Morgunblaðið - 26.02.1963, Page 23
Þriðjudagur 26. febrúar 1963
23
MORCVISBL AÐIÐ
Næionsokkaverk-
smiðja á Akranesi?
Myndin er tekin við vök í Lagar-
fljóti, seœ. var lögð ísi. Borað
var gat á svellið og eldspýta
borin að.
Meira gas
í Lagarfljóti
EGILSSTÖÐUM, 26. febrúar. —
Á sunnudag fórum við fjórir
héðan úr Egilsstaðakauptúni til
þess að athuga um vakir sem
eru skammt undan bænum Buðl
ungavöllum inn af Hallormsstað.
Þegar við komum að staðnum
voru vakir í ísnum með sömu
einkennum og við Hreiðarsstaði,
sem er í beinni loftlínu 15—20
km. frá Buðlungavöllum. Gas
streymir sífellt upp úr vatninu
og er það sízt minna að sjá.
— Ari.
— Sundrung
Framhald af bls. 1.
Vegna afstöðu Frakka til Breta.
Samþykktin mun hafa verið í
tveimur liðum, og var henni að
hluta beint til stjórnarnefndar
EBE. Þar er þess farið á leit við
nefndina, að hún gangi frá sér-
stakri skýrslu um viðræðurnar
við Breta. Nefndin mun þegar
hafa gert uppkast að slíkri
skýrslu, og er haft eftir áreið-
anlegum heimildum, að þar sé
tekin afstaða, sem er Bretum í
yil.
Jean Marc Boegner, ambassa-
dor, er var fulltrúi Frakka á
fundinum í dag, er sagður hafa
róðizt heiftarlega gegn samþykkt
Evrópuþingsins, á þeim grund-
velli, að hún ætti sér enga laga-
lega stoð.
Fulltrúar annarra landa á fund
inum segja, að Boegner hafi
sagt, að viðræðurnar við Breta
hafi farið fram á viðunandi hátt,
þátttakendur í þeim hafi verið
ábyrgir ráðherrar. Stjórnarnefnd
in hafi ekki vald til að hafa þau
afskipti af mólinu, sem nú hafi
verið farið fram á.
Lýsti Boegner því yfir í
lok ræðu sinnar, að Frakkar
tækju ekkert mark á yfirlýs-
ingum Evrópuþingsins — og
kærðu sig kollótta um afieið-
ingamar.
Dirk Spierenburg ambassador,
fulltrúi Hollendinga, réðst harka
lega gegn afstöðu, Boegners. —
Sagði Spierenburg, að hann
vildi láta gera skýrslu þá, er um
væri að ræða, og vildi hann, að
hún yrði síðan tekin til um-
ræðu, ásamt hinni samþykkt Ev
rópuþingsins. Sú samþykkt, sem
hér um ræðir er á þá leið að hald
ið skuli uppl nánum viðræðum
við Breta á öilum sviðum við-
Skiptalífsins.
■ Á morgun, þrlðjudag, er gert
ráð fyrir, að til umræðu verði
samningur sá, sem til stóð að
gera við 18 Áfríkulönd, er áður
voru (öll nema 2) nýlendur
Frakka.
Talið er vfst, að Frakkar, sem
er mjög í mun að þessi samn-
ingur verði undirritaður — hann
felur í sér 720 millj. dala að-
Btoð við þessi lönd — muni mæta
mikilli mótspyrnu.
ítalir og Hollendingar munu
ekki vilja undirrita samninginn,
og bera við kosningum heima
fyrir á næstunni.
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI á
Akranesi 25. janúar síðastliðinn
var skýrt frá því, að bæjarstjóra
hefði borizt erindi frá Inga Þor-
steinssyni, viðskiptafræðingi í
Reykjavík, þar sem Ingi sækir
um leyfi til þess að koma á fót
og starfrækja nælonsokkaverk-
smiðju á Akranesi.
