Morgunblaðið - 05.06.1963, Síða 13

Morgunblaðið - 05.06.1963, Síða 13
Miðvikudagur 5. júní 1963 MORGVlSJiLAÐlÐ 33 Frarnikvæmdum á að vera lokið í árslok 1966 Forseti leggur hornsteininn- S.l. laugardag lagði^ forseti fslands, herra Ásgeir Ásgeirs- son, hornstein að nýrri lög- reglustöð hér í bæ, að við- stöddum fjölda gesta, þar á meðal ráðherrum og hæsta- réttardómurum. Athöfninni stjórnaði Sigurjón Sigurðs- son, lögreglustjóri, og skýrði hann m.a. frá því, að lóð sú, sem lögreglan hefur nú fengið til umráða á svæðinu milli Hverfisgötu, Snorra- brautar, Skúlagötu og Rauð- arárstígs sé um 7500 fermetr- ap að stærð. Lögreglustöðin nýja verður byggð í þremur álmum og sagði lögreglustjóri, að í þessari nýbyggingu mundi starfsaðstaða lögregl- unnar gjörbreytast frá því sem nú er. Þar verður hægt að skipuleggja starfið á mun hagkvæmari hátt en núver- andi húsnæði leyfir. Er óhætt að segja að hér sé um að ræða mikið framfaramál, sem í senn mun stórbæta allan að- búnað lögreglunnar og auka öryggi íbúa landsins. Gert er ráð fyrir að bygg- ingarframkvæmdum ljúki 1 árslok 1966. Að ræðu lögreglustjóra lok inni afhenti hann Erlingi Páls syni, yfirlögregluþjóni skjal úr pergamenti, sem á hefur ritað Guðmundur Hermanns- son lögregluþjónn, og er það með ýmsum upplýsingum varðandi byggingu hinnar nýju lögreglustöðvar. Skjal þetta var sett í hylki, sem síðan var innsiglað og lagt í hornstein. Þegar forseti íslands hafði lagt hornsteininn flutti hann stutt ávarp og sagði m.a., að hiér yrði fullnægt þörf lög- regluliðsins og engu að síður þegnanna sjálfra. Að því búnu flutti Geir Hallgrímsson borgarstjóri á- * varp og fagnaði þeim áfanga sem náðst hefur, en lögreglu- stjóri þakkaði gestum kom- una og ræðumönnum hlý orð í garð lögreglunnar. Að lok- um söng lögreglukórinn „ís- land“ eftir Sigurð Þórðarson. Að lokinni athöfninni í hinni nýju lögreglustöð bauð dómsmálaráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, gestum í Hótel Sögu. Þar voru til sýnis teikn ingar af hinni nýju lögreglu- stöð og líkan hennar. Vakti hvorttveggja athyglL Við það tækifæri flutti dómsmálaráð- herra stutt ávarp og sagði m.a., að hér á landi, eins og sumsstaðar annars staðar, liti fólkið ekki á það sem ögrun eða ógnun við írelsi þess, þegar bætt væru skiíyrði lögreglunnar. Það sýndi bezt vinsældir hennar að allir væru sammála um, að nauðsynlegt hefði verið að reisa hina nýju lögreglustöð. ★ AÐAIXÖGREGLUSTÖÐ í REYKJAVÍK. Lögreglustöðin verður byggð á lóð, sém borgarstjórn Reykjavíkur hefir úthlutað til þeirra nota á svæðinu milli Hverfisgötu, Snorrabrautar, Skúlagötu og Rauðarárstígs. Lóðin er um 7500 m2 að stærð. Aðkeyrsluæðar eru frá Rauðar árstíg og Skúlagötu, bifreiða- stæði um 130, en aðalinpgang- ur fyrir almenning frá Hverf- isgötu og Snorrabraut. Lögreglustöðin verður hyggð í þremur álmum með- fram Hverfisgötu og Snorra- braut. Flatarmál hverrar álmu við Hverfisgötu er 623 m2 og 566 m2, en álmu við Snorrabraut 467 m2. Kjallari er undir allri byggingunni, auk fjögurra hæða í aðalálmu við Hverfisgötu, en tveggja hæða í hinum álmunum. Rúm. mál lögreglustöðlvarbygging- arinnar auk fangageymslu er um 19000 m3. Á uppdráttum er gert ráð fyrir þeim mögu- leika, áð byggðar verði tvær og hálf hæð öfan á aðal- álmuna við Hverfisgötu síðar og verður byggingin þá að rúmmáli 25388 m2. f kjallarahæð verður raf- spennistöð, loftræstingaher- bergi, aðstaða fyrir húsvörð, skjalageymslur, tækja- og fatageymslur lögreglumanna, böð og snyrtiherbergi, birgða- geymslur, geymslur týndra muna, læknisherbergi og mót tökuherbergi vegna -fanga- geymslu á 2. hæð Snorra- brautarálmu. Meginhluti fyrstu hæðar er ætlaður fyrir starfsemi hinn- ar almennu löggæzlu og um- ferðarmáladeildir. Snorra- brautarmegin verða yfir- heyrslu- og