Morgunblaðið - 26.02.1963, Side 24
sparið og
notið Sparrl
IHorgMMÍMafrifo
47. tbl. — Þriðjudagur 26. febrúar 1963
Vörubíllinn á hliðinni við Elliðaár í gærmorgun. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.).
Bílvelta við
Elliðaárbrýr
1 GÆRMORGUN varð harður
árekstur á Suðurlandsbraut við
Elliðaárbrýrnar, er vörubíll með
sandhlass ók aftan á lítinn fólks-
bíl, kastaði honum áfram, svo að
litlu munaði að hann steyptist
útaf veginum i ána, og valt síð-
an sjálfur útaf veginum hægra
megin. Slys urðu ekki á mönn-
um.
Nánari atvik voru þau að
Skodabíl var ekið austur Suður-
landsbraut. og hugðist ökumað-
urinn, sem er lögreglumaður,
beygja inn á Skeiðvallarveginn.
Nam hann staðar til að bíða
eftir umferð á móti, og gaf
stefnumerki.
Skall
á ljósastaur
Vörubíllinn var spölkorn á
eftir Skodabílnurn, en hvað sem
valdið hefur, lenti hann aftan
á Skodabílnum, sem stóð kyrr.
Hentist fólksbíllinn áfram á
vinstri vegarbrún en ökur. anni
tókst að koma í veg fyrir að
hann ylti niður snarbratta
brekkuna, sem þarna er, og nerpa j
staðar aðeins 50 cm. frá brúar-
stöplinum. Má telja happ að ekki
varð þarna slys.
Vörubíllinn hélt hinsvegar á- '
fram og útaf veginum hægra
megin, þar sem hann valt á 1-lið- !
ina og sandurinn helltist af hon-
um. Ökumennirnir voru einir í
bílum sínum og sakaði hvorug-
an.
IHá ekki bíl sjá
LAUST eftir klukikan 10 í gær
kveldi rann strætisvagn til í
íhiálku á Baldursgötu og lenti
Utan í ljó'sastaur. Varð af tals-
verður skellur, sem heyrðist um
nágrennið, en skemmdir munu j svo langt að fá þau, þar sem
litlair haifa orðið á vagninum og hann var tekinn til við þessa
staurnum. Farþega sakaði ekki. I iðju áður en hann varð 17 óra,
— án þess að stela
andi bíladella
LÖGREGLAN I Reykjavík á i
miklum brösum vl” 23 ára
gamlan pilt, sem virðist haldinn
gjörsamlega ólæknandi bíladellu.
Hefur hann stolið hverjum bíln-
um á fætur öðrum og ekið um
götur borgarinnar, og þá tekið
bíla ættingja sinna og vanda-
lausra jöfnum höndum. Á föstu-
dag og laugardag tók hann þann-
ig ófrjálsri hendi tvo bíla, og
náðist loks síðari hluta laugar-
dagsins inni í klæðaskáp í íbúð
annars bíleigandans en þar hafði
hann falið sig.
Piltur þessi er ökuréttindalaus,
og hefur raunar aldrei komizt
Æskulýðsheímjli
opnaðá Siglufirði
honúm — ólækn-
ungs manns
en biladellan mun hafa hrjáð
hann frá barnæsku.
Sl. föstudag tók hann bíl föð-
ur síns ófrjálsri hendi og kærði
faðirinn það til lögreglunnar.
Fannst bíllinn brátt, en piltur
ekki.
Lét hann nú skammt stórra
högga í milli, því að á laugar-
daginn tilkynnti eínn ættingja
hans lögregiunni að bíll hans
væri horfinn, og mundi piitur-
inn þar enn á ferð. Lögregl^n
hóf þegar leit í bænum og gerði
leigubílstöðvum aðvart, en tal-
stöðvarbílar stöðvanna eru mjög
gagnlegir, er finna þarf stolna
bíla.
Eftir um klukkutíma leit sá
lögreglan til ferða piltsins í
Vesturbænum. Varð hann var
við að hann væri eltur, enda
slíku ekki óvanur, og tóik til þess
bragðs að auka ferðina og ók
sem snarast þangað sem hann
hafði tekið bílinn. í>ar hljóp pilt-
urinn út úr bílnum og inn í íbúð
eigandans, þar sem hann faldi
sig í klæðaskáp. Fann lögreglan
hann þar.
1 GÆR var opnað við hátíðlcga
athöfn Æskulýðsheimili að Vetr-
arbraut 6 hér í bæ, í svonefndu
Hertervigshúsi. Forsaga þessa
máls er sú að fyrir rúmu ári var
því hreyft í Lionsklúbbnum hér
hvort ekki væri tök á að koma
hér á fót Æskuiýðs- og tóm-
stundaheimili.
Lionsklúbbur beitti sér síðan
fyrir því að eftirtalirf fé-ög tóku
höndum saman um að hrinda
þessu máli í framkvæmd: Rotary
klúbburinn, Æskulýðsfélag
Siglufjarðarkirkju. Siysavarnar-
deildin Vörn, Kvenfélagið Von,
Kvenskátafélagið, Skátafélag
Drengja, Skiðafélag Siglufjarð-
ar, Knattspymufélag Siglufjarð-
ax og stúkan Framsúkn. Þessi
félög kusu öll einn fulltrúa í
svonefnt Æskulýðsráð og kom
það saman til fyrsta fundar í
febrúar 1962. Stjórn ráðsins skipa
séra Ragnar Fjalar Lárusson
formaður, Vilhjálmur Guðmunds
son, frkv.stj. ritari og frú Herdís
Guðmundsdcttir, gjaldkeri.
