Morgunblaðið - 05.06.1963, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.06.1963, Qupperneq 10
16 MORCUNBLAÐIÐ ÍTtgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðs,lstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 65.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 4.00 eintakió. STYRK STJÓRN ¥¥ér í blaðinu í dag eru rakt- ir nokkrir helztu þættir löggjafarstarfs Viðreisnar- stjórnarinnar. Sú stjóm hef- ur að vísu verið svo athafna- söm, að enginn vegur er að rekja allt það, sem gert hefur verið á því kjörtímabili, sem nú er að enda, en lauslegt yfirlit fá menn, ef þeir lesa grein þá, sem hefst á forsíðu blaðsins. Viðreisnarstjórnin tók við gjaldþrotabúi. Svo var komið að lánstraust landsins var gjörsamlega þrotið og fé skorti til kaupa brýnustu nauðsynjavara. — „Vinstri stjórnar“ kerfið var hrunið í rúst og ekki var um annað að gera en byggja upp frá grunni. Viðreisnarstjórnin sneri sér að hinum þýðingarmestu verkefnum. Hún sagði þjóð- inni umbúðalaust, að menn yrðu nokkuð á sig að leggja til þess að reisa við fjárhag þjóðarinnar. Hún mætti mjög harðri andstöðu flokka þeiira, sem voni utan stjórn- ar, en þjóðin tók ráðstöfunum hennar vel og menn bjuggu sig undir það að leggja nokk- uð að sér til þess að reisa við fjárhag þjóðarinnar. Sem betur fer reyndist það svo, þegar fram í sótti, að byrðamar voru léttbærari en Viðreisnarstjómin hafði boð- að og menn höfðu búið sig undir. Þess vegna jukust vin- sældir hennar jafnt og þétt. Stjórnarandstæðingar gerðu tilraun til þess að eyðileggja viðreisnarráðstafanirnar í fæðingu, þegar svikasamning amir voru gerðir og kaup- gjald hækkað svo mjög, að útilokað var, að efnahagslífið fengi staðið undir þeim, þar sem viðreisnin var aðeins á byrjunarstigi og útgerðin fé- vana. Sem betur fór tókst við- reisnarflokkunum að hrinda þesari árás og styrkja við- reisnina á ný. Viðreisnarflokkarnir hafa nú lagt grundvöllinn að þeim stórfelldu framförum, sem unnið er að hvarvetna í þjóð- lífinu og aukast jafnt og þétt. Þeir lýsa því yfir, að þeir muni stjóma áfram á svipað- an hátt og hingað til, ef þjóð- in felur þeim umboð til þess. Menn vita því, hvað þeir kjósa, þegar þeir velja þessa flokka. GEGN SUNDRUNGU rf svo færi, að viðreisnar- flokkarnir misstu meiri- hluta sinn á Alþingi, mundi algjör óvissa ríkja um stjórn landsins og framvindu mála. Ef kommúnistar og Fram- sóknarmenn næðu þingmeiri- hluta saman mundu þeir sjálf sagt mynda samstjóm. Framsóknarmenn segjast hinsvegar ekki keppa að þing meirihluta með kommúnist- um, það sé útilokað að ná því marki. Hinsvegar telja þeir hugsanlegt, að þeir geti bætt við sig tveim þingsætum og kommúnistar haldið sínu þingfylgi. Þannig mundu þeir ná því, sem þeir nefna „stöðvunarvald“, því að meiri hluti stjómarflokkanna er svo naumur að þeim væri um megn að stjórna, ef þeir töp- uðu tveim þingsætum. Það er þetta upplausnar- ástand, sem af því mundi leiða, ef stjórnarandstæðing- ar ykju þingmannatölu sína. Eins og áður segir má hér engu muna. Þess vegna verða menn að gera sér grein fyrir því hvað í húfi er og leggja sig alla fram þá daga, sem eftir eru til kosninga, til að treysta fylgi viðreisnarstjórn- arinnar og forða því, að þeim mikla árangri, sem náðst hef- ur í íslenzkum efnahagsmál- um, verði stofnað í voða. Vinstri stjórnin reyndi að styrkja sig með því að seilast til áhrifa á sem flestum svið- um