Morgunblaðið - 26.05.1963, Side 5
MORCV N nr. AÐIÐ
5
Sunnudagur 26. maí 1963
FYRSTA hefti Veiði-
mannsins er nvkomið
út. Meðal þess, sem rit-
ið flytur að þessu sinni
er þessi afbragðs veiði-
saga, sem birtist hér á
eftir.
ÞAÐ er kunnugt, að margir
íslenzkir læknar eru góðir
stangaveiðimenn. „Veiðipadd-
an“ svonefnda hefur borizt
ört út innan stéttarinnar —
einn smitazt af öðrum. Og
samkvæmt einróma áliti þess
ara verndara lífs okkar og
heilsu, má hver hólpinn vera,
sem „veiðisýkilinn" tekur. Þó
munu enn vera til í okkar
landi örfáir læknar, sem ekki
hafa „smitazt", og ennþá færri
sem fullyrða, að þeir séu ó-
næmir fyrir „sýklinum“; en
starfsbræður þeirra telja þó
engan veginn vonlaust, að
þeir bætist í hópinn áður en
varir.
Þótt fyrir nokkuð löng
kynni af Úlfari Þórðarsyni
lækni, hélt sá sem þetta rit-
ar, að hann væri í hópi þeirra,
sem engan áhuga hefðu fyrir
veiðiskap. En þetta rejyidist
herfilegur misskilningur.
Einn góðan veðurdag, þegar
Úlfar átti erindi til mín á
vinnustað, spurði hann mig
upp úr þurru, hvort hann ætti
ekki að segja mér veiðisogu.
Mig rak í rogastanz og ég
sagði brosandi við hann:
„Jæja, ert þú nú líka stanga-
veiðimaður?"
„Því skyldi ég ekki geta
verið það eins og hinir?“
svaraði Úlfar, og við því átti
ég auðvitað ekkert svar. Ég
stóð einhvernveginn í þeirri
meiningu, eins og^ sagt er á
vondu máli, að Úlfar hefði
aldrei átt við stangaveiði. En
til þess að segja eitthvað, svar
aði ég: „Nú, segðu mér þá
veiðisöguna."
„Já, hún er þannig, að fyrir
8 eða 9 árum var ég í veiði-
ferð norður í Vatnsdalsá með
Kjartani Sveinssyni skjala-
verði, sem er kunnur og
reyndur laxveiðmaður. Við
vorum staddir við svonefndan
Ásbrekkuhyl, sem er góður
veiðistaður, eins og margir
vita, sem hafa veitt í Vatns-
dalsá. Ég var eitthvað á und-
an Kjartani að búa mig til
veiða og gekk að hylnum
meðan hann var að fara í
bússurnar. Þegar ég kom fram
á bakkann, kannaðist ég við
mig, því að ég hafði séð
Tryggva Ófeigsson veiða
þarna lax fyrir 6 eða 7 árum.
Ég setti mig í veiðimanna-
stellingar og fór að kasta
flugu, eins og Tryggvi hafði
gert. Ég kastaði nákvæmlega
á sama stað og ég hafði séð
hann gera, og viti menn —
það tók hjá mér lax! Ég þótt-
ist finna að þetta væri vænn
fiskur og fór að þreyta hann
eftir kúnstarinnar reglum.
Laxinn rásaði lítið, en lá nokk
uð þungt í, og eftir dokkra
stund kom Kjartan til mín, og
fannst mér strax nokkur styrk
ur að hafa hann hjá mér.
Ég var með stutta línu og
glerstöng og þorði því ekki
að takast mikið á við laxinn.
Samt leiddist mér að tefja
Kjartan lengi frá veiðunum
og óskaði því að laxinn gæf-
ist upp sem fyrst. Við landið,
þar sem ég stóð, eru talsverð-
ar grynningar, en djúpt við
bakkann hinum megin. Eftir
nokkur þóf tókst mér að koma
laxinum upp á grynningarnar
og leiða hann í áttina til þess
staðar, sem ég hugsaði mér að
landa honum. En á þeirri leið
voru nokkrir steinar upp úr
vatninu; og einhvern veginn
tókst svo til, að öngullinn
losnaði úr honum við þessi
átök. Þegar ég fann að allt
var laust, fleygði ég stöng-
inni og ætlaði að kasta mér
yfir laxinn, en hann varð
fljótari til, og slapp úr greip-
um mér. Ég vildi þó ekki láta
minn hlut, óð fyrst eins langt
og ég komst og stakk mér svo
í dýpið! En þar fann ég engan
lax! Ég svamlaði aftur til
lands, mjög vonsvikinn, tók
upp stöngina og sagði nokkur
orð við Kjartan, sem þá var
að leggja af stað niður með
ánni, til þess að komast yfir
á vaðinu þar skammt fyrir
neðan.