Tæpu ári eftir fyrsta fund ráðs
ins var heimilið í Hertervigshúsi
vígt. Það sem mestu réði um hve
mól þetta komst skjótt í fram-
kvæmd var að Síldarverksmiðj-
ur ríkisins létu innrétta hæð í
Hertervigshúsinu til þessarar
starfsemi og afhenti síðan Æsku-
lýðsráði til notkunar yfir vetrar-
mánuðina. Er innréttingu sér-
staklega hagað með æskulýðs-
starfsemi fyrir augum, og.hefur
Framih. á bls. 23
Lögreglan hefur miklar á-
hyggjur af pilti þessum þar sem
hann virðist alls ekki geta látið
bíla í friði. Er hann jafnan á
varðbergi er hann ekur um, en
lögreglan verður að sjálfsögðu
að elta hann til þess að ná bíln-
um. Er það þá vandi piltsins að
aka sem hraðast um göturnar
til þess að reyna að sleppa. Má
hver maður sjá hver slysahætta
er af slíku.
Sjálfur segist pílturinn ekki
geta látið af þessari áráttu, og
ennfremur að hann muni halda
áfram að taka bíla ófrjálsri
hendi. Hann geti einfaldlega ekkd
annað.
Skammt er um liðið síðan
bróðir hans varð að snúa sér til
lögreglunnar, því að þá hafði
pilturinn tekið bíl hans.
Influenza af A-stofni
Herjar nú á
INFLÚENZAN fer vaxandi í I
bænum. í gær herjaði hún í liði:
lögreglumanna og voru 14—15
þeirra orðnir veikir. Þar sem j
lögreglan er fáiiðuð fyrir urðu:
margir morgunvaktarmenn, sem
áttu að ljúka vinnu kl. 12.30 að
halda áfram til kl. 8 í gærkvöldi
og hæta þannig á sig 7(4 tíma
Vinnu.
Borgarlæknir tjáði blaðinu að
bóluefni gegn inflúenzunni væri
væntanlegt í dag. Mundi lækn-
um þá gefinn kostur á að fá
bóluefni til notkunar þar sem
lögregBuna
þeim þurfa þætti. En ekki þættl
ástæða til allsherjarbólusetning
ar fyrst um sinn. Veikin virtist
ekki þung, en það sem hægt
væri að ráða af næturlækms-
beiðnum væri hún að aukast.
Mbl. leitaði frétta af flenzu-
stofninum hjá Margréti Guðna-
dóttur lækni á Keldum. Var hún
búin að greina eina prufuna frá
Elliheimiiinu, sem reyndist vera
af A2-stofni, en inflúenzan, sem
gengur í Bandarí'kjunum, er em
mjtt af þeim stofni.
Þýzkur togari reynir
síldaríroll hér
Fékk 30 tonn af síld og sprengdi trollið
Vestmannaeyjum, 25. febr.
HINGAÐ kom í dag þýzki ,tog-
arinn Johannes Krúss frá Brem-
erhaven með þrjá menn, sem
þurftu læknis við, og ennfremur
til að taka vatn. Togarinn hefur
verið að reyna nýtt síldartroU
Barn datt j
út um
glugga
- á þriðju hæð
- og slapp ómeitt
NOKKRU eftir klukkan 10
í gærmiorgun varð það slys að
Bergþórugtöu 27,. að þriggja
ára drengur, Vigfús Már Sig-
uirðsson, féll út um opinn
gl'Ugga á þriðju hæð hússins
og niður í garð. Gengur það
kraftaverki næst að dreng-
urinn mun lítt meiddur eft-
ir fallið, og með öll bein heil.
Var hann fluttur í slysavarð-
stofuna og þaðan í Landakots
spítala þar sem hann lwjgoir
til öryggis.
fyrir suðurströndinni og samkv.
ummælum fiskifræðings um borð
virðist tilraunin ganga vel. Er
skipið með um 30 tonn af síld
innanborðs, sem það fékk í tveim
ur hölum.
Fréttamaður Mbl. átti tal við
þýzkan fiskifræðing um borð í
togaránum í gær. Sagði hann,
þótt enn væri ekki tímabært að
segja nokkuð um kosti síldar-
trolls þessa, sem verið er að
reýna í fyrsta sinn, virtist sem
árangur mundi verða nokkuð
góður.
Sagði hann að skipið hefði tek-
ið þrjú höl fyrir sunnan land, og
sprengt trollið í þriðja halinu.
Mundi verða gert við það fyrir
utan landhelgi, en togarinn mun
verða hér í viku við tilraunirn-
ar. Aflinn er ísaður um borð.
Fiskifræðingurinn sagði að
þýzka stjórnin stæði að nokkru
á bak við tilraun þessa, þ.e.a.s.
hún hefði lagt fram tryggingu
til tilraunanna.
Þjóðverjinn kvað talsvert
magn af síld hafa verið á þeim
slóðum sem skipið veiddi á, og
af síldum í trollinu virtist sem
hér væri um mjög stóra síld að
ræða. Kvað hann aflann vera
orðinn 600 körfur eða um 30
tonn. —. Sigurgeir.
Síðastliðinn sunnudag var Starfsfræðsludagur sjávarútvegs-
ins. Heppnaðist hann frábærlega og sóttu hann um 1400 manns.
Myndin er frá deild þeirri, er Fiskimat ríkisins sá um.