Morgunblaðið - 23.04.1963, Qupperneq 17
Þriðjudagur 23. apríl 1963
MORCl'NBLAÐIÐ
17
Árni J. Johnsen
í DAG er jarðsettur Árni J. John-
sen. Hann lézt í Sjúkrahúsi Vesit-
mannaeyja 16. apríl s.l. eftir
stutta legu.
Hann var faeddur í Vestmanna-
eyjum 13. október 1892, sonur
ihjónanna Sigríðar Árnadóttur og
Jóhanns Jörgens Johnsens út-
végsbónda, hótel- og sjúkrahús-
haldara í Vestmannaeyjum.
Að Árna stóðu traustar og
land'skunnar ættir. Hann bar
nafn forföðurs síns, Árna sýslu-
manns Torfasionar að Eiðum.
Móðir hans, Sigríður, var dóttir
Árna Þórarinssonar frá Hofi í
Öræfum, af Svínafells og Skafta
fellsæittum hinum gömlu og af
aettum Þorsteins Magnússonar,
sýslumanns að Þykkvabæjar-
iklaustri og Odds biskups Einars-
sonar, en þær ættir hafa borið
marga ágæta menn.
Jóhann faðir Árna var sonur
J. Johnsens kaupmanns í Hafnar-
firði og á Papós og Guðfinnu Jóns
dóttux Austmanns frá Ofanleiti
í Vestmannaeyjum. Séra Jón
Austmann var dóttursonur Jóns
prófasts Steingrímssonar að
Kirkjubæjarklaustri og sonarson-
ur Jóns Runólfssonar lögréttu-
manns að Höfðabrekiku, af Höfða
brekkuætt.
Árni ólst upp á fjölmennu at-
hafnaheimili, þar sem bæði var
stunduð útgerð og landbúskapur,
Iþví að faðir hans hélt bænhús-
jörðina Kirkjubæ og fleiri járn
hafði hann í eldinum, og er áður
getið um hótelrekstur og sjúkra-
húshald. Mun þetta hafa verið
eitt fjöknennasta heimilið á Suð-
urlandi í þann tíma, og viðbrugð-
ið fyrir reglusemi og höfðings-
skap.
Árni missti föður sinn er hann
var á fyrsta ári, en alls voru
börnin 5, sem þá urðu föðurlaus,
og var Gísli þeirra elztur, þá 12
ára gamalil.
Það var að visu mikið skarð
fyrir skildi við föðurmissirinn
en Sigríður móðir þeirra hélt
búskap áfram með skörungs-
skap þrátt fyrir erfitt árferði og
aflaleysi áranna fyrir aldamótin.
Árni var snemma liðtækur til
hvers konar starfa og vandist
fljótt sjómennsku og bjargfugla-
veiðum, og var góður sigmaður.
Árni stundaði ungur nám við
Verzlunarskólann í Reykjavík
og Köbmandskolen í Höfn.
Framan af ævi stundaði Árni
kaupmennsku, útgerð og búskap
og margs konar umboðsstörf, en
hin síðari ár var hann matsmað-
ur og vigtarmaður hjá hafnar-
ajóði Vestmannaeyjakaupstaðar.
Árni var alla tíð maður mjög
félagslyndur og óspar á krafta
sina hvar sem þurfti að Ijá góðu
tnáli lið, eða hjálpa bágstöddum
og hefir hann gegnt margvísleg-
um trúnaðarstöðum fyrir ýmis
félagssamtök í Vestmannaeyjum.
Bindindismálin áttu hug hans
allan um ára bil, og barðist hann
ótrauðri baráttu í hópi góðtempl-
ara í Vestmanncyjum og var
seðstitemplar í stúkunni „Sunnu“
samfleytt í 25 ár. Árni var einn-
ig framarlega í flokki Sjálfstæðis
flokkisns um langt skeið.
Árni var söngmaður góður og
áhugam aður mikill um söng-
menningu. Hann var í fyrstu
lúðrásveit Vestm. og söng í kór-
usn þar í nær 60 ár og stjórnaði
um tíma verkamannakórnum í
Eyjum.
Hin mörgu björgunarafrek
Árna bera vitni frábæru þreki
og góðri sundkunnáttu, enda var
hann snemma góður sundmaður
og hafði á hendi sundkennslu
um skeið.
