Morgunblaðið - 26.03.1963, Síða 23

Morgunblaðið - 26.03.1963, Síða 23
Þriðjudagur 26. marz 1963 MORGVISBL 4Ð1B 23 — Sement lækkar Framih. ai bls. 24 smiðjunnar á sinn góða þátt í hagkvæmari rekstri hennar. Framkvæmdum í Ártúnshöfða hraðað. Það kom fram í viðtalinu að Sementsverksmiðjan hefur í Ihyggju að fara sem fyrst í fram- kvæmdir í Ártúnshöfða, en þar á að koma upp sementsafgreiðslu fyrir Reykjavík og afgreiða allt sement þar laust, eins og tíðkast í þéttbýli erlendis. Verða fyrstu framkvæmdir þar bygging pökk- unarhúss fyrir sement, þriggja sementsgeyma og bifreiðavogar. Uppihaf málsins var það að fram komu óskir sementskaup- enda í Reykjavík og nágrenni um að Sementsverksmiðja ríkisins athugaði möguleika á flutningi á lausu sementi til Reykjavíkur og dreifingu þess þaðan. Var þá farið fram á að hafnarnefnd Reykjavíkurborgar heimilaði Sementsverksmiðjunni að koma sér upp aðstöðu til dreifingar á lausu sementi innan hafnarsvæð- isins. En þeirri umleitan var neitað. Af þeim sökum verður nú að hraða framkvæmdum í Ártúnshöfða, til að þessi þjón- usta við sementsnotendur kom- ist á, að því er þeir Ásgeir og Jón tjáðu blaðinu. Um 80% af sementi frá verk- smiðjunni er selt frá maí til október, og þar sem afköst sem- entskvarnarinnar er jöfn yfir allt árið 11 þús. lestir á mánuði, er óhjákvæmilegt að fá aukið geymslurými annars gæti svo far ið að verksmiðjan hefði ekki und an þegar eftirspurnin er mest. Nú er geymsla til fyrir 12 þúá. lestir, en geymslurými þyrfti að vera fyrir 20—30 þús. lestir. Aðspurðir hvenær byrjað yrði á framkvæmdum, svöruðu þeir því til, að ekki væri unnt að svara því, enda ekki fengin staðfesting ríkisstjórnarinnar á áætlunum. En þegar framkvæmd ir hefjast, mun byrjað á að bjóða út sprengingar fyrir geymunum. Hvað hafnarmannvirkjum við- kemur er þess vænzt að Reykja- vikurborg komi þeim upp. Styður jarðvegsrannsóknir >að kom einnig fram í viðtal- inu að Sementsverksmiðjan get- ur auk sementsins framleitt 10 þús. lestir af áburðarkalki árlega en eftirspurn eftir þessari vöru hefur ekki verið mikil, þótt jarð- vegsfræðingar álíti að víða á landinu sé þörf fyrir kalkáburð í jarðveginn. Af þessum sökum hefur Sementsverksm. ríkisins Stutt með fjárframlögum sérstak- ®r jarðvegsrannsóknir, þar sem könnuð hafa verið áhrif áburðar kalks á grassprettu. Hefur Bændasfcólinn á Hvanneyri aðal- lega annazt þessar tilraunir og rannsóknir í samráði við Sem- entsverksmið j una. Ný ódýrari sements- gerð INNAN skamms kemur á markaðinn ný tegund af se- menti frá Sementsverksmiðju ríkisins, og verður það nefnt Faxasement, en eiginleikar þess samsvara því sem erlend is er nefnt puzzoiansement. Þetta nýja sement verður selt 100 kr. ódýrari lestin, en venjulegt sement. Eru góðar vonir bundnar við þetta nýja sement til margháttaðra fram kvæmda, svo sem til hafnar- / gerða, í húsgrunna, til pússn- ' inga o.fl. — Bæjakeppnin Framihald af bls. 22 B-flokur, C-flokkur og kvenna- flokkur fóru sömu braut og A- flokkur. í stórsvigi urðu úrslit þessí í A-flokki: 1. Jan Norkeite Laksevaag 56.0 2. Þorbergur Eysteinsson 57,5 3. Sigurður Einarsson 58,0 4. Knut Rockne Bergen 58,8 5. David Andersen Bergen 59,0 6. Gunnlaugur Sigurðsson 62,7 7. John Foryste Skotland 63,& 8. Movinkel Bergen 65,2 9. Sig. R. Guðjónsson 