Morgunblaðið - 12.05.1963, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 12.05.1963, Qupperneq 23
Sunnudagur 12. maí 1963 MORGU'NBLAÐIÐ 23 Sr. Arelíus Nielsson formaður BÆR i í KVÖLD verður frumsýning ' i Þjpðleikhúsinu á óperunni frægu II Trovatore eftir Verdi. Æfingar hafa staðið yfir í langan tíma og verður þetta síðasta frumsýning í Þjóðleik- húsinu á þessu leilkári. Aðal- hlutverkin eru sungin af Inge- borg Kjellgren, Guðmundi Guðjónssyni, Guðmundi Jóns- syni, Sigurveigu Hjaltested og Jóni Sigurbjörnssyni. Myndin er af Guðmundi Guðjónssyni og Sigurveigu Hjaltested og var tekin á J á æfingu í gær. Ferð á Hafnaberg FERÐASKRIFSTOFA RÍKIS- INS og FUGLAVERNDARFÉ- LAGIÐ efna í dag til ferðar á Hafnaberg, sem er sérkennilegt fuglabjarg. Þar gefur að líta flest ar tegundir íslenzkra bjarfugla. En nú hefur fuglinn þegar búið um sig í berginu. Síðan verður ekið að Reykjanesvita og þá með ströndinni til Grindavikur og gengið á Þorbjörn, ef tími leyfir, en þaðan er gott útsýni um allan Reykjanesskaga. Lagt verður af stað í ferðina frá ferðaskrifsbofu ríkisins, Lækj argötu 3, á sunnudag kl. 13,30. Upplýsingar og miðasala á Ferða skrifstofu rikisins kl. 10—12 f.h. á sunnudag, 12. maí. Fararstjóri verður Björn Þorsteinsson sagn- fræðingur. Hrafnseyrar- heiði mokuð Þingeyri, 10. maí. VEÐUR er nú sæmilegt. Þrír bátar róa héðan, einn er hættur. Aflinn hefur verið heldur tregur. Bátarnir hafa verið með 10—20 tonn. Verið er að moka Hrafnseyrar- beiði, og Gemlufallsheiði verður mokuð fljótlega. Töluverður snjór hefur verið bér, einkum í norðanverðum firðinum. — Magnús. BANDALAG aeskulýðsfélaga Reykjavíkur hélt ársþing sitt ný- lega. — Þar voru gerðar ýmsar breyt- ingar á lögum og stefnuskrá samtakanna. Bygging æskuiýðs- hallar virðist nú ekki timabært viðfangsefni í bili, þar eð hent- ugra þykir að dreifa aeskulýðs- starfsemi borgarinnar meira i hin ýmsu þéttbýlu og mann- mörgu hverfi. B.Æ.R. vill hins vegar sem heild leggja áherzlu á að efla samstarf og kynni hinna ýmsu aðildarfélaga með því að beita sér fyrir æskulýðsdegi og jafn- vel æskulýðsviku, þar sem efnt yrði til samkomuhalds, listkynn inga og - sýninga, sem túlkuðu sem bezt hugsjónir og áhugamál unga fólksins á hverjum tíma. Auk þess yrði aukin og efld fyrirgreiðsla um útvegun fræðslu þátta, fyrirlesara, kvikmynda og kyrrmynda, sem orðið gætu starfsemi hinna ýmsu aðildar- samtaka að liði, og haldin nám- skeið fyrir verðandi foringja og forystumenn. Þing B.Æ.R. taldi nauðsynlegt, að stjórn borgarinnar notfærði sér þessi samtök æskulýðsins og styrkti því frjálst framtak B.Æ. R. til virkrar þátttöku í starf- semi Æskulýðsráðs þess, sem nú starfar. Hér eru framréttar hend ur unga fólksins sjálfs og á- hugasamra manna og kvenna, sem unnið hafa áratugum sam- an að félagsmálum æskimnar í - Utan úr heimi Framhald af bls. 12. Að fundinum loknum gaf Duvalier sér bíma til þess að ræða við sendinefnd Ráðs Ameríkuríkj ann.a. Fóllst hann á að létta umsátrinu um sendi- róð Dómin/íkanska lýðveldis- ins og leyfa Haitibúunum, oem þar höfðu leitað hælis, að - Ih/verfa úr landi. Eins og skýrt hefur verið frá kærði Duvalier stjórn Dóminiikanska lýðveldisins fyrir örygigisnáði Sameinuðu þjóðanna. Segir í kærunni að Dóminíkanska lýðveRlið und- irbúi innráis í Haiti og ógni öryggi iandisins. Hundgó kom upp um senditækíð Washington, 10. maí NTB-Reuter. ÞAÐ bar við fyrir skömmu í ónafngreindu landi, þegar einn af sérfræðingum banda- risku leyniþjónustunnar var að rannsaka íbúð hermála- fulltrúa bandaríska sendiráðs ins i landinu, að hundgá kom upp tun senditæki, er komið hafði verið fyrir undir park- etgólfi í horni einnar stof- unnar. Var með tæki þessu hægt að nema og senda öil samtöl er fram fóru í herberg- inu. Frá þessu er skýrt í skýrslu sem bandaríska utanríkisráðu neytið birti í dag. Segir það að sérfræðingurinn hafi verið önnum kafinn við verk sitt er hann tók eftir því að hundur hermálafulltrúans gelti ákaft í einu horninu, en ekkert var þar sjáanlegt, er gæti valdið þessum viðbrögðum. Er sér- fræðingurinn