Morgunblaðið - 23.04.1963, Page 6

Morgunblaðið - 23.04.1963, Page 6
6 MORCinSBLAÐIÐ í>riSíudagur 23. apríl 1963 Anna Borg MEÐ djúpum trega minnist ég Önnu Borg. í aeðandi stormi, í ógnandi byljum má ávallt búast við vá- legum atburðum — enda er þess skemmst að minnast hversu haf- aldan lét helgreipar sópa, lagði að velli — í Dymbilviku — hóp vaskra drengja. Á Páskamorgni fjarlægist sorg og hel. Jákvætt eðli mannsins beinist að hinni skínandi birtu. Að þessu sinni reis Páskadag- ur heiður og fagur — lognkyrr. Því var það öllum reiðarslag er harmafregnin barst, að tólf mannslíf hefðu — á einu andar- taki — horfið sjónum okkar að fullu og öllu. Skærasta ljósið varpar dýpstum skugga. Ég leitaði til ljóða föður míns — fann þar huggun, sem fyrr. Mér var sem ég sæi hinn ó- kunna „Gest“ — úr dimmunni að handan — á bleikum, með síðhött, í síðólpu’ á bleikum, bera þar dökkvan við dvergasal — og dísirnar ganga frá leikum. Við jódyninn titraði harma-höll, og heiðgeislar lögðu á flótta. — Hver fugl lagði þegjandi’ á flótta, er skugginn hans féll á víðan völl, sem váboði hríðar-nótta. Svo kynlega brá: þar, sem leið hans lá, var lyngið og grasið sviðið, að baki hans — brennt og sviðið. Þar sá’ ekki’ eitt einasta sting- andi strá á storð, er hann hafði riðið. Og óboðinn gestur með steigurð sté og stólkonungs svip af baki. — Já, hann sté af baki — brá hinni voldugu sigð. En skáldið sér innar og dýpra — eins og skáldum er tamt: Þá birti’ yfir dalnum að baki, og breiðfelld hljómuðu himin-vé af hörpum og fuglakvaki. Hefur það ekki einmitt verið þannig? Þau dóu öll — inn í ljósið. í sama vetfangi sólin brauzt á svifleið’ úr ísarn-dróma — í eldmóði’ úr ísarn dróma. Þá var sem úr álögum allt væri laust í eilífðar dýrðar-ljóma. Hve ástmild var sorgblíða’ 1 augum hans, ins ókunna sendiboða. Hann lagði höndina’ á höfuð mér, og huga minn gagntók blíða — svo regndjúp rósemd og blíða: Mér var sem hann lyfti, lyfti mér I ljósheima bjarta og víða. — o —■ Hún var Anna Borg — og það var enginn eins og hún. Sjálft nafnið ber hugljúfan hljóm. Persónutöfrar hennar ein- r kenndust af hógværri hjarta- hlýju, glampandi lífsgleði, mjúkri fegurð — sálargöfgi. Þetta birtist í brosinu, í radd- blænum, í framkomunni allri. Skapgerð hennar var ör og heit, — glettin og gáskafull, — blíð og viðkvæm. Hún var hljóð- lát, íhugul og alvarleg, unni há- um hugsjónum. í lífi og listum setti hún markið hátt — sveik aldrei sjálfa sig. Allt sem and- stætt var því sanna og heila — særði hana. Hvert það verk sem Anna Borg fór höndum um, bar ósvik- inn vott skapandi listgáfu, — hver athöfn hennar andaði ilmi. Sakleysi og hreinleik hjartans tókst henni að varðveita til ævi- loka. Enda þótt glæsilegur listferill, heiðrík hamingja í einkalífi, mótuðu persónuleik hennar, leyndist jafnan blik af tári í ljósi augnanna, sem veitti þeim dýpt og fágæta fegurð. Samúð hennar og næmur skilningur á þjáningum annara, átti rót sína að rekja til eigin reynslu. Hún fór ekki varhluta af sársauka og hörmum. Kornung — í deiglu lífsins — ein síns liðs í ókunnu landi, snart sorgin fingri — fyrsta sinni — á herðar henni: við dánar- beð elskandi móður. Móður sem Anna var mjög háð og nátengd, móður sem bar alla þá eðliskosti er eina móður má prýða. 1 þeirri raun fékk hetjulund hennar eld- skírn, hinar fíngerðu herðar styrk, svo að allt sem síðar var á þær lagt, var borið möglunar- laust — í þögulli tign. Eftir það óx hún að vizku og þreki við hvert áfall. Anna Borg var stór í gleði — stór í sorg. Styrjaldarárin í Danmörku voru henni, sem öðrum, ósegjan- • Öryggi á sjónum „Vegna þeira hörmulegu sjó- slysa, sem nýlega hafa orðið, verður mönnum á að spyrja: er öryggisútbúnaði smábáta (trillu báta) ábótavant? Hafa þeir t.d. talstöðvar, sjálfvirkt miðunar- senditæki, gúmmíbát, blys, rak- ettur og bjargbelti, og er haft eftilit með því að eitthvað af þessum tækjum séu um borð? Formaðurinn á 9 tonna bát, Kristleifi frá Ólafsvík, segir I viðtali við fréttamann Morgun- blaðsins, að hvað eftir annað hafi hann beðið Landssímann um talstöð en ekki fengið hana enn. Fleiri trillubátaeigendur geta sagt það sama; Landssím- inn jafnvel ekki svarað beiðnis- bréfum um talstöðvar eða borið því við, að þeir gætu ekki sinnt þeim vegna anna. Á sama tíma eru stöðvarbílar, langferðabílar og fjallabílar útbúnir talstöðv- lega þungbær. Hún var þá úti- lokuð frá ástkærum systkinum og vinum — frá ættlandinu. Sárabót var það