65,5 10. Hermanrud 65,6 12. Hinrik Hermannsson 135,7 Brautin var hættuleg, m.a. fót brotnaði Skotlandsmeistarinn David Banks. Mótsstjórinn breytti hættulegasta kafla brautarinnar án þess að láta vita, þegar kepp- endur vor komnir upp að rás- marki. Við þessa breytingu fóru margir út úr brautinni á þeim stað sem henni var breytt m.a. Valdimar örnólfsson og Guðni Sigfússon og tugir annarra. í B-flokki sigraði Erik Roll Bergen 57,0. Þorgeir Ólafsson var þar í 10. sæti á 72,0 og Ásgeir Christensen í 11. sæti með 72,8. í C-flokki vann Knut Aase Bergen 66,4. Helgi Axelsson varð í 5. sæti með 67,3 og Þórður Sig urjónsson í 17. sæti með 94,0 sek. Allir flokkar fóru sömu braut. Úrslit bæjakeppninnar urðu því þau að Bergen sigraði með samanlögðum tíma 6 beztu manna í hvorri grein 875,7 sek. (512,1 í svigi og 363,6 í stórsvigi) Reykja vík var í öðru sæti með 945,4 sek (562,4 í svigi og 383 í stórsvigi). Glasgow hafði 1074,5 sekúndur. Skíðamennirnir létu mjög vel yfir dvölinni í Solfönn og öllum aðstæðum. Misskiiningur ríkti með skipan sveitanna. Fram að þessu hafa Bergen og Glasgow háð slífca keppni 9 sinnum og sveitir þá ver ið skipaðar 4 körlum og 2 konum. Höfðu Bergensmenn hins vegar skrifað hingað upp að ekkj væri Évgení Évtusjenko. Évfusjenko varð skyndilega veikur — og aflýsti ferð til Ítalíu Er Sovétskáldið flúið frá Moskvu? DANSKA blaðið Politiken skýrði frá því sl. föstudag, að sovétskáldið Évgení Évtusjenko hafi á síðustu stundu aflýst ferðalagi til ítalíu, vegna skyndilegra veikinda. Évtusjenko er nú heima í Rússlandi og hefur að undanförnu forðazt vestræna fréttamenn eins og heitan eldinn. Hann hefur ekki dvalizt á heim- ili sínu í Moskvu síðustu daga og er talið, að hann leynist einhversstaðar ut- an borgarinnar. Italskir fréttamenn eru þeirrar skoðunar, að Évtu- sjenko hafi orðið að beygja sig fyrir hörku Krúsjeffs gagnvart hinum frjálslyndari lista- og menntamönnum í Sovétríkjunum. Évtusjenko átti að dveljast í Torino um hríð á vegum ítalska menningarsambands- ins. Rétt áður en hann var væntanlegur, sl. fimmtudag, barst Torino-deild sambands- ins, sem skipulagði ferðina, símskeyti frá Galíu, konu hans. Þar stóð: „Évtusjenko varð skyndilega veikur. Hann getur ekki ferðast. Biðjumst afsökunar". Þegar innt var nánar eftir aðstæðum Évtusjenkos í Moskvu, upplýstist, að hann hefur ekki dvalizt á heimili sínu í borginni í marga daga, og er talið, að hann hafi farið í felur burt úr Moskvu. Hann hefur að undanförnu forðazt með öllu að hafa samband við vestræna fréttamenn — eða eftir að Krúsjeff ávítaði hann harðlega á fundi í Kreml með flokksforystumönnunum og sovézkum menntamönnum. — Þar lýsti Krúsjeff því meðal annars yfir, að nokkur ljóða Évtusjenkos gæfu falska mynd af lífinu í Sovétríkjun- um. nauðsyn að hafa konur með og hættu því tvær beztu skíðakonur Reykjavíkur sem valdar höfðu verið við ferðina. Keppninni var síðan breytt í hreina karlasveit í þetta skipti. — Badminfon Framihald af bls. 22 þá næstu með 15:3, og aukalot- una vann svo Óskar 15:8. Þetta var mjög vel leikin viðureign af beggja hélfu Oig leikurinn ekki ójafn í heild. Óskar er nú sýni- lega í mjög góðri æfingu og sigraði hann í þremur greinum í mótinu. En ennþá eru 6 vikur til ísiandsmótsins og hvorugur þessara