Morgunblaðið - 26.02.1963, Side 1
24 siður
Eldhafið' var gífurlegt er húsið við Suðurlandsbraut brann til kaldra kola. (Ljósm. Sv. Þ.).
Sallal
^hótar
innrás
ú Saudi-Arabíu
Aden, 25. febrúar. — AP
FORSETI Jemen, Abdullah
Sallal, hefur lýst því yfir, að
hann hafi strengt þess heit
að gera innrás í Saudi-Arabíu,
segir í dag í útvarpsfréttum
frá Sanaa.
Sallal skýrði frá þessu í
dag, er hann var viðstaddur
hersýningu í Sanaa.
Hann sagði m.a.: „Það hefur
verið hugmynd mín alla ævi að
sameina Araba, en fyrst verðum
við að losa okkur við sýkla eins
og Hussein, Jórdaníukonung, og
Saud, konung í Saudi-Arabíu.
Það mun ekki líða á löngu,
unz þið munuð heyra fregnir af
því, að þeir séu á flótta og leiti
sér hælis í ej ðimörkinni".
Síðan bar Sallal mikið lof á
Nasser, Egyptalandsforseta. —
Lýsti Sallal því yfir, að Egyptar
hefðu fórnað lífi sínu til þess að
frelsa Jemen undan ógnum ein-
ræðis.
Þrennt brann inni í
eldsvoða i Reykjav.
Keímilísfaðirinn bjargast ásamt þremnr börnum
sínum. Eitt þeirra brenndist illa
I»AÐ HÖRMULEGA slys varð sl. sunnudagsmorgim að
þrjár manneskjur brunnu inni í húsi við Suðurlandsbraut,
er brann til kaldra kola á skammri stundu. Svo magnaður
var eldurinn, að heimilisföðurnum tókst aðeins að bjarga
einu barna sinna út um glugga, en er hann hugðist bjarga
konu sinni og annarri dóttur komst hann ekki inn í eld-
hafið. Gestur var staddur í húsinu og fórst hann án þess
að hægt væri að koma honum til hjálpar.
50 metra háir
ðogar á Schelde
- er olíuskip rekast d - 67 saknað við
Japan - 3 farast d Miðjarðarhafi
Haag, Tokyo, Aþena, 25. febr.
— (AP — NTB) —
T V Ö stór olíuflutningaskip
rákust á í dag á Schelde. Mik-
ill eldur kom upp, og rennur
logandi olían um fljótið, sem
er alelda á stóru svæði. Staf-
ar mikil hætta af eldinum, og
er haldið uppi björgunarstarfi,
bæði til að bjarga mönnum,
sem eru í hættu, og tii að
forða því, að eldurinn berist
til fleiri skipa.
Skipin, sem hér um ræðir,
eru „Miraflores“, 21.000 tonna
skip frá Panama, og brezka
skipið „Abadesa", 13.350 tonn
að stærð.
Þá sökk grískt skip, „Egli“,
er var á leið frá Saloniki til
Alexandriu.
Loks bárust í gærkvöld
fréttir af sjóslysi við Japan.
Mun það mest þeirra slysa, er
urðu í gær.
Er síðast fréttist, var sakn-
að 7 af áhöfn „Miraflores“,
en áhöfn hins skipsins mun
heil á búfi.
Þegar eftir slysið var eld-
urinn mjög magnaður, og eru
Framh. á bls. 2
EBE?
Aðelns elnn ráðherra mætti á ráðherra>
fundi bandalagsins í Hriissel í gær
Nánari atvik eru sem hér
segir:
Laust fyrir ki. 8 á sunnudags-
morguninn kom upp eldur í hús-
inu nr. 94 F við Suðurlandsbraut.
Húsið var úr timbri, ein hœð og
ris. í húsinu bjó eigandi þess,
Björn Kjartansson, húsgagna-
smiður, ásamt konu sinni, Helgu
Elísbergsdóttur og börnum þeirra
Guðrúnu Ástu, 10 ára, Sesselju,
9 ára, og tvíburunum Pétri og
Elisu, 5 ára. Gestkomandi í hús-
inu, var Úlfar Kristjánsson, raf-
virki, til heimilis að Suðurlands-
braut 94 H.