Árni hefur bjargað alls 8 mönn
um frá drukknun, á sundi, stund-
um við hinar erfiðustu aðstæð-
ur. Hiklaust má telja að Ámi
hafi með snarræði og dirfsku átt
mestan þátt í að það tókst að
hjarga 7 mönnum úr lífsháska
við Eldey hinn 26. ágúst 1939, en
Iþar unnu einnig fleiri djarfir
menn að. Árni hefur verið sæmd-
ux mörgum heiðursmerkjum.
Hann hefur 4 sinnum fengið verð
laun úr Carnegie-sjóðnum og ver
ið sæmdur riddarakrossi fálka-
orðunnar.
Áður en Vestmannaeyingar
eignuðust björgunarskip var ein-
att leitað til erlendra togara til
að leita að bátum, er taldir voru
í hættu. Voru þetta oft hinar
mestu svaðilfarir, en Árni fór
oft út í skip þessara erinda, þvi
að hann var þekktur að hjálp-
fýsi í þeim efnum og öruggur
til forystu.
Er því viðbrugðið að í einni
slíkri ferð huns út í skip hvolfdi
bát hans, en honum tókst að
halda sér og öðrum manni uppi
á sundi í 18 stiga frosti, unz þeir
komust, eftir klukkustundarvolk
í sjónum, að dönsku póstskipi
er lá á legunni.
Árni hefur verið heppinn með
lífsiförunauta. Fyrri kona hans
Margrét Jónsdóttir ól honum 6
mannvænleg börn, sem öll eru
á lífi, en þau eru Svala, hús-
freyja Suðurgarði Vestm., Ingi-
björg, kaupkona Vestm., Áslaug,
hjúkrunarkona og trúboði, kona
Jóhannesar Ólafssonar læknis í
Konsó, Gísli, sjómaður Vestm.,
Hlöðver, bankafulltrúi Vestm.,
og Sigfús, kennari, formaður fél-
ags ungra Sjálfstæðismanna í
Vestm. Margrét kona Árna var
rómuð gæða og myndarkona.
Hún léat eftir 30 ára sambúð
þeira hjóna.
Síðari lífsförunautur Árna var
Olga' Karlsdóttir. Börn þeiæra
eru 2 mannvænlegir synir, Guð-
finnur og Jóhannes. Olga er
dugnaðar og gæðakona. Auk þess
átti Árni þátt í að ala upp 4
fósturbörn.
Árni var um margt sérkenni-
leg persóna. Hann var hár vexti,
stórskorin-n og karlmannlegur,
höfðihglegur í framgöngu. Hann
var fullur af fjöri, lífsorku og
smi-tandi kátínu og krafti, sem
árin lítt gátu bugað fram á síð-
ustu stund. Hann vildi hvers
manns vandræði leysa og hikaði
ekki við að tefla á tæpasta vað
ið og leggja sjá-lfan sig í hættu
er um var að ræða að bjarga
mannslífum. Með Árna er geng-
inn góður drengur, sem átti í
ríikum mæli hugmyndaflug og
djörfung brautryðjandans.
Vinur.
Elías H.O.Gunnarsson
MIKIL og váleg tíðindi hafa yfir
dunið nú að undanförnu. Eftir
einn blíðasta vetur i manna
minnum var sem hendi væri
veifað og fárviðri skall á. Þegar
fyrsta og versta veðrinu slotaði,
vantaði sex fiskibáta og 16 vask-
ir sjómenn höfðu horfið. Fjöl-
mörg heimili drúpa nú í sorg
eftir sjóslysin mörgu og flug-
slysið hræðilega. Átakanlega
höfum við verið á það minnt,
að „bilið er mjótt milli blíðu
og éls — og brugðizt getur lukk-
an frá morgni til kvelds.“ ■
Einn hinna mörgu, sem héð-
an var kvaddur í blóma lífsins,
var Elías Halldór Gunnarsson,
annar tveggja, sem fórst með
vélbátnum Magna frá Þórshöfn
í mannskaðaveðrinu á þriðjudag,
9. þ. m. Fór útför hans fram frá
Sauðaneskirkju sl. laugardag.
Elías Halldór Ólafur Gunnars-
son, en svo hét hann fullu nafni,
var fæddur á ísafirði 15. okt.
1932, sonur hjónanna Þóru Elías-
dóttur frá Melkoti í Stafholts-
tungum og Gunnars Einarssonar
sjómanns, sem látinn er fyrir
nær 11 árum. Elías var hjá for-
eldrum sínum á ísafirði til 8 ára
aldurs, en fór þá til frændfólks
síns í Melkoti og dvaldist með
þeim fram undir tvítugsaldur.
