Morgunblaðið - 27.04.1963, Side 4

Morgunblaðið - 27.04.1963, Side 4
4 MORCl’lVBLAÐIO Laugardagur 27. apríl 1963 — Ræða Ólafs Thors Frarrvh. af bls. 3. upp stefna stjórnarandstæðinga. Aðalmarkmið stefnunnar í pen ingamálunum á undanförnum ár um hefir verið að skapa jafn- vægi í efnahagslífi landsins inn á við og út á við og efla gjald- eyrisforðann. Jafnframt hefir verið lögð á það áherzla, að þetta markmið næðist án þess að rekstrarörðugleikar sköpuðust hjá fyrirtækjum og án þess að atvinna minnkaði. Til að framkvæma þessa stefnu hefir verið beitt nokkurri takmörkun á endurkaupum Seðlabankans á afurðavíxlum frá því sem áður var, bindingu hluta af innlánaaukningu banka og sparisjóða í Seðlabankanum og hækkun vaxta á innlánum og útlánum. Þessi stefna í peningamálun- um hefir ásamt aðgerðum á öðr- um sviðum efnahagsmála leitt til þess, að sparnaður hefir aukizt mikið og hluti þessa sparnaðar hefir verið lagður inn í Seðla- bankann, vegna bindingarinnar og frjálsra aðgerða bankanna sjálfra. Þetta hefir svo aftur gert Seðlabankanum kleift að auka gjaldeyrisforðann. Þannig hefir stefnan i peningamálum verið ein helzta stoðin undir þeim árangri, sem náðst hefir í því að bæta stöðu landsins út á við. Viðhorfin í efnahagsmálunum hafa breytzt verulega á undan- förnum mánuðum. Gjaldeyris- forðinn er orðinn það mikill, að ekki er ástæða til þess að leggja sömu áherzlu á aukningu hans eins og áður. Mikil hækkun hefir orðið á tekjum manna, bæði vegna aukinna aflabragða og hækkunar launa. Þetta hefir leitt af sér verulega aukningu neyzlu. Jafnframt hafa fram- kvæmdir aukizt mikið. Hvort tveggja kemur fram í verulegri aukningu innflutnings. Nú stefn ir því bersýnilega í þá átt, að sá afgangur, sem verið hefir á við- skiptajöfnuðiirum hverfi og vöxt ur gjaldeyrisforðans minnki eða hætti um sinn. Þessi þróun kemur berlega fram 1 þeim tölum, sem birtar eru í þjóðhags- og framkvæmda- áætlun ríkisstjórnarinnar. Þær sýna, að á árunum 1960—1961 óx neyzlan hægar en þjóðar- framleiðsla og þjóðartekjur og fjárfesting minnkaði verulega. Þetta gerði það að verkum, að hallinn á viðskiptajöfnuðinum hvarf. A árinu 1962 uxu þjóðar- framleiðsla og þjóðartekjur hins vegar um 5—6%, en neyzlan um tæp 8% og fjárfesting um 14%. Á árinu 1963 gerir áætlunin ráð fyrir mikilli aukningu fjárfest- ingar til viðbótar, eða 19% aukn- ingu, samfara því, að neyzla auk ist svipað og þjóðarframleiðsla. Til þess að þetta geti átt sér stað, er gert ráð fyrir aukinni notkun erlends lánsfjár jafn- framt því, að gjaldeyrisforðinn hætti að mestu að aukast. Þessi þróun er möguleg vegna þess árangurs, sem náðst hefir á undanförnum árum í því að styrkja stöðu landsins út á við. Af þessum sökum er lánstraust þjóðarinnar nú mikið og gjald- eyrisforðinn tiltölulega öflugur. Hættan er hins vegar sú, að aukning neyzlu og fjárfestingar verði enn meiri en gert er ráð fyrir í þjóðhagsáætluninni og meiri én aukning þjóðarfram- leiðslunnar og aukin notkun er- lends lánsfjár geti staðið undir. Afleiðing af þessu myndi verða minnkun gjaldeyrisforðans, er gæti orðið mjög hröð, þegar inn á þessa braut væri komið. Þarf ekki að fara mörgum orðum um það, að slík þróun hlyti bráðar að leiða til þess að gera þyrfti öflugar ráðstafanir til þess að koma á jafnvægi. Ella