Húsið varð alelda á skammri
Btundu, og brunnu inni húsmóðir
in Helga, Elísa dióttir hennar, og
gesturinn, Úlfar Kristjánsson.
Lætur hann eftir sig konu og 3
ung börn, 5 ára, 7 ára og 8 ára.
Björn, kona hans og dæturnar,
Washington, 25. febr. — AP.
Bandaríkin veittu í dag Ind-
landi lán að upphæð 240 millj.
dala. Tekið var fram, að hér
væri ekki um hernaðaraðstoð að
ræða. Þetta er stærsta lán, sem
veitt hefur verið í aðstoð við
©nur lönd, frá því að Marshall-
éætlunin var í framkvæmd. Þó
fengu Bretar stærra lan.
Sesselja og Elísa, sváfu í her-
bergi í rishiæð hússins. Guðrún
Ásta og Pétur litli sváfu á neðri
hæð hússins í herbergi, sem var
beint undir svefnherbergi for-
eldra þeirra, en Úlfar var í stofu
á neðri hæð.
Húsráðandi varð fyrst var
við eldinn
Björn varð fyrst eldsins var.
Hann vaknaði við hávaða, er
hann telur hafa verið snark í
eldi, og er hann reis upp í rúmi
sínu komu eldneistarnir inn um
dyr herbergisins, en þar sem hús
ið var ekki fullgert, var ekki
hurð í dyrunum. Björn þreif þeg-
ar til konu sinnar og hrópaði.
Telur hann hana hafa gefið frá
sér hijóð og taldi hana því hafa
vaiknað við hrópin. Þaut hann
síðan að glugga herbergisins og
braut stærstu rúðuna í honum og
fór þar út og lét sig falla niður
á jörð, sem er 3—4 m fall. Hann
vissi af stiga skammt frá og sótti
'hann í skyndi. Stigann reisti hann
upp við gafl hússins og fór upp
að svefnherbergisglugganum og
var Sesselja litla, er hafði vakn-
að við hróp föður sins, þá komin
að glugganum og tók hann hana
út og fór m-eð hana niður stigann
og lét hana falla siðasta spölinn
til jarðar, þaut síðan aftur upp,
en er hann tók í gluggakarminn
og ætlaði inn, brenndist hann á
hendi, enda gaus eldfhafið móti
honum og var alls ófært að kom
ast inn í húsið aftur. Hvorki
heyrði hann í konu sinni né dóitt-
ur.
Tvö böm komust út
um glugga
Guðrún Ásta vaknaði á neðri
hæðinni við hróp föður síns og
Framhald á bls. 2.
Brússel, 26. febr. — AP ,
VIÐ SJÁLFT liggur, að
ráðlicrrafundur Efnahags-
bandalags Evrópu, sem standa
á í dag og á morgun í Brússel,
fari algerlega út um þúfur.
Er fundur var settur í dag,
var aðeins einn ráðherra
mættur, utanríkisráðherra
Luxembourg, Eugene Sch-
auss, er vera átti í forsæti.
Belgía, Holland og Ítalía
sendu engan ráðherra til
fundarins. Ludwig Erhard,
efnahagsmálaráðherra V-
Þýzkalands, er í Brússel, en
hann mætti ekki til fundar-
ins. Er talið, að hann hafi átt
viðræður við fulltrúa nokk-
urra landa í EBE, til þess að
reyna að koma á einhverri
samstöðu, sem virðist hafa
farið út um þúfur, eftir að |
slitnaði upp úr viðræðum
Breta og fulltrúa EBE.
Couve de Murville, utanrík
isráðherra Frakka, mun ekki
hafa átt að mæta til fundar-
ins, fyrr en á morgun.
Fundurinn í dag, sem haldinn
var, þótt ráðherrar 5 landa væru
fjarverandi, stóð fyrir luktum
dyrum. Þó hefur frétzt, að ' til
umræðu hafi komið samþykkt
Evrópuþingsins í Strassborg,
Framih. á bls. 23.
/
4