snjöllu leikmanna hefur sagt sitt síðasta orð. í tvíliðaleik karla sigruðu Garð ar Alfonsson og Óskar Guð- mundlsson þá Jón Höskuldsson Og Rafn Viggósson með leiftrandi sóknarstíl með 15:7 og 15:5. Þeir Jón og Rafn veittu þó verulegt viðnám, og í undanrásui., höfðu þeir staðið sig með ágætum. í tviliðaleik kvenna sigruðu þær Guðmunda Stefánsdóttir og Jónína Nieljóhníusardóttir. Þær sigruðu Huldu Guðmundsdóttur og Júlíönu Isebau-n í jöfnum og skemmtilegum leik með 15:10 og 15:12. I tvenndarkeppni sigruðu Húlda og Óskar þau Jónínu og Lárus Guðmundsson, eftir að þau síðast nefndu höfðu unnið fyrstu lot- una 15:7. Hinar síðari unnu þau Hulda og Óskar með 15:13 og 15:2. Áhorfendur voru allmargir og fór mótið hið bezta fram undir stjórn Karls Maack, formanns mótanefndar T.B.R. — ísland rak Framlhald af bls. 22 hafi verið verst undir mótið búið vegna lakrar æfingaað- stöðu hér heima. En hér koma úrslit í öLluim leikjum mótsins og heildarstig: ísland — Noregur.......16-14 Svíþjóð — Finnland.....20-12 Danmörk — ísland ......21-15 Danmönk — Finnland .... 24-14 Svíþjóð — Noregur......17-15 Finnland — ísland .... 17-12 Noregur —Danmörk .... 21-20 Svlþjóð — ísland.......26-15 Noregur — Finnland .... 16-14 Danmörk — Sviþjóð .... 15-13 U J T M SvJþjóð ....... 3 0 1 76-57 Danmörk........ 3 0 1 80-63 Noregur ....... 2 0 2 66-67 Finnland ...... 1 0 3 57-72 103 58-78 SEMENTSVERKSMIÐJA ríkisins hyggst brátt hefjast handa um byggingu sements- afgreiðslu fyrir laust sement eins og fram blaðinu. Fyrst verða reistir 3 geymslugeimar hugsanlegum, pökkun- uppdrættinum) og bifreiðavog (nr. 4). Sjávar- málslínan sýnir að gert er ráð fyrir mikilli uppfyllingu með vegi meðfram sjónum og hryggju (nr. 5). Eldur í Teppa- "erðinni h.f. ELDUR kom upp aðfarandít sunnudags í Teppagerðinni hf., Súðarvogi 4. Kviknað hafði í lofti, sem klætt er með timbri og texi. Starfsmenn urðu varir við eld- inn um 8 leytið á sunnudags- morguninn og kölluðu slökkvi- liðið strax á vettvang. Gekk mjög fljótt að slökkva eldinn. Mikill reykur var í húsinu, en eldurinn var ekki magnaður. Nokkrar skemmdir urðu. Virðist sem eldurinn hafi kviknað út frá rafmaigni, enda var mest brunnið í kring um rafleiðslu og tengidós á loftinu. — Alþingi Framhald af bls. 8. aðsókn er auk þess þegar orðin mikil að skólanum næsta ár. Á Hólum hefur aðsóknin verið mis- jöfn, en eins og hún er nú, lofar það góðu um framtíðina. Þar eru nú 22—23 nemendur, þar af 18 1 yngri deild. Sæki þeir allir skól- ann næsta vetur, og þó ekki væri nema 1 nemendur til viðbótar 1 yngri deild, yrði skólinn fullset- inn. Þá veik ráðherra að því, að betri aðbúnaður þyrfti að vera á bændaskólunum en verið hef- ur, ekki sízt á Hólum. Þó hefði í vetur verið lagt meira til að- gerða og uppbyggingar í þeim en oft áður. Nefnd sú, er frumvarpið samdi, hefði leitazt við að samræma kennsluna breyttum aðstæðum. Mætti þar m.a. nefna, að í frv. er lagt til að auka vélfræði- kennsluna mjög. í því skyni er lagt til, að sérstakur vélfræði- kennari verði ráðinn til skól- anna, og góðum vélaverkstæðum komið þar upp, svo að nemend- urnir læri ekki aðeins að fara með vélar, heldur og að gera við þær, sem hver bóndi þarf að kunna, eins og búskaparhættir eru nú.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.