lendum við aftur í fúafeni hafta og banna með öllu, sem af þvi leiðir. Til þess að koma í veg fyrir slíka þróun, hafa ríkisstjórnin og Seðlabankinn haldið í aðalatrið- um fast við þá stefnu í peninga- málum, sem viðreisnin í önd- verðu markaði. Reglurnár um endurkaup afurðavíxla eru enn i aðalatriðum óbreyttar. Vöxt- um hefir ekki verið breytt síð- an í ársbyrjun 1961, innlánsbind ingu hefir heldur ekki verið breytt, að öðru leyti en því, að bindingin hefir verið lækkuð úr 30% í 25% af innlánaaukningu, jafnframt því sem bankarnir og stærstu sparisjóðirnir hafa sam- þykkt að leggja fram 15% af inn lánaaukningu vegna fjáröflunar til framkvæmda á vegum hins opinbera og til fjárfestingarlána- sjóða á árinu 1963. Með þessu er ætlunin að hamla gegn því, að of mikil þensla verði í pen- ingamálum. Veltur á miklu að það takist. Það er þessi stefna og þessi úrræði, sem við eigum það að þakka, að gjaldeyrisaðstaðan hef ir batnað um 1408 millj. króna á rúmum þrem árum og spari- fé landsmanna aukizt um 1850 milljónir króna. Það er þessari stefnu, sem við eigum það að þakka, að þjóðin hefir flutt sig um set, frá neðri hluta hins óæðri * bekkjar til virðulegs sess meðal velvirtra skilaþjóða. Það er gegn þessari stefnu og þessum úrræðum, sem stjórnar- andstæðingar frá öndverðu hafa barizt hatrammlega. Og það er þessi stefna og þessi úrræði, sem andstæðingarnir lofa að hætta að hafa í heiðri, en taka þess í stað upp alveg þveröfuga stefnu og úrræði, fái þeir að ráða eftir kosningar. Lokaráð eða starblinda Það, sem andstæðingarnir lofa að framkvæma, er þetta: 1) Lækkun vaxta. 2) Rýmkun reglna um endur- kaup afurðalánavíxlna. 3) Afnám innlánabindingar. Allt hljómar þetta vel í eyrum. Það veit stjórnarandstaðan líka vel. En hvað leiðir svo af þessari stefnu andstæðinganna, komist hún í framkvæmd? Það hljóta þeir líka að vita, en treysta því, að fjöldi manns átti sig ekki strax á því. En hver er þá sannleikurinn? 1) Lækkun vaxta um 2% rýrir hlut sparifjáreigenda um 100 milljónir króna á ári, en leiðir auk þess til miklu meiri minnk- unar á sparnaði vegna þess að allir, sem farnir eru að kynnast. lögmálum efnahags- og fjármála lífsins, sjá fljótlega hvert þá er stefnt og óttast því réttilega um verðfall krónunnar. 2) Rýmkun á endurkauparegl- unum eykur að sjálfsögðu útlán- in að sama skapi. 3) Af afnámi bindingarinnar leiðir, að þær 600 milljónir króna, sem um síðustu áramót voru bundnar, fengju nú bankar og sparisjóðir til frjálsrar ráð- stöfunar, sem fyrr en varir er hætt við að leiði til útlánaaukn- ingar, ekki sízt þar sem vaxta- lækkunin og fyrirsjáanlegt jafn- vægisleysi í efnahagsmálum mundi stórauka eftirspurn eftir Iánsfé. Það er þetta, sem stjórnarand- stæðingar segjast ætla að leiða yfir þjóðina. Minnkandi sparnaður og stór- aukin útlán, sem vegna þess að meir en nóg atvinna er í land- inu og framleiðslutækin fullnýtt, gæti ekki leitt til framleiðslu- aukningar, heldur kæmi fram í auknum innflutningi og þar með versnandi stöðu út á við. Gjald- eyrisforðinn gæti með öðrum orðum étist upp á mjög skömm- um tíma. Þar með væri grund- völlurinn úr sögunni fyrir heil- brigðu efnahagslífi, framförum og batnandi lífskjörum á næstu árum. Haftabúskapurinn mundi halda innreið sína á nýjan leik. Erlend lán myndu