Morgunblaðið - 05.06.1963, Blaðsíða 21
V O R G V y B l "4 Ð 1 0
'41
Gullfoss í fyrstu siglingu eftir brunann
IVibl. ræðir við Kristján Aðalsteinsson, skipstjóra
í salinn og lítil skrifstofa sameinuð honum (til vinstri). Veggi r eru fóðraðir grænu og svört leðurhúsgögn notuð. I>essi sam-
setta mynd gefur góða hugmynd um salinn.
Fréttamaður
Á HÁDEGI í dag, er áformað
að flaggskip islenzka kaupskipa-
flotans Gullfoss leggi frá bryggju
í Kaupmannahöfn í fyrstu sigl-
ingu sina eftir brunann mikla í
skipinu um miðjan marz. Við-
gerð skipsins má að heita lokið
og er nú aðeins eftir að fullreyna
vélar og sigiingartæki, en ætlun-
in er að gera það með sigling-
unni í dag. Að öllu óbreyttu
leggur skipið af stað til Leith
og Reykjavíkur á hádegi n.k.
laugardag.
Áður en bruninn varð í Gull-
fossi hinn 18. marz s.l. hafði ver-
ið gert ráð fyrir að skipiá héldi
frá Kaupmannahófn 23. apríl,
þ.e.a.s. að þá yrði lókið hinni
umfangsmiklu endurnýjun, sem
ákveðið hafði venð að gera á
skipinu. Töf sú, sem bruninn hef-
ur orsakað, nemur því rúmlega
hálfum öðrum mánuði. Hefur
það að sjálfsögðu komið sér mjög
illa fyrir Eimskipafélagið og
valdið því talsverðum óþægind-
um í sambandi við farþega-
flutning til og frá landinu. Við-
gerðin hefur hins vegar tekið
eins skamman tíma og frekast
gat orðið, að því er Kristján Að-
alsteinsson, skipstjóri sagði tíð-
indamanni Morgunblaðsins í
samtali í Kaupmannahöfn síðdeg-
is í gær.
Salurinn nýr og skínandi
fallegur
„Úr því að þetta þurfti að
koma fyrir á annað borð“, sagði
Kristján, „þá getum við verið
mjög ánægðir með hvernig úr
hefur rætzt. Síðan viðgerðin
hófst hefur verið unnið í skipinu
af fullum krafti bæði daga og
nætur, það var líka mjög gott
að geta fengið gert við skipið
hér á staðnum, enda hefði ekki
verið þægilegt að þurfa að flytja
það mikið til, eins og það var,
allt í sárum. Breytingarnar, sem
gerðar hafa verið á skipinu, eru
eins og kunnugt er talsvert um-
fangsmiklar. Taka þær fyrst og
fremst til reyksalar eða setustofu
á 1. farrými, sem nú hefur verið
stækkuð og færð í enn glæsilegri
og nýtízkulegri búning. í öllum
salnum eru nú svört leðurhús-
gögn af nýjustu gerð, veggir eru
fóðraðir ljósgrænir, nýrri full-
komnari lýsingu hefur verið
komið fyrir í salnum og svo
mætti áfram telja. í sem fæstum
orðum má segja, að salurinn sé
skfnandi fallegur eins og hann
nú er orðinn. Opnað hefur verið
úr vínstúkunni fram í salinn og
lítil skrifstofa, sem áður var sam
einuð honum.
Afturhlutinn alveg uppbyggður
Skipið, þ.e.a.s. afturhluti þess,
hefur að heita má algerlega ver-
ið nýbyggður. Þar teygði eldur-
inn sig hátt upp í siglutrén og
var því ekki um annað að ræða.
Bæði borðsalur og setustofan 2.
farrýmis hafa verið innréttuð
mjög smekklega og sama er að
segja um herbergi farþeganna,
sem eru mun nýtízkulegri en
áður, m.a. nýjar gerðir af koj-
um. Vistarverur matsveina og
þjónustufólks, sem gjöreyðilögð-
ust I eldinum, svo og herbergi
vélstjóra, sem varð fyrir mikl-
um skemmdum af vatni og reyk,
hafa einnig verið endurnýjuð.
Fluttu vélstjórar inn í herbergi
sín aftur nú um helgina, en
þjónustufólkið að mestu leyti í
dag.
Öftustu lestarnar hafa verið
endurnýjaðar algerlega og eiga
að heita nýjar. Hefur verið mik-
ið verk að leggja fiystíkerfið og
ganga frá einangrun í lestum.
„Viðgerðinni er nú lokið“, sagði
Kristján skipstjóri, „Siglingin í
dag verður eins konar reynslu-
ferð. Verður farið út á Sund og
reyndar vélarnar, stýrisútbúnað-
ur og önnur tæki. Vélin var gang-
sett í fyrsta skipti eftir brunann
á iaugardaginn sl., og þótti
ganga með prýði. Standa vonir
til að allt muni reynast í lagi.
Reynslusiglingin mun væntan-
lega standa yfir í nokkra klukku
tíma, síðan verður haldið aftur
til Burmeister og Wain. Á
fimmtudagskvöldið er svo ætl-
unin að reyna að flytja skipið
á sinn venjulega stað við Asia-
tisk Plads og byrja að venda
til heimferðar. Farþegar með
skipinu frá Kaupmannahöfn á
laugardaginn munu verða um
180 talsins og full skipshöfn á
ný“, sagði Kristján Aðalsteins-
son að lokum.
Soðkjarnaverksmiðja Rauðku i smíðum. — Ljósm.: S.K.
