Morgunblaðið - 05.06.1963, Side 6

Morgunblaðið - 05.06.1963, Side 6
26 MORGUNBLAÐ1Ð Miðvikudagur 5. júní 1963 reyndust þannig, sem allir með viti vissu, að ekki einungis al- menningur græddi heldur líka ríkissjóður, þá hrópaði Tíminn um tollaálögur ríkissjóðs. Hús- mæður í Reykjavík taka því þess veg»a með þolinmæði, þó að íslenzkar matvörur hækki, því að þeim finnst, að íslenzk ir hændur megi líka lifa. En Tíminn virðist telja það óþarfa. Hvar er nú móðuharðindasöng urinn úr Þingeyjarsýslu? • FRAMSÓKN OG REYKJAVÍK Annars vita allir hvernig Framsóknarflokkurinn hefur alltaf verið í garð Reykvíkinga. Má til dæmis minnast þess á kreppu- og atvinnuleysisárun- um fyrir stríð, þegar þeir höfðu oddavaldið í niðurjöfnunar- nefnd, og lögðu svo á togaraút- gerðina, að þeir, sem gátu, flýðu með skipin úr bænum. Á þeim tíma þurfti bara þrjá mánuði til að vinna sér sveitfesti, og þá var þeirra maður bæjarstjóri úti á landi, og hann sendi fleiri fjölskyldur á bæjarins reikning til Reykjavíkur, kostaði þá á gjaldkeri Tímans kvittaði og varðskipið Þór borgaði. • VORU Á MÓTI RAF- VÆÐINGU SVEITANNA Einu sinni rufu þeir til dæmis þing og létu kjósa 12. júní vegna þess að stjórnarand staðan vildi endilega rafvæða sveitirnar, og hlýtur þetta að vera einstakt í veraldarsögunni. Þrátt fyrir þetta og margt miklu fleira sem ég ætla ekki að nefna því það væri í þykka bók þá lifði flokkurinn bara á ranglátri kjördæmaskipun. Þeir ætluðu svo vitlausir að verða, þegar hún var leiðrétt, því að landsmenn máttu ekki einu sinnf hafa kosningarétt lögum samkvæmt. Þegar Framsóknarflokkurinn var búinn að keyra allt í kaf, þá kom stríðið, og peningarmr streymdu inn í landið. Þá vildu þeir alls ekki taka þátt í stjórn armyndun, sennilega af því að eitthvað gott hefði mátt gera með peningana. Þá fengu bænd urnir loksins landbúnaðarráð- herra, sem vildi gefa og gaf þeim margar réttarbætur, sem þeir njóta góðs af enn í dag. Þess vegna finnst mér, að ungir bændur ættu að horfa svolítið aftur í Tímann og þá kjósa þeir ekki Framsóknarflokkinn núna. Til þess er sagan að læra af henni. Húsmóðir". Fjörutíu ár frá stofnun Det danske selskab HEIMDALLUR, félag ungra Sjálfslæðismanna í Reykja- vik, efndi til kosníngafundar ungs fólks í Sjálfstæðishúsinu á iaugardag. Fundurinn var mjög glæsilegur og fjöhnenn- ur. Húsið var þéttsetið áheyr endum, og komust færri að en vildu. Níu ungir Sjálfstæðismenn fluttu ávörp og hvátningar- ræður, og fékk málflutfiingur þeirra góðan hljómgrunn með- al fundargesta. Þá var sýnd kvikmynd, sem tekin var 30. marz 1949, þegar hamslaus kommúnistaskríll gerði árás á helgasta vé þjóðaxinnar, hom stein lýðræðisins, sjálft Al- þingi. Vakti sú kvikmynd mikla og verðskuldaða at- hygli. Þessir töluðu á fundinum: Birgir fsl. Gunnarsson, Bjarai Beinteinsson, Geir Hallgríms- son, Guðmundur H. Garðars- son, Gunnar G. Schram, Pétur Sigurðsson, Ragnhildur Helga- dóttir, Þór Vilhjálmsson og Eyjólfur Konráð Jónsson, sem flutti skýringar með kvik- myndinni. Myndirnar sýna hluta fund argesta. Hernum og svo mátti Reykjávík taka við. Svo rétt á eftir bauð Framsóknarflokkurinn þennan mann fram í Reykjavík, og ætl aðist víst til þess að Reykvík- ingar verðlaunuðu þessa hugul- semi hans með því að kjósa hann. En sem betur fer þá hafa Reykvíkingar alltaf séð fótum sínum