ófáanleg. Árangur undanfarinna ára væri að engu orðinn. Við stæðum fljótlega í sömu sporum, sem þegar viðreisnin hófst og yrðum að byrja á nýrri viðreisn, ef við þá bærum gæfu til að hefja nýja sókn áður en allt væri komið fram af gjábarminum. Þetta er það, sem framundan er, ef andstæðingarnir fá að ráða. Þetta er ekki það, sem þjóðin kýs sér. En þetta er samt það, sem þjóð in kýs sér, ef hún kýs stjórnar- andstæðinga þann 9. júní n.k. Þetta er það, sem því á að ráða, þótt ekki væri annað, að þjóðin kýs viðreisnarflokkana þann 9. júní. Opinskár Eysteinn Mig langar til að skjóta þvi hér inn í, að í morgun las ég ræðu formanns Framsóknar á flokksþingi þeirra. Ræðan er óheiðarleg að því leyti til, að ræðumaður gerir stjórnarflokkunum upp stefn*i, sem þeir aldrei hafa haft og ræðst síðan á þá fyrir þessar til- búnu sakir. Ræðan er aftur á móti heiðarleg að því leyti til, að Eysteinn Jónsson og Fram- sóknarflokkurinn koma þar fram eins og þeir eru í raun og veru. Enginn, sem þessa ræðu les, get- ur gengið þess dulinn, að hér er íhaldssamur maður og íhaldssam ur flokkur á ferðinni. Það örlar ekki í ræðunni á tilraunum til að brjóta til mergjar vandamál okkar tíma, né á stefnumiðum fyrir framtíðina. Eysteinn Jóns- son lítur bersýnilega þannig á, að það séu núverandi stjórnar- flokkar, sem muni móta fram- tíðarstefnuna í íslenzkum þjóð- málum. Þeirra hlutskipti muni verða að setja markmiðin, sem keppt skuli að, og finna leiðirn- ar til þess að leysa þau margvis- legu vandamál, sem örar breyt- ingar okkar tíma fela í sér. Hlut verk Framsóknarflokksins á að vera annað. Það á að vera að hamla, að gæta þess, að breyt- ingarnar verði ekki of örar, og umfram allt að þær gangi ekki nærri þeim sérhagsmunum, sem flokkurinn ber mest fyrir brjósti. Hlutverk Sjálfstæðisflokksins Það, sem Eysteinn Jónsson bið ur um, er, að Framsóknarflokkn um verði í næstu kosningum sköpuð aðstaða til þess að leysa þetta hlutverk af hendi. Stjórnarflokkarnir mega vera ánægðir með það ábyrgðarmikla hlutskipti, sem Eysteinn Jónsson hefir valið þeim. Það hlutskipti, sem hann hefir valið Framsókn- arflokknum, er einnig í fullu samræmi við eðli og uppruna þess flokks. En er Framsóknar- flokkurinn i raun og veru vel til þess fallinn að leysa jafn vel þetta hlutverk af hendi? Heil- brigð gætni og varúð eru þýð- ingarmiklir eiginleikar, og af þeim eiga stjórnarflokkarnir sjálfir nóg innan sinna eigin vé- banda.' En sjúkleg tortryggni gagnvart öðrum mönnum, flokk- um og þjóðum er háskalegur eig inleiki, og það er því miður þessa eiginleika, sem fyrst og fremst hefir gætt í fari Fram- sóknarflokksins á undanförnum árum. 1 ýmsum nágrannalöndum okkar hafa stjórnmálaflokkar skipt með sér verkum, þannig að sumir hafa beitt sér fyrir nýj- ungum og framförum, en aðrir hafa séð fyrir nauðsynlegri að- gát. Það hefir orðið hlutskipti Sjálfstæðisflokksins frá upphafi að gegna báðum þessum hlut- verkum, að fara í fararbroddi í framfaramálum þjóðarinnar, en skapa um leið þá kjölfestu, sem hverju þjóðfélagi er nauðsynleg. Það mun þjóðinni affarasælast, að flokkurinn sé þess reiðubú- inn að gegna báðum þessum hlut verkum einnig í framtíðinni. Dæmið okkur af verkunum Að nokkrum vikum liðnum fella kjósendur landsins sinn dóm. Allir flokkar landsins verða að