skýrsluherbergi, fyrirskipunarsalur, sem jafn- framt verður kaffistofa, lítið eldhús, bókaherbergi, fataher- bergi lögreglumanna og dóm- araherbergi. Við Hverfisgötu verður almenn afgreiðsla (varðstofa), fjarskiptaþjón- usta, skrifstofur varðstjóra og yfirvarðstjóra, setustofa lög reglumanna, slysa- og umferð- armáladeildir, afgreiðsla öku skírteina, ökutækjaskrár o.fl., umferðardómstóll og kennslu salur fyrir almenning í um- ferðarmálum. Á annarri hæð Snorrabraut arálmu verður fangageymsla, en við Hverfisgötu ta-tkni- deild, deildir rannsóknarlög- reglu, kvenlögregla, útlend- ingaeftirlit og almenn skrif- stofa lögreglustjóraembættis- ins. Á þriðju hæð (eyetri álma við Hverfisgötu) verða skrif- stofur lögreglustjóra, fulltrúa og yfirlögregluþjóns, funda- herbergL vélritun, skjalasafn og skýrsludeild. Á fjórðu hæð verður lög- regluskóli og lögreglusafn, matsalur o.fl. Uppdrætti að lögreglustöð- inni hafa gert Hörður Bjarna- son, húsameistari ríkisins, og Gísli Halldórsson, húsameist- ari. grunngröft annaðist Almenna byggingafélagið h.f., en fjar- skipta. og rafmagnsuppdrætti verkfræðingarnir Jón Á. Bjarnason og Jón Skúlason. Verksamningur um að gera bygginguna fokhelda- hefir verið gerður við Verklegar framkvæmdir h.f., og skal þvi verki lokið á miðju sumri 1964. Pípulagningar vegna fjarskipta og rafmagns annast Volti h.f. Gert er ráð fyrir, að bygg- ingarframkvæmdum verði lokið í árslok 1966. RÆÐA LÖGREGLUSTJÓRA. Herra íorseti íslands. Hæstvirtu ráðherrar. Virðulegu gestir. Mér er það mikil ánægja að bjóða ykkur öll velkomin til þeirrar athafnar, sem hér fer fram í dag, er lagður verður hornsteinn að nýrri aðallögreglustöð í Reykjavík. Bygging sú, sem hér rís af grunni, mun marka tímamót í sögu löggæzlumála hér á landi. Lögreglan í Reykjavík hefir um alllangt árabil búið við ófullnægjandi húsakost, sem mjög hefir háð eðlilegri þróun í starfsemi hennar. Inn- an tíðar mun hún hinsvegar flytja aðalstöðvar sínar á þennan stað í húsakynni, sem hæfa löggælustarfi í borg með ört vaxandi íbúatölu og athafnalífi. Stjórnarvöldum landsins hefir lengi verið ljós nauðsyn þess að bæta gagngert úr húsnæðismálum lögreglunnar. Hefir Alþingi meðal annars sýnt vilja sinn í þeim efnum með því að samþykkja fjár- veitingar til byggingar lög- reglustöðvar í Revkjavik á fjárlögum nokkurra undan- farinna ára. Byggingarundirbúningur hefir af eðlilegum ástæðum tekið langan tíma, enda um vandasamt verk að ræða, sem margir sérfræðingar hafa 'þurft að fjalla um. Hinar fyrstu byggingar- framkvæmdir vegna lögregl- unnar hófust haustið 1959, er dómsmálaráðherra veitti heim ild til að byggja fullkomið bifreiðageymsluhús og verk- stæði á athafnasvæði við Síðu múla, er borgarstjórn hafði úthlutað lögreglunni til af- nota. Var þeirri byggingu, sem er 330 fermetrar að flat- armáli, lokið hálfu ári síðar, eða í marzmánuði 1960. Snemma á því sama ári samþykkti ríkisstjórnin sam- kvæmt tillögu dómsmálaráð- herra: 1. Að hraða undirbúningi við byggingu aðallög- reglustöðvar og hefja framkvæmd að honum loknum. 2. Að byggja fangageymslu og hverfisstöð á lóð lög- reglunnar við Síðumúla. Var hafizt handa um bygg- ingu fangageymslunnar 1. nóvember 1960 og henni lokið haustið 1961. Er það hús 360 ferm. að flatarmáli, vönduð bygging, sem fullnægir kröf- um þeim, sem gera verður til fangelsa' nú á dögum. Kostn- aður vegna byggingarinnar var greiddur að jöfnu úr rik- issjóði og borgarsjóði Reykja- víkur. Meðam á byggingu fanga- geymslunnar stóð var undir- búningi uppdrátta aðallög- Framhald á bls. 37. Líkan að nýju lögreglustöðinni. Burðarþolsútreikninga og Lögreglustjóri Sigurjón Sigurðsson ræðir við forseta ísiands og Erling Pálsson, yfirlögreglu- þjón. Forsetaritari, Þorleifur Thorlacius, stendur álengdar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.