Morgunblaðið - 04.04.1963, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 4. apríl 1963
MORcryniAÐíÐ
23
Danir veita fé til
Færeyjaflugvallar
„Maöur og kona“
í Kópavogi undir leikstjórn
Haralds Björnssonar
— talið, aö nauðsynlegum undirbún-
ingi verði lokið innan þriggja mánaða
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
Kaupmannahöfn, 3. apríl.
F J ÁR VEITIN G ANEFND
danska þingsins samþykkti í
dag að veita hálfa milljón
danskra króna til lagfæringa
og endurbóta á flugvellinum
við Vagöy í Færeyjum. Þann-
ig mun tryggt, að af flugferð-
um verði milli Færeyja, Nor-
egs og íslands.
— Milljón rikari
Framhald af bls. 24.
konu Brynjólfs, í kaffivagnin-
um vestur á Grandagarði, þar
sem hún væri við afgreiðslu,
en hann væri líklega í bíó.
Þar vestur frá hittum við
ekki aðeins Guðrúnu, heldur
einnig Brynjólf og yngstu
dóttur þeirra, Aðalbjörgu, en
Brynjólfur hafði farið aðsegja
konu sinni tíðindin.
— Forstjóri happdrættis-
ins kom heim til min graf-
alvarlegur og spurði mig hvort
ég spilaði í happdrætti. Þeg-
er ég hafði játað því tilkynnti
hann mér að ég hefði unnið
íbúð, sem væri eitthvað rösk-
lega milljónar virði, en ég er
ekki farinn að átta mig á þessu
enn.
— Ætlið þér að flytja í xbúð
ina?
— Ég veit það ekki fyrir
víst eim. Annars reyni ég að
vera jarðbundinn, og er þegar
farinn að velta fyrir mér hvort
vinningurinn sé skattfrjáls.
— Hafið þið séð íbúðina?
— Nei, ég veit ekkert um
hana nema það sem mér var
sagt í kvöld. Hann sagði að
það fylgdu teppi og heimilis-
vélar, og að hún væri 6 her-
bergja, en ég veit ekki einu
sinni hvar hún er.
— Ég hef nú alltaf kunnað
bezt við mig í Vesturbænum,
segir konan, en þetta er
ábyggilega mjög skemmtileg
íbúð.
— Við spyrjum dóttur
þeirra hvort hana langi til að
flytjast inn í Álftamýri, en
hún segir, að þótt það sé mik-
ið af skurðum þar sem sé gam
en að leika sér í vilji hún
hvergi vera í skóla nema í
Melaskólanum, og svo í Haga-
skólanum, þegar hún verður
eldri. Hún er í sjöunda himni
samt, en foreldrar hennar sýna
meiri stillingu.
Við endurtökum hamingju-
óskir okkar og yfirgefum þessi
heppnu hjón, sem enn eru að
reyna að átta sig á hveraig sé
að hafa á einni kvöldstund
aukið eignir sínar um milljón.
— Skákeinvígið
Framhald af bls. 2.
Eftir 58 leiki gaf Botvinnik skák-
ina. Þá náði Petrosján Botvinnik
að vinningum. Botvinnik vann
eem kunnugt er 1. skákina en
eíðan urðu 3 næstu jafnteflL
Þessi vinningsskáik Petrosjáns
var stórmerk að mörgu leytL
Skipzt var á drottningum þegar
í 9. leik. Það einfaldaði taflið
©g gaf Petrosján möguleika til
sóknar á drottningarvæng sem
hann nýtti mjög vel.
Sjötta skákin var tefld I gær.
Henni lyktaði með jafntefli svo
•ð þeir hafa nú hvor um sig 3
vinninga.
Jafnframt þessari fjárveit-
ingu varu veittar 250.000 kr.
til reksturs flugvallarins, og
er búizt við, að nauðsynleg-
um framkvæmdum við hann
verði lokið innan tveggja til
þriggja mánaða.
Kaj Lindberg, samgönguimála-
ráðher~a, hefur lagt á það á-
herzlu, að til greina komi að
verja 13 milljónum danskra
króna til algerrar endurbygging
ar á flugvellinum, þannig, að
hægt verði að koma á föstum
flugsamigöngum við Danmörku.
Þó er því lýst yfir, að í athugun
sé, hvort ekki kunni að verða
hentugra að nota þessa fjárhæð,
verði hún veitt, til að byggja
nýjan flugvöll á öðrum stað.
Áð flugi því, sem hefst strax
og viðigerð á Vagöy-flugvelli
— Varaformabur
Framh. af bls. 24.
tilboð til þjóðvamarmanna. Var
'þeiw boðið 1. sæti í Reykja-
neskjördæmi, 4. sæti í Reykja-
víik og 2. sæti í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
Geir Gunnarsson taldi sig sjálf-
kjörinn til þess að skipa 1. sæti
í Reykjaneskjördæmi, þegar bú-
ið var að sparka Finnboga Rút,
og veitti flokksdeildiín í kjör-
dæminu hairða mótspyrnu gegn
því að eftirláta þjóðvarnarmönn-
um þetta sæti, en varð þó að
lokum að fella sig við ákvörðun
fJakksstjórnarinnar í þeim efn-
um, enda hefði annað varðað
brottrekistri úr flokknum skv.