standa reikningsskil gerða sinna. Við Sjálfstæðismenn göngum ótrauðir íyrir dómar- ann og biðjum þess að vera dæmdir af verkum okkar. reisnarflokkarnir bjargað heiðri Á þessu kjörtímabili hafa við- Islendinga, forðað þjóðinni frá fjárhagslegu ósjálfstæði, atvinnu Ieysi og hvers konar þrenging- um. Það er viðreisnin, sem því hefir áorkað, að í augum um- heimsins skipar ísland nú að nýju sinn forna sess á bekk með vel virtum skilaþjóðum, í stað þefl-rar aumu vesældar, van- máttar og niðurlægingar, sem vinstri stjórnin færði yfir land og þjóð. Sett hefir verið ný lög- gjöf, sem markar djúp spor á mörgum sviðum þjóðlífsins, skatt ar lækkaðir, óreiðan í stjórn fjármála ríkisins lagfærð, settar hömlur á taumlausar ríkisábyrgð ir, greiðslur frá almannatrygg- ingum fjórfaldast, verzlunin verið að mestu gefin frjáls, alhliða fyr irgreiðslur fyrir öllum atvinnu- rekstri verið meiri og betri en nokkru sinni fyrr og mörkuð merk spor með margvíslegri lagasetningu varðandi dóms^jaál, kirkjumál, heilbrigðismál, menntamál o.sfrv. Er þá ótalinn hinn mikli sigur í landhelgismálinu. Fyrir allt þetta, fyrir viðreisn- ina alla, biðjum við um að verða dæmdir. Framkvæmdaáætlunin En engu minna óskum við að verða dæmdir af því, sem við nú höfum heitið að framkvæma, ef þjóðin vottar okkur traust við kosningarnar og gefur okk- ur með því færi á að brjóta á ný blað í stjórn íslenzkra efna- hags- og fjármála. Á ég þar, eins og allir munu skilja, við framkvæmdaáætlun- ina. Er þar um stórmerka nýj- ung að ræða, sem án efa mun hafa víðtæk áhrif á atvinnu- og efnahagslíf þjóðarinnar, öllum til mikilla hagsbóta, verði for- dæmi okkar framfylgt þannig að slíkar framkvæmdaáætlanir verði föst venja hér á landi. Hafa andstæðingarnir ekki þor- að að mæla gegn sjálfri hug- myndinni, en af vanmætti reynt að burðast við að finna okkur til foráttu hversu seint skýrslan sé fram lögð og að ekki hefir unnizt tími til að. leggja nú þeg- ar fram sundurliðaða áætlun nema fyrir 1963 og 1964 að nokkru leyti. Hefir þó ástæð- unum fyrir þeim drætti, sem á hefir orðið, verið ekki síður vandlega í þá troðið en kverinu í tossana hér áður fyrr. í vand- ræðum sínum eru þeir svo lent- ir í því að halda því fram, að hér sé eiginlega um smámuni eina að ræða, en segja svo í sömu andránni, að áætlunin sé hreinasta kosningaplagg. Til þess að geta staðið undir kostnaðinum við „smámunina" hefir ríkisstjórnin orðið að út- vega lán að upphæð 477 milljón- ir króna og er þá ótalið viðbót- arlán til Reykjanesbrautar, sem nú er í athugun að taka. Verður öllu þessu fé varið ým ist til framkvæmda á vegum rík- isins, svo sem til vega, hafna, skóla o.s.frv. umfram og til við- bótar því, sem Alþingi ákvað á fjárlögum, eða til þess að efla þá sjóði, sem lána til landbún- aðar, sjávarútvegs, iðnaðar og til húsnæðis, allt umfram og til viðbótar því, sem Alþingi ákvað á fjárlögum. Lét þó formaður Framsóknar sig hafa það að staðhæfa í umræðum á Alþingi, að í framkvæmdaáætluninni væri ekkert, alls ekkert umfram það, sem hann sjálfur og Alþingi Væri búið að ákveða. Er þetta stórfengleg og gleðileg nýjung og hitt einnig ánægju- legt fyrir þá, sem að viðreisn- inni. standa, að það er óumdeil- anlegur sannleikur ,að það er hið endurreista lánstraust þjóðarinn ar, vegna