Morgunblaðið - 12.05.1963, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.05.1963, Blaðsíða 10
10 Moncxnsnj. AÐIÐ Sunnudagur 12. maí 1963 Hollenzk bifreið full ai nýjung- iim komin til landsins Teikning þessi sýnir trissurnar og reimarnar, sem flytja orkuna frá vél í afturöxla. Á SÍÐASTA ári kom hingað til lands bifreið af gerðinni DAF. Þetta er hollenzk bifreið, sem smíðuð er hjá bílasmiðju van Doornes í Eindhoven, eða van Doorne’s Automobielfabrik n.v. eins og smiðjan heitir. Lengi var þetta eina bifreiðin af þessari gerð hér á Iandi, eða þar til Sel- foss kom til Reykjavíkur fyrir skömmu. Með skipinu komu þá 30 bifreiðir af þessari gerð. Þar sem DAF bifreiðir eru í mörgu mjög frábrugðnar öðrum bifreiðum, þykir rétt að lýsa þei nokkuð og rekja í stuttu máli sögu smiðjunnar í Hollandi. Bræðurnir Hub og Wim van Doorne hófu starfsemi sína með stofnun lítillar vélsmiðju árið 1923. Þeir bræður börðust í bökk um fyrstu árin, enda var stofn- féið að mestu fengið að láni. En smám saman óx þeim fiskur um hrygg, og 1934 hefja þeir smíði dráttarvagna fyrir vörubif reiðir. En það var ekki fyrr en árið 1950- að þeir snúa sér að smíði bifreiða. Það ár tók bíla smiðjan til starfa, og voru af- köstin 2 vörubifreiðir á dag. Næsti áfanginn náðist þegar fyrst^gfólksbifreiðin var smíðuð árið 1958, og nefndist hún DAF 600. Stöðugt var unnið að umbót um á þessari bifreið, og árangur inn varð DAF 750 og DAFfodil (páskaliljan), sem kom á mark- aðinn 1961, og vakti þegar í upp hafi feikna athygli vegna ýmissa nýjunga. Það eru- þessar tvær gerðir, sem nú eru komnar hing að. DAF 750 og DAFfodil eru í rauninni sama bifreiðin, nema í útliti og frágangi ýmsum. Er síð arnefnda gerðin vandaðri og með meiri íburði enda átta þúsund krónum dýrari hingað komin. Kostar 750 um 118 þúsund kr- en páskaliljan um 126 þúsund. Það sérkennilegasta við þessar hollensku bifreiðir er orkuyfir- færslan, því hvorki er í bifreið- unum kúpling né gírkassi. Að- eins tvö stig eru hjá ökumanni, benzíngjafi og hemlar. Og aðeins tvær stillingar á gírstöng áfram eða afturábak. Trissur og reimar. Aftan við drifskaftið eru tengd ar tvær trissur eða reimhjól. Aft uröxlar eru tveir, hvor fyrir sitt hjólið, og á endum þeirra eru einnig trissur. Orkuyfirfærslan frá drifskafti í öxla fer um þess ar trissur með tveimur v-laga reimum eða beltum. Raufarnar í trissunum eru einnig v-laga, og þrengist eða víkkar v-ið eftir álagi og snúningfehraða þannig að reimarnar færast út og inn í fremri og aftari trissunum á víxl. Þegar reimarnar liggja inn arlega í fremri trissunum, liggja þær utarlega í öxultrissunum, þannig að mikill snúningshraði vélar gefur lítinn hraða á hjóli. Liggi reimarnar hinsvegar utar- lega í fremri trissum og innar- lega í öxultrissum, gefur lítill nsúningshraði vélar meiri hraða á hjól. Breytingar á þessum hlutföllum koma því í stað gír- skiptinga. Til frekari útskýringar má bera þetta fyrirkomulag saman við keðjudrif á reiðhjúli. Þar er stórt tanruhjól að framan, sem stigið er. Orkan fænst með keðju í lítið tannhjól tengt aft- urhjóli, þannig að lítill hraði á stigna hjólinu gefur meiri hraða á afturhjóli. DAF bifreiðunum er tvöfalt „keðjudrif" og breytilegt hlutfall milli stærða „tannhjól- anna“. Þar sem afturhjólin eru ekki samtengd, ve^-ka þau algjörlega sjálfstætt. Kemur þetta að sér- staklega góðum notum í hálku og aurbleytu því þótt annað hjól ið „spóli“ er drif á hinu. Þaulreyndar Eins og gefur að skilja, þegar um nýjung sem þessa er að ræða voru DAF bifreiðirnar þaul- reyndar* áður en fjöldaframleiðsl an hófst. Hófust tilraunirnar í september 1959, tveimur árum áður en bifreiðirnar komu á markaðinn. Nokkrar bifreiðir voru afhentar sölumönnum, lækn um og lögreglu til reynslu, sex bifreiðir fóru í „úthaldsprófun", og var hverri um sig ekið 150 þús. kálómetra vegalengd, og nokkrar bifreiðir voru sendar til reynsluaksturs á sandauðn- inni í Sýrlandi, á hæstu fjallveg um Evró.pu, þ.e. í Sierra Nevada fjöllunum á Spáni, og í Svíþjóð fyrir norðan heimskautabaug. Voru bifreiðarnar reyndar við öll hugsanleg skilyrði og í allt frá 40 stiga hita niður í 25 stiga frost. Beltin eða reimarnar, sem drifa bifreiðina, eiga að endast 25.000 kílómetra akstur, og tekur aðeina tíu mínútur að skipta um. En þótt annað fari í akstri kemur það ekki að sök, því aka má með drif á einu hjóli. Eins og tveggja ára ábyrgð. Eftir allar þessar tilraunir hófst fjöldaframleiðslan. Svo öruggar eru bifreiðiranr að dómi framleiðenda, að árs ábyrgð er á vél og tveggja ára ábyrgð á drifi. Vélin er tveggja strokka loftkæld, með 746 rúmsentímetra sprengirúmi og framleiðir 30 hest öfl á 4000 snúningum. í venjulegúm akstri fer drif- stillingin eftir aðstæðum, en ökumaður getur að sjálfsögðu haft áhrif á hana. Ef skyndilega þarf að auka hraðann, er nóg að stíga snöggt á benzíngjöfina, og breytist þá hlutfallið á triss- unum. Eins' breytist hlutfallið ef sigið er á hemlana, og notast þá einnig vélarorkan til að hægja á ferðinni. Ef ekið er niður brekku er sérstakur takki í mæla borði til að stilla trissurnar svo að vélin haldi við bifreiðina. Vélin er sparnaytin eyðir sam kvæmt uppgjöf verksmiðjunnar 6—7% líter á 100 kálómetra. Loftkælingin gerir það að verk um að ekki þarf að hugsa um frostlög á veturna. Einnig má nefna að aldrei þarf að smyrja undirvagninn, aðeins skipta um olíu á vélinni. Með því að hafa trissurnar og drifið aftast, dreif^st þungi vélar innar mjög vel'milli fram og aft urhjóla. Er þungahlutfallið 50% —50% þegar ökumaður er einn í ’bifreiðinni, en 44%—56% þeg- ar hún er full hlaðin. Gerir þetta sitt til að bifreiðin liggur mjög vel á vegi. TEKIÐ IJPP í GÆR! |K | Moccasinur | Litur: Ijósbrúnn | Stærðir: 25—38. Verð fr,á kr. 198,00. Telpnabomsur Litir: Brúnn, hvítur, svartur. Stærðir: 24—33. Verð frá kr. 96,00. SKÖHÚSIÐ Hverfisgötu 82. Sími 11-7-88. Fyrirliggjandi TEAK, 3—514 fet, 2x4—6” YANG, 2x6” OREGON PINE, 314x514” BRENNI, 2 og 214” ABACHI, 114” MAHOGNI, 2” BIRKI, 2, 214 og 3” EIKARSPÓNN, 1. flokks TEAKSPÓNN, 1. flokks HARÐPLASTPLÖTUR Væntanlegt í næstu viku: JAPÖNSK EIK, 1,114 og 2” Páll Þ,rfi' s:on ó Laugavegi 22. — Simi 16412. Trúloiunarhringar afgreiddir samdægurs HALLDÓR Skólavörðustíg 2. „Fjiilfætlan“ KH 2/4/6 Vinnubreidd 1,6 — 3.2 eða 4.5 m. NÝJUNG í HEYVINNUVÉLUM Mikil vinnslubreidd, vinnur einnig vel á ójöfnu landi. „FJÖLFÆLAN" snýr, dreifir úr múgum, einnig fáanleg með bún- aði til að raka í litla múga. Ótrúleg afköst — flýtir þurrkun heys til muna. Getum enn afgreitt nokkrar vélar fyrir slátt, ef pantað er strax. ÞÚR H.F. REYKJAVÍK Hafnarstraéti 8 — Sími 12209. DUGLEGUR Afgreiðslumaður getur fengið vinnu hjá okkur strax, éða um næstu mánaðarmót. Upplýsingar á skrifstofunni. Ekki í síma. G. J. FOSSBERG, Vélaverzlun h/f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.