Vinnslumöguleikar
fyrir 20 þús. soð-
tonn á Siglufirði
Á Slglufirðl er undirbún-
ingur undir síldarvertíð i full
um gangi hjá Rauðku og Sild-
arverksmiójum rikisins.
Rauðka er að reisa soð-
vinnsluhús, þar sem á að
koma fyrir soðvinnslutækjum
sem eiga að geta unnið úr
soði ca 8000 mál á sólarhring.
Soðkjamatækin og sildarsjóð-
ari, sem smíðað er i Héðni, er
komið, og á leiðinni er stór
suðuketill frá Bandaríkjun-
um.
Sildarverksmiðjur rikisins
eru að stækka soðvinnsluhús
sitt og bæta við tækjum. Er
áætlað að þá verði hægt að
vinna hér úr um 20 þús. málum
af soði á sólarhring. Með
þessu móti er hægt að nýta
hráefnið mun betur. 1 stað
þess að áður fór það í sjóinn,
verður nú unnin úr þvi soð-
kjarni og mjöl. — Stefán.
Bryggp brotnaði
á Raufarhöfn
RAUFARHÖFN, 4. júní — Á
laugandaginn brotnaði hér
bryggja ag fóru 90 tonn af salti
í sjóinn. Var sal'tskip nýfarið,
eftir að hafa losað saltið til Sölt-
unanstöðvarinnar Borgir. Salt
þetta átti að nota til síldarsöltuin-
ar í sumár. Var búið að moka
því upp með vélekóflu ,en þá
brotnaði bryggjan undan þung-
anum. Mun vafal aust kosta marga
tugi þúsunda að gera við hana
— Einar.
Humarveiði
AKRANESI, 4. júná —
Huimarbátarnir hafa landað
hér í dag, samtals 30 leetum af
humar. Humarinn veiða þeir
norður af Eldey. Aflahaestur var
Bjarni Jóthannesson með 9 lest-
ir Fram hafði 7,5. Svanur og
Ásbjörn ÍS 5 lestir hvor og Sæ-
faxi 3,5 lestir. — Oddur.
Kvenfélag Hallgríms-
kirkju vill hækka fram-
lag til kirkjubyggingar
KVENFÉLAG Haillgrimskirkju í
Reykjavík hélt aðalfund sinn
síðastliðinn fimmtudag í Iðnskól
anum.
Á fundinum var meðal annars
rætt um stuðning við byggingu
Hallgrímskirkju, og voru fólags-
konur mjög ánægðar með þá
áætlun, sem gerð hefir verið um
að byggja kirkjuná í áföngum.
Samþykkti fundurinn, að kven-
fólagið skyldi gefa 250 þúsund
krónur til byggingarinnar. Á
liðnu starfsári hafði félagið gefið
kirkjunni nýjan hökul og altaris-
klæði. Með þessu hvorutveggja
minntist félagið tuttugu ára af-
mælis síns. Fyrir fundinum lágu
upplýsingar um gjafir og fram-
lög til Hallgrímskirkju á síðustu
árum, og ennfremur um umsókn
sóknarnefndarinnar til borgar-
stjórnar um aukningu á framlaigi
til Hallgrímskirkju af því fé, sem
úthlutað er til kirkjubygginga í
Reykjavík. Var samþykkt tillaga
um að skora á borgarstjórnina
að verða við ósk sóknarraefndar-
innar og veita srvo mikið fé til
byggingarinnar, sem framast er
magulegt.
Ur stjórn gengu frú Hulda
Norðdahl, frú Petra Aradóttir og
frú Sigríður Guðjónsdóttir. Frú
Sigríður var endurkosin í stjórn
ina, en hinar tvær báðust undan
endurkosningu, en i stað þeirra
voru kosnar frú Guðrún Ryden
og frú Guðrún Guðlaugsdóttir.
Fyrir í stjórninni voru frú Guð
rún Snæbjörnsdóttir, frú Þórunn
Kolbeins Árnason og frú Unn-
ur Haraldsdóttir. — Frú Þóra
Einarsdóttir var endurkjörin for-
maður.
(Frá Kvenféiagi
Halligrímskirk j u).
Alyktun Dags-
brúnar
MBL. hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning:
„Fundur var haldinn í trúnað-
arráði Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar sl. föstudag, 31. maí,
til að ræða samningamál félags-
ins. Skýrt var frá samningavið-
ræðum við atvinnurekendur og
að loknum umrséðum var eftir-
farandi ályktun samþykkt ein-
róma:
„Fundur í trúnaðarráði Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar, hald
inn 31. maí 1963, lýsir undrun
sinni á þeirri afstöðu, sem sam-
tök atvinnurekenda hafa nú tek-
ið til krafna verkamanna um
breytingar á samningum. Fund-
urinn telur neitun atvinnurek-
enda við kröfum verkamanna því
furðulegri þar sem vitað er að
kaupgjald . hefur hvergi nærri
hækkað til jafns við verðlag á
undanförnum árum, til dæmis
hefur verðlag samkvæmt fram-
færsluvísitölu hækkað um 13%
frá þvi í maí í fyrra, er samning-
ar voru síðast gerðir, en kaupið
aðeins hækkað um 8%. Þá er
einnig vitað að þjóðarfram-
leiðslan hefur stóraukizt á þessu
tímabili.
Um leið og fundurinn ítrekar
það álit félagsins, að kaup verka-
manna sé nú algerlega óviðun-
andi, þá varar hann mjög alvar-
lega við afleiðingum þess, að
sjálfsögðum kröfum verkamanna
verði mætt með áframhaldandi
neitun“.