Morgunblaðið - 05.06.1963, Page 8
28
MORGVISBLAÐIÐ
Miðvikudagur 5. júní 1963
SJÓMANNADAGURINN var
haldinn hátídlegur í 26. sinn á
2. í hvítasunnu. í Reykjavík voru
hátíðahöldin mjög fjölbreytt og
þúsundir manna tóku þátt í
þeim á einn eða annan hátt. —
Veður var sæmilegt fyrrihluta
,'dags, en spilltist er á daginn leið.
Hátíðahöldin hófust kl. 9.30
um morguninn, en þá var afhjúp-
uð höggmynd af sjómanni við
Fiskiðjuver Júpiters og Marz að
Kirkjusandi. Höggmyndina létu
útgerðarfyrirtækin Júpiter hf.
og Marz hf. gera, en hún táknar
sjómann sem kemur af hafi með
sjópoka sinn og fiskspyrðu. —
Myndina gerði Jónas Jakobsson.
Þess var óskað, að afhjúpunin
færi fram á vegum Sjómanna-
dagsráðs og hófst hún með því
að Lúðrasveit Reykjavíkur lék.
Halldór Jónsson, loftskeytamað-
ur, flutti stutt ávarp og frú Her-
dís Ásgeirsdóttir, kona Tryggva
Ófeigssonar, afhjúpaði högg-
myndina.
Sjómannaguðsþjónusta hófst í
Biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson, minnist drukknaðra sjómanna af svölum Alþipgishúss-
ins. — Myndirnar tók Sv. Þ.
f unglingakeppninni sigraði A-
sveit Æskulýðsráðs Reykjavíkur,
KAFFIVEITINGAR
OG SKEMMTANIR
Um daginn önnuðust sjómanna
konur kaffiveitingar í Sjálfstæðia
húsinu og Slysavarnaríélagshús-
inu við Grandagarð. Allur ágóði
rennur til jólaglaðnings vist-
manna að Hrafnistu. Fjöldi
manna drakk kaffi hjá konunum
um daginn.
Sjómannadagsráð gekkst fyrir
skemmtunum um kvöldið i
Glaumbæ, Ingólfscafé, Breið-
firðingabúð, Silfurtunglinu, Sjálf
stæðishúsinu og Súlnasal Hótela
Sögu.
í Súlnasalnum var m.a. efnt
til skyndihappdrættis og ágóð-
inn, 20—30 þúsund krónur, renn-
ur til styrktar sumardvalarheim-
ilis fyrir sjómannabörn.
Um daginn voru að venju seld
mepki dagsins og Sjómannadags-
blaðið. Framkvæmdastjóri sjó-
mannadegsins var Geir Ólafsson
loftskeytamaður.
Þúsundir íóku þáíí í hátíðahöldum sjómanna
Laugarásbíói kl. 10.30 árdegis.
Prestur var séra Óskar Þorláks-
son, en söng stjórnaði Gunnar
Sigurgeirsson. Guðsþjónustunni
var útvarpað.
SAMKOMA Á AUSTURVELLI
Klukkan 2 síðdegis hófst sam-
koma á Austurvelli. Hafði fánum
sjómannafélaganna verið komið
þar fyrir svo og íslenzkum fán-
um. Lúðrasveit Reykjavíkur lék
sjómanna- og ættjarðarlög í
hálfa klukkustund áður, en úti-
hátíðahöldin þar hófust.
Biskup íslands, herra Sigur-
björn Einarsson, minntist sjó-
manna sem drukknað hafa og
Guðmundur Guðjónsson, óperu-
söngvari, söng tvö lög með und-
irleik Lúðrasveitar Reykjavíkur,
sem Páll Pampichler Pálsson
stjórnaði. Um svipað leyti var
blómsveigur lagður á minnis-
merki Óþekkta sjómannsins í
Fossvogskirkjugarði.
Emil Jónsson, sjávarútvegs-
málaráðherra, fulltrúi ríkisstjórn
arinnar, flutti því næst ræðu,
sem fjallaði fyrst og fremst um
hina miklu uppbyggingu skipa-
stóls íslendinga um þessar mund
ir svo og um öryggismál sjó-
manna.
Baldur Guðmundsson, útgcrð
armaður, talaði af hálfu útvegs-
manna, rakti hann sögu útgerð-
arinnar og þakkaði sjómönnum
unnin störf.
