Morgunblaðið - 30.04.1963, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 30.04.1963, Qupperneq 22
22 r MORCVNBL4Ð1Ð Þriðjudagur 30. apríl 1963 TTAFRÍÍTIR MflfiCOIlAÐS Fram vann 3:2 í afmælisleik f»AÐ var allt annar og betri svip- ur á leik Fram i afmælisleiknum gegn KR á sunnudag en gegn Þrótti fáum dögum áður. Það var ■eins og gerbreytt lið að þétta Vörnina með Guðjóni Jónssyni 'og betri tenging milli varnar og sóknar að fá traustari framverði og bar þar mest á liðsstyrk Björns Helgasonar sem nú lék sinn fyrsta leik með Fram. Framlínan var líka frískari og ágengari en í fyrsta leiknum. Þetta horfir til bóta hjá Fram, en gat þó verið betra þrátt fyrir sigurinn 3—2 yfir KR nú. KR liðið var heltekið sama gall anum og fyrr — þeim alvarlega sjúkdómi að geta ekki skorað, jafnvel úr góðum færum. KR lið- ið átti mun meira spil í þessum leik, en spilið varð aldrei beitt. Það er ekki nóg að leika laglega úti á vellinum, skipta út á kant- ana og komast í vítateiginn ef þar hrynur allt eins og spilaborg. Það skeði aftur nú, skipti eftir skipti, eins og x leiknum gegn Val. Það var furðu góður svipur yfir afmælisleik KR og Fram miðað við aðstæður, sundurlaus- an völl og þungan knött. Það brá fyrir laglegum köflum, en mörkin urðu ekki nema eitt í fyrri hálfleik og Fram tók for- ystuna. Það var á 25 mín. að löng sending kom að marki KR. Gísli markvörður ætlaði að ná henni, en. mistókst og Þorgeir Lúðvígs- son sendi bogabolta í mannlaust markið. KR-ingar áttu góð tækifæri til að jafna en þrátt fyrir möguleika á mannlausu marki Fram eitt sinn tókst það ekki. í síðari hálfleik hristu KR-ing- ar af sér slenið heldur og gerðu þá 2 mörk á tæpum tveim mín. Hið fyrra kom á 16. mín. er Sig- þór og Gunnar Guðmannsson léku upp vinstri kant. Gunnar gaf vel fyri frá endamörkum, að baki Geir markverði og Óskar innherji kom aðvífandi og skor- aði. Tæpri mín. síðar kom 2. mark KR. Gunnar Fel. lék upp vinstra megin gaf fyrir og út. Óskar spyrnti að marki — ónákvæmri spyrnu, en Ragnar framvörður Fram ætlaði að hreinsa en mis- tókst svo að knöttutinn skauzt sem kólfur í mark Fram. 10 mín. síðar tókst Fram að jafna — jafn ódýrt. Guðjón Sveinsson miðherji skoraði úr þvögu af stuttu færi. Og á 35. mín. skoraði Hallgrím- ur útherji sigurmark Fram. Það var Guðjón bakvörður sem hóf upphlaupið og skilaði knettinum vel fyrir KR-markið yfir til vinstri og úr þvögu tókst Hall- grími að skora — og tryggja Fram afmælissigurinn. Lengi íifir í gömlum .... I TILBFTSII af afmæli Fram fór fram kappleikur „öld- Y'M, unga“ Fram og Vals í spyrnu á sunnudag. knatt- Léku g|pl| meistaralið félaganna frá 1947. Leikurinn var skemmti- legur mjög og sáust ýmist góð tilþrif eða þá að hugurinn var miklu meiri en veikari fætur og þung ístra leyfðu svo allt fór í handaskolum. En skemmtunin var góð. Leiknum lauk 1—1. Ríkarður skoraði fyrir Fram en Ellert jafnaði fyrir Val í vel tek- inni vítaspyrnu. Hér fylgja svo tvær myndir frá leiknum. Sýnir