þó, að yngsta systir hennar, Áslaug, ákvað að fara ekki heim í stríðsbyrjun, þegar hún átti þess kost — og stóð hún æ síðan við hlið henn- ar eins og bjarg. Að lokinni styrjöld, um nokk- urra ára skeið, naut Anna sólar frelsis og fegurðar, — þótt skuggi heimsþjáningarinnar fylgdi henni, því hún var þann- ig gerð, að hún lét sig skipta og tók þátt í, alheims vandamál- um, — alheimsböli. En persónulegar raunir biðu hennar á ný. Mikil, löng og ströng veikindi — svo við lá að líf hennar legð- ist í rústir. Á öllu sigraðist Anna Borg. Síðastliðið haust, er hún var hér í skyndiheimsókn ásamt eig- inmanni sínum, Poul Reumert, fórnaði hún hluta síns dýrmæta tíma á heimili okkar mæðgna. Hún kom eins og geisli á dimm- um degi, — sat við sjúkrabeð móður minnar, — umvafði okk- ur ástúð sinni. Fyrir þær stund- ir erum við systur henni þakk- látari en orð fást lýst. Hún ætl- aði að koma aftur — eiga með okkur margar góðar — glaðar stundir. í þá för lagði hún fyrr en búizt var við. Sterk og heil og störfum hlað- in, — sátt við örlögin, — hélt hún heim á leið, heim til elsk- aðra systkina, sonar, tengdadótt- ur, barnabarna og vina, — heim til landsins, — til alls þess sem hún þráði svo sárt og heitt — og sem engin bönd gátu haldið henni frá. Þeirri þrá fylgdi hún — sú þrá bar hana inn í eilífðina. Um leikkonuna Önnu Borg verða aðrir til að skrifa. Ég vil aðeins þakka henni það sem list um frá Landssímanum, Til eru erlendis talstöðvar og sjálfvirk miðunarsenditæki, fyrirferðar- lítil og heppileg fyrir smábáta. Má nú ekki flytja þessi tæki inn í landið og selja eins og önnur útvarps og sjónvarpstæki eða kemur það eitthvað í bága við lög og reglur Landssímans? Er ekki full ástæða nú, eftir svona sorgleg slys, að gera ein- hverjar ráðstafanir, sem stuðlað gætu að því að takast megi að bjarga fleiri mönnum úr sjáv- arháska. Vegna talstöðvarleysis bátanna, þá leituðu skipin eftir þeim í blindni, því að ekkert er til að fara eftir nema radar, sem sýnir smábát í frosti, byl og stórsjó mjög illa og stutta vegalongd, ef þá nokkuð sést nema land. Hefðu bátamir ver- ið útbúnir talstöð og sjálfvirk- um miðunarsenditækjum hefðu leitarskipin ekki þurft að leita í blindni og haft möguleika á hennar bar mér: hljóðleik há- sumarnæturinnar, þrótt fjalls og foss, bjarkailm og — blágresi. Þú varst Anna Borg — og það var enginn eins og þú. Þess vegna er þín saknað, — þess vegna ertu grátin. að bjarga í tíma. Erlendis eru sérstakar storm- tilkynningar lesnar í útvarp og frá strandstöðvum, smábátum á viðkomandi svæðum til varnað- ar. Getið er þar um að versn- andi veður sé í aðsigi og þeir beðnir að hafa alla gát á. Ef þessi regla hefði verið viðhöfð hérlendis, hefði mátt aðvara litlu bátana í tíma um að róa ekki svo langt, sem þeir gerðu, t. a. frá Dalvík austur á Gríms- eyjarsund. Veðurfræðingar hér vissu sólariiringi áður, að veður mundi breytast til hins verra, en reiknuðu ekki með þvílíku fár- viðri, sem skall yfir miklu fyrr en þeir bjuggust við. (Líklega er erfitt fyrir þá að fylgjast með lægðum í hafinu norður af ís- landi og vestur til Grænlands vegna ónógra veðurathugunar á þessu svæði). Bjargbelti er lögskipað að Þú áttir svo helga og háa trá — hún - logaði svo stillt, var svo fallega blá. Eins og sá logi lýsir þér nú um huliðsheima, vona ég og bið að hann megi einnig vera Ijós á vegum ástvina þinna allra. Steingerður Guðmundsdóttir. hafa á smáum og stórum skip- um og aðalgeymslupláss þeirra er kojan. Er það gott og blessað á stærri skipum, sem sökkva seint og þar ai leiðandi nægur tími að nálgast þau og setja á sig. En öðru máli er að gegna með þau skip, sem sökkva svo að segja á stundinni, og þekkj um við því miður allt of mörg sorgleg dæmi þess hér við land. Til eru gúmmíbjörgunarvesti, sem nóta má innanklæða, án þess að þau hái mönnum við vinnu, en sem hægt er með einu handtaki að blása út og taka í notkun á svipstundu. Er nú ekki tími til kominn og full ástæða að lögskipa notkun slíkra björg- unartækja á smærri fiskiskipum ef það gæti orðið til þess að bjarga nokkrum mannslífum? — L. J. • Hús, opna ekki í þættinum „Við sem heima sitjum“ síðasta þriðjudag var komizt að orði á þessa leið: „Síðan Þjóðleikhúsið opnaði” . . Ég bendi vinsamlegast á, að húsin opna ekki, heldur eru þau opnuð. Akureyringur. Sendisveinn óskast strax hálfan eða allan daginn. Gott kaup. — Upplýsingar í síma 17100.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.