22. gr. laga komimiúnistaflokíks-
ins. Ætlun komimiúnista er, að
Gi'ls Guðmundsson skipi þetta
sæti, þrátit fyrir miklar efasemd-
ir í þeirra hópi um að hann muni
ná kjörL
Bergur heimtar öruggt
þingsæti
Þrándurinn í Götunni fyrir sam
vinnu kommúnista við þjóðvörn
er hins vegar Bergur Sigurbjörns
san, sem krefst öruggs sætis í
Reykjavík. Þessari kröfu eiga
komimúnistar mjög erfitt með
að verða við, þar sem gífurleg
gremja rikir þeirra á meðal í
garð Bergs. Telja þeir hann hafa
splundrað miðnefnd samtaka
hernámsandstæðinga svo, að sam
tökin hafa niú verið óstarfhæf
um langt skeið. Binnig telja
kommúnistar varhugavert að
treysta Bergi og óttast að.hann
muni svikja þá við fyrsta tæki-
færi komist hann á þing.
Erfiðleikar í samningum við
þjóðvörn eru þó aðeins hluti af
þeim vandamálum, sem komm-
únistar eiga við að striða vegna
framiboðanna fyrir kosningarnar
í vor.
Háværar raddir eru um það
innan flokksins, að Alfreð Gísla-
son skuli víkja af listanum í
Reykjavík og er það eindregin
ósk miðstjórnar kommúnista-
flokksins að svo verði. Málfunda-
félag jafnaðarmanna hefur hins
vegar iýst því yfir, að það sé
ekki til viðræðu um neinar breyt
ingar á stöðu Alfreðs á listan-
um og við það situr. Það er til
marks um þá örvæntingu, sem
ríkjandi er í herbúðum komm-
únista, að einn ræðumanna á
fuilltrú ará ð sf undi n um á mánu-
dagskvöldið taldi, að það mundi
ganga kraftaverki næst, ef tak-
ast mætti að halda flokknum
saman, eftir það sem á þeim
fundi hefði gerzt
lýkur, standa Flugfélag Islands
og Flugfélag Færeyja.
Er Mbl. innti Örn Johnson,
forstjóra Flugfélags íslands, eft-
ir því í gærkvöld, í hverju verka
skipting þessara tveggja félaga
væri fólgin, þá gaf hann þau
svör, að Flugfélag Færeyja
myndi annast afgreiðslu, en Fj.
sjálft flugið.
Þá skýrði Örn Johnson enn
fremur frá því, að í fyrramálið,
fimmtudag, myndu fulltrúar F.í.
halda til Kaupmannahafnar til
að ræða tæknilegan útbúnað
flugvallarins í Færeyjum. Hefj-
ast viðræður íslenzku fulltrúanna
við danska aðila síðar í þessari
viku.
Helgarráðstefna
i
N.K. LAUGARDAG efnir
Heimdallur til ráðstefnu um
Sjálfstæðisflokkinn og stefnu
hans. Ráðstefnan hefst kl.
1 12.30 með hádegisverðarboði i
I Miðstjómar Sjálfstæðisflokks-
ins. Eftirfarandi 6 inngangs-
erindi verða flutt.
1. Már Elísson: Efnahagsmála
ráðstefna Sjálfstæðisflokks
ins.
2. Þór Vilhjálmsson: Utanrík-
isstefna Sjálfstæðisflokks-
ins.
3. Gunnar G. Schram: Sjálf-
stæðisflokkurinn og vel-
ferðarríkið.
Sunnudagur — kl. 2 í Valhöll
4. Magnús L. Sveinsson: Sjálf-
• stæðisflokkurinn og verka-
lýðurinn. i
5. Bjarni Beinteinsson: Við- /
horf Sjálfstæðisflokksins till
samvinnu við aðra flokka. I
6. Birgir ísl. Gunnarsson: t
Skipulag og starfsemi Sjálf- í
stæðisflokksins.
Væntanlegir þátttakendur
láti skrá sig til þátttöku á
skrifstofu Heimdallar í sima
18192 — 17102.
LEIKFÉLAG Kópavogs frumsýn-
ir í kvöld Mann og konu eftir
Jón Thoroddsen. Leikendur eru
alls 18, og leikstjóri Haraldur
Björnsson. Þetta er 12. frumsýn-
ing félagsins frá því það var
stofnað 1. janúar 1957, og jafn-
framt fyrsta íslenzka leikritið,
sem það sýnir. Áður hefur þó
félagið sýnt íslenzka revíu.
Haraldur Bjömsson og stjóm
L.K. ræddu við fréttamenn í gær
um frumsýninguna og um að-
stöðu leikfélaga utan Reykjavík
ur.