Ráð er fyrir gert að verk-
smiðja þessi veiti 20—30 konum
og körlum atvinnu strax og hálfu
fleira að ári liðnu. Óskað var
eftir að bærinn tæki á sig á-
byrgð fyrir hluta af erlendu láni
að upphæð 2 milljónir króna,
sem nota á til að koma verk-
smiðjunni á fót og til tryggingar
er boðin full baktrygging.
Var bæjarstjóra falið að afla
frekari upplýsinga og leita um-
sagnar Iðnaðarmálastofnunar
eða annars hlutlauss aðila um
málið áður en það yrði tekið til
endanlegrar afgreiðslu.
Morgunblaðið hafði í gær tal
af Björgvin Sæmundssyni, hæj-
arstjóra á Akranesi, og innti
hann eftir áhuga Akurnesinga
fyrir því að slik verksmiðja risi
í bænum.
„Það er mikill áhugi á því að
af þessu geti orðið. Slík verk-
smiðja mundi leiða til meiri fjöl-
breytni í atvinnulífi okkar, en
flest atvinnutæki okkar nú eru
til grófs iðnaðar. Okkur vantar
/neiri breidd í atvinnulífinu, ein-
hver störf fyrir þá bæjarbúa,
sem hentar ekki hinn erfiðari
vinnumarkaður.
Erindinu fylgdi greinargerð
Inga Þorsteinssonar, og hún hef-
ur verið send til umsagnar
Framkvæmdabankans. —• Rann-,
sókn er þannig í gangi, og með-
an henni er ekki lokið liggur
málið og bíður. Þegar rannsókn-
inni er lokið verður gengið til
samninga, eða það er að segja,
svo framarlega sem hún færir
okkur jákvæðar niðurstöður".
Aðspurður hvernig starfsemi
verksmiðjunnar væri hugsuð og
hvort bærinn yrði eigandi að
hluta, svaraði Björgvin:
„Gert er ráð fyrir frjálsri sam-
keppni við innflutta sokka án
allra verndartolla og hafta. Um
framleiðslumagn get ég ekki
sagt, en mér skilst að fram-
leiðslan muni áreiðanlega skipta
hundruðum þúsunda para á ári.
Ef umsögn Framkvæmdabank-
ans verður jákvæð mundi bær-
inn greiða fyrir að koma verk-
smiðjunni á fót, en bænum hef-
ur ekki verið boðið, né heldur
hefur hann beðið um að verða
aðili að starfrækslu hennar“.
Engar launahækkanir
engar verðhækkanir
- boðskapur Krag, sem ber fram nýtt efna-
hagsmálafrumvarp í danska þinginu
Kaupmannahöfn, 25.
— (NTB) —
JENS Otto Krag, forsætisráð-
herra Dana, lagði i dag fyrir
danska þingið frumvarp í 12 lið-
um um lausn efnahagsvandamála
landsins.
Miðar frumvarpið að því, að
sögn flutningsmanns, að berjast
gegn verðbólgu og skapa efna-
hagslegt jafnvægi. Felst í því
m.a., að komið verði í veg fyr-
ir launahækkanir og verðlagi
febrúar.. haldið niðri. Þá skal tekið fyr
ir aukinn ágóöa.
Forsætisráðherrann lýsti því
yfir við þetta tækifæri, að náið
samhengi væri milli liðanna 12.
Stuðli það að þjóðfélagslegu
jafnvægi. Sagði hann, að ekki
væri hægt að slíta samhengi
þetta með því að fella niður ein-
staka liði.
