir- litið. 220 unglingar ræddu við full- trúa slökkviliðsins og 117 heim- sóttu Slökkvistöðina. Eins og venjulega var mikil aðsókn að flugmálum og öllu meiri en síðastliðið ár. 248 stúlk- ur ræddu við flugfreyjuna og 524 spurðu um önnur störf flug- málanna. Um 800 unglingar heimsóttu verkstæði Flugfélags íslands. Menntaskóla- og landsprófs- nemar lögðu eðlilega leið sína til fulltrúa háskólamenntaðra manna, og spurðu langsamlega flestir um tæknigreinar, meðal annars spurðu um 100 manns um störf tæknifræðinga, sem nú er mjög mikill skortur á. Þrír vildu fræðast um grasafræði, 6 um líf- eðlisfræði, 4 steinafræði, 2 dýra- fræði, 1 jarðsögufræði, 4 jarð- fræði, 1 fiskifræði, 7 erfðafræði, 12 stærðfræði, 15 sálfræði og uppeldisfræði, 34 hagfræði og viðskiptafræði, 5 veðurfræði, 2 landafræði, 13 lyfjafræði, 13 lög- fræði, 20 vélaverkfræði, 30 bygg- ingarverkfræði, 25 efnaverk- fræði, 8 landmælingaverkfræði og 50 rafmagnsverkfræði. 44 spurðu um arkitekur. Um guð- fræði spurðu 9, BA-nám og ís- lenzk fræði 18 og ca. 50 um nám- styrki og námslán. Um námskeið og skóla á Norðurlöndum svo og finnska skóla spurðu 40. Tíu unglingar ræddu við norska sendikennarann, 9 við þann sænska, 14 við þann danska, 11 þann þýzka, 10 þann bandaríska og 38 við fulltrúa brezkra skóla, sem var íslenzkur. Hinir erlendu L Þessi mynd var tekin sl. laug 1 /ardag, þegar verið var að vera V 1 við skrúfuna á ms. Fjallfossi, U \en smáskemmdir urðu á henni J ti ísalögunum ytra um síðustu fl mánaðamót Gert var við skip 1 ið við uppfyllinguna fram und t an gamla Eimskipatélags-pakk U húsinu. Viðgerðin fór þannig n fram, að skipið var létt að aft-1 an og þyngt að framan, unz 1 Iskuturinn reis svo hátt, að« \ skrúfan var að mestu úr sjó. U iXárnsmiffir unnu siðan að við í í gerðinni á íleka og beittu 1 /þremur logsuðutækjum. 1 X (Ljósm.: Sv. Þ.). íl skólamenn létu mjög vel yfir þeirri reynslu sem þeir fengu á þessum degi. Framkoma unglinganna var sérstaklega góð á þessum degi og má fullyrða að allir hafi verið ánægðir með daginn, bæði leið- beinendur og unglingar. Meðal gesta á starfsfræðslu- daginn var borgarstjórinn I Reykjavík, borgarritari, alþingis- menn og fleiri. • Enn um bræðslu- lyktina í Laugarnesi „Verkamaður skrifar: „Einhver, sem kallar sig „pestahverfisbúa“, skrifar í blað þitt á sunnudag, og auk vand- lætingasemi út af ímyndaðri „pest“ í Laugarneshverfi, óskar hann upplýsinga um „himna- stromp“. Mér er kunnugt .um, að Síld- ar- og Fiskimjölsverksmiðjan á á Kletti hefir fyrir mörgum mán uðum síðan lagt fram mikið fé til byggingar 70 metra skor- steinshæðar við verksmiðjuna 1 því skyni að eyða óþef, sem stundum hefir leitt frá fyrirtæk- inu í norðanátt yfir næsta íbúða hverfi. En þessar framkvæmdir voru stöðvaðar af byggingafull- trúa borgarinnar, vegna þess að hann taldi járnabindingu ekki nægilega sterka, og hafði þó verið gert ráð fyrir sama styrk- leika járnabindingar og er í Se- mentsverksmiðju ríkisins á Akranesi. Járn af þeim styrk- leika, sem krafizt var, fékkst ekki í landinu, og þetta stöðvaði verkið um langan tíma. Fyrir því þótti ekki ráðlegt að hefja verkið að vetrarlagi, þar sem skorsteininn þarf að byggja í einum áfanga, í góðu veðri og frostlausu, og tekur þá um 21 dag. Dagana 18. og 19. marz lagði nokkurn óþef yfir Laugarnes- hverfi, en báða þá adga var verk smiðjan stöðvuð hluta hvors dags til að koma í veg fyrir óþægindi. • Mikilvæg atvinnugrein Sá góði maður, sem þjáist af „pestum" í sinu hverfi, skyldi hugleiða, að óþefur frá síldar- verksmiðju er ekki pestnæmur, þótt hann valdi sumu fóiki óþæg indum. Og þessi þjáði maður ætti einnig að hugleiða, að mörg hundruð manns hafa atvinnu af að geta notfært sér fyrirtækið, sem er allveigamikill þáttur 1 að gera aðaiatvinnuveg okkar að tryggari starfsgrein, en ann- ars væri. Hann gæti einnig lagt j' hönd sína á hjartað oj spurt, hvort sjávarútvegunnn hafi ekki lagt nokkurn skerf ttl þess, að menn gætu eignazt íbúðir og húsin heil, svo að þess vegna væri skylt að þola þessa atvinnu grein, enda þótt öríáir dagar á ári létu eítir sig einhvern óþef í nösum. Eða erum vjð að verða of fínir til þess, að þola aðal- atv'nnuveg þjóðarinnar í heild? Éj bý við Kleppsveginn og þar hefi ég hvergi rekizt á neitt , pestahverfi", enda ber fóikið þar með sér, að það er nraust, glæsilegt og glaðlynt manndóms fólk af öllum stéttum. „Pesta- hverfisbúinn" hlýtur að búa utan Reykjavíkurborgar, því að í borginni er ekkert slíkt hverfi íil. Verkamður". — Velvakandi vill taka þa8 fram, að sá, sem skrifaði bréfið á sunnudag, kallaði sig „Pest- arhverfisbúa", en ekki „Pesta- hverfisbúa", eins og stóð í blað- inu af völdum prentvillipúkans. BOSCH RAFKERTI 1 BÍLA Eitt sinn BOSCH Ávallt BOSCH BRÆÐURNIR ORMSSON Vesturgötu 3. BOSCH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.