— Ég dáist að þessu fólki,
sagði Haraldur. Það vinnur úti
allan daginn og kemur svo til
æfinga undir miðnætti, því um
annan æfingatíma er ekki að
ræða hjá kvikmiyndahúsum. Æf-
ingar standa fram á nótt, og
vinna allir leikarar kauplaust.
Vinnuskilyrði eru eins slæm og
þau geta verið, af því leikflokk-
urinn fær aldrei aðgang að leik-
sviðinu nema um hánóttina.
Þetta á ekki aðeins við um Kópa
vog, heldur alla þá mörgu staði
þar sem bíósýningar sitja í fyr-
irrúmi fyrir leiklistinni.
Haraldur sagði að leiklistin
væri mikill menningarauki fyrir
landsbyggðina, og réttast væri
að bæjarfélögin styrktu þá starf-
semi meira en gert er. Leiklist-
in er bæjunium mikils virði, sagði
hann, en enginn vinnur kauplaust
fyrir bæinn. Bf ekki fæst lag-
færing á þessu, staðnar leiklist-
in í landinu. Ættu bæjarfélögin,
þar sem fast leikhús starfar, að
greiða leikurunum kaup, að
minnsta kosti fyrir hvert leik-
kvöld.
Leikfélag Kópavogs er til húsa
í félagsheimilL sem stendur á
flögrum stað á Kópavogshálsi.
Sögðu fulltrúar stjórnar L.K. að
kostnaður við smiði hússins væri
nú um 10 millj. kr. Var áætlað
að bærinn legði fram 50% kostn-
aðarins, félagsheimilasjóður 40%
og sex féla(gssamtök bæjarins
10%. Reyndin er hins vegar sú
að bærinn hefur lagt fram meira
en sinn hluit og frá félagsheimila-
sjóði hafa enn ekki fengizt nema
15% af kostnaðarverðinu. Hefur
bærinn rekið hiúsið, en breyting
mun verða á þvi í surnar, þegar
félögin taka við rekstrinum.
Vaðmál og grútartýra
AðaJhlutvertk í Manni og konu
leika Gestur Gíslason, Auður
Jónsdóttir, Árni Kárason, Guðrún
Þór, Loftur Ámundason, Sigurð-
ur Jóhannsson, Guðmundur Gísla
son, Ásmundur Guðmundsson,
Helgi Guðmundsson, Sigurbjörg
Magnúsdóttir og Sigríður Einars-
dóttir.
Það er miklum ertfiðleikum
bundið að koma upp svona sýn-
ingu, sagði stjórn L.K. Má til
dæmis benda á að búninga varð
að snapa saman um allan Borg-
arfjörð, því of kostnaðarsamt er
að taka þá á leigu hjá Þjóðleik-
húsinu. Meðal annars komu fuii-
trúar leikfélagsins á bæ einn
upp undir Eiriksjökli, þar sem
92 ára kona bjó ásamt tveimur
dætrum sínum og tóu hundum.
Þar fengu þeir t.d. pils úr vað-
máli, sem ofið var fyrir um 50
árurn, jakka, sem var „alveg
eins og nýr“, að sögn húsfreyju,
þótt hana væri 4i2 ára, og svo
grútartýru.
Bæði leikfélagsmenn og Har-
aldur Björnsson létu vel yfir
samvinnunni. Sagði Haraldur að
margir góðir leikarar væru i
Kópavogi, og eru sumir þeirra
brautskráðir úr leikskólum í
Reykjavík.
— Alþingi
Framhald af bls. 81
væri enn byggilegt, ef svo þrengd
ist um á þeim stöðum, sem nú
er flúið til, að þaðan þurfi aftur
að leita.
Einangrunin höfuðástaeðan
Á flestum þeim stöðum, sem
fólkið flýr frá á Vestfjarðakjör-
dæmi, er einangrunin höfuðástæð
an. Samgönguerfiðleikarnir, sem
að vísu hafa mikið minnkað að
sumrinu á síðari tímum, lama
allt framtak að vetrinum og eiga
veigamikinn þátt í því að fólk-
ið hefur flúið úr sveitunum,
venjulega fyrst í aðliggjandi
þorp eða kaupstaði en síðar i
fjölbýlið við Faxaflóa, enda fund
ið, að fyrst allar rætur þurfi að
rifa upp, var skást að hefja hina
nýju baráttu á hinum breiðasta
velli atvinnu og viðskipta.
i
NORÐURMÝRIN!
(FLÓKAGÖTUHVERFIÐf
Röskan ungling eða krakka vantar nú þegar til að
bera Morgunblaðið til kaupenda við
Flókagötuna (neðanverða) — Hrefnugötu
— Gunnarsbraut »g nokkrar
nærliggjandi götur
Gjörið svo vel að tala strax við afgreiðsluna
eða skrifstofuna.
mnva98ttll|||ðib
sími 22-4-80.