þjóðlífsins. Hún reyndi að hagnýta samvinnufélögin, verkalýðsfélögin, nefndafarg- anið, uppbætur og bitlinga til þess að afla sér áhrifa, en þjóðin afþakkaði ofstjórnina. Viðreisnarstjórnin fór þver öfugt að. Hún fól borgurun- um síaukið frjálsræði til þess að ráða sjálfir málefnum sín- um. Þess vegna hefur hún orðið sterkari með hverjum deginum, sem liðið hefur. — Hún takmarkaði völd sín, en stjómaði vel á þeim sviðum, sem að réttu lagi eiga að heyra undir stjórnmálamenn í lýðræðisþjóðfélögum. JÓHANNES PÁFI Nú þegar Jóhannes páfi XXIII. er látinn hljóta allir kristnir menn í hvaða söfnuði sem þeir annars standa að renna huganum yf- ir líf og störf þessa merka kristna leiðtoga. Enda þótt hann hafi ekki stjómað ka- þólsku kirkjunni nema til- tölulega stuttan tíma, hefur hann skilið eftir sig djúp spor og starfs hans verður lengi minnzt. Hann var frjálslynd- ur páfi og friðarsinni og lagði kapp á bræðralag allra þjóða. Miðvikudagur 5. júní 1963 ur mytm * FRÆNDXJR vorir, Svíar, gera sér vonir uto að hljóta þá uinibun eftir harðan vetur, að sumarið verði sólrilkjt og gott. Að undanfömu hefur blásið byrlega í þá ábt, að hlýjan og sólskinið farið vaxandi dag frá degi og fólikið flykkzt þús- unaum saman til baðstrand- anna. Á hinn bóginn hefur ekki enn tekizt að fullu að vinna bug á bólustóttinni, sem upp kom í Stokkhólimi fyrir skemmstu. Þeir fjötonörgu Stokkhótondbúar, — uim það biil hállf milljón talsins —, sem bólusettar voru gegn veikinni, hafa verið varaðir stranglega við því, vegna hugsanlegrar smithættu, að synda í atonenn- um sundistöðum, meðan hita- bylgjan stendur yfir. Bólu- setningin sjálif hefur í för með sér vissa hættu, fari fóJlk ekki varlega fyrst á eftir. Stúltoan á myndinni hér að ofan hefur ljóslega látið aliar viðvaranir sem vind um eyru þjóta og baðar sig i sólargeisl- unum þrátt fyrir bólusetning- una. Á neðri miyndinni, sem teto- in var í atfgreiðislu Flugfélags íslands s.l. föstudag, sjáum við hinsvegar nokkra landa okk- ar, sem voru að koma frá Sví- þjóð. Óli B. Hannesson, lækn- ir var tilbúinn að taka á móti þeim með sprautuna og urðu þeir, sem ekiki gátu sýnt gilt bóluisetningarvottorð, að gang ast undir bólusetningu, áður en þeir fengju að halda lengra. [ann kappkostaði að slökkva læður sundrungar og óvin- ttu og gerði líf sitt og starf ð fordæmi fyrir þá, sem ílka eiga boðskap Krists á irðunni. Hann reis úr fátækt 1 mikilla valda og virðingar, n var alltaf hinn sami góð- :gi og kærleiksríki leiðtog- m, þegar hann hafði verið osinn yfirvald kaþólsku irkjunnar. Við lútherstrúarmenn stöldr m við minningu þessa gegna páfa. Aðalhugsjón hans var sú, eins og kirkjuþingið ber órækastan vott um, að sam- eina eftir beztu getu kristna menn, hvar sem þeir búa í heiminum og fylla þá djúpum skilningi hvern á annars leið- um. Þetta starf hljóta allir kristnir menn að virða og þakka. Er vonandi að eftir- maður Jóhannesar XXIII. feti dyggilega í fótspor hans. Kristnir menn eiga við marga sameiginlega óvini að etja, ekki sízt þá guðleysingja sem kallast kommúnistar. Gegn þeim þurfa þeir að standa eins og einn maður. Leiðirnar eru að vísu margar, en tak- markið hlýtur að vera eitt: boðskapur Krists um kær- leika á jörðu. Með lífi sínu sýndi Jóhann- es páfi XXIII. hvernig við eig um að gera kærleiksboðskap kristinnar trúar að leiðarljósi og lifandi staðreynd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.