Morgunblaðið - 08.06.1963, Side 1
32 siður (I og II)
&0 árgangur
126. tbl — Laugardagur 8. júní 1963
Irrentsmiðja Morgunb'aðiibis
ÁFORMIN UM „ALÞÝÐUSTJORN“
SANNAST AF GERÐUM OG YFIRLÝSINGUM
FRAMSÚKNARMANN A OG KOMMÚNISTA
HIN ALGJÖRA samstaða
framsóknarmanna með komm
únistum síðustu 7 árin bend-
ir sannarlega til þess, að þeir
mundu taka upp samstarf
með þeim í ríkisstjórn, ef
þessir tveir flokkar næðu
meirihluta á alþingi. Hve
langt þessi samvinna hefur
gengið sýna m.a. orð Einars
Olgeirssonar, er hann ræðir
væntanlega „alþýðustjórn“
framsóknarmanna og komm-
únista og segir: „Þetta er
engin gylling“.
í Rauðu bókinni, leynskýrslum
SÍA, sem nýlega eru komnar út,
er rakin ræða Einars Olgeirs-
sonar, sem hann flutti fyrir
hönd miðstjórnar Kommúnista-
flokksins á þingi hans í marz-
mánuði 1960 — þegar framsókn-
armenn og kommúnistar höfðu
starfað saman í ríkisstjórn í 3
ár og 1 ár til viðbótar í stjórn
arandstöðu — en þar segir m.a.
um samvinnu við Framsóknar-
flokkinn:
„Slík samvinna, ef tækist,
gæti enzt til langs tíma. Við,
Framsókn og Þjóðvörn höfum
nú 45% kjósenda að baki okk-
ar. Slík þjóðfylking gæti náð
hreinum meirihluta í kosn-
ingum á næstunni. Sú stjórn,
sem upp úr því yrði mynduð
yrði að vera alþýðustjórn
eða þróast upp í það. Þetta
er engin gylling“.
Allur ferill framsóknarmanna
síðan þessi uppljóstrun var gerð
um valdatökufyrirætlanir þeirra
og kommúnista og hið nána sam-
starf þeirra sýnir, svo ekki verð-
ur um villzt, að framsóknarfor-
ingjarnir stefna að sama marki.
Forystumenn Framsóknar-
flokksins hafa eindregið hvatt
fylgismenn sína úti um land til
þess að veita kommúnistum allt
það lið, sem þeir mega í bar-
áttu þeirra fyrir varnarleysi
landsins. Þessar hvatningar hafa
borið þann árangur, að komm-
únistum hefur orðið langbezt á-
gengt með þessar kröfur sínar í
þeim kjördæmum landsins, þar
sem framsóknarmenn standa
föstustum fótum, svo sem í kjör-
dæmum þeirra Hermanns Jónas-
sonar, Sigurvins Einarssonar,
Gísla Guðmundssonar og Eysteins
Jónssonar. Kemur þetta fram í
sérstakri trúnaðarskýrslu, sem
framkvæmdastjóri Kommúnista-
flokksins, Kjartan Ólafsson, sendi
forystumönnum flokksins. í
samræmi við þetta hafa fram-
sóknarmenn og kommúnistar nú
skipt með sér bróðurlega völd-
um í hinum svokölluðu „Sam-
tökum hernámsandstæðinga“,
sem hafa það að sínu aðalstefnu-
miði að fá varnarliðið rekið úr
landi og að ísland segi sig úr
varnarsamtökum lýðræðisþjóð-
anna og lýsi yfir hlutleysi sínu.
Það er þess vegna ekki að
ófyrirsynju, að einn af for-
ystumönnum Kommúnistaflokks-
ins, Finnbogi Rútur Valdimars-
son, lýsti því yfir fyrir nokkrum
dögum, eins og skýrt hefur ver-
ið frá, að milli leiðtoga fram-
sóknarmanna og kommúnista
hafi verið „náin og ágæt sam-
vinna“ um utanríkismál. En
Finnbogi segir m.a.:
„Um þetta er mér sérstak-
lega vel kunnugt, því a8 i
þessum málum hefi ég haft
náið og ágætt samstarf við
þá Hermann og Þórarin í
utanríkismálanefnd og á Al-
þiiigi yfirleitt“.
Öll þjóðin þekkir líka hina
sameiginlegu baráttu framsókn-
armanna og kommúnista gegn
lausn landhelgisdeilunnar, sem
samkvæmt yfirlýsingum komm-
únista sjálfra hefur st.efnt að
því „að reka fleyg í NATO“.
Hin sameiginlega b&rátta fram
sóknarmanna og kommúnista
gegn viðleitni Viðreisnarstjórnar
innar til að komá hér á frjáls-
' Framhald á bls. 16.
ÞEGAR „vinstri“ stjórnin
lirökklaðist frá völdum í
árslok 1958 var dimmt yfir
þjóð okkar. Eftir aðeins
þrjú ár í stjórn, hafði flokk
um þeim, sem að henni
stóðu, Framsóknarflokkn-
um, Alþýðubandalaginu og
Alþýðuflokknum tekizt að
koma þjóðinni í öngþveiti
og yfirvofandi hættu. Þjóð
in stóð á barmi hengiflugs-
ins, sagði Hermann Jónas-
son, þegar hann sagði af
sér og stjórnin hljóp frá
þeim vanda, sem hún hafði
skapað. í stjórninni var
heldur ekki samstaða um
nein úrræði.
Eftir eitt kjörtímabil
Viðreisnarinnar, hefur
ekki aðeins tekizt að bægja
hinni yfirvofandi hættu
frá, heldur hefur verið
lagður grundvöllur að
hraðari og öruggari fram-
förum en nokkru sinni.
fyrr.
Viðreisnin hefur skapað
landsmönnum þá mestu
„Vinstri“ stjórnin á ríkisráðsfundi. Frá vinstri: Hannibal Valdimarsson, Hermann Jónasson,
Forseti íslands, Eysteinn Jónsson, Lúðvík Jósefsson og Gylfi Þ. Gíslason. Á myndina vantar
Guðmund 1. Guðmundsson.
hagsæld, sem ísland hef-
ur þekkt.
Hver vill snúa til baka?
Hver vill aftur sama á-
stand og aðsteðjandi
hættu, sem ríkti við af-
sögn „vinstri“ stjórnarinn-
ar?
Aldrei aftur vinstri stjórn.
Viöreisnin tryggir vefsæld okkar X-D