önnur for- mann Fram Sigurð Jónsson hinn gamalkunna bakvörð ganga út af vellinum ásamt Hermanni markverði Vals. Hin sýnir þrjá gamla Vals- menn sigurð Ólafsson hinn , snjalla miðvörð, Albert Guð- mundsson og Geir Guðmnuds- son. íþrdttamerki ÍSÍ KEPPNIN UM íþróttamerki ÍSÍ er hafin. Gísli Halldórs- son forseti ÍSÍ hleypti henni af stokkunum á íþróttarevíu blaðamanna, áður en körfu- knattleiksmenn gengu til leiks. Nú verður unnið að því að keppnin um merkið verði haf in tinnan hvers íþróttafélags og á hverjum keppnisstað íþrótta. Er það ósk ÍSÍ og von að merkið verði jafn vinsæl keppnisþraut meðal alls al- mennings og gerizt á hinum Norðurlöndunum. fþróttamerki ÍSÍ er ætlað til að vekja og viðhalda áhuga manna fyrir alhliða íþrótta- þjálfun. íþróttamerkið getur hver íslenzkur ríkisborgari tekið, þegar hann er orðinn 16 ára. íþróttamerkið er gert úr eir, silfri og gulli. íþróttaafrekum þeim, sem hver maður skal vinna til þess að fá merkið, er skipt í fimrn flokka. Skal leysa af hendi eitt afrek innan hvers flokks og er það frjálst val þátttakanda að öðru leyti, hvaða þraut hann kýs að reyna við. Til þess að hljóta íþrótta- merkin skal inna af hendi iþróttaafrek þau, sem krafizt er, svo sem hér segir: Eirmerki: í fyrsta sinn, ann að og þriðja sinn, sem þraut irnar eru leystar af hendi, hlýtur þátttakandi rétt til eir- merkja, sem númeruð eru i þeirri röð, sem til þeirra er unnið. Silfurmerki: f fjórða, fimmta sjötta og sjöunda sinn, sem þrautin er leyst af hendi, hlýt ur þátttakandi rétt til silfur- merkis, sem númeruð eru í þeirri röð, sem til þeirra er unnið. Gullmerki: f áttunda sinn, sem þrautin er leyst af hendi, hlýtur þátttakandi gullmerki. Nánar verður skýrt frá þessari nýjung á næstunni. 9121 stig í tugþraut FORMÖSUMAÐURINN Chuan Kwang-Yang setti um helgina nýtt heimsmet í tugþraut 9.121 stig á móti í Kaliorníu þar sem voru 16 keppendur. Gamla heims metið átti Rafar Johnson 8663 stig, sett 1960. Yang segir að márkmið sitt nú sé 9500 stig. Hann er 29 ára gamall og nemur við Kaliforníu- háskólann. Yang sagði að sinadráttur hafi hindrað sig í 2 síðustu greinum keppninnar. Fann hann til hans í stangarstökkinu og var sérlega hindraður í 1500 m hlaupinu. „Mér fannst ég geta hlaupið miklu hraðar, en fóturinn leyfði það ekki“. Annar á eftir Yang í keppn- inni var Þjóðverjinn Paul Her- man 8.61 stig og M. Bock landi hans 7309 og Pauly Bandaríkin 7299 stig. Armann eign- aðist bikarana — en Halldór Guójónsson KR fyrslur UNGUR KR-ingur Halldór Guð- björnsson sigraði í Drengjahlaupi Ármanns á sunnudaginn. Halldór er bróðir Kristleifs Guðbjörns- sonar er sigraði í Víðavangs- hlaupinu á 1. sumardag og hefur unnið marga frækna sigra í lang hlaupum, svo Halldóri kippir í kynið. í sveitakeppni 3 og 5 manna sveita bar Ármann sigur úr býtum og unnu bikara sem um var keppt til eignar þar sem þeir vinna sveitakeppnirnar í 3. sinn í röð nú.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.