forráð. • MISNOTUÐU VARÐSKIP OG RÍKISSKIP Framsóknarflokkurinn var stofnaður fyrir mitt minni, en ég man aftur á móti vel, þegar hann var farinn að stjórna. Þá sneri það að bændunum, að þeir áttu að hokra á smákotum, þar sem þeir gátu aldrei orðið efna lega sjálfstæðir, skulduðu í kaupfélögunum, og fyrir úttekt áttu þeir svo að kjósa Framsókn arflokkinn. Svo var ríkissjóður hafður sem vasapeningur fyrir flokkinn, og varðskipin voru látin transporta ráðherrana og helztu agitatorana hringinn i kringum landið í atkvæðasmöl- un. Skipaútgerð ríkisins var lát in borga undir Tímann og til er mynd af kvittun sem þáverandi Stórglæsilegur Heimdallarfundur f DAG eru Hðin 40 ár frá stofnun félags Dana og danskættaðra manna á íslandi, Det danske sel- skab. Frumkvæðið að stofnun fé- lagsins átti Böggild, fyrsti sendi- herra Dana á fslandi, og hefur markmið þess verið að stuðla að auknum kynnum Dana á íslandi og þjóðanna á íslandi og í Dan- mörku. í byrjun voru félagar um 60 talsins, en eru nú hátt á ann- að hundrað. í fyrstu stjórninni áttu sæti: John Fenger, stórkaup- maður, A. Rosenberg, hóteleig- andi, M. Eskildsen, forstjóri, L. Kaaber, bankastjóri, og Emil Nielsen, forstjóri. f stjórn Det danske selskab eru nú: C. Klein, kjötkaupmaður, V. Strange, verkstjóri, K. Bruun, gleraugnasérfræðingur, frú Rig- mor Magnússon og frú Ebba Jóns son. í dag hafa dönsku sendiherra- hjónin síðdegisboð fyrir félags- menn og í kvöld verður afmælis- hátíð að Hótel Borg, sem þeir stórkaupmennirnir Ludvig Storr, Kornerup Hansen og Sven Jo- hansen hafa undirbúið. Verkefni félagsins hafa verið margvísleg, tekið hefur verið á móti fyrirlesurum og efnt til sam koma félagsmanna. Árlega eru haldnar tvær danskar guðsþjón- ustur á vegum félagsins og hefur séra Bjarni Jónsson, vígslubisk- up, annast þær, og einnig var séra Friðrik Hallgrímsson prest- ur félagsins. Innan félagsins hefur verið hjálparsjóður, stofnaður af Manscher, endurskoðanda, til styrktar Dönum, sem þurft hafa á fjárhagslegri hjálp að halda. Á stríðsárunum starfaði prjóna klúbbur félagsins, sem sendi barnafatnað til Danmerkur þeg- ar hernámi Þjóðverja lauk, og unnu jafnt íslenzkar sem dansk- ar konur að þessu verkefni. í samvinnú við félagið Danne- brog hefur Det danske selskab gróðursett 1500 trjáplöntur á ári í sameiginlegan reit félaganna í Heiðmörk. • MATARVERÐ OG MÓÐUHARÐINDI „Húsmóðir", sem stundum hefur skrifað Velvakanda, send ir þetta bréf: „Eg hafði mjög gaman af því, þegar dagblaðið Tíminn fór með húsmóðurina úr Reykjavík í búðir, og allur matur hafði hækkað þessi ósköp, og mynd var tekin auðvitað í Kjöt og Grænmeti. Eg held, að þétta þurfi ekki að segja húsmæðr- um í Reykjavík. Þetta vita þær. En Tíminn veit ekki, það sem allar húsmæður vita, að kaupið hefur hækkað, og að í fyrsta skipti í sögu landsins hafa orð ið ' stórfelldar tolla- og skatta- lækkanir, svo sokkar, skór, all ur tilbúinn fatnaður og vefn- aðarvara, úr og skartgripir hafa stórlækkað, og barnalíf- eyrir og ellilaun hafa hækkað. Þetta kunna húsmæður í Reykjavík að meta til fjár, en forysta Frámsóknarflokksins hefur trúað á skatta og tolla, enda ætlaði Tíminn af göflun- um að ganga, þegar tollalækk anirnar komu. En þegar þær AEG EIcJq- vélar OG ELDAVELASETT BRÆÐURNIR ORMSSON. Sími 11417.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.