En þegar móðir hans varð fyrir
þeirri sáru sorg að missa mann
sinn á góðum aldri, hvarf Elías
til hennar og hjálpaði henni sem
mest hann mátti. Heimili þeirra
var í Hafnarfirði og stundaði
Elías — ásamt bræðrum sín-
um — sjóinn látlaust og lá aldrei
á liði sínu. — Árið 1960 gekk
hann að eiga Aðalheiði Sig-
tryggsdóttur — ættaða frá Þórs-
höfn — og áttu þau þrjú ung
börn. Flutzt höfðu þau norður
til Þórshafnar fyrir tveimur ár-
um.
Ég, sem þessar línur rita,
fylgdist með þroska og uppvaxt-
arárum Elíasar, og hann var allt-
af elskulegur og góður vinur
okkar hjónanna og drengjanna
okkar — og við minnumst hans
nú með söknuði og þakklæti.
Ástríki og umhyggju var hann
vafinn á æskuheimilinu í Mel-
koti — og frænka hans Jóhanna
reyndist honum sem hin bezta
móðir. Ég sá hann vaxa upp og
verða glæsilegan ungan mann,
glaðlegan og hugþekkan í fasi
og framgöngu. Því var það, að
öllum var hlýtt til hans, sem
honum kynntust, og gott var að
njóta dugmikilla starfskrafta
hans. Hjálpfýsi hans gleymist
okkur eigi — hana fengum við
að reyna eitt sinn, er við vorum
í vanda stödd.
Fregnir hafði ég litlar af Elí-
asi eftir að hann fluttist norður,
en þar mun þeim hjónum yfir-
leitt hafa vel vegnað,
Ég ætla ekki að fjölyrða um
harminn, sem nú er kveðinn að
ástvinum hans, en með innilegri
samúð hugsum við til eiginkonu
og barna, móður og systkina og
frændfólksins í Melkoti og á
Akranesi, sem öll kveðja vininn
sinn með þakklæti og fyrirbæn-
um. Það er húggun harmi gegn
að minningar eru bjartar og fagr
ar um úrvalsdreng, sem var í
senn hugljúfur og ljúfur — og
síðast en ekki sízt: að víst mun
upp renna stund endurfunda.
Bergur Björnsson.
I.O.G.T
St. Verðandi nr. 9
Fundur í kvöld kl. 8.30 í
GT-húsinu. Félagar munið að
mæta vel og stundvíslega.
Æt.
PILTAR.==
EF Þll> EIGIÐ UNKUSTUNA ,
ÞÁ Á ÉG HRINOANA /,
/fJatífrær/8 \
T résmíðaþvingur
Höfum enn nokkur stk. af eftirfarandi stærðum
á gamla verðinu:
25 cm á kr. 115.00
40 — — 124.00
50 — — 130.00
60 — — 136.00
70 — — 142.00
100 — — 158.00
150 — — 189.00
ásm
LUDVIG
STQRR
Sími:
1-33-33.
Byggingafélag Alþýðu Reykjavík
íbúð til sölu
2 herb. íbúð til sölu í III. byggingaflokki. Umsókn-
um sé skilað í skrifstofu félagsins BræðrabOrgar-
stíg 47 fyrir kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 2. maí.
STJÓRNIN.
2—3jci herb. íbúð
óskast til leigu fyrir eldri hjón, helzt í Norðurmýri
eða grennd. — Upplýsingar í síma 18028.
5 herb. hœðir
Til sölu eru glæsilegar 5 herbergja íbúðarhæðir
í sambýlishúsi, sem verið er að reisa við Kapla-
skjólsveg stutt frá Hringbrautinni. Stærð hverrar
íbúðar er ca. 135 ferm. 2 stofur, 3 svefnherbergi,
eldhús með borðkrók, bað, forstofur o. fl. Sér
þvottahús inn af eldhúsi. Sér miðstöðvarkerfi fyrir
hverja íbúð. Seljast tilbúnar undir tréverk, húsið
fullgert að utan, sameign inni múrhúðuð. Tvö-
falt gler.
ÁRNI STEFÁNSSON, hrl.
Málflutningur — Fasteignasala.
Suðurgötu 4. — Sími 14314.
Kvenpeysur
Amerískar unglinga og kvenpeysur í Ijósum litum.
★ HEILAR PEYSUR kr. 95.—
★ GOLFTREYJUR kr. 125.—
Höfum kaupanda
ao gooum ája og 4ra nerbergja íbuðum eða tvær
4ra herbergja í sama húsi, á hitaveitusvæði, margt
kemur til greina. Mikil útborgun.
Austurstræti 14 3. hæð
símar 14120 og 20424.