Garðar Pálsson, stýrimaður,
talaði af hálfu sjómanna og
ræddi aðallega um öryggis- og
slysavarnarmál, en 26. sjómanna-
dagurinn var helgaður þeim mál-
um.
Þessu næst afhenti Pétur Sig-
urðsson, formaður Sjómannadags
ráðs, verðlaun og heiðursmerki
(sjá annars staðar í blaðinu).
Að lokum söng Guðmundur
Guðjónsson með undirleik Lúðra
sveitar Reykjavíkur, sem einnig
lék milli dagskráratriða.
RÓÐRARKEPPNI Á HÖFNINNI
Kappróður hófst á Reykjavík-
urhöfn klukkan um 3.45 síð-
degis. Níu róðrarsveitir tóku þátt
í keppninni, sem fór fram í þrem
flokkum, karla, kevnna og ungl-
inga.
Fyrstu verðlaun hlaut sveit vb.
Guðmundar Þórðarsonar, sem nú
sigraði í 4. sinn í röð í róðrar-
keppni Sjómannadagsins. Hlaut
sveitin lárviðarsveig og Fiski-
mann Morgunblaðsins.
Önnur verðlaun hlaut sveit vb.
Hafþórs og féll í hennar skaut
June Munktell bikarinn.
Tvær sveitir tóku þátt í róðrar
keppni kvenna, frá frystihúsinu
ísbjörninn hf. og Fiskiðjuveri
Bæjarútgerðar Reykjavíkur. —
Sveit BÚR sigraði og hlaut bikar,
sem gefinn var af ísbirninum hf.
Frú Herdís Ásgeirsdóttir afhjúpar höggmyndina af sjómannin
iim ^5 Fiskverkunarstöð Júpiters og Marz, Kirkjusandi.
Sveit vb. Guðmundar Þórðarsonar sigraði nú í 4. sinn í röð í róðrarkeppninni og hlaut lárvið-
arsveiginn og Fiskimann Morgunblaðsins.
Tvær kvi-nnasveitir kepptu í róðri og sigraði sveit Fiskiðjuvers Bæjarútgerðar Reykjavíkur og
hlutu bikar, sem ísbjörninn hf. hefur gefið.
Hátíöahöld sjömanna í blíð-
skaparveðri úti um land
BLÍÐSKAPARVEÐÍJR var á
sjómannadaginn víðast hvar á
lamdinu, fyrir norðan, hiti og
sumarblíða. Fréttaritarar hafa
símað eftirfarandi frásagnir af
hátiðahöidum í heimabyggð
sinni:
25. sjómannadagurinn
á Akureyri
Akureyri, 4. júní. — Sjómanna
dagurinn var hátíðlegur haldinn
í 25. sinn hér á Akureyri í steikj-
andi sólarhita og sumarblíðu.
, Komst hitinn upp í 25 stig um
tíma. Skip í höfninni voru prýdd
fánum og skrautveifum, fánar
blöktu á stöngum um allan bæ,
og fólk var í hátíðaskapi.
Kl. 9.30 hófst róðrarkeppni á
pollinum. Fyrst kepptu tvær
sveitir drengja úr Æskulýðsfé-
lági Akureyrarkirkju, síðan 6
sveitir landmanna. Þar sigraði
sveit Slippstöðvarinnar. Næst
kepptu sveitir sjómamna frá Ak-
ureyri, Árskógsströnd, Dalvík og
Grenivík, og bar sveitin af Ár-
skógsströnd sigur af hólmi. Loks
kepptu 6 sveitir skipshafna og
sigraði sveit Gylfa II.
Sjómannamessa hófst í Akur-
eyrarkirkju kl. 1.30. Sr. Birgir
Snæbjörnsson predikaði. Kl. 2.30
hófst svo útisamkoma við sund-
laugina og sótti hana geysilegur
mannfjöldL Ekki sá þar vín á
nokkrum mannL Lúðrasveit Ak-
ureyrar lék. Bæjarstjórinn,
Magnús E. Guðjónsson, flutti
ræðu, Karlakór Akureyrar söng
undir stjórn Áskels JónSsonar,
og Jóhann ögmundsson söng
gamanvisur.
Framh. á bls. 35