gekk að til þess að athuga málið nánar sá hann, að raskað hafði verið nókkrum flísum parketsins í gólfinu. Samstundis var gólf- ið brotið upp og kom þá í Ijós tæki með elekrónískum hlust- unarútbúnaði, sem settur var í gang með hljóðmerkjum með hærri tíðni en mannlegt eyra nemur. Hinsvegar hefur hund urinn numið hljóðmerkin og þau verkað á hann truflandi eða e.t.v. sársaukafullt. Samkomur Hjálpræðisherinn Sunnud. kl. 11: Helgunar- samkoma. Kl. 2: Sunnudaga- skólL Kl. 4: Utisamkoma. Kl. 8.30: Hjálpræðissamkoma. Kaptein Höyland og frú stjórna samkomum dagsins. Allir velkomnir. borginni og eru þar reynslunni ríkari um allt, sem æskulýðsmál snertir. Taldi þing þetta einsætt, að bandalagið nyti framvegis styrks frá borg og ríki til eflingar starfsemi sinni og fól verðandi stjórn að athuga um slíkan fjár- hagsgrundvöll í náinni framtíð. En hingað til hafa samtökin eng- an opinberan stuðning hlotið nema þá óbeinlínis, og hefur fjárþröng því mjög torveldað allt starf B.Æ.R. Núverandi stjórn B.Æ.R. er þannig skipuð: Sr. Árelíus Níelsson, form., Sr. Ólafur Skúlason, ritari, Ingi B. Ársælsson, féhirðir, Ólafur Pálsson, varaform., Gísli Gunn- arsson, meðstj., Gullveig Sæ- mundsdóttir, meðstj. og Ragnar Kjartansson, meðstj. (Fréttatilkynning frá B.Æ.R.) E. Power Biggs heldur orgeltónleika hér Á SUNNUDAG er væntanleg- ur hingað til lands hinn kunni bandarísk'i organleikari, E. Power Biggs. Kemur hann hingað á veg- um Tónlistarfélagsins og mun halda tvenna tónleika fyrir styrktarmeðlimi þess í Dóm- kirkjunni, þriðjudag og miðviku- dag 14. og 15. þ.m., en auk þess er ákveðið að hann efni til tón- leika á Akranesi, Akureyri og í V estmannaey j um. Óþarft er að kynna E. Fower Biggs í löngu máli fyrir íslenzk- um tónlistarunnendum. Hann hefur verið hér tvívegis áður, bæði árið 1954 og 1955, og hélt þá tónleika við góðan orðstír, bæði í Reykjavík og víðar. Marg ir merkustu tónlistargagnrýnend- ur vestan hafs telja Biggs fremst an í flokki merkustu núlifandi organleikara Bandaríkjanna, og það er m.a. haft til marks um vinsældir hans að í mörg ár í röð hefur hann verið talinn vinsæl- asti organleikari Bandaríkjanna í skoðanakönnun, sem tónlistar- Yíirlýsing Alþýðuflokkurinn hefur með bréfi dags. í dag, til- kynnt ýfirkjörstjórn Reykja- víkurkjördæmis, að misritazt hafi heimilisföng þriggja frambjóðenda á framboðslista flokksins við alþingiskosninig- arnar, sem fram eiga að fara' 9. júní n.k., en þau eiga að vera sem hér segir. Nr. 5. Páll Sigurðsson, tryggingayfirlækn ír, Eskihlíð 10. Nr. 8. Pjetur Stefánsson, prentari, Karla- götu 6. Nr. 24. Jóhanna Egils- dóttir, húsfrú, Lynghaga 10. Alþýðuflokknum heimilast að láta birta yfirlýsingu þessa í dagblöðunum, Lögbirtinga- blaðinu og Ríkisútvarpinu. Reykjavík, 10. maí 1963 Yfirkjörstjórn Reykjavík urkjördæmis. Kristján Kristjánsson, (sign), Páll Líndal (sign), Sveinbj. Dagfinnsson (sign), Eyjólfur Jónsson (sign), Þorvaldur Þór arinsson (sign). tímaritið Musical America hefur efnt til árlega meðal 850 gagn- rýnenda í Bandaríkjunum og Kanada. Á efnisskránni á tónleikum Biggs hér, eru einungis verk eftir Jóhann Seb. Bach. Síðan heldur hann organtónleika í kirkjimni á Akranesi n.k. föstu dag, 17. maí, kl. 9 e.h., á Akur- eyri, sunnudaginn 19. maí, og að líkindum í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 21. maL Cc ' STtAK ÞINNER StEak Asven á*PL?a. Aðalfundur Kaupfélags Hafnarfjarðar verður haldinn mánu- daginn 13. maí kl. 8,30 s.d. í Alþýðuhúsinu. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Athugið að þetta er síðasta fundarboð. Stjórn Kaupfélags Hafnfirðinga. Viðtalstími minn í Kópavogsapóteki Álfhólsvegi 9 virka daga kL 2—4 nema laugardaga kl. 11—12 sími 37922. KJARTAN J. JÓHANNSSON, héraðslæknir. Heima Miklubraut 68 sími 16852. Suðurlandsbraut! Röskan ungling eða krakka vantar nú þegar til að bera Morgunblaðið til kaup- enda við Suðurlandsbraut ( Herskálahverfið) Gjörið svo vel að tala strax við af- greiðsluna eða skrifstofuna. sími 22-4-80.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.