Krag sagði ennfremur, að ef
tekj'ur landsmaima færu sífellt
vaxandi, jafnhliða því, sem skatt
ar væru lækkaðir, þá gæti ekki
farið hjá því, að gjaldeyriseign
Myndum beita okkur
gegn aðild að EBEy/
Brussel, 25. febrúar — (AP) —
Á FyNDI verkamanna-' og sósíal
istaflokka V.-Evrópu, sem stað-
ið hefur í Briissel um helgina,
hefur komið fram, að brezki
Verkamannaflokkurinn myndi
ekki stuðla að aðild Breta að
Brynjúlfur
Dag sson látinn
BRYNJULFUR Dagsson, hérí.»*.
læknir í Kópavogi, varð bráð-
kvaddur sl. laugardag. Kenn^i
hann lasleika er hann ók bifreið
sinni austur fyrir Fjall, en hélt
samt ferðinni áfram. Varð hann
þó brátt að láta af akstrinum, og
ók dóttir hans það sem eftir var
leiðar að Selfossi, en þangað mun
ferðinni hafa verið heitið. Lézt
Brynjúlfur þar skömmu síðar.
Brynjúlfur Dagsson var fædd-
ur í Þjórsárholti 1905, sonur
Dags Brynjúlfssonar bónda þar
og konu hans, Þórlaugar Bjarna-
dóttur. Hann lauk stúdentsprófi
1930 og kandidatsprófi í lækniá-
fræði 1936. Eftir það var hann
um hríð við framhaldsnám. —
Hann gegndi héraðslæknisstörf-
um m.a. í Reykdælahéraði, Dala-
landsmanna gengi til þurrðar, I héraði og nú síðast í Kópavogs-
atvinnuleysi færi vaxandi og héraði eftir að kaupstaðurinn
framleiðsla minnkandi. I varð sérstakt læknishérað 1956.
— Æskulýðsheimili
Framh. af bls. 24
Hákon Hertervig arkitekt ann-
azt teikningar þeirra. Verkið var
unnið undir yfirstjórn iðnmeist-
ara frá Síldarverksmiðjum rík-
isins.
Allmargar stofnanir Og fyrir-
tæki, hafa afhent heimilinu
margan góðan grip, t. d. vandað
útvarpstæki, skuggamyndavél,
taeki til ljósmyndastækkunar o.
fl.
Við athöfnina í ær kvaddi sér
fyrstur hljóðs Vilhjálmur Guð-
mundsson, framkvæmdastj. Síld-
arverksmiðjanna, og afhenti séra
Ragnari Fjalar Lárussyni lykla
að húsnæðinu. >á talaði séra
Ragnar, þakkaði SR rausnarleg-
an stuðning við málefnið og
rakti aðdraganda að stofnun
heimilisins. Ennfremur tók til
máls Baldur Eiríksson, forseti
bæjarstjórnar og þakkaði for-
göngumönnum málsins farsæl
störf í þágu þess. Loks tóku til
máls Óli Hertvig, fyrrum bæjar-
stjórL en Æskulýðsheimilið er
til húsa í hinu gamla íbúðar-
húsi hans, og Ólafur Ragnars,
form. Lionsklúbbsins, sem af-
henti um leið fjárframlag til
starfseminnar.
Bæjarstjórn Siglufjarðar hef-
ur einnig styrkt starfsemina með
50 þús. kr. framlagi 1962 og öðru
eins í ár.
Jón Pálsson, tómstundaráðu-
nautur í Reykjavík, hefur verið
Æskulýðsráði til aðstoðar við
undirbúning og skipulag starfs-
ins. Loks er þess að geta að um
300 unglingar hafa þegar innrit-
að sig á námskeið í Æskulýðs-
heimilinu, en þar mun verða
I kennt í sjö greinum til að byrja
1 með. — Stefián
Efnahagsbandalagi Evrópu, né
þátttöku Breta í Evrópusam-
starfi, kæmist hann til valda.
Yfirlýsing fulltrúa flokksins
eru á þann veg, að hvorki aðild
eða náin tengsl við Evrópu komi
til greina á næstu árum — a.m.k.
ekki meðan reynt sé að beita
Breta efnahagslegum þvingun-
um.
Fulltrúar Verkamannaflokks-
ins á ráðstefnunni eru Patrick
Gordon Walker, varatalsmaður í
utanríkismálum, og David Enn-
als.