En um leið og Kjartan er
að vaða út í ána, kallar hann
til mín og segir: „Er þetta
laxinn þinn?“ Laxinn lá þarna
rétt við landið hjá Kjartani,
og virtist mjög af honum
dregið. Kjartan gekk í áttina
að laxinum og ætlaði að grípa
hann, þá hörfaði laxinn und-
an út í ána. En þá var ég
þar fyrir og sparkaði honum
á land, en datt ofan á hann
um leið, og báðir veltust þar
um í fangbrögðum. Þetta hef-
ur eflaust verið brosleg sjón,
en til þess að kóróna allt sam-
an marg sparkaði Kjartan í
okkur báða, svo við ultum
svolítið lengra upp á þurrt í
fangbrögðunum! Þegar svo
var komið voru örlög aum-
ingja laxins auðvitað ráðin.
Hann var 18 pund. Segðu svo
að ég sé ekki veiðimaður."
Eftir þessa sögu dettur mér
auðvitað ekki í hug að neita
því!
V. M.
Fangbrögö við iax
Búið er að setja saman fyrstu hlutana. Hér sézt einn veggur-
inn í eldliúsinu með stálvask og eldavél og eldhússkápum.
Hinum megin á veggnum er hluti af baðherberginu.
HER á landi hafa verið byggð
Ihús úr steinsteyptum flekum,
sem aðeins hefur þurft að
reisa á staðnum. Hefur þótt
fljótlegt að byggja þessi hús.
Hins vegar virðist þetta að
eins vera fyrsta sporið í þá
átt, að húsbyggjandinn geti
farið fyrir hádegi og valið sér
lóð, skoðað hús og teikningar
eftir hádegið og flutt inn í
húsið sitt nýbyggt næsta
kvöld.
Það má segja að þetta sé
hægt í Svíþjóð, því verk-
smiðja nokkur þar í landi
hefur hafið framleiðslu á hús
um, sem eru sett saman, ekki
aðeins úr flekum, heldur er
hver hluti hússins fullgerður
leiðslum, ljósastæði, eldavél,
ísskáp, fullinnréttuðu baðher-
bergi, og ekkert vantar nema
lausleg húsgögn.
Húsið er flutt á lóðina £
pörtum á dráttarvögnum,
krani er þegar kominn á vett
vang og lyftir pörtunum hverj
um af öðrum á sinn stað. Und-
ir kvöld kemur flutningabíll
með húsgögnin og um nótt-
ina sefur fjölskyldan í nýju
íbúðinni. Það er ekki einu
sinni málningarlykt.
Þannig lítur baðherbergið út,
þegar húsið hefur verið sett
saman.
Keflavík — Suðurnes Barnapeysur frá kr. 50,00. Barnahosur frá kr. 10,00. Ýmiss barnafatnaður á ótrúlega lágu verði. ELSA, Keflavík. Keflavík — Suðurnes Japanskar bróderaður kven blússur, Crepe hanzkar á telpur, hvítir og mislitir. Hvít terylene-pils á böm og fullorðna. Elsa, Keflav.
Sumarvinna Vantar drenig 13—15 ára á sveitaheimili í Borgarfirði, nú þegar. Þarf að vera vanur. Uppl. í síma 23071. Ungur bóndi óskar eftir ráðskoriu í ná- grenni Reykjavíkur. Tilb. sendist Mbl., merkt: „Ráðs- kona — 5882“.
Keflavík Röskur unglingspiltur á aldrinum 16—18 ára óskast til starfa strax. Létt vinna. Gott kaup. Uppl. í síma 1767. 12 ára drengur óskar eftir einhvers konar atvinnu daglega frá kl. 13. Hefur hjól. Talar Norður- landamál og ensku. Svar í síma 17537.
Athugið! að borið saman við útbreiðsli/ er langtum ódýrara að auglýsa í Morgunblaðinu, en öðrum blöðum. Ef þakið lekur eða er farið að eldast, er Heavy-Duty áburðurinn, sem þéttir og veitir varan- lega vernd. Nokkur afgr.- frestur. Sími 16993- Póst- -hólf 968.
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
HEIMAKJÖR Sólheimum 29-33
Aðeins „model 63“
lærið á nýjan
VOLKSWAGEN
5 manna fjölskyldubifreið.
í sínum stærðarflokki
geur Prinzinn einn
státað af því að bera
435 kg.
Örugg
varahluta-
þjónusta.
FÁLKIINiN HF.
Laugavegi 24 — Reykjavík
Ódýr, en vandaður.
Söluumboð á Akureyri:
Lúðvík Jónsson & CO.
HÚSEIGEND'JR
SIEINGIRÐINGAR
Pantið girðingar tímanlega.
Mörg falleg mynstur af háum og lágum
girðingum fyrirliggjandi.
Sendum út um allt land.
Afgreiðum girðingar samstundis.
MOSAIK hf.
Þverholti 15 — Sími 19860.