sparifjáraukningar, bættrar gjaldeyrisstöðu og ann- arra afleiðinga viðreisnarinnar, sem nú veitir íslandi svo greið- an aðgang að fjárhirzlunum. Án viðreisnarinnar hefði ekkert lán fengizt erlendis og án viðreisn- arinnar hefðum við heldur ekk- ert handbært fé haft innanlands til þessara framkvæmda. Hitt er svo annað mál, að stjórnin hefir vandlega gætt >ess, að allar áætlanir séu byggðar á varfærnu mati. Þar eru engar gyllingar gerðar, enda tilgangur stjórnarinnar ekki sá að fegra sig í augum þjóðarinn- ar, heldur að leggja fram skyn- samlegar og sem traustastar á- ætlanir um meðferð þjóðartekn- anna. Áætlunin er ekkert kosn- ingaplagg, heldur alvarleg til- raun til meiri fyrirhyggju og betri búmennsku en verið hefir að undanförnu. Held ég, að þjóð- in væri hundruðum eða heldur þó þúsundum milljóna ríkari. ef við hefðum tekið upp þessi vinnubrögð upp úr ófriðarlok- um, m. a. af því að þá hefðum við miklu fyrr tekið upp við- reisnarstefnuna, en horfið frá höftum, bönnum, útflutnings- uppbótum og skökku gengi krón unnar. Skal ég ekki skýra þetta stór- mál frekar hér, en vísa til skýrslu stjórnarinnar og ræðu þeirrar, er ég flutti um málið á Alþingi 16. þ. m., sem birt hefir verið í blöðum Sjálfstæðisflokks- ins. Verk okkar tala Það er af viðreisninni og okkar þætti í framkvæmdaáætl- uninni, sem við biðjum um að verða dæmdir. En áður en dómur fellur lít- um við einnig lengra um öxl og minnum á, að í nær aldarfjórð- ung hefir Sjálfstæðisflokkurinn verið lang stærsti og valdamesti flokkur þjóðarinnar. A þessum aldarfjórðungi hafa íslendingar endurheimt fullt þjóðfrelsi og alla stjórn allra málefna sinna. Og á þessum sama aldarfjórð- ungi hefdr fram farið fullkomin bylting á öllum sviðum þjóð- lífsins, jafnt varðandi menntun og menningu þjóðarinnar sem á öllum sviðum atvinnu- og fjár- málalífsins. Um þetta tala verk- in, hvert sem augum er rennt, jafnt á landi, legi sem lofti. Samfara þessu hefir verið svo á málum haldið, að ísland er nú heimur betri, en einkum þó jafn ari kjara allra manna og allra stétta en dæmi eru um. Það væri óréttmætt að eigna Sjálfstæðismönnum allan heið- urinn af afrekum þessa aldar- fjórðungs. En hitt væri þó meiri fjarstæða að ætla að þræta fyr- ir, að stærsti flokkur þjóðarinn- ar, flokkurinn, sem verið hefir skapandi máttur, sem lengst af hefir haft forystuna á ferð þjóð- arinnar frá fátækt til bjarglána og bættra lífskjara, eigi ekki öflugan þátt í íslenzka ævintýr- inu. Fram að þessu hefir Sjálf- stæðisflokkurinn verið dæmdur af verkum sínum og þess vegna alltaf verið lang stærsti flokkur þjóðarinnar. Við biðjum enn um að verða dæmdir af verkum okkar og á- huga okkar og innri þörf á að veita þjóðinni dygga þjónustu og djarfa forystu. Nú sem fyrr munum við gjalda trausts þjóðarinnar með verkum okkar. Fram til velmegunar S j álf stæðismenn. Bardaginn er hafinn. Við vitum, að fortíðin varðar miklu, nútíðin meiru, en mestu þó framtíðin. Þess vegna stefn- um við alltaf andans sýn fram á veginn í leit af nýjum leiðum, að nýjum lindum, sem ausa megi af, til velfarnaðar þjóðinni allri, en einkum þó æsku landsins. Við leggjum nú til atlögu með fangið fullt af stórhug, fjölmedn- ari, öflugri og orustuglaðari eu nokkru sinni fyrr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.