Morgunblaðið - 04.04.1963, Side 10
10
MORCVNBLAÐIÐ
Fimmludagur 4. apr.íl 1963
Biskupinn herra Sigurbjörn Einarsson og vígsluvottar, sr. Þorsteinn Gíslason prófastur,
sr. Jón Kr. ísfeld, sr. Björn O. Björnsson og sr. Fétur Ingjaldsson.
SUNNUDAGINN 31. marz
1963 vax vígð ný kirkja að
Höskuldsstöðum á Skaga-
strönd. Biskupinn yfir ís-
landi, herra Sigurbjöm Fln-
arsson, framikvæmdi vígsluna
en vígsluvottar voru sr. Pét-
ur Ingjaldsson, sóknarprestur
staðarins, sr. Björn O. Björns-
son, sr. Þorsteinn Gíslason,
prófastur og sr. Jón Kr. ís-
feld. Prédikun flutti sóknar-
presturinn, sr. Pétur Ingjalds
son, en fyrir altari þjónuðu
biskup og prestur staðarins.
Bygging kirkjunnar var haf
in 31. maí 1958. Hún er gerð
úr steinsteypu og er 92 ferm.
að stærð og rúmar um 100
manns í sæti, en auk þess er
í hertni loft fyrir söngfólk. Yí-
irsmiður var Einar Evenssen,
trésmíðameistari á Blönduósi,
innanhúsmúrverk annaðist Jó
hann Brynjólfsson frá Ytri-
Ey, en Valgarð Ásgeirssan
múrarameistari á Blönduósi
múrverk utanhúss. Halildór
Þorgrímsson sá um raflagnir.
Málari var Jósafat Sigvalda-
son. Hús þetta er hið fegursta
og kostar uppkomið 500 þús.
krónur. Hefur hér fámennur
söfnuður gert mikið átak, en
jafnan hafa á Höskuldsstöðum
staðið með stærstu og dýr-
ustu kirkjum í sveit á liðnum
öldum. ,
Veizluborð var á sunnudag-
inn búið í hinni gömlu kirkju
og þáðu vígslugestir þar hinar
rausnarlegustu veitingar í
boði Kvenfélags Höskulds-
ataðasóknar og munu um 200
manns hafa þegið þar veiting-
ar. Að þeim loknum var geng
ið aftur til kirkju og fluttu
þar ræður- Hafsteinn Jónas-
son formaður sóknarnefndar,
er rakti sögu kirkjubygging-
arinnar, sr. Þorsteinn Gisla-
son, prófastur og sr. Pétur
Ingjaldsson er flutti erindi
um sr. Stefán Ólafsson á H \
ukLsstöðum. Auk þess tóku til
máls Ingvar Pálsson á Bala-
skarði og sr. Björn O. Björns-
eon.
7 prestar viðstaddir
Biskupinn lauk þessari at-
höfn með hugnæmri ræðu og
á eftir var sunginn þjóðsöng-
urinn. Allan söng annaðist
kirkjukór Hólaneskirkju í
Höfðakaupstað ásamt söng-
fólki úr Höskuldsstaðasókn
undir stjóm Kjartans Jóhann-
essonar söngkennara frá Stóra
Núpi. Auk áður nefndra
presta voru viðstaddir athöfn-
ina sr. Halldór Kolbeins, sr.
Sigurður Norland í Hindis-
vík og sr. Gíslj Kolbeins á
Melstað. Auk þess sóttu at-
höfnina flest sóknarbör-n og
margt manna frá Blönduósi
og Höfðakaupstað.
Um kvöldið sátu biskup,
prestar og sóknarnefnd kvöld-
verðarboð hjá presthjónum
staðarins. Veður var hið feg-
ursta þennan dag og við hún
blakti íslenzki fáninn á fána-
stöng er Ungmennafélagið gaf
kirkjunni. Einnig bárust
vígsluljóð'frá Þórarni Þorleifs
syni bónda á Neðstabæ. Eitt
barn var skírt við vígsluat-
höfnina.
Margar góðar gjafir
Kirkjunni bárust margar
góðar gjafir. Kvenfélag Hösk-
uldsstaðasóknar gaf öll Ijós
í kirkjuna, ásamt uppsetningu
þeirra' og einnig heimtauga-
gjald. Kvenfélag Engihlíða-
hrepps sendi kirkjunni pen-
ingagjöf, Sigurður Sölvason
kaupmaður í Höfðakaupstað
og kona hans Margrét Kon-
ráðsdóttir gáfu hökul og rykk
ilin, hina beztu gripi, til minn
ingar um sr. Helga Konráðs-
son, en hann þjónaði um
skeið Höskuldsstaðasókn. Rak
el Bessadóttir og maður henn
ar, Guðlaugur Sveinsson á
Þverá, gáfu bibtíu 1 skraut-
bandi. Einnig bárust kirkj-
unni ýmsar fleiri gjafir.
Sóknarnefnd skipa Haf-
steinn Jónasson frá Njálsstöð
um formaður, Björn Jónsson
Ytra-Hóli og Torfi Sigurðs-
son Mánaskál. Safnaðarfull-
trúi er Ingvar Pálsson, Bala-
skarði. — Þórður
IU f M I R
VORNÁMSKEIð
hefjast mánudaginn 8. apríl. Kennslugreinar: Enska,
danska, þýzka, franska, spænska, sænska, ítalska.
íslenzka fyrir útlendinga.
Aðeins einn innritunardagur eftir.
MÁLASKÓLINN MÍMIR
Hafnarstræti 15 — Sími 22865.
Skrifsfofustúlka
Stórt fyrirtæki í Miðbænum óskar að ráða nú þegar
vana skrifstofustúlku. Áherzla lögð á góða vélrit-
unarkunnáttu. — Hátt kaup. — Umsóknir er greini
frá aldri menntun og fyrri störfum, sendist afgr.
Mbl. fyrir 15. apríl merkt: „Miðbær — 6188“.
3 herb. íbúðarhæð
Til sölu er góð 3ja herb. íbúð á 1. hæð í steinhúsi við
Grettisgötu. 2 herb. ásamt snyrtiherb. fylgja í
kjallara. Nánari upplýsingar gefur:
Skipa- og fasteignasalan
(Jóhannes Lárusson, hdl.)
Kirkjuhvoli — Símar 14916 og 13842.
Sumarbústa&ur
í nágrenni Reykjavíkur óskast til kaups eða leigu.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 8. apríl, merkt: —
„Áreiðanlegur — 1808“.
i
EA