Morgunblaðið - 30.04.1963, Side 5
Þriðjudagur 30. apríl 1963
MORCVISBL 4Ð1Ð
5
NÚ um helgina opnuðu tveir
ungir piltar Eiríkur Árni Sig-
tryggsson og Þorsteinn Egg-
ertsson málverkasýningu á
kaffihúsinu Mokka við Skóla-
vörðustíg.
Eiríkur er 19 ára gamall,
aettaður úr Keflavík og sýndi
þar syðra frá 14 ára aldri
ásamt öðrum Keflvíkingum.
Hann hefur ekki lært að mála
í myndlistarskólum, en á hinn
bóginn notið leiðsagnar kunn.
Eiríkur Árni Sigtryggsson hjá mynd sinni, sem hann kall-
ar „Harmleikurinn um Rómeo og Júlíu.“
áttumanna í einkatimum. Ei-
ríkur hefur að undanförnu
Þorsteinn Eggertsson við eina andlitsmynda sinna.
stundað nám í kennaradeild
Tónlistarskólans og hyggst
ljúka þaðan lokaprófi á þessu
vori, en hyggur í framtíðinni
á myndlistarnám erlendis.
Þorsteinn er 21 árs, hóf
nám í Handíða- og myndlista-
skólanum 1959 og stundaði
það um tíma en hefur síðan
lært hjá einkakennara. Hann
hefur ekki fyrr haldið sýn-
ingu, en hyggur á nám í Dan-
mörku á næsta vetri. Þor-
steinn hefur jafnframt mynd-
listinni lagt stund á tónsmíðar
og samið nokkur dægurlög, og
hríð stundaði hann dægurlaga
söng.
Myndirnar á sýningunni eru
23 talsins, 11 eftir Eirík og
12 eftir Þorstein, allar til sölu
utan ein mynd Þorsteins. Sýn
ingin verður opin í hálfan
mánuð.
Hafnarfjörður Tvö herb. og eldhús til leigu að Hverfisgötu 65 frá 14. maí. Barnlaust fólk situr fyrir. 3—5 herb. góð íbúð óskast til kaups eða leigu milliliðalaust. Tilb. merkt: „Góð íbúð 6610“ leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 4. maí.
Húsnæði Vantar 2ja—3ja herb. íbúð til leigu í austurhluta bæjarins. Reglusemi. Uppl. í síma 345C7. Einhleyp kona óskar eftir 1—2 herb. ibúð nærri Miðbænum. — Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „14. maí — 6612“.
Vantar 2ja—3ja herb. íbúð, þó ekki væri nema um stuttan tíma. Ef ein- hver vildi leigja okkur, þá vinsamlegast hringið í síma 14544. Volkswagen til sölu, árg. 1962. Uppl. í síma 14298 kl. 4—7.
Sjómaður, sem mjög lítið er í landi, óskar eftir herbergi með aðgang að síma, 14. maí eða síðar. Tilb. merkt: „Sjó maður — 6608“ sendist afgr. Mbl. fyrir 10. maí. Hafnarfjörður Oska að kaupa rúmgóða og í góðu standi 2—3 herb. íbúð. Útb. 100—200 þús. Uppl. í síma 15127 til 5. maí. Sigurður Bjarnason
Atvinnurekendur — Aukavinna Stúlka óskar eftir vel launaðri auka- vinnu. Margt kemur til greina. Uppl. í síma 19160 eftir kl. 6. Drengur 15 ára, óskast í sveit. Uppl. í síma 34431, eftir kl. 7 sd. í dag.
Volkswagen til sölu, árgangur ’62. Uppl. í sírna 20412 til kl. 7. Herbergi óskast til leigu í Laugar- neshverfi. Uppl. í síma 34655.
Keflavík Vel með farin barna- karfa óskast. Uppl. í síma 1611, Keflavik. Eitt gott skrifstofuherbergi til leigu. Upplýsingar í síma 15723.
JÖKLAR: Drangajökull kom til Riga
1 morgun, fer þaðan til Hamborgar,
Langjökull er í Vestmannaeyjum, fer
þaðan til Kaupmannahafnar og Vent-
spils. Vatnajökull er á leið til Bremer-
haven. Askja lestar í London 1—2
maí, fer þaðan til Rvíkur.
Hafskip: Laxá fór í gærkvöldi frá
Gautaborg til Rvíkur. Rangá losar á
Norðurlandshöfnum. Prinsesse Irena
fór frá Gdynia 23. til Rvíkur. Nina fór
frá Gautaborg 27. til Austur- og Norð-
urlandshafna.
Eimskipafélag Reykjavíkur: Katla
losar á Norðurlandshöfnum. Askja er
í London.