Fundurinn í Briissel var ein-
róma í því áliti sínu, að nauð-
syn bæri til þess, að EBE und-
irritaði samninga þá við 18 Af-
ríkulönd, sem rætt hefur verið
um. Á það er bent, í þessu sam-
bandi, að Ítalía hafi farið þess
á leit við önnur ríki í EBE, að
undirritun þessa samnings verði
frestað. Er því borið við af hálfu
ítölsku stjórnarinnar, að hún
geti ekki tekið á sig þá ábyrgð,
sem því er samfara, svo skömmu
fyrir þingkosningar í landinu.
Maður fyrlr bíl
LAUST fyrir kl. 10 í morgun
varð gangandi maður, Guð-
mundur Þorsteinsson frá Klafa-
stöðum í Skilmannahreppi, fyr-
ir bíl á Laugarnesvegi við Sund
laugarveg. Guðmundur var
fluttur í slysavarðstofuna en
meiðsli hans munu ekki hafa
verið alvarleg.
Sagan af dáfanum
eftir Stravinsky
útvarpinu í kvöld
i
og textinn verður birtur i næstu
Lesbók Morgunblaðsins
FULL ÁSTÆÐA er til að vekja
athygli á því að í dagskrá Ríkis-
útvarpsins verður í fyrsta skipti
flutt hér á landi „Sagan af dát-
anum“ eftir Igor Stravinsky.
Sömuleiðis skal vakin athygli á.
að textinn, sem er eftir sviss-
neska rithöfundinn Charles
Ferdinand Ramuz, verður birt-
ur í næstu Lesbók Morgunblaðs-
ins í þýðingu Þorsteins Valdi-
marssonar.
Saga þessa skemmtilega lista-
verks er á þann veg, að þagar
Igor Stravinski dvaldist í Sviss
sem útlagi eftir rússnesku bylt-
inguna, var hann félaus með
öllu eins og fleira flóttafólk á
þeim árum. Vinir hans tveir, rit-
höfundurinn Ramuz og hljóm-
sveitarstjórinn Ansermet hvöttu
þá Stravinsky til að semja verk
þetta, en Ramuz' samdi textann
eftir efni gamallar rússneskrar
þjóðsögu um dáta, sem seldi
kölska sál sína.
Þeir félagar hugðust fara með
verkið í hljómleikaför um allt
landið í einskonar trúðleikara-
vagni, enda er verkið samið
þannig að það sé sem hentugast
í slíkum ferðalögum, hljóðfæra-
leikarar aðeins 7 og leikendur 3.
„Sagan af dátanum" var fyrst
flutt í Lausanne 1918 undir stjórn
Ansermet, en „spánska veikin“,
sem þá tók að geisa á Sviss, eins
og annars staðar í álfunnit trufl-
aði fyrirætlanir þeirra. Engu að
síður náði verkið fljótt feikna
vinsældum, og nýtur þeirra enn,
hvar og hvenær, sem það er flutt.
Eitt sinn kom til tals að leika
verkið á sviði hér heima og var
undirbúningur kominn svo langt,
að Nína Tryggvadóttir hafði gert
teikningar af búningum og tjöld-
um.
Textinn verður fluttur af þeim
Þorsteini Ö. Stephensen (sögu-
maður) Gtsla Halldórssyni
(kölski) og Gísla Alfreðssyni
(diátinn). Tónlistina leika sjö
hljóðfæraleikarar úr Sinfóníu-
hljómsveit íslands. — Stjóm-
endur eru þeiir Lárus Pálsson
og Páll Pampichler Pálsson. —
„Sagan af diátanum“ tekur rúma
klukkustund í flutningi, og hefst
hann kl. 20.00 í kvöld.
Efstasundl - Efsfasund!
Duglegur unglingur óskast strax til að bera Morgun-
blaðið til kaupenda þess við Efstasund. Talið við skrif-
stofu eða afgr. Morgunblaðsins strax.
Sími 22480