Skipadeild SÍS: Hvassafell er í Rott
erdam. Arnarfell losar á Vestfjörð-
um. Jökulfell fór í gær frá Rvík til
ísafjarðar, Húnaflóa, Sauðárkróks og
Akureyrar. Dlsarfell er væntanlegt til
Faxaflóa á morgun. Litlafell er vænt-
anlegt til Rvíkur í dag frá Vestfjörð-
um. Helgafell er á Akureyri. Hamra-
fell er væntanlegt til Tuapse í dag, fer
þaðan til Antwerpen. Stapafell fer í
dag frá Rvík til Norðurlandshafna.
Læknlr, læknaðu
sjálfan þig
1 Danmörku er nú komið
upp mikið deilumál, sem Dan
ir henda óspart gaman af,
enda þótt þar sé um að ræða
allmikið fordæmi. Læknir
nokkur í nágrenni Árósa hef-
ur sent sjúkrasamlagi bæjar-
ins reikning fyrir tvær vitj-
anir til konu sinnar, þar af
einnar að næturlagi, en fyrir
hana krefst hann tvöfalds
gjalds.
Enn hefur ekki verið skorið
úr um lögmæti reikninga
þessara, og hefur þeim verið
skotið til sambands sjúkra-
samlaganna dönsku á þeim
grundvelli, að það sé orðin
hefð að læknar geti vitjað
hvors annars endurgjalds-
laust.
Hvað viðvíkur læknis-
frúnni, hefur enn ekki verið
hægt að vitna til neinnar
hefðar, hvorki með né móti.
Eimskipafélag íslands: Brúarfoss fór
frá Dublin 24. til NY. Dettifoss er í
Rvík. Fjallfoss fór frá Siglufirði 29.
til Kotka. Goðafoss fór frá Keflavík
21. til Gloucester og Camden Gullfoss
er 1 Kaupmannahöfn. Lagarfoss er í
Rvík. Mánafoss fór í gær frá Sauðár-
króki til Siglufjarðar og Ráufarhafnar
og þaðan til Ardrossan, Manchester
og Moss. Reykjafoss kom til Leith 26.
fer þaðan til Hull, Eskifjarðar og
Rvíkur. Selfoss fer frá Hamborg2. maí
til Rvíkur. Tröllafoss er í Rvík Tungu
foss fór frá Kotka 27. til Rvíkur.
Forra fór frá Ventspils í gær til
Hangö, Kaupmannahafnar og Rvíkur.
Ulla Danielsen lestar í Kaupmanna-
höfn.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á norðurleið. Esja er á
Vestfjörðum. Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum kl. 21:00 í kvöld til Rvík
ur. f>yrill er á Norðurlandshöfnum.
Skjaldbreið fer frá Rvík 1 dag vestur
um land til Akureyrar. Herðubreið er
á Austfjörðum á suöurleið.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Gullfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08:00 í dag. Væntan
leg aftur til Reykjavíkur kl. 22:40 í ,
kvöld.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að M
fljúga til Akureyrar (2 ferðir), ísa- Jl
fjarðar, Egilsstaða, Sauðakróks og
Vestmannaeyja. Á morgun til Akur- i
eyrar (2 ferðir), ísafjarðar, Húsavík-
ur og Vestmannaeyja.
LEIKFÉLAG KÓPAVOGS sýnir um þessar mundir leikritið
Mann og Konu, sem gert er eftir hinni góðkunnu skáldsögu
Jóns Thoroddsens. Leikritið hefur verið sýnt undanfarið við
góða aðsókn og ágætar undirtektir. Næstu sýningar verða á
miðvikudag og föstudag. Myndin er af Sigurbjörgu Magnús-
dóttur og Helga Guðmundssyni í hlutverkum sínum.
Prinzinn er jafn-
fljótur að komast
á fulla ferð og
miklu þyngri> afl-
meiri bílar.
5 manna fjölskyldubifreið.
Komið. og
skoðið
Prinzinn.
Verð kr: 119.700.
FALKINN HF.
Laugavegi 24 — Reykjavík
Söluumboð á Akureyri:
.Lúðvík Jónsson & CO.
Jörð til sölu
Jörðin Kambur í Holtum er til sölu og laus til
ábúðar í næstu fardögum. Ræktað tún gefur af sér
800—900 hesta. Silungsveiði í vatni við túnið og
réttur til veiða í Veiðivötnum. Skepnur og vélar
geta fylgt, ef um semst. Skipti á húseign gætu
komið til greina. Nánari upplýsingar 1 síma 36910.
tryggir yður ferzkt og hreint loft. —
Eyðir allri lykt og hreinsar andrúmsloftið.
Vald